Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 29
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 29
*
á
v
ið
u
m
s
já
lfs
ki
p
ta
b
íla
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
3.645.000 kr.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA Sorento – fullbúinn alvörujeppi
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
NÚ ER
RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ SKIPTA
KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)*
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta
Keyrðu inn í sumarið á nýjum Sorento
Sumarpakki
Dráttarbeisli, sumar- og
vetrardekk innifalin í verði
Með 5 þrepa sjálfskiptingu.
NÝ reglugerð hefur verið sett sem
takmarkar magn þalata í leik-
föngum og hlutum fyrir börn.
Reglugerðin tók gildi í maí og í
fréttatilkynningu frá Umhverfis-
stofnun kemur fram að með reglu-
gerðinni séu sett takmörk á magn
þalata í leikföngum og öðrum
vörum sem ætluð eru til notkunar
af börnum. Þar á meðal eru hlutir
sem ætlaðir eru til þess að kalla
fram svefn eða slökun, stuðla að
hreinlæti eða nota við mötun, þ.m.t.
naghringir, snuð, túttur, smekkir,
baðáhöld og mataráhöld. Takmörk-
unin er tvíþætt. Annars vegar eru
þrenns konar þalöt bönnuð með
öllu í leikföngum og umönnunar-
vörum barna. Hins vegar er tak-
mörkun á öðrum þremur tegundum
þalata sem ekki stafar eins augljós
hætta af og nær hún aðeins yfir
leikföng og umönnunarvörur sem
börn geta stungið upp í sig.
Gefa plasthlutum mýkt
Reglugerðin tekur til fleiri hluta
í umhverfi barna en áður og miðað
er við hluti sem lítil börn geta
stungið í munninn, sogið eða tugg-
ið. Reglugerðin er hluti af sam-
ræmdum aðgerðum á Evrópska
efnahagssvæðinu. Þalöt eru efna-
sambönd sem hafa þá eiginleika að
gefa plasthlutum mýkt og er al-
gengast að þau séu notuð í PVC-
plast. Þalöt hafa verið notuð í efna-
iðnaði síðan snemma á 20. öld og
sem mýkingarefni í plast síðan
fljótlega eftir að það fór að koma á
markað upp úr 1950.Vitað er að
viss þalöt geta dregið úr frjósemi
manna og verið skaðleg ófæddum
börnum í móðurkviði. Þessi efni eru
talin sérstaklega hættuleg yngstu
börnunum sem eiga eftir að taka út
mikinn þroska. Reglugerðina auk
nánari skýringa við hana er að
finna á heimasíðu Umhverfisstofn-
unar, www.ust.is.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Takmarka á
þalöt í leik-
föngum
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
MEIRA en helmingur þungaðra kvenna finnur
fyrir þvagleka, samkvæmt norsku Þjóðarheil-
brigðisstofnuninni. Hættan er meiri hjá konum
sem hafa áður eignast barn, eru of þungar eða
í eldri kantinum þegar þær verða þungaðar.
Í flestum tilfellum er þó ekki um mikinn
þvagleka að ræða að því er norska vefritið for-
skning.no greinir frá. Þvagleki bæði fyrir og
eftir meðgönguna virðist færast í aukana hafi
konan átt barn áður en hann tengist einnig
aldri konunnar og líkamsþyngdarstuðli (BMI).
Þetta er meðal niðurstaðna könnunar sem gerð
var meðal 43.278 kvenna sem allar voru komn-
ar 30 vikur á leið á meðgöngunni.
Þvagleki bæði fyrir og eftir meðgöngu
Flestar konurnar sem greindu frá þvagleka,
bæði fyrir og á meðgöngu, sögðust þó verða
hans varar sjaldnar en einu sinni í viku og að
þá væri aðeins um nokkra dropa að ræða.
Almennt jókst þvagleki hjá konunum úr því
að vera hjá 26 prósent kvennanna fyrir með-
gönguna og upp í 58 prósent í 30. viku á með-
göngunni.
Hjá frumbyrjum voru samsvarandi tölur 15
prósent og 48 prósent.
Hjá konum sem höfðu fætt eitt eða fleiri
börn áður var tíðni þvagleka 35 prósent fyrir
þungunina og 67 prósent í 30. viku meðgöng-
unnar.
Algengast var að álagsaðstæður yllu þvag-
lekanum, s.s. þegar konurnar hóstuðu, hnerr-
uðu, hlógu, hlupu eða hoppuðu. 31 prósent
þeirra sem ekki höfðu átt börn áður upplifðu
þetta meðan samsvarandi tölur fyrir konur
sem höfðu fætt áður voru 42 prósent.
Þvagleki algengur hjá þunguðum
Morgunblaðið/Arnaldur
Álag Meiri líkur eru á því að kona sem hefur fætt
áður upplifi þvagleka á meðgöngu en frumbyrja.