Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 63

Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 63 HÓTELERFINGINN Paris Hilton grét og æpti eftir að dómari kvað upp þann úrskurð öðru sinni í gær að hún yrði að ljúka afplánun í fangelsi en ekki stofufangelsi, eins og fógeti hafði gefið leyfi fyrir í fyrradag. „Þetta er ekki sanngjarnt!“ æpti Hilton og felldi tár í dómssalnum og kallaði á mömmu sína. Hilton var færð til réttarsalar í hand- járnum og illa til höfð, ógreidd og ómáluð, sem er ekki hennar stíll. Hilton grét og skalf á með- an dómarinn las yfir henni og sneri sér ítrekað við í átt að foreldrum sínum og tjáði þeim ást sína með látbragðsleik. Dómari í málinu, Michael T. Sauer, var öllu rólegri en afar ósáttur við gjörðir fógetans Lee Baca. Sauer sagðist aldrei hafa gefið leyfi fyrir því að Hilton fengi að ljúka refsivist á heimili sínu í Hollywood Hills hverfinu í Los Angeles. Aðstoðarsaksóknari Dan F. Jeffries sagði mikilvægt að Hilton yrði send aftur í fangelsi. Það veikti trú manna á bandaríska réttarkerfið að sleppa henni lausri eftir þriggja daga fang- elsisvist, og senda í stofufangelsi. Verjandi Hilton, Richard Hutton, grátbað dómarann um að færa málið til skrifstofu sinn- ar og hlýða þar á útskýringar á því hvers vegna stofufangelsisvist þótti við hæfi. Slæm heilsa Hilton var sögð ástæðan og vildi verjandi segja nánar frá henni. Hilton fékk heimild til að ljúka afplánun í stofufangelsi í fyrradag, eftir aðeins þriggja daga fangelsisvist, vegna ónefnds heilsubrests. Hilton þurfti ekki að borða fangelsisfæði dag- ana þrjá, fékk formkökur sendar til sín og hundamat úr lífrænt ræktuðu hráefni fyrir hvolpana sína tvo. Hilton sagði í gær að hún hefði lært heilmikið af vistinni og vonaðist til þess að aðrir hefðu lært af mistökum hennar. Mörgum þykir málið bera keim af því að farið sé mjúkum höndum um hina ríku og frægu. Baca hefur svarað því til að lítið réttlæti sé í því að refsa hinum frægu harðar en meðal-Bandaríkjamanni. Hilton var tekin ölvuð undir stýri í sept- ember í fyrra. Hún hlaut skilorðsbundinn dóm og var svipt ökuleyfi en hélt þó áfram að keyra skírteinislaus. Sauer dómari tók sérstaklega fram við uppkvaðningu refsingar í fyrsta skipti að Hilton fengi ekki að afplána dóminn heima hjá sér í stofufangelsi. Aftur í fangelsi AP Tárvot Hilton grátandi í bifreið á leið til réttarsalar. Reið Foreldrar Hilton, Rick og Kathy, voru ósátt í gær. JOHN Pike, trommari hljómsveit- arinnar Ra Ra Riot, er látinn. Til- drög andláts- ins eru óljós en lík hans fannst á nokkurra metra dýpi undan strönd Providence í Rhode Island- ríki á austur- strönd Bandaríkjanna. Kvöldið áð- ur hafði hljómsveitin haldið partí eftir tónleika en þaðan hélt Pike í morgunsárið. Síðar fannst farsími hans á strönd þar skammt undan. Hljómsveitin Ra Ra Riot er bókuð á Iceland Airwaves í haust. Að- standendur hátíðarinnar segja at- vikið afar sorglegt en þeir vonast jafnframt til að hinir meðlimir hljómsveitarinnar komist yfir áfall- ið og að hljómsveitin geti leikið hér í haust samkvæmt áætlun. Trommari Ra Ra Riot látinn John Pike Trommari Ra Ra Riot er látinn. Í KALIFORNÍU geta menn leigt sér hund hjá hundaleigu og brátt verð- ur það einnig hægt í New York. Hundaleigan ber nafnið Flexpetz en það var Marlena nokkur Cerv- antes sem fékk þessa óvenjulegu viðskiptahugmynd og hrinti í fram- kvæmd. Hundaleigan er miðuð við þá sem hafa ekki tíma til að sinna hundi eða eiga við ofnæmi að stríða. Dýraverndunarsinnar eru ekki sáttir við að hundar séu leigðir út með þessum hætti. Viðskiptavinir Flexpetz geta valið úr fimm til tíu hundum og geta leigt þá í nokkrar klukkustundir eða nokkra daga, allt eftir þörfum. Cervantes bendir á að í borgum eins og New York sé það oft bannað í fjölbýlishúsum að eiga hund eða þá að menn þurfi að greiða himinhá gjöld fyrir að vera með dýrið í íbúð sinni. Hver hvolpur hundaleigunnar mun eiga tvær eða þrjár fjölskyldur sem hann býr hjá reglulega, þ.e. þegar hann er ekki í láni. Reuters Hundur Þessi er ekki til leigu. Hundar leigðir út

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.