Morgunblaðið - 09.06.2007, Side 28
tíska
28 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Málmlitir eins og silfur,brons og kopar voruáberandi á tískusýning-arpöllunum í London
og París fyrir sumarið,“ segir Sig-
urbjörg Arnarsdóttir förðunarfræð-
ingur sem farðaði fyrirsætu með
nokkrum af þeim litatónum sem nú
eru í tísku. „Hin svokallaða „smo-
key“ förðun er alltaf vinsæl og við-
eigandi en á sumrin, þegar kvöldin
eru björt eins og hér á landi, er við
hæfi að hún sé svolítið léttari. Gráu
tónarnir í augnskuggunum henta
mjög vel í aðalhlutverkið á augnlok-
unum, ásamt bleikum tónum, sem
eru áberandi núna á kinnar og varir.
Margir málmlitu augnskugganna
eru sumarlegir því sumir eru jafn-
framt með gliti sem endurkastast
mjög fallega í ljósi, hvort sem er
dags- eða kvöldbirtu. Það sindrar
því á skuggana rétt eins og málminn
sem litir þeirra skírskota til.
„Eftir að hafa sett grunnfarða á
fyrirsætuna með léttum farða setti
ég gráa augnskugga eftir augnlok-
inu og undir augnhvarmana.“
Sigurbjörg segir að það sé gott að
nota mjúka augnblýanta til þess að
skerpa á augnumgjörðinni og dreifa
síðan úr blýantinum þannig að skilin
verði ekki áberandi. „Ég notaði
dökkgráan blýant en gráu tónarnir
eru mun léttari en svörtu augn-
blýantarnir og skuggarnir sem
venjulega er unnið með þegar farðað
er í þessum stíl og það gerir förð-
unina líka sumarlegri. Sólarpúðrið
er sígilt til þess að ná fram skygg-
ingu aftur í andlitið eftir að farðinn
hefur verið settur á. Kinnalitur er
síðan settur á kinneplin og dregin
upp á kinnbeinið að hárlínunni.
Kinnaliturinn gefur húðinni frísk-
legan blæ sem er viðeigandi á þess-
um árstíma,“ segir Sigurbjörg og
brosir. Varirnar innsiglaði hún að
lokum með bleikum gljáa og þar
með var glæsilegt dæmi um sum-
arbjart silfurtungl orðið að veru-
leika.
Silfurtungl
um sumar-
nætur
Morgunblaðið/Golli
Jökulhvítur Augn-
skugginn frá
Christian Dior nær
jökulhvíta litnum
vel, 005 Icy White.
Bleikt Gljáandi, bleikar varir
klikka ekki í sumar frekar en í
fyrrasumar, gljáar frá Bourjois.
Glitrandi Húðin á að skína á sumar-
kvöldum. Glanspúður með perlu-
áferð, nr. 53 frá Bourjois.
Sumarið er lífið, þegar guli hnötturinn skín á daginn
og silfurtunglið um nætur. Förðun sumarsins 2007
tekur mið af hvoru tveggja; heitum, gylltum og blíð-
um litaafbrigðum sunnu kerlingar og köldum, silfr-
uðum tónum karlsins í tunglinu.
Bleikt og grátt Sumarlegir augnskuggar í kvöldförðun frá Bourjois, 15
Rose Peau og 14 Gris Delicat.
Frísklegur Þessi kinnalitur frá Est-
ée Lauder, 02 Gap Bronsée Glow,
er í stauk eins og mamma átti.
Augnskuggarnir nú sam-
eina þó tískustraumana og
sumarfjörið því margir
hinna málmlitu eru með
gliti sem endurkastast
mjög fallega í ljósi, nú eða
í dags- og kvöldbirtu. Það
sindrar því á skuggana
rétt eins og málminn sem
litir þeirra skírskota til.
Hvítt og grátt Augnblýantar leika stórt hlutverk í augnförðuninni. Þessir
eru frá Yves Saint Laurent, nr. 2 sem er hvítur og nr. 10 sem er grár.
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska