Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 35 UMRÆÐAN VENJAN er sú að nýjar rík- isstjórnir noti fyrstu vikur og mánuði síns valdatíma, hveiti- brauðsdagana, til að senda út í samfélagið skýr skila- boð um áform sín og helstu verkefni. Við núverandi aðstæður í efnahags- og atvinnu- málum hefði mátt ætla að mikilvægustu og sterkustu skila- boðin sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar reyndi að koma á framfæri lytu að jafnvægisleys- inu í efnahagsmálum og þeim vanda sem við blasir í hagstjórn. Samfylkingin talaði, a.m.k. framan af kosningabarátt- unni, þannig að óstöðugleikinn í efnahagsmálum væri eitt helsta vandamál okkar þjóðarbúskapar. Að vísu dofnaði yfir þessum mál- flutningi Samfylkingarinnar eftir því sem á leið og voru það kannski einhver skýrustu skilaboðin um hvað í vændum væri, þ.e. að Sam- fylkingin hygðist taka við hlut- verki Framsóknar sem samstarfs- aðili Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Sú niðurstaða liggur nú fyrir og um efnahagsmál ríkir þögnin ein. Undanfarin þrjú ár hefur Vinstrihreyfingin – grænt framboð lagt til á Alþingi að ráðist yrði í markvissar og róttækar aðgerðir til að endurheimta glataðan efna- hagslegan stöðugleika. Óþarft er að fara mörgum orðum um mik- ilvægi þess að tekist verði á við þetta viðfangsefni af alvöru eins og nú háttar málum. Jafnvæg- isleysið birtist okkur einkum í raungengi krónunnar langt yfir jafnvægismörkum, svimandi háum vöxtum, miklum viðskiptahalla, verðbólgu langt utan viðmið- unarmarka Seðlabankans árum saman og – það sem er þó sýnu al- varlegast – geigvænlegri aukningu erlendra skulda þjóðarbúsins. Jafnvægisleysið birtist einnig í bágri afkomu útflutnings- og sam- keppnisgreina. Því miður eru yf- irgnæfandi líkur á að víðar en frá Flateyri, Bolungarvík, og öðrum þeim stöðum sem ratað hafa í erf- iðleika að undanförnu, berist slæmar fréttir verði ekkert að gert. Engin breyting á stóriðjustefnunni Að stöðva frekari stóriðjufram- kvæmdir, slá þannig á þenslu og draga úr ruðningsáhrifunum sem þær kynda undir, var og er, að dómi okkar Vinstri grænna, einn helsti lykillinn að því að end- urheimta hér efnahagslegan stöð- ugleika. Að ógleymdri þörfinni fyr- ir slíkt stopp til að leggja grunn að lámarks sátt um umhverfismál. Ekki verður annað ráðið af for- ystumönnum stjórn- arflokkanna en að öll fyrirliggjandi stór- iðjuáform muni halda áfram í sínum und- irbúningsfarvegi. Það sé ekki ætlun rík- isstjórnarinnar að reyna að hægja þar á eða hafa stjórn á framvindu mála. Helst að það verði mögu- leikar orkufyrirtækj- anna til að skapa næga orku sem ráða því hversu hröð fram- vinda þriggja og jafn- vel fjögurra nýrra álvers- og stór- virkjanaverkefna verður á næstu árum. Ef þetta eru skilaboðin þá þarf ekki að efast um áhrifin enda styrktist krónan dag frá degi fyrstu dagana eftir stjórn- armyndun. Eftir því sem smátt og smátt kom í ljós að nýtilkominn áhugi Samfylkingarinnar á um- hverfismálum var gufaður upp og orðinn að uppgjöf gagnvart ríkjandi stóriðjustefnu. Ríkisstjórn í afneitun Samandregið er einfaldast að orða stöðuna svo: Ríkisstjórnin virðist hafa ákveðið að senda engin sérstök skilaboð út í þjóðfélagið um að nú verði af alvöru tekist á við jafnvægisleysið í efnahags- málum. Ríkisstjórnin hefur engin skilaboð sent til útflutnings- og samkeppnisgreinanna um að þær megi vænta betri rekstrarskilyrða. Bragð er að þá barnið finnur: Samtök atvinnulífsins marseruðu á fund forustumanna ríkisstjórn- arinnar mánudaginn var og sögðu sem svo að nú gengi þetta ekki lengur, stjórn peningamála væri komin í sjálfheldu og atvinnulífið þyldi ekki stundinni lengur þá skertu samkeppnisstöðu sem há verðbólga, svimandi háir vextir og miklar gengissveiflur skapa. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og slæmar horfur um viðgang þorskstofnsins á komandi árum munu efalaust hafa einhver áhrif á markaðinn og gengi krónunnar, a.m.k. til skemmri tíma, eins og þegar er farið að sjást. Niðurstaða sjávarútvegsráðherra eða stjórn- valda um úthlutun veiðiheimilda á næsta ári liggur þó ekki fyrir þannig að enn er of snemmt að spá fyrir um afleiðingarnar til frambúðar. Í lok síðustu viku heimsótti þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs norðanverða Vestfirði og byggðarlög þar sem orðið hafa fyrir sérstökum áföllum að undanförnu. Hvar eru skilaboð ríkisstjórnarinnar til þessara svæða? Á að láta það nægja að tveir ráðherrar séu settir á útkikk í Reykjavík og eigi að fylgjast með því hverju fram vindur á Flateyri? Því miður virðist afneitunarstefnan eða afskiptaleysis- og aðgerðaleys- isstefnan áfram ráða ríkjum og ríkisstjórnin glutrar niður tæki- færinu til að senda sterk skilaboð út í þjóðlífið um að hún sé komin af afneitunarstiginu. Tal um sam- ráð við aðila vinnumarkaðarins er góðra gjalda vert en hefur lítið vægi meðan ekkert liggur fyrir um inntak slíks samráðs. Með vísun til þessa er óhjákvæmilegt að lýsa eftir afstöðu ríkisstjórnar, lýsa eft- ir skilaboðum hennar í efnahags- og atvinnumálum. Hver eiga þau að verða ef einhver? Hvar eru skilaboð ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum? Steingrímur J. Sigfússon skrif- ar um horfurnar í efnahags- málum »Ekki verður annaðráðið af forystu- mönnum stjórnarflokk- anna en að öll fyrirliggj- andi stóriðjuáform muni halda áfram í sínum undirbúningsfarvegi. Steingrímur J. Sigfússon Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 E N N E M M / S IA • N M 27 94 5 frá 29.990 kr.* Beint morgu nflug til Salzburg Skíðaveisla í Austurríki - Flachau - Lungau - Zell am See 22. des. – 14 daga jólaferð 5. jan. – 14 dagar 19. jan. – vika 26. jan. – vika 2. feb. – vika 9. feb. – vika 16. feb. – vika 23. feb. – vika 1. mars – vika Frábært verð Kr. 29.990 * Flugsæti með sköttum, fargjald A. Netverð á mann með 10.000 kr. afsl. Kr. 69.990 – vikuferð með hálfu fæði Netverð á mann með 10.000 kr. afsl. Innifalið: Flug, skattar og gisting á Skihotel Speiereck í Lungau í tvíbýli með hálfu fæði í 7 nætur. Vikuferð 19. janúar. Bókaðu strax og tryggðu þér lægsta verðið og bestu gistinguna! Frábær gisting í boði! - Flachau, Lungau og Zell am See Heimsferðir bjóða beint morgunflug til Salzburgar næsta vetur og þar með tryggjum við þér aðgang að bestu skíðasvæðum Austur- ríkis, s.s. Flachau, Lungau og Zell am See. Tryggðu þé flugsæti og gistingu á besta verðinu og taktu þátt í skíðaveislu Heimsferða í Austurríki næsta vetur. Fyrstu 200 sætin með 10.000 kr. afslætti. Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Um er að ræða sérlega bjarta og skemmtilega 5 herbergja efri hæð ásamt sérbyggðum bílskúr á þessum rólega og góða stað miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin sem er 102,4 fm að stærð er öll í mjög góðu ástandi og er mjög björt og falleg. Mjög fallegar hvítmálaðar fulningahurðir og sérlega falleg geretti eru í íbúðinni. Stór og góður sérbyggður bílskúr, sem er með rafmangi og hita. V. 33,9 millj. 7855 KAMBSVEGUR 6 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.