Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 43 Stærsta kvikmyndahús landsins Sýnd kl. 4, 5:45 og 8 Með íslensku tali Sýnd kl. 4, 6 og 10 Með ensku tali SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI eee S.V. - MBL. www.laugarasbio.is "LÍFLEG SUMARSKEMMTUN" eee L.I.B. TOPP5.IS Miðasala á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY Guð hefur stór áform ... en Evan þarf að framkvæma þau Evan hjálpi okkur Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 BRUCE ALMIGHTYFRÁ LEIKSTJÓRA Guð hefur stór áform ... en Evan þarf að framkvæma þau MÖGNUÐ SPENNUMYND UM KONU SEM MISSIR EIGINMANN SINN Í BÍLSLYSI ...EÐA EKKI? SANDRA BULLOCK MARTRÖÐ EÐA RAUNVERULEIKI? “Besta sumarmyndin til þessa” eeee S.V. - MBL T.S.K. – Blaðið “Pottþéttur hasar” “... vandaður sumarsmellur með hátt skemmtanagildi fyrir fleiri en hasarunnendur” eee Ó.H.T. - Rás 2 eeee V.J.V. – Topp5.is eee F.G.G. – FBL Yippee Ki Yay Mo....!! “...besta sumar- afþreyingin til þessa.” eee MBL - SV “Grípandi atburðarás og vönduð umgjörð, hentar öllum” eee Ó.H.T. - Rás 2 -bara lúxus Sími 553 2075 “Besta sumarmyndin til þessa” eeee S.V. - MBL T.S.K. – Blaðið “Pottþéttur hasar” “... vandaður sumarsmellur með hátt skemmtanagildi fyrir fleiri en hasarunnendur” eee Ó.H.T. - Rás 2 eeee V.J.V. – Topp5.is eee F.G.G. – FBL Yippee Ki Yay Mo....!! 10 Sýnd kl. 7:30 og 10-POWERSÝNING Evan Almighty kl. 6 - 8 - 10 Die Hard 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára Premonition kl. 8 - 10 B.i. 12 ára Fantastic Four 2 kl. 6 STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINS STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINS “2 vikur á toppnum!” “2 vikur á toppnum!” HLJÓMSVEITIN Toto hefur verið starfandi í þrjátíu ár og á því marga aðdáendur í öllum aldursflokkum. Á tónleikunum í Laugardals- höllinni mátti sjá mikla breidd í áhorfenda- skaranum, allt frá börnum upp í fólk á besta aldri. Toto lét aðeins bíða eftir sér en þegar sveit- in hóf leikinn um klukkan hálfníu gerði hún það afskaplega vel. Ég hef ekki farið á marga tónleika sem hljóma jafn vel og þessir gerðu. Liðsmenn léku ný lög í bland við eldri og mátti sjá gleði í augum tónleikagesta þegar þeir léku slagara á borð við „Hold the Line“ og „Rosanna“. Dagskráin var engu að síður nokkuð gloppótt. Þrátt fyrir að leikin væru lög sem allir gátu sungið með og haft gaman af, var mikið um sólótakta gítarleikarans Steve Lukathers inni á milli. Þessar ser- imóníur geta verið skemmtilegar fyrir suma en í þetta sinn drápu þær steminguna á milli vinsælu laganna. Þetta sást greinilega þar sem tónleikagestir nýttu sér tímann til þess að kaupa sér drykki eða fara út til að fá sér ferskt loft á meðan sveitin lauk sér af í til- burðum sínum. Bassaleikari Toto, Mike Porcaro, var fjarri góðu gamni en í hans stað kom bassahetjan Leland Sklar sem hefur leikið með tónlistar- mönnum á borð við Leonard Cohen, Phil Coll- ins og James Taylor. Sklar stóð sig með prýði og var skemmtileg viðbót við þessa litríku sveit. Söngvarinn Bobby Kimball, sem yfirgaf Toto árið 1984 vegna persónulegra vanda- mála, gekk aftur til liðs við sveitina árið 1999 og var því með á tónleikunum. Hann hefur gríðarlega fallega rödd en syngur þó ekki jafn vel og hann gerði áður – sem er fullkomlega eðlilegt þar sem maðurinn er um sextugt. Það sem mér þótti öllu undarlegra var framkoma hans á sviðinu. Það er að segja, hann var ekki alltaf á sviðinu, jafnvel þótt ég vissi að þarna væri laglína sem honum væri ætluð. Þegar hann var þar var hann undarlegur og úr tengslum við hina hljómsveitarmennina og var stemningin á milli þeirra hálfvandræðaleg á köflum. Í laginu sem allir höfðu beðið eftir, „Africa“, söng hann til dæmis ekki textann og kom aðeins inn á sviðið í viðlaginu og veinaði það á tryllingslegan hátt. Í miðju lagi fór hann á hnén á gólfinu fyrir aftan Lukather og Sklar og það virtist sem þeir væru að reyna að tala við hann og fá hann aftur á lappir. Ég veit ekki hvort „persónuleg vandamál“ Kimballs hafa tekið sig upp aftur eða hvort þetta var hluti af sýningunni. Engu að síður var þetta furðulegt og vakti hjá mér ýmsar spurningar. Mér finnst rétt að ítreka að Toto er mjög góð tónleikasveit, ein af þeim bestu sem ég hef séð. Hljóðið gekk fullkomlega upp, lögin hljómuðu næstum því eins og þau gera á plöt- unum þeirra og þeir eiga til óþvingaða leik- gleði. Það voru nokkur lög sem ég saknaði að heyra, sérstaklega í ljósi þess hve góður flutn- ingurinn var á þeim sem þeir þó léku. Á heild- ina litið var þetta samt ekki jafn skemmtilegt og ég hafði vonað, of mikið var um erfiða kafla sem ekki þjóna hinum almenna hlustanda. Miðlungstónleikar hjá frábærri hljómsveit Morgunblaðið/Sverrir Bassi „Sklar stóð sig með prýði og var skemmtileg viðbót við þessa litríku sveit.“ TÓNLIST Laugardalshöll Þriðjudaginn 10. júlí kl. 20 Toto  Helga Þórey Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.