Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Nú er komið eitt ár síðan þú fórst frá okk- ur heim til Drottins, Haukur minn. Við vorum búin að gera með okkur samkomulag um að þeg- ar þú værir búinn að ná tökum á veikindum þínum og búinn að vera edrú í eitt á yrði slegið upp veislu. Og það yrði keypt Liverpool-kaka hjá Jóa Fel. Þú baðst sérstaklega um að hún yrði keypt hjá honum af því að þú hafðir heyrt að hann héldi með Manchester. Og þér fannst svo fyndið að láta hann gera kökuna. Núna ertu búinn að vera edrú í eitt ár en það verður engin Liverpool- kaka. En í staðinn færðu þetta ynd- islega ljóð sem hún Ásdís var svo góð að tileinka þér. Svona var lífið þitt síðustu fimm árin þín. Dimmir dalir en þú reyndir að ganga mót sólu að nýju. Alltaf styttust sólar- dagarnir þínir og dimmu dögunum fjölgaði. Síðustu tvö árin þín voru góðu dagarnir afar fáir og engin lausn á þínum veikindum sjáanleg. Lausnin og lækningin er til en þú fékkst ekki aðgengi að þeirri hjálp sem þú þurftir. Við fjölskyldan þín erum í svo miklum sárum og söknuðurinn eftir þér nánast óbærilegur. Á hverjum degi tölum við um þig, tölum um góðu tímana, húmorinn þinn sem var alveg einstakur. Og þegar þú og Halli vinur þinn komuð saman var grátið úr hlátri allan tímann. Vit- leysan sem valt upp úr ykkur var alveg óborganlega fyndin. Svo hringdi Halli í mig um daginn. Hann var að fara í draumaferðina sem þið vinirnir ætluðuð að fara saman. Á Liverpool-leik. Hann Haukur Freyr Ágústsson ✝ Haukur FreyrÁgústsson fæddist á Sjúkra- húsinu á Hvamms- tanga 5. febrúar 1982. Hann lést 9. júní 2006 og var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 15. júní. saknar þín ekkert minna en við hin. Á 25 ára afmælis- daginn þinn, hinn 5. febrúar síðastliðinn, hringdu nokkrir vinir þínir í mig. Það var yndislegt að þeir skyldu gera það, en samt svo sárt. Við höfum verið að fara í gegnum gamlar myndir af þér og er- um byrjuð að púsla saman myndaalbúmi. Góðar minningar streyma fram og bara við það að horfa á sjónvarpið vakna minning- ar. Eins og þegar alheimsfegurð- ardrottningin okkar datt í fyrra. Það var síðasta hláturskastið okkar saman. Hláturinn þinn var svo smitandi að oft hlógum við meira að hlátrinum og tilburðunum þínum við að lýsa atvikum en atvikinu sjálfu. Sem betur fer er til dvd af þér sem var tekið tæpu ári áður en þú lést. Þar getum við heyrt hlát- urinn þinn og röddina þína. Oft spurðir þú okkur að því hvernig við gætum staðið í þessari baráttu fyrir þig. Þú gast það ekki sjálfur svo við gerðum það fyrir þig. Að horfa á þig svona veikan var eins og Hrafnhildur uppáhalds frænkan þín lýsti svo vel. Það var eins og að horfa á þig drukkna. Við syntum að þér og héldum þér uppi þar til við öll örmögnuðumst. Lét- um þig hafa björgunarhringi sem þú gast vegna veikinda þinna ekki nýtt þér og sumir voru hreinlega teknir af þér. Við göngum svo sporlétt um fallega grund og gleðjumst við sólskin og hlýju. Er dimmir í dalnum við hikum um stund. en göngum mót sólu að nýju. Þótt vegferðin langa sé þyrnum stráð, það mæðir og blæs, þú ert hokinn. Þá gleymd aldrei því sem var lofað og spáð, að Drottinn þig sækir við lokin. (Ásdís. Sig.) Við elskum þig. Mamma og Hannes pabbi. Til himins upp hann afi fór, en ekkert þar hann sér. Því gleraugunum gleymdi hann í glugganum hjá mér. Þetta ljóð fórst þú oft með fyrir mig þegar ég var lítil, og það svo fal- lega. Samt var mér illa við það því að í ljóðinu dó afi stelpunnar, sem var eitthvað sem ég varð dauðhrædd við og leyfði mér sem minnst að hugsa um því að tilhugsunin var óbærileg. Því að góður afi eins og þú mátti ekki deyja, þú áttir bara alltaf að vera hjá mér og passa mig segja mér sögur, syngja, strjúka mér á vang- ann með hrjúfu hendinni þinni, taka í nefið, hrjóta og taka utan um mig, því að það var ekki öruggari staður til í heiminum en í faðminum þínum. Frá því að ég var lítil fór ég oft inn í svefnherbergið þitt, fór að rúminu þínu, dustaði úr því neftóbakið og fór að sofa. Þér fylgdi alltaf svo mikil öryggistilfinning. Þú varst mér allt, hlý rödd þegar mig vantaði ró, faðir Eyjólfur Valgeirsson ✝ Eyjólfur Val-geirsson fæddist í Norðurfirði í Strandasýslu 12. apríl 1914. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. októ- ber síðastliðinn og var hann jarðsung- inn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 20. október. Aska hans verður jarðsett í Árnes- kirkjugarði í dag eftir stutta athöfn sem hefst klukkan 14. minn þegar ég átti engan, skjól þegar mig vantaði það. Hjá þér átti ég öruggt af- drep og það var alltaf þannig, sama hvað ég varð gömul, þú vildir alltaf reyna að hjálpa mér og vernda mig, og það gerðir þú. Núna eftir að þú ert farinn leyfi ég mér stundum að líða í hug- anum aftur til yndis- legu stundanna heima á Krossnesi þegar ég var lítil og ég fékk að fara með afa mínum út um allt í fjárhúsunum, þú gerðir fyrir mig hrífu og ég lék mér með sprellikarlinn sem þú bjóst til. Minningarnar eru svo margar og yndislegar, þú gafst mér svo mikla ást, þú varst svo yndislegur maður og ég fékk líka að eiga þig að lengi, kannski of lengi, ég veit að þú varst orðinn þeyttur. Ég er samt svo þakklát fyrir það að þú kynntist manninum mínum, Jóhanni Pétri, og að þú hittir Eyjólf son minn nokkr- um sinnum. Ég á eftir að segja hon- um svo margt um þig, og ég hlakka svo til. Jæja, elsku afi minn, sofðu rótt, hvíldu þig vel, þú átt það skilið, ég bið að heilsa ömmu. Og reistu stóra stigann upp og styð við himininn. Svo geng ég upp með gleraugun, sem gleymdi hann afi minn. (Þýð. Sig. Júl. Jóhannesson) Sjáumst seinna, elsku afi minn. Þín afastelpa Sigurbjörg. Sigurbjörn Þorkelsson leiðir guðsþjónustuna í Laugarneskirkju MESSUR Laugarneskirkju eru á sunnudagskvöldum kl. 20 í sumar eða fram að sumarleyfi starfs- fólks safnaðarins. Á morgun, sunnudaginn 10. júní kl. 20, mun Sigurbjörn Þorkels- son, framkvæmdastjóri og með- hjálpari Laugarneskirkju, halda utan um guðsþjónustuna, predika og leiða í bæn. Fulltrúar lesara- hóps kirkjunnar sjá um að flytja ritningarlestra dagsins. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið og kór Laugarneskirkju leiðir kröft- ugan almennan safnaðarsöng. Að guðsþjónustunni lokinni býður Gunnhildur Einarsdóttir kirkjuvörður upp á hressingu í safnaðarheimilinu þar sem gott er að spjalla saman og njóta sam- félags. Allir velkomnir í Laugar- neskirkju á fögru sumarkvöldi. Listamessa á menningarhátíð Seltjarnarness LISTAMESSA verður í Seltjarn- arneskirkju kl. 11 á morgun. Leiklistarfélag Seltjarnarness og Snúður og Snælda ásamt Sr. Örnu Grétarsdóttur flytja gjörninginn Lífshlaupið undir handleiðslu Bjarna Ingvarssonar leikstjóra. Tónlistina við gjörninginn semur Guðni Franzson. Gjörningurinn er ígildi predikunar þar sem hinu hefðbundna predikunarformi er gefinn nýr blær og hið talaða orð og leikræn tjáning kallast á. Monika Abendroth mun leika af sinni alkunnu snilld á hörpuna og kammerkór Seltjarnarneskirkju sér um sönglistina að venju. Organisti er Pavel Manasek. Heitt kaffi á könnunni eftir messuna. Verið hjartanlega velkomin. Kraftaverk og bæn í Fríkirkjunni ÞEMAGUÐSÞJÓNUSTA kl. 20. Guðfræðineminn og kirkjuvörð- urinn Nanda María mun hugleiða um þessi áleitnu efni í formi vitn- isburðar. Aðalheiður Þorsteins- dóttir og Erla Berglind Einars- dóttir leiða okkur áfram í tónlist- inni. Hirðir safnaðarins, Hjörtur Magni Jóhannsson, leiðir guðs- þjónustuna. Fjölskylduguðsþjón- usta í Árbæjarkirkju SUNNUDAGINN 10. júní er fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Annan sunnudag hvers mánaðar ársins er boðið upp á þetta form guðs- þjónustunnar í Árbæjarkirkju. Í fjölskylduguðsþjónustunni er leit- ast við að hafa léttleika í bland við hátíðleikann. Falleg og skemmtileg lög verða sungin og hlýtt er á biblíusögur og farið í leiki. Viljum við hvetja unga sem og aldna til að koma og eiga stundarkorn í kirkjunni þennan sunnudagsmorgun. Veitingar á eftir. Göngum með Óháða söfnuðinum GÖNGUGUÐSÞJÓNUSTAN verð- ur laugardaginn 9. júní kl. 9. Far- ið verður í langreið að lokinni guðsþjónustu norður á Hestsháls - genginn hálsinn á milli Skorra- dals og Lundarreykjadals. Sund og sauna í Borgarnesi og át í Mót- el Venusi, þar sem lagið verður tekið og stiginn dans. Mæting í gönguskóm og galla til kirkju. Lesmessa sunnudaginn 10. júní kl. 11. Kirkjukór frá Örgryte í Akureyrarkirkju BLANDAÐUR kór með 25 kór- félögum koma til með að syngja í Akureyrarkirkju, þann 11.júní kl 20. Efniskráin samanstendur af verkum eftir J.S.Bach og A.Söderman. Alexandra Pilakour- is leikur á orgelið einleiksverk. Stjórnandi kórsins er Erlan Hil- dén. Einkar glæsilegir tónleikar hér á ferð. Aðgangur ókeypis! ÁRBÆJARKIRKJA: | Sunnudaginn 10. júní er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Annan sunnudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölskyldusamveru í kirkjunni. Létt og grípandi lög í bland við biblíusögur og fræðslu. Eftir stundina í kirkjunni er boð- ið upp á kaffi og ávaxtasafa og kirkjukex. Láttu sjá þig. ÁSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur séra María Ágústsdóttir héraðsprestur. Kór Ás- kirkju syngur, organisti Friðrik Vignir Stef- ánsson. Athugið messutímann kl. 11 yfir sumarmánuðina. Sóknarprestur. ÁSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Prest- ur séra Hans Markús Hafsteinsson hér- aðsprestur. Kór Áskirkju syngur, organisti Friðrik Vignir Stefánsson. Athugið að messutími sumarsins er kl. 11. Sóknar- prestur. BESSASTAÐAKIRKJA: | Kvöldguðsþjón- usta kl. 20. Álftaneskórinn leiðir almenn- an safnaðarsöng. Sungnir verða Taizé- sálmar. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Allir hjartan- lega velkomnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson. Organisti Magnús Ragnarsson. BÚSTAÐAKIRKJA: | Guðsþjónusta sunnu- daginn 10. júní klukkan 11. Organisti: Renata Ivan. Kór Bústaðakirkju syngur. Molasopi eftir messu. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: | Sunnudag 10. júní kl. 11: messa, sr. Hjálmar Jónsson predikar. Dómkórinn syngur, Marteinn Friðriksson leikur á orgel. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Helgistund kl. 20 sunnudagskvöldið 10. júní. Hugleið- ing og umsjón með helgistundinni: Sigríð- ur Rún Tryggvadóttir, æskulýðsfulltrúi Fella- og Hólakirkju. Félagar úr kór kirkj- unnar leiða almennan safnaðarsöng und- ir stjórn Lenku Mátéovu kantors. Verið öll innilega velkomin. FÍLADELFÍA: | English service at 12.30 pm. Entrance main door. Everyone wel- come. Almenn samkoma kl 16.30. Ræðum. Vörður Leví Traustason. Barnablessun og skírn. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. ATH! Barnakirkja, hefst 26. ágúst. Allir velkomnir. Bein úts. á Lindinni og www.- gospel.is. Samkoma á Omega kl. 20. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Kvöldguðs- þjónusta kl. 20. Þema kvöldsins er tengsl kraftaverka og bænar. Guð- fræðineminn og kirkjuvörðurinn Nanda María hugleiðir, Aðalheiður og Erla leiða almennan safnaðarsöng, og Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur leiðir guðsþjónustuna. FRÍKIRKJAN KEFAS | Grillveisla kl. 17. Almenn samkoma kl. 20. Hreimur H. Garðarsson predikar. Lofgjörð, fyrirbænir í lok samkomu og kaffisala að henni lok- inni. Allir velkomnir. GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Bjarni Þór Bjarnason predik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs- kirkju syngur. Organisti: Lenka Mátéová. GRENSÁSKIRKJA: | Sunnudagur 10. júní. Guðsþjónusta kl. 11. Samskot til Hjálpar- starfs kirkjunnar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi að lokinni guðsþjónustu. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: | Guðsþjónusta kl. 14. Guðlaug Péturs- dóttir og Hrafnhildur Faulk syngja. Organ- isti Kjartan Ólafsson. Sr. Ingiberg J. Hannesson messar. Félag fyrrum þjón- andi presta. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Morgun- söngur kl.11. Prestur sr.Yrsa Þórðar- dóttir. Organisti Guðmundur Sigurðsson HALLGRÍMSKIRKJA: | Laugard.: Upphaf orgelsumars í Hallgrímskirkju. Hádegis- tónleikar kl. 12. Bo Grönbech frá Dan- mörku. Sunnud.: Messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Orgeltón- leikar kl. 20. Bo Grönbech frá Danmörku leikur. HÁTEIGSKIRKJA: | Messa kl. 11. Organ- isti Douglas Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heilsustofnun NLFÍ | Guðsþjónusta kl. 11. HJALLAKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðar- söng. Kristján Helgason syngur einsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á www.hjalla- kirkja.is). HJALTASTAÐARKIRKJA | Sunnudagur 10. júní. Guðsþjónusta kl. 14. Allir velkomnir. Jóhanna I. Sigmarsdóttir. sóknarprestur HJÁLPRÆÐISHERINN: | Samkoma sunnudag kl. 20. Ræðumaður: Ken Locke frá Hjálpræðishernum í Bandaríkj- unum. Opið hús daglega kl. 16-18 nema mánudaga. Ath. fimmtudag 14. júní verð- ur tónlistarkvöld í Akraneskirkju kl. 20, engin samkoma hjá Hernum í Reykjavík. HÓLADÓMKIRKJAN |Messa sunnudag 10. júní kl. 11. Prestur sr. Sigríður Gunn- arsdóttir. Organisti Rögnvaldur Valbergs- son. Forsöngvari Jóhann Már Jóhanns- son. Kvöldbænir kl. 18 mánudaga til laugardaga. Í sumar er kirkjan opin frá 10-18. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Edda Matthíasdóttir Swan predikar. Sam- koma á Eyjólfsstöðum á Héraði kl. 20. www.kristur.is. KEFLAVÍKURKIRKJA: | Sunnudaginn 10. júní kl. 20 er kvöldmessa í kapellunni í Keflavíkurkirkju. Organisti er Hákon Leifs- son og prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Dreifirit kirkjunnar er komið í öll hús í Keflavíkursókn en þar er að finna sumar- dagskrána í kirkjunni. Hana má einnig finna á www.keflavikurkirkja.is. KFUM og KFUK: | Samkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl 20. Ræðu- maður er sr. Frank M. Halldórsson, Svan- hvít Hallgrímsdóttir sér um tónlistina. Mikill söngur og lofgjörð. Samfélag og molasopi eftir samkomuna. Verið öll hjartanlega velkomin. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilögu, Mormónakirkjan: | Ásabraut 2 Garðabæ. Í dag sunnudaginn 10. júní: 11.15 prestdæmi og líknarfélag, 12.30 sunnudagaskóli, 13.15 sakramentis- samkoma. Allir eru alltaf velkomnir. www.mormonar.is. KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur, sr. Ægir Fr. Sigur- geirsson, predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Kaffi í kirkju eftir guðsþjónustu. LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús, Foss- vogi | Guðsþjónusta kl. 10.30. Sr. Gunn- ar Rúnar Matthíasson, organisti Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organ- isti Ólafur W. Finnsson. Einsöngur. Kaffi- sopi eftir messuna. Sýning á höklum eftir Herder Andersson stendur yfir í Guð- brandsstofu í anddyri kirkjunnar. LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 20 kvöld- messa. Sigurbjörn Þorkelsson, fram- kvæmdastjóri og meðhjálpari safnaðar- ins, leiðir guðsþjónustuna, predikar og flytur bænir. Lesarar flytja ritningarlestra. Organisti er Gunnar Gunnarsson og kór Laugarneskirkju leiðir sönginn. Hressing og gott samfélag í safnaðarheimilinu eftir messu. NESKIRKJA: | Messa kl. 11. Kór Nes- kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þór- hallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson pre- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Eftir messu verður aðal- safnaðarfundur Nessóknar. Á dagskrá eru venjuleg aðafundarstörf. Fyrir fundinn verður boðið upp á súpu og brauð. SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Léttur hádegisverður að lokinni athöfninni. Mið- vikudagur 13. júní: Foreldramorgunn kl. 11 á lofti safnaðarheimilisins. Sr. Gunnar Björnsson. SELTJARNARNESKIRKJA: | Guðsþjón- usta kl. 11. Leiklistarfélag Seltjarnar- ness leikur „Lífshlaupið“ sem er ígildi predikunar. Leikstjóri er Bjarni Ingvars- son og tónlist semur Guðni Franzson. Monika Abendroth leikur á hörpu. Org- anisti er Pavel Manasek og kammerkór kirkjunnar leiðir sálmasöng í léttum dúr. Sr. Arna Grétarsdóttir. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa sunnudag 10. júní kl. 11. Prestur sr. Egill Hallgrímsson. Karlakór frá Týról syngur í messunni. Sóknarprestur. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag 10. júní kl. 14. Prestur sr. Egill Hallgrímsson. Organisti Ester Ólafsdóttir. Allir eru velkomnir. Sólheimakirkja. VEGURINN, kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 19 á Smiðjuvegi 5. Högni Valsson pre- dikar. Lofgjörð, fyrirbænir og samfélag eftir samkomu í kaffisal. Allir hjartanlega velkomnir. www.vegurinn.is. VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl. 11. Félag- ar úr kór Vídalínskirkju leiða safnaðar- söng undir stjórn Bjarts Loga Guðnason- ar organista. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún djákni þjóna. Molasopi eft- ir messu. Allir hjartanlega velkomnir! VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Helgi- stund á sumarkvöldi sunnudaginn 10. júní kl. 20. Sigríður Thorlacius sópran, Hjörtur Ingvi Jóhannsson píanó og Guð- mundur Óskar Guðmundsson bassi flytja létta og ljúfa tónlist. Verið velkomin! Þingmúlakirkja | Messa – ferming kl. 14.30. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallanes- og Þingmúlasóknar. Þingvallakirkja | Messa sunnudaginn 10. júní kl. 14. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, organisti Guðmundur Vil- hjálmsson. Guðspjall dagsins: Ríki maðurinn og Lasarus. (Lúk. 16.) MESSUR Á MORGUN | KIRKJUSTARF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.