Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 57
Samspil
veraldarsögu,
skáldskapar
og ævisagna
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BÓKMENNTAHÁTÍÐIN í
Reykjavík verður haldin í áttunda
sinn 9.-15. september næstkom-
andi. Um fimmtíu erlendir gestir
koma á hátíðina að þessu sinni, rit-
höfundar, útgefendur og aðrir þeir
sem koma að bókaskrifum og út-
gáfu, en einnig verða í hópnum er-
lendir þýðendur sem sækja mál-
þing um þýðingar sem haldið
verður í tengslum við hátíðina.
Leiðarstef hátíðarinnar að þessu
sinni verður samspil veraldarsögu,
skáldskapar og ævisagna, en
margir þeirra rithöfunda sem
koma á hátíðina hafa einmitt skrif-
að bækur þar sem þeir taka fyrir
söguleg og samfélagsleg málefni,
hvort sem það er í sjálfsævisögu-
legum bókum sagnfræðilegum
skáldsögum eða hreinum skáld-
skap.
Tuttugu höfundar frá fjórum
heimsálfum verða gestir hátíð-
arinnar og þeirra á meðal eru
margir heimsþekktir höfundar, en
einnig koma á hátíðina ungir og
rithöfundar frá ýmsum löndum.
Erlendir rithöfundar sem koma á
hátíðina eru Ayaan Hirsi Ali,
Carla Guelfenbein, Carl Jóhan
Jensen, Claudio Pozzani, Daniel
Kehlmann, Edouard Glissant,
Hanne Orstavik, J.M. Coetzee,
Jon Halliday, Jonas Hassen
Khemiri, Jung Chang, Kim Echlin,
Kirsten Hammann, Marina Le-
wycka, Morten Ramsland, Nicola
Lecca, Roddy Doyle, Robert Löhr,
Sasa Stanisic, Tapio Koivukari,
Tracy Chevalier og Uwe Timm.
Nóbelsverðlaunahafi
Suður-afríski rithöfundurinn
J.M. Coetzee, sem fékk Nób-
elsverðlaun í bókmenntum árið
2003, er þekktastur höfundanna,
en hann er líka vel kynntur hér á
landi því tvær bóka hans, „Van-
sæmd“ og „Barndómur“, hafa
komið út á íslensku á vegum
Bjarts.
Franski rithöfundurinn Edouard
Glissant nýtur mikillar virðingar í
heimalandi sínu og sumir skipa
honum á bekk með helstu rithöf-
undum Frakka nú um stundir, en
hann fæddist á eynni Martinique í
Karíbahafi og hefur barist gegn
nýlendustefnu og kynþáttahyggju.
Talsvert hefur komið út á ís-
lensku eftir Roddy Doyle, bæk-
urnar „Ævintýri á meðan“, „Hrói
bjargar jólunum“, „Flissararnir“,
„Ég heiti Henry Smart“, „Konan
sem gekk á hurðir“ og „Paddy
Clarke ha, ha, ha“, allar hjá Vöku
Helgafelli. Hann er þó líklegast
þekktastur fyrir skáldsöguna The
Commitments, en kvikmynduð
gerð eftir henni varð gríðarlega
vinsæl.
Ayaan Hirsi Ali er svo þekktust
fyrir annað en bókmenntir, því
hún varð heimsþekkt í kjölfar
kvikmyndar sem hún gerði með
leikstjóranum Theo van Gogh um
stöðu kvenna í íslömskum ríkjum,
en van Gogh var myrtur vegna
myndarinnar árið 2004. Ayaan
Hirsi Ali, sem fæddist í Sómalíu,
leitaði hælis í Hollandi árið 1992
og var hún kjörin á þing árið 2003.
Undanfarin ár hefur hún þó búið í
Bandaríkjunum vegna hótana sem
henni hafa borist. „Infidel“, ævi-
söguleg bók hennar, er væntanleg
í haust á íslensku hjá Veröld.
Jung Chang er þekktust fyrir
bók sína „Villtir svanir“ sem kom
út á íslensku hjá Máli og menn-
ingu á sínum tíma, en bók hennar
og Jons Hallidays, eiginmanns
hennar, um Mao vakti heims-
athygli fyrir tveimur árum enda
segja þau ítarlegar frá einvald-
inum Mao Zedong en áður hefur
verið gert.
Dagskrá bókmenntahátíðar er
haldin í Norræna húsinu og Iðnó,
en einnig verður haldið alþjóðlegt
málþingi um þýðingar á norrænum
bókmenntum og Coetzee mun
flytja fyrirlestur í Háskóla Ís-
lands.
Morgunblaðið/Kristinn
Sjálfboðaliðar Nefnd sjálfboðaliða skipulagði bókmenntahátíðina og þeir sem heimangengt áttu komu til kynn-
ingar á henni í Norræna húsinu. Frá vinstri Sjón, Sigurður G. Valgeirsson, Halldór Guðmundsson, Max Dager for-
stjóri Norræna hússins, Thor Vilhjálmsson og Einar Kárason. Aðrir í nefndinni eru Pétur Már Ólafsson, Susanne
Torpe og Örnólfur Thorsson.
J.M. Coetzee
Roddy Doyle
Ayaan Hirsi Ali
Edouard Glissant
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 57
Hvernig var Madonna sem barn?
En Eminem? Svörin við því má
finna í popjustice-seríunni þar sem
ævi ýmissa þekktra poppara eru
gerð örstutt en þó ítarleg skil í smá-
bókum sem svipar mest til herra-
mannabókanna, ásamt vel útilátn-
um skammti af kaldhæðni.
Þá má klippa út pappabrúður af
stjörnunni og einhverjum góðum
vini hennar. Bækurnar eru í raun
skrifaðar eins og barnabækur en
eru þó fremur ætlaðar fullorðnum.
Auk áðurnefndra eru komnar
bækur um Britney Spears, Michael
Jackson, Elton John, Take That,
Robbie Williams og Pete Doherty
auk þess sem bækur um Jesús og
Kylie Minogue eru væntanlegar.
Eitthvað af bókunum má finna í Iðu
en annars þarf bara að notfæra sér
Netið eða utanlandsferðir.
Örævisögur
Madonnu,
Britney og
Eminem
mbl.is
smáauglýsingar
T V E I M U R Á R U M
Á U N D A N
Faxafen 10
108 Reykjavík
Sími: 517-5040
Fax: 517-5041
Netfang: postur@hradbraut.is
Veffang: www.hradbraut.is
Hefur þú það sem til þarf ?
Róbert Bjar
ni Bjarnaso
n er 19 ára.
Hann varð s
túdent
2005 og lau
k flugmanns
prófi frá Ox
ford Aviation
Training nýl
ega. Hann h
efur nú hafi
ð störf sem
flugmaður h
já einu stær
sta flugfélag
i Evrópu, R
yanair.
Margrét Kara Sturludóttir er 17 ára. Hún er að ljúkastúdentsprófi og er á sérstökum heiðurslista yfir
úrvalsnemendur Hraðbrautar. Hún er í landsliðinu í körfubolta
og var nýlega valin í 5 manna lið ársins ásamt því að veravalin efnilegasti ungi leikmaðurinn.