Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 30
lifun
30 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/ÞÖK
Blátt Egg Skrifborðið og hillurnar eru hönnun Guðbjargar Magnúsdóttur innanhúsarkitekts. Kerlinginn og karlinn eru ættuð frá Kína.
Þ
ótt íbúðin hennar Mar-
grétar sé í Skuggahverf-
inu er óhætt að fullyrða
að þar ber hvergi
skugga á. Allt er hvítt,
veggir, loft og gólf. Það eina skugga-
lega var rigningin úti fyrir sem
byrgði útsýnið sem við Margréti
blasir flesta daga ársins, til Esjunn-
ar og yfir Sundin blá í norðri og í
suðri er Hallgrímskirkjan og hús-
þökin í bænum.
En hver er Margrét Kjartans-
dóttir? Þeir eru ófáir sem þekkja
hana sem Margréti í Míru og nú í
seinni tíð sem Margréti í Mari-
mekko, enda rekur hún
Marimekko-verslunina á Laugavegi.
Míru rak hún hins vegar í ein sjö ár
og seldi þar húsgögn sem hún flutti
inn frá Austurlöndum í gámavís, t.d.
flutti hún inn einn gám á viku eða 52
gáma alls árið 2000. Nú handfjallar
hún léttari og fínlegri hluti en hús-
gögnin, hannaða og framleidda af
frændum okkar Finnum.
Hurðirnar þvælast ekki fyrir
„Ég hef búið í Skuggahverfinu í
tvö ár og er afskaplega ánægð.
Lengi bjó ég í blokk Sólheimunum
og líkaði vel. Síðar flutti ég í raðhús
í Vatnsendalandi, rétt við Elliða-
vatnið. Þar var garðurinn alveg að
ganga af mér dauðri, hann var stór,
gróðurinn mikill og vinnan gífurleg.
Mér fannst ég vera komin hringinn
þegar ég flutti hingað enda þarf ég
ekki á neinni jarðtengingu að
halda.“
Íbúðin er um 120 fermetrar og öll
opin, nema baðherbergið. Sams kon-
ar íbúðum í húsinu er skipt í þrjú
herbergi, stofu og eldhús, en Mar-
gét fékk Guðbjörgu Magnúsdóttur
innanhússarkitekt til að hanna
skipulag og innréttingar.
Eldhúsið er til hægri þegar komið
er inn í íbúðina og baðherbergið til
vinstri og fyrir því er eina hurðin í
íbúðinni fyrir utan hurðina fram á
ganginn. Eldhúsið og stofan renna
nánast saman í eitt og í einu horn-
inu, handan við vegg, er svefn-
herbergið. Hvíti liturinn ræður hér
ríkjum og Margrét segir að þegar
búið hafi verið að mála og ganga frá
innréttingum hafi sér fundist íbúðin
eins og skurðstofa. Það fær þó eng-
inn þessa skurðstofutilfinningu
lengur þótt ekki sé nema vegna
tveggja litsterkra stóla, Eggjanna,
sem danski hönnuðurinn Arne
Jacobsen er hvað þekktastur fyrir.
„Fyrst keypti ég rautt Egg, en
svo sá ég að ég varð að fá annað
blátt að auki,“ segir Margrét. Hún
ákvað einnig að fá sér rautt teppi á
hvítar flísarnar til að fá lit í um-
Tékkneskir járnlampar Svefn-
herbergið er notalegt í einfaldleika
sínum.
Í rauðu Margrét klæðir sig í Marimekko-skokk eins og vera ber.
Kertadrengur Drengurinn með
kertið er frá Prag en gluggatjöldin
eru frá Marimekko.
Rautt og blátt egg í hvítum
Á sjöttu hæð í einu af háhýsunum í Skuggahverfinu býr
Margrét Kjartansdóttir. Hún er umkringd listaverkum
og fallegri hönnun. Fríða Björnsdóttir hafði á tilfinn-
ingunni að hún væri komin á safn með listmunum frá
öllum heimshornum þegar hún heimsótti Margréti.
Mér fannst ég vera
komin hringinn þegar
ég flutti hingað enda
þarf ég ekki á neinni
jarðtengingu að halda.