Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 18
|fimmtudagur|12. 7. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Eftirspurn eftir umhverfis-
vænni bílum fer sívaxandi. En
hvað er í boði fyrir þá sem láta
sig þessi mál varða? »20
vistvænt
Sveitir sjálfboðaliða frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg verða
til taks á hálendinu í sumar.
»23
hálendið
Mikið úrval af grillkjöti er að
finna í helgartilboðum verslana,
sem og aðra fæðu í útileguna.
»21
helgartilboðin
Gallerí kjöt opnaði nýlega versl-
un á Dalvegi í Kópavoginum, en
fyrirmyndin er evrópskar sæl-
keraverslanir. »21
neytendur
Hjónin Björg Benediktsdóttir og
Ingvar Ólafsson fóru í göngu-
ferð um Velibit-fjallgarðinn í
Króatíu. »22
Króatía
Þ
að er engu líkt að aka um
á Harley Davidson, fólk
þarf að prófa það sjálft
til að skilja hvað þetta
gefur,“ segja þeir Er-
lendur Birgisson, Barði Kárason og
Páll Guðjónsson sem allir hafa ný-
lega fengið sér glæsileg Harley Dav-
idson-hjól og brosið hefur vart farið
af þeim síðan þeir fengu gripina í
hendur. Þeim líður eins og þeir séu
kóngar um stund þegar þeir sitja
mótorfákana, rétt eins og knapinn á
gæðingnum í ljóði Einars Ben.
„Þetta snýst ekki um að keyra
hratt, heldur frekar um að njóta þess
að aka um á svona græju. Vissulega
er gaman að gefa svolítið í, það tekur
ekki nema rúmar þrjár sekúndur að
komast upp í hundrað og slíkt kikk
er ekki hægt að fá annars staðar því
enginn bíll kemst með tærnar þar
sem Harleyinn hefur hælana í þeim
efnum. Auk þess gleðja hjólin augað,
þetta eru fallegir gripir sem hafa
langa sögu og sterka ímynd. Harley
Davidson er eiginlega eins og stofn-
un, þessi tegund af hjólum er orðin
104 ára gömul og þau hafa skapað
sér sess og virðingu. Þetta voru tveir
menn, Harley og Davidson, sem
hönnuðu hjólið í upphafi og það hefur
auðvitað tekið breytingum og marg-
ar og ólíkar týpur eru til.“
Hjólin eru engin smásmíði, þau
eru 340 kíló og það þarf að venjast
því að höndla slíka gripi.
„Ég var mánuð að ná fullum tök-
um á því og venjast því að hafa svona
þungan grip í höndunum en ég hef
aldrei dottið á því,“ segir Erlendur
sem fékk sitt hjól í vor eftir þó
nokkrar hrakfarir. „Upphaf mótor-
hjólaáhuga míns má rekja til þess
þegar ég var unglingur og fékk
stundum lánað hjól sem vinur minn
átti. Ég ætlaði mér alltaf að kaupa
mér mótorhjól en svo höguðu að-
stæður því þannig að ekkert varð af
því. En fyrir nokkrum árum var ég
staddur á flugvelli í London þar sem
stillt hafði verið upp nýju Harley
Davidson-hjóli af tegund VROD en
Porsche-verksmiðjan kom að hönn-
un þeirra. Ég féll kylliflatur fyrir því
og ákvað að svona hjól ætlaði ég að
kaupa mér, sem ég og gerði síðar og
fékk það loksins í vor sent frá Banda-
ríkjunum, sjö mánuðum eftir að ég
borgaði það. En biðin var þess virði.“
Allt önnur upplifun en að
drullumalla á krossarahjólum
Barði er líka á VROD-hjóli en
hans er þó nýrra en hjól Erlendar og
heitir Screaming Eagle og er með
125 hestafla vél en vélin hjá Erlendi
er 114 hestöfl. „Ég hef alltaf verið
mikið fyrir mótorhjól og konan mín
gaf mér krossara þegar ég varð fer-
tugur og ég keypti mér fljótlega ann-
an stærri. Svo fékk ég þá flugu í
höfuðið fyrir nokkrum dögum að
kaupa mér Harley. Þetta er allt ann-
að en að vera að drullumalla á tor-
færuhjólum þó það sé líka gaman.
Það er draumi líkast að krúsa um á
Harley, maður svífur um í sæluvímu.
Það eru aðeins til 1.400 stykki af
þessari tegund í heiminum og mitt
hjól er númer 1.313 í röðinni, sem
mér finnst dálítið flott,“ segir Barði
sem smitaði Palla vin sinn strax því
hann var kominn á Harley aðeins
fjórum dögum eftir að Barði fékk
sinn í hendurnar. „Það er auðvitað
mjög gaman að hjóla saman og við
höfum yngst um tíu ár við að eignast
þessi hjól,“ segja þeir og játa fúslega
þörf sína til að leika sér og að þetta
sé ákveðin tegund af spennufíkn og
tækjadellu en bæta við að kikkið,
sem þeir fái út úr því að keyra um á
Harley gamla, sé þroskað kikk.
Riddarar götunnar Þremenningarnir taka sig óneitanlega vel út á mótorfákunum þar sem þeir svífa um göturnar í sæluvímu.
Strákafílingur Erlendur, Barði og Palli spá og spekúlera þegar þeir hvíla fákana.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hestöfl milli fóta Stoltir og svalir félagar í leðurgalla með tækjadellu.
Útrás fyrir spennu-
fíkn og tækjadellu
Þeir segja að það sé draumi líkast að „krúsa“ um á
Harley Davidson. Kristín Heiða Kristinsdóttir fékk
að reyna kikkið á eigin skinni þegar hún fór á rúntinn
með þremur köppum sem eru kolfallnir fyrir Harley.
www.harley-davidson.com
www.bostonharley.com/
aboutus.asp
www.h-dcice.com/
www.harley-davidson.dk
khk@mbl.is