Morgunblaðið - 09.06.2007, Síða 31

Morgunblaðið - 09.06.2007, Síða 31
hverfið, en sófinn í stofunni er líka snakahvítur. Flísarnar á gólfinu eru ítalskar náttúruflísar, risastórar, en því mið- ur heldur „erfiðar í sambúð“, að sögn Margrétar. Þegar þær voru komnar á gólfið varð henni ljóst hversu gljúpar þær voru, og nánast eins og óunninn marmari. Afleið- ingin var sú að ekki mátti drepa nið- ur fæti án þess að á flísunum sæist og það sem meira var, það var nán- ast ómögulegt að hreinsa þær. Nú hafa flísarnar fengið með- höndlun fagmanna í tvígang, en þrátt fyrir það eru þær heldur erf- iðar viðfangs. Margrét fékk Guðbjörgu Magn- úsdóttur til að hanna fyrir sig borð- stofuborð og skrifborð sem hvor tveggju eru úr dekktri eik, og sömu- leiðis lágir skápar á veggnum sem snýr inn í eldhúsið. Eldhúsinnrétt- ingin og sérhannaðar bókahillur eru hvítar, einnig hönnun Guðbjargar. Innréttingarnar í íbúðinni voru smíðaðar hjá Trésmiðjunni Borg sem áður hafði smíðað innréttingar fyrir Margréti í húsið í Vatnsenda- landi. Stenst ekki það sem fallegt er Listmunirnir sem prýða heimilið eru víða að. Á sófaborðinu stendur skál sem Margrét féll fyrir á lista- galleríi í Kaliforníu. „Ég lét senda hana heim og kostnaðurinn við það og gjöldin af henni voru jafnhá og skálarverðið!“ Og hún bætir við: „Ég er búin að sanka ýmsu að mér. Ég kaupi ekki mikið, en ef ég sé eitthvað fallegt stenst ég ekki mátið að kaupa það.“ Margrét segist vera mikið fyrir að breyta til, skipta um og flytja, það sé sinn lífsstíll. Þó má sjá að minnsta kosti tvo hluti sem hafa fylgt henni nokkuð lengi og standa úti í suðurglugga íbúðarinnar. Annar er bústinn spari- grís, verk íslensks leirkerasmiðs, og hitt er finnskur iittalaöskubakki. Í ljós kemur að hann var gjöf frá sam- starfsfólki Margrétar á Morgun- blaðinu en þar vann hún á árunum 1970 til 1977. „Í þá daga voru flottir öskubakkar iðulega gefnir við hátíð- leg tækifæri,“ segir Margrét sem nýtur þess nú á sólskinsdögum að sjá geislana brotna í þykku glerinu. Þeir sem muna eftir Míruhús- gögnunum, þungum, efnismiklum og dökkum, sjá ekkert sem á þau minn- ir hjá Margréti sjálfri. Hún segir líka að fínleikinn sé í sínu eðli og það kemur svo sannarlega vel fram á heimili hennar í Skuggahverfinu. Nú er bara að bíða og sjá hvort löngunin til að breyta til muni verða ánægjunni með fallega íbúðina yf- irsterkari og hún leggi upp í leit að nýrri íbúð. Fátt bendir þó til þess. Flott baðherbergi Indónesískur herra gefur baðherberginu skemmtilegan svip. Allt út í eitt Góð tenging er milli eldhúss og borðstofu, sem flæða nánast út í eitt. einfaldleika MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 31 Nú er stutt í að há- lendið opnist til ferða- laga. Þá er mikilvægt að fólk fari varlega og gæti að sér. Það er auðvitað hægt að fara sér að voða víða í óbyggðum en sennilega er Krossá einna hættulegust yfir- ferðar af ám og vötn- um, á svæðum þar sem mikill fjöldi fólks safn- ast saman. Þó hafa orðið dauða- slys í ám bæði norðan Hofsjökuls og í ná- munda við Nýjadal. Það er auðvelt að ana út í ófærur í óbyggðum. Víkverji átti eitt sinn ekki annarra kosta völ en ganga með ferðafélögum sínum til byggða í eina 18 tíma eftir gönu- hlaup á einum bíl. Það var fyrir daga farsíma og þegar óbyggðaferðir voru ekki jafn algengar og nú. Á því svæði var ekki hægt að búast við mannaferðum dögum saman. Þorljótsstaðir í Vesturdal í Skaga- firði líða þeim göngumönnum aldrei úr minni. Hlýlegt eyðibýli, þar sem gangnamenn höfðu greinilega búið vel um sig og kom þessu göngufólki að góðum notum. En pilturinn, sem fór í Krossá, er áreiðanlega reynslunni ríkari og kann eftir þetta ævintýri betur að umgangast straumharðar ár. Þótt ferðalög um óbyggðir geti verið varasöm má það þó ekki verða til þess að fólk kynni sér ekki þessa landshluta. Og óbyggðir er víðar að finna en á miðhálendi Íslands og í námunda við það. Þær má t.d. finna á norðan- verðum Vestfjörðum. Þótt enn séu mannabyggðir nyrzt á Ströndum er þar þó hægt að upplifa andrúm óbyggðanna. Að koma í Ingólfsfjörð og Ófeigs- fjörð er einstakt. Þar hefur fólk til- einkað sér hætti farfuglanna, að koma á vorin og fara á haustin. Vestfirðir og Strandir eru ónumið land fyrir ferðafólk. Krossá er hættulegá. Það liggur við að einhver lendi þar í lífshættu á hverju ein- asta ári. Fyrir nokkrum dög- um skall hurð nærri hælum enn einu sinni í Krossá, þegar skála- vörður bjargaði 14 ára gömlum dreng úr ánni. Helga Garðarsdóttir skálavörður sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær um þetta atvik: „Hann gat ekki fót- að sig, straumurinn tók hann. Ég komst niður fyrir hann (á dráttarvél, inn- skot Mbl.) og náði honum en missti hann einu sinni. Þá fór hann undir traktorinn, það var frekar svaka- legt. En þá hélt ég bara áfram niðureftir. Í einni beygjunni náði ég að smeygja traktornum út í þannig að strákurinn gat gripið í dekkið. Ég vissi að ef ég færi sjálf út í ána tæki straumurinn mig líka. Þá fór ég út, skorðaði mig við brettið á traktorn- um og gat gripið í höndina á honum. Ég notaði líkamsþyngdina til að toga hann að mér svo hann gæti gripið í eitthvað en hann var orðinn ansi þreyttur og máttlaus. Svo hélt ég honum þangað til okkur var bjargað.“ Víkverji er ekki talsmaður fram- kvæmda í óbyggðum og telur raun- ar að óbyggðirnar eigi að vera erf- iðar yfirferðar. Þar eigi hvorki að vera vegir né brýr. Engu að síður er mikil spurning, hvort ekki á að grípa til aðgerða til að draga úr hættu við Krossá. Það er of oft, sem óhöpp henda í ánni og fólk lendir í hættu. Óbyggðaferðir eru skemmtilegar en þær eiga ekki að breytast í harm- leik. Bæði Íslendingar og útlend- ingar hafa dáið í slíkum ferðum, stundum vegna skorts á aðgæzlu, stundum vegna óvæntrar atburða- rásar, sem ekki var hægt að sjá fyr- ir.          víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.