Morgunblaðið - 09.06.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 51
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Ferð til Siglufjarðar
miðvikudaginn 13. júní kl. 8 frá Afla-
granda 40. Síldarminjasafnið skoðað,
einnig Siglufjarðarkirkja. Hádegisverður
í Bíókaffi. Leiðsögumaður Hólmfríður
Gísladóttir. Verð kr. 7.000.
Dalbraut 18-20 | Vorgleði í fé-
lagsmiðstöðinni á Dalbraut 18-20
sunnudaginn 10. júní kl. 13-16. Flóamark-
aður, handverkssýning, tónlist, kveð-
skapur og leiklestur. Kaffi og vöfflur. All-
ir velkomnir.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9. Hana-nú-ganga kl. 10.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Handverkssýning eldri bæj-
arbúa er í Bókasafni Seltjarnarness,
Eiðistorgi, 2. hæð. Sýningin er liður í
Menningarhátíð. Sýningin er opin kl. 10-
14 laugardag.
Félagsstarf Gerðubergs | Þriðjud. 12.
og miðvikud. 13. júní kl. 13.30 „Mann-
rækt-trjárækt“, gróðursetning, leik-
skólabörn og eldri borgarar. Umhverf-
isráðherra kemur í heimsókn, síðan er
kaffihúsastemning í Hraunborg. Allir
velkomnir. 13. júní: Kvennahlaup ÍSÍ kl.
13, upphitun frá kl. 12.30. Skráning á
staðnum og s. 575 7720.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Farið verður
í kringum Vatnsnes í V-Húnavatnssýslu
laugardaginn 23. júní. Lagt af stað frá
Hlaðhömrum kl. 10. Skráning stendur
yfir í símum 586 8014 og 692 0814.
Furugerði 1, félagsstarf | Furugerði 1,
Norðurbrún 1, Dalbraut 14-20 og Hæð-
argarður 31. Farið verður í nestisferð að
Strandarkirkju fimmtudaginn 14. júní,
með viðkomu í Eden á heimleið. Lagt af
stað kl. 13 frá Norðurbrún og síðan
teknir aðrir farþegar. Skráning á stöðv-
unum.
Hraunbær 105 | Miðvikudaginn 13. júní.
Ferð til Siglufjarðar. Síldarminjasafnið
skoðað, einnig Siglufjarðarkirkja. Há-
degisverður í Bíókaffi. Leiðsögumaður:
Hólmfríður Gísladóttir. Verð 7.000 kr.
Brottför kl. 8.30 frá Hraunbæ. Skráning
á skrifstofu eða í síma 587 2888.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Morg-
unganga alla morgna kl. 9. Gönguferðir í
stað leikfiminnar. Púttvöllur opnaður
bráðlega. Félagsvist á mánudögum.
Ferð í Strandarkirkju 14. júní. S. 568
3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is.
50ára afmæli. Á morgun,sunnudaginn 10. júní,
verður Kristín Guðmunds-
dóttir fimmtug. Af því tilefni
tekur hún á móti gestum á
heimili sínu í Hlégerði 22 í
Kópavogi frá klukkan 12 til 24.
50ára afmæli. ÁrniSörensen, Fremri-
stekk 7 í Reykjavík, er fimm-
tugur í dag, 9. júní. Árni tekur
á móti vinum og vandamönn-
um í sal Ferðafélags Íslands í
Mörkinni 6 kl. 19 í dag.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað.
Hægt er að hringja í síma
569 1100, senda tilkynningu
og mynd á netfangið ritstjorn-
@mbl.is, eða senda tilkynn-
ingu og mynd í gegnum vef-
síðu Morgunblaðsins. Einnig
er hægt að senda vélritaða til-
kynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Minningarkort | Hunda-
ræktarfélag Íslands hefur
hafið sölu á minning-
arkortum til styrktar
minningarsjóði Emilíu.
Markmið sjóðsins er að
styrkja þá einstaklinga
sem þurfa á sérþjálfuðum
hundi að halda vegna fötl-
unar. Styrkir eru veittir 8.
ágúst ár hvert, en um-
sóknarfrestur um styrk-
veitingar er til 8. júlí
hvert ár. Salan fer fram á
skrifstofu félagsins í síma
588 5255. Nánari uppl. um
sjóðinn, reglur hans og
stjórn má finna á heima-
síðu Hundaræktarfélags
Íslands, www.hrfi.is.
dagbók
Í dag er laugardagur 9. júní, 160. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið oss í Kristi Jesú og búið oss í stað í himinhæðum með honum. (Ef. 2, 6. )
Með hverju árinu fjölgarskútum og smábátum semsjá má á fögrum sum-ardögum sigla undan
ströndum borgarinnar.
Jón Pétur Friðriksson er kennari hjá
Siglingaskólanum, og segir hann æ fleiri
uppgötva þá ánægju sem siglingar veita:
„Áhugi á siglingum virðist oft fylgja
sveiflum í hagkerfinu, og ætti ekki að
koma á óvart að mikil aukning hefur
verið í aðsókn í nám hjá Siglingaskól-
anum síðustu ár,“ segir Jón Pétur.
„Mikið er keypt af nýjum bátum til
landsins og oft mjög stórir og glæsilegir
bátar. Ekki síður eru menn að uppgötva
kosti þess að geta siglt erlendis, en er-
lendar skipaleigur eru í auknum mæli að
gera strangari hæfniskröfur til þeirra
sem vilja njóta frelsisins á höfunum í
fjarlægu landi.“
Grunnnám Siglingaskólans er hið svo-
kallaða 30 tonna próf. „Margir þekkja
það betur sem pungaprófið, og fer nám-
ið fram samkvæmt námsskrá mennta-
málaráðuneytisins. Alls er námið 100
tímar af bóklegri kennslu, en að við-
bættri verklegri þjálfun geta menn öðl-
ast skipstjórnarréttindi,“ segir Jón Pét-
ur og bætir við að bóklega námið kosti
ekki mikið meira en ökunám nú til dags.
„Við bjóðum einnig upp á nám í skútu-
siglingum, vikunámskeið þar sem siglt
er í 30 tíma um borð í skútu skólans. Þá
höldum við námskeið í hafssiglingum og
úthafssiglingum, sem gera menn bók-
staflega færa í flestan sjó, og veita þá
þekkingu sem þarf til að geta ferðast
með öruggum hætti heimsálfa á milli.“
Jón Pétur segir engar forkröfur gerð-
ar til nemenda, og að námið reynist
flestum aðgengilegt. „Siglingafræðin
getur stundum verið snúin, og í nám-
skeiðum eins og úthafssiglinga-
námskeiðinu læra menn m.a. að nota
sextant sem oft kallar á lagni,“ segir Jón
Pétur en bætir við að þeir sem á annað
borð komist á bragðið fái ólæknandi
siglingabakteríu, rétt eins og gerist í
golfi eða stangveiði.
„Einnig er gaman að segja frá því að
aukið líf er að færast í keppnissiglingar
hérlendis. Á hverju þriðjudagskvöldi yf-
ir sumartímann er hægt að fylgjast með
keppni við mynni Reykjavíkurhafnar,
með ráspól við Sólfarið.“
Nánar á www.siglingaskolinn.net.
Útivist | Siglingaskólinn býður upp á fjölbreytt siglinganám í sumar
Hafið hugann dregur
Jón Pétur Frið-
riksson fæddist á
Akureyri 1967.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MH
1987 og BA í ensku
frá Háskóla Ís-
lands 1998. Jón
Pétur er löggiltur
skjalaþýðandi og
stundakennari í þýðingafræði við Há-
skóla Íslands. Hann starfar nú sem
handbókahöfundur hjá Industria og
kennir við Siglingaskólann. Jón Pétur
er kvæntur Kristínu Benediktsdóttur
héraðsdómslögmanni og eiga þau eina
dóttur.
Tónlist
Angelo | Kl. 23. Deephouse er
diskó dagsins í dag og biggo kann
manna best að skila því til almúg-
ans.
Norræna húsið | O’Suomi-fest –
finnskur menningargjörningur í
Norræna húsinu hinn 9. júní kl.
20. Yrjänä Sauros flytur gjörn-
inginn „Word“ sem sameinar
bókmenntir, leikhús og tónlist.
Aðgangur ókeypis. Allir velkomn-
ir.
Myndlist
Grafíksafn Íslands | Sex íslensk-
ar og sex danskar myndlist-
arkonur sýna bókverk undir yf-
irskriftinni „Handbækur“ í
Grafík-listasalnum í Tryggvagötu.
Opið fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga kl. 14-
18 til 17. júní.
Listasalur Mosfellsbæjar |
Kjarna, Þverholti 2, opinn virka
daga kl. 12-19 og lau. kl. 12-15, er í
Bókasafni Mosfellsbæjar. Velkom-
in á opnun Bergsteins 9. júní kl.
12-15. Grunnur verksins er í nor-
rænni goðafræði og tengist hug-
leiðingum um hjónaband, ætt-
arband og tímann. Til 28. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
Skemmtanir
Gaukur á Stöng | Ingó, sem er
oftast kenndur við „Idol“, mætti
með Veðurguðunum síðustu helgi
og slógu þeir heldur betur í gegn.
Drengirnir ætla nú að endurtaka
leikinn á laugardagskvöld.
www.myspace.com/gauk-
urastong.
Fyrirlestrar og fundir
Yggdrasill | Kl. 14. Kynning á
þriggja ára ND-námi sem hefst í
ágúst. Námið er á vegum School
of Natural Medicine og er fjar-
nám og kennslulotur um helgar
og síðdegis. Allir eru velkomnir í
kjallara Yggdrasils þar sem Lilja
Oddsdóttir og Gitte Lassen munu
fræða áheyrendur og svara
spurningum. Sjá einnig
www.purehealth.com.
HANDBÆKUR heitir bókverkasýning sem opnuð var um síðustu helgi í sýningarsal Fé-
lags íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17. Þar sýna verk sín danskar og ís-
lenskar myndlistarkonur. Bókverk eru myndlistarverk í formi bókar. Sýningin er opin
fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18 og er aðgangur ókeypis.
Íslensk og dönsk bókverk
Sigurborg Stefánsdóttir
LANDSMÖNNUM er boðið að
stinga sér til sunds í dag, laugardag-
inn 9. júní, vítt og breitt um landið
undir yfirskriftinni „Allir í sund“.
Það eru Síminn og Sundsamband
Íslands (SSÍ) sem standa að þessari
sundhátíð og verður frítt í valdar
sundlaugar um allt land þennan dag.
Alls tekur 41 sundstaður þátt í
sundhátíðinni, þar á meðal allar
sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu
ásamt flestum sundlaugum í stærri
bæjum landsins. Finna má ítarlegan
lista yfir þær laugar sem taka þátt í
verkefninu á www.siminn.is.
Auk þess sem boðinn er frír að-
gangur í laugarnar verður ýmislegt
gert til skemmtunar. Á milli kl. 13
og 16 munu ungmenni frá sund-
félögunum bjóða upp á sundkennslu
og standa fyrir ýmsum leikjum og
eiga sundlaugargestir kost á því að
vinna sér inn verðlaun með þátttöku
í leikjunum. Þá verður spiluð sum-
artónlist fyrir sundlaugargesti auk
þess sem Síminn býður gestum
sundlauganna upp á hressingu.
Sundhátíðin er liður í samstarfi
Símans og SSÍ, sem hófst 8. maí
þegar skrifað var undir samstarfs-
samning sem miðar að því að auka
áhuga almennings á sundíþróttinni,
hvetja landsmenn til þess að fara í
sund, stunda holla hreyfingu, hress-
andi útiveru og andlega upplyftingu.
Við undirritun samstarfssamn-
ingsins hinn 8. maí sl. tóku starfs-
menn sig saman um að heita á Sím-
ann um fjárstyrk gegn því að
starfsfólkið synti eða tæki þátt í
ýmsum sundleikjum til styrktar
góðu málefni. Síminn tók áheitinu
og í kjölfarið söfnuðu starfsmenn 3,5
milljónum króna sem ákveðið var að
myndu renna til sunddeildar
Íþróttasambands fatlaðra. Rúmlega
helmingur allra starfsmanna Sím-
ans tók þátt í Sundkarnivali Símans
sem fór fram í Laugardalslauginni
en auk þess fóru 58 frískir starfs-
menn í sjósund í Nauthólsvíkinni og
settu Íslandsmet í sjósundi þann
dag.
Víða frítt í
sund í boði
Símans
ÍBÚAR Dalbrautar 14-20
halda flóamarkað í garð-
inum í félagsmiðstöðinni
Dalbraut 18-20 á morgun,
sunnudaginn 10. júní, frá kl.
13-16. Margt eigulegra muna
verður til sölu, s.s. föt, bæk-
ur, skrautmunir og fleira.
Opið hús verður allan daginn
með margs konar skemmti-
atriðum, tónlist og kveðskap.
Framsagnarhópurinn
Tungubrjótar flytur undir
stjórn Guðnýjar Helgadóttur
leiklestur úr Íslenskum aðli
Þórbergs Þórðarsonar. Af-
rakstur sl. vetrar í málaralist
og postulínsmálun verður til
sýnis í salarkynnum fé-
lagsmiðstöðvarinnar. Á boð-
stólum verður kaffi og ný-
bakaðar vöfflur. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Flóamark-
aður á Dal-
braut 18-20
FÉLAGIÐ Ísland-Palestína stendur
fyrir dagskrá í Friðarhúsinu, Njáls-
götu 87 í dag, laugardaginn 9. júní.
Dagskráin er helguð hernámi Pal-
estínu og alþjóðlegum baráttudegi
gegn Aðskilnaðarmúrnum.
„Fjölmörg félagasamtök víða um
heim standa fyrir viðburðum og
mótmælum þennan dag, í Palestínu
sem annarstaðar, til að minna á
baráttuna gegn Aðskilnaðarmúrn-
um sem verið er að reisa á herteknu
palestínsku landi – í trássi við al-
þjóðalög, samþykktir Sameinuðu
þjóðanna og úrskurð Alþjóðadóm-
stólsins í Haag,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Þess verður einnig minnst að 40
ár eru liðin frá sex daga stríðinu og
upphafi hernáms Vesturbakkans
og Gazastrandarinnar. Hernáms
sem varir enn í dag.
Dagskráin hefst kl. 14:00. Kvik-
myndin The Iron Wall verður sýnd,
og umræður verða á eftir. Sveinn
Rúnar Hauksson, læknir og for-
maður félagsins, heldur tölu um
ástandið í Palestínu í dag. Við sama
tækifæri verður haldið upp á út-
gáfu nýs tölublaðs Frjálsrar Palest-
ínu, málgagns félagsins.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Dagskrá í
Friðarhúsinu
Fréttir
í tölvupósti