Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 47
-hágæðaheimilistæki
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Nú getum við boðið þessa frábæru Smeg gaseldavél á einstöku
tilboðsverði. Smeg gaseldavélar eru ítalskar gæðavélar fyrir
alla þá sem unna glæsileika og góðum mat. Tilboðið gildir
meðan birgðir endast.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri og
í Reykjavík og kynnið ykkur Smeg heimilistækin.
B90MFX5 90 sm Smeg gaseldavél
Fimm gashellur með pottjárnsgrindum
97 ltr ofn með 8 kerfum. Kæling í hurð,
heitur blástur, grillteinn.
Verð áður kr. 249.000 stgr.
Glæsileg gaseldavél
AFSLÁTTUR
30%
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Smeg gaseldavél á tilboðsverði
kr. 174.300 stgr.
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
S ím i 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. faste ignasal i
Ljósavík 30 - Sérinngangur
Opið hús í dag milli kl. 18 og 19
Mjög falleg 94,7 fm rúmgóð 3ja herb.
endaíbúð á 1. hæð með sólpalli og sér-
inngangi. Rúmgott eldhús með fallegri
viðarinnr. og borðkrók við glugga með
hurð út á sólpall. Rúmgóð herbergi.
Þvottahús og geymsla innan íbúðar.
Rúmgott, flísalagt baðherbergi. Mjög
fallegt eikarparket á gólfum og flísar á
forstofu og eldhúsi. Húsið er mjög
fallegt að utan. Skemmtilegt útsýni yfir
í Geldingarnes og Esjuna. Stutt í leik-
skóla, skóla og þjónustu.
Verð 23,8 millj.
Pétur og Ellen taka vel á móti gestum í dag milli kl. 18 og 19.
Teikningar á staðnum.
Breiðvangur - 220 Hafnarfjörður
Snyrtileg 59,1 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð
í nýlega viðgerðu fjölbýli í norðurbænum,
ásamt séreignargeymslu, sem er ekki inní
heildarstærð íbúðar. Falleg íbúð, sem ný-
lega er búið að mála, endurnýja rafmagns-
rofa að hluta og dyrasíma. Nýlegt parket
á allri íbúð, nema baðherbergi. Góðar
suðursvalir. Stutt í verslun, skóla og aðra
þjónustu. Ásett verð 16,9 millj.
Stelkshólar - 111 Reykjavík
Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herb. íbúð
á 3. hæð samtals birt stærð 113,3 fm, þar
af 24,1 fm bílskúr í 6 íbúða fjölbýli. Öll
íbúðin nýyfirfarin, máluð og vel viðhaldið.
Allar hurðir nýlegar, eik. Plastparket á allri
íbúðinni nema baðherbergi. Allar innrétt-
ingar og gólfefni í ljósum við, sem gerir
heildarsvip íbúðar fallegan. Staðsett í
skemmtilegu umhverfi með góðum sameig-
inlegum garði með leiktækjum fyrir börn.
Ásett verð 23,9 millj.
Tungusel - 109 Reykjavík
Snyrtileg 3ja herb. samtals 88,2 fm íbúð á
3. hæð í Seljahverfi. Rúmgóð herbergi og
falleg gólfefni. Suðursvalir, snyrtileg sam-
eign og að sögn eiganda voru hurðir
innan íbúðar endurnýjaðar fyrir ca tveimur
árum og gler endurnýjað í gluggum sem
snúa í suður. Ásett verð 17,9 millj.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-19
GRÆNLANDSLEIÐ - Sérhæð m/bílskúr
Traust þjónusta í 30 ár
Glæsileg efri sérhæð með miklu og fallegu útsýni. Eigninni fylgir sérstæður bílskúr.
Íbúð 112,3 fm og bílskúr 32,9 fm, samtals 145,2 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, gang,
tvö svefnherbergi, fallegt baðherbergi, sér þvottaherb. og stóra og bjarta stofu með
geysilega miklu útsýni, og eldhús sem er opið í stofu. Fallegar kirsuberja innréttingar
og hurðar. Flísar og parket á gófum. Falleg lóð er við húsið.
Verð 39.8 millj.
Verið velkominn í dag milli 17-19
Guðmar og Anna taka á móti gestum.
BLÚSTÓNLISTARMAÐURINN
B.B. King varð miður sín þegar
umboðsmaðurinn hans bannaði
honum að
fljúga flugvél-
inni sinni einn
og heimtaði að
hann hefði
varaflugmann
með sér til ör-
yggis sam-
kvæmt kröfum
trygginga-
félags King.
Blúsarinn, sem
er goðsögn í
lifanda lífi, er
orðinn 81 árs
gamall. Hann
hefur flug-
mannsréttindi og var vanur að
fljúga sjálfur á alla tónleika sem
hann spilaði á.
King er hins vegar ekki
spenntur fyrir að fljúga með öðr-
um og segir það taka allt gam-
anið úr fluginu: „Það er eins og
að hafa siðgæðisvörð með sér
þegar maður er með huggulegri
stúlku,“ sagði kóngurinn sem hef-
ur líklega sjaldnast haft siðgæð-
isvörð með sér í þeirri stöðu en
sagan segir að hann hafi misst
sveindóminn áður en hann varð
tíu ára. Hann hefur þó alltaf
haldið tryggð við hana Lucille,
gítarinn sinn eina. „Margar kon-
ur hafa beðið mig um að velja á
milli sín og Lucille. Það er ástæð-
an fyrir að ég á fimmtán börn
með jafnmörgum konum.“
B.B. King
hafnar
siðgæðis-
verðinum
Kvennagull B.B.
King er hættur að
fljúga í bili.
LEIKKONAN Drew
Barrymore er föst í ást-
arþríhyrningi segir á
vefsíðu People.
Barrymore og leik-
stjórinn Spike Jonze,
sem voru fyrst tengd
saman fyrir um fjórum
mánuðum, fóru saman á
þriðjudaginn á tónleika
með Klaxons og sáust
meðal annars knúsast og kyssast í
sérstökum VIP-bás.
Það var samt aðeins í síðustu viku
sem Barrymore sást í New York
með Scrubs-leikaranum Zach Braff.
Barrymore og Braff sáust fyrst sam-
an í febrúar þegar þau hittust í Sat-
urday Night Live eftirpartíi. Í júní
sást svo aftur til þeirra þar sem þau
dönsuðu saman á skemmtistað og
sáust jafnvel kyssast. Seinna sást til
þeirra ganga saman í gegnum SoHo-
hverfið í New York hönd í hönd.
Ekki hefur fengist staðfest hvorn
Barrymore er að hitta eða hvort hún
er með báða í takinu.
Ástarþríhyrningur
Barrymore
Spike Jonze Drew Barrymore Zach Braff
KYNTRÖLLIÐ Brad Pitt segist
ganga eins og steinaldarmaður og
líta hversdagslega út.
Kvikmyndastjarnan, sem er af
mörgum talin kynþokkafyllsti karl-
maður í heimi, er ekki hrifin af eig-
in spegilmynd.
„Þegar ég lít í spegilinn sé ég
mjög hversdagslegan mann og þeg-
ar ég er þreyttur geng ég eins og
steinaldarmaður,“ segir hann. En
Pitt er óánægður með fleira en út-
litið. „Ég kann heldur ekki við hvað
ég get stundum verið skapvondur.“
Pitt hefur ekki aðeins skoðanir á
sjálfum sér heldur finnst honum
ungar Hollywood-stjörnur einbeita
sér of mikið að frægðinni og ekki
nægilega að mikilvægum fé-
lagslegum málum. „Þær verða að
einbeita sér að öðrum mikilvægum
hlutum meðfram frægðinni. Þessar
sífelldu krísur geta verið truflandi
og eru ekki góð leið til að lifa líf-
inu,“ eru skilaboð hans til yngri
kynslóðarinnar í Hollywood.
Hversdagslegur
steinaldarmaður
Reuters
Brad Pitt Óánægður með sig.