Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 41 Al j legt orgelsumar Hallgr mskirkju 12. jœl kl. 12.00: Douglas A Brotchie, orgel 14. jœl kl. 12.00: Mario Duella, orgel 15. jœl kl. 20.00: t̋alski organistinn Mario Duelle leikur verk eftir Buxtehude, Bach, Mendelssohn, Guilmant og eftir talska h funda. w w w.listvinafelag.is SÝNINGAR Á SÖGULOFTI MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson 13/7 kl. 20 uppselt, 14/7 kl 15 Uppselt, 14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 Uppselt, 12/8 kl. 15 laus sæti, 12/8 kl. 20 laus sæti, 18/8 kl. 20 laus sæti, 19/8 kl. 15 laus sæti, 19/8 kl. 20 laus sæti, 25/8 kl. 20 laus sæti, 26/8 kl. 20 laus sæti, 30/8 kl. 20 laus sæti, 31/8 kl. 20 Uppselt, 8/9 kl. 20 laus sæti, 9/9 kl. 20 laus sæti, 14/9 kl. 20 laus sæti, 15/9 kl. 20 laus sæti, 22/9 kl. 20 laus sæti, 23/9 kl. 20 laus sæti, 28/9 kl. 20 laus sæti, 29/9 kl. 20 laus sæti, Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningu Leikhústilboð í mat: Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600 Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200 Miða- og borðapantanir í síma 437 1600 Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is Sumartónleikar í Skálholtskirkju ÍSLAND-AUSTURRÍKI Fimmtudagur 12. júlí Kl. 18:00 Erindi í Skálholtsskóla Klaus Ager: Hugsun og hegðun í evrópskri vídd Helmut Neumann: Kynning á „Die Leute auf Borg” Kl. 20:00 Kammertónleikar I Verk eftir Klaus Ager, Helmut Neumann, Pál P. Pálsson og Werner Schulze Graffe strengjakvartettinn, Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, Einar Jóhannesson klarinett, Sigurður Halldórsson selló, Jörg Sondermann orgel Laugardagur 14. júlí Kl. 14:00 Erindi í Skálholtsskóla Helmut Neumann: Menningartengsl Íslands og Austurríkis á sviði tónlistar Kl. 15:00 Kammertónleikar II Verk eftir Huber Pöll, Áskel Másson, Friedrich Cerha og Hannes Heher Graffe str.kvartettinn, Einar Jóhannesson klarinett Ókeypis aðgangur www.sumartonleikar.is HIN útvöldu íslensku lög frá níunda áratugnum eru hreint ótrúlega líf- seig á íslenska plötulistanum en þau hafa hreiðrað um sig í efsta sætinu svo vikum skiptir. Lands- menn njóta þess greinilega að sleppa fram af sér beislinu í nostal- gíukasti og kyrja alla gömlu „eitís“- slagarana; sést hefur til þeirra syngjandi uppi á borðum í heima- húsum, gaulandi inni í bíl á leið til vinnu og organdi í falsettu skokk- andi um Skerjafjörðinn. Er það ein- læg von blaðamanns að slík alþýðu- sönglist lifi áfram næstu daga, vikur, mánuði, ár. Og þá má sko ló- an fara að vara sig! Annars dregur aldeilis til tíðinda á listanum að þessu sinni; kassagít- ar-kumpánarnir KK og Maggi Ei- ríks taka undir sig gríðarmikið stökk og svífa hlæjandi í yl og blíðu annars sætisins. Þar fyrir utan er býsna tíðindalaust á plötuvígstöðv- unum þessa dagana. Fólk eyðir meiri peningum í ískaup en hljóm- skífufjárfestingar enda keppist sól- ardísin við að kyssa landsmenn undurmjúklega á skjannahvítt hör- undið. Rembingskoss, sólardís!                               !                  "  # $ $% %& %'() *+ , % '#  %-./)%     !" #$  %! &'( )(*+    + *$ ,(-- ( ,* . /01 #$ 23( 4  5 $* $ 213 4 6'+!" %1 ," 6$   &(        ! " #$%   & "" '" " &"  (  )$* + , - . /0) 1" 23 4  3  )5  6   4%   7- *- 8"  4*- 9- +  ! 8 " % :)$ ; < = *> ?"*              0 #  *1  " ( 2     $3   %   $3 &45 6%) ) -./)  -./)  %   43              $%4.'(  ',789':;    7++8/9 :+ ;+ ;< 2 & #$ .0$*" '<3* ,-+0"'1 ; ='*+ &> 49+ 7+ /"33 ?"+ " + )'+3 ,*+3<  ( ((  @A"" ,! %++ @: B+: 7"*( 6+ 2 /A*" @ A  B" & 0  0  !  &"  C"" "D "- =  8 -* *,B 40 ;=  E= F  % " 5 *- 3 % E" G"- 9"? H = 1 1"I F*D" , C-,0 $D  ' G"- J"B 4% !   "-*K "  J"  & 4 " 0 F C= J= J  " 25 *3 =)!                " <=<  (,>    3$ ? " @   * " %% " A%  B @  " +  % C  "     Svífandi Maggi, fljúgandi KK Stuð Við ættum kannski að hug- leiða að breyta nafni okkar ástkæru fósturjarðar í „Diskóland“. TILFINNINGAÞRUNGIÐ lag frá Fergie og félögum í Black Eyed Peas ryðst í fyrsta sæti íslenska lagalistans. Poppdívan baunar útúr sér hjartnæmum yfirlýsingum um ástarsorg og óseðjandi þrár, en hlustandinn fær það á tilfinninguna að þessar ólgandi kenndir geti ekki annað en ruðst fram á varir söng- konunnar er barki hennar þenst í óhjákvæmilegum og hádramatísk- um söng. Stórkostlegt lag sem nefnist „Big Girls Don’t Cry“ og hugnast Íslendingum greinilega vel. Þeir eru enda í ástargírnum um þessar mundir, lag Páls Óskars, „Allt fyrir ástina,“ helst í öðru sæt- inu. Íslenskir nýliðar á listanum eru kjarnakvendin hressu í Dúkkulís- unum. Þær syngja lagið „Hvað á að gefa konum?“ en strax á hæla þeirra fylgir önnur hress og skemmtileg sveit, Sniglabandið. Þeir útlista fyrir hlustendum hvað kaupstaðurinn Selfoss er. Ellismellurinn að þessu sinni er svo lagið „Freight Train“ í flutningi trúbadoranna Péturs Ben, Ólafar Arnalds og Lay Low. Svarteygðar matbaunir vinsælastar F yrir tæpu ári vildi As- hley Cole yfirgefa upp- eldisfélag sitt Arsenal og annars staðar í Lundúnaborg vildi William Gallas losna frá millj- ónaliðinu Chelsea. Á endanum skiptu félögin á leikmönnunum tveimur en sárin voru þó ekki gró- in. Fyrrum félagar Gallas hjá Chelsea sökuðu hann um að hafa hótað að skora sjálfsmark ef hann þyrfti að spila fyrir þá aftur og stuðningsmenn Arsenal hafa aldrei kallað Cole annað en Cashley eftir þetta sökum meintrar pen- ingagræðgi. Fréttir af þessu voru í hámæli í fyrra þegar Heiðar Sumarliðason sat ritlistarkúrs í Listaháskólanum, en þar nemur hann „fræði og fram- kvæmd“ í leiklistardeildinni. Rit- höfundurinn Sjón faldi nemendum það verkefni að vinna með ein- hverja framhaldsfrétt og gera að leikþætti. Það varð kveikjan að stuttu leikverki sem nú er orðið að lengra verki, Heteróhetjur: Með fullri virðingu fyrir Ashley Cole. Ashley Cole, Rimbaud boltans? Þótt leikritið sé lauslega byggt á raunverulegum persónum og at- burðum þá er það samt að lang- mestu leyti skáldskapur þar sem fjallað er um samband þeirra As- hley Cole og Williams Gallas. Þeg- ar Heiðar er spurður hvort þetta samband sé byggt á langlífum slúð- ursögum í Bretlandi um meinta samkynhneigð Cole þá lætur hann duga að fullyrða að „ef sýningin yrði sett upp á Bretlandseyjum þyrfti ég sennilega að ráða mér mjög góðan lögmann,“ en bætir svo við: „Þetta er nútímauppfærsla á sögunni af Rimbaud og Verlaine.“ Leikritið hefst á skemmtistað í London og dularfull ung barmey er sögumaður okkar. Hún leiðir okkur inn á VIP-svæði staðarins og í kjöl- farið hittum við ekki bara Gallas og Cole heldur einnig liðsfélaga þeirra á borð við Frank Lampard, Thierry Henry, Claude Makelele og Sol Campbell auk þjálfarans Jose Mourinho. Þá reka líka inn nefið stjörnur á borð við Girls Alo- ud, Robbie Williams, Pete Doherty og Kate Moss – sem sagt flestir helstu góðkunningjar götublaðsins The Sun. Heiðar játar því að leik- ritið sé gagnrýni á þann heim, „þessa yfirgengilegu paparazzi- menningu sem er í gangi og frægð- ardýrkunina“. En eru þau ekki að taka þátt í henni um leið? „Jú, við erum alls ekki yfir þetta hafin. Við fylgjumst öll með þessu en samt kemur þetta augnablik þar sem maður hugsar: Er ekki komið nóg? Þetta fólk fær aldrei frið.“ Fölir íslenskir blökkumenn En hvernig gekk að leysa það vandamál að fá íslenska leikara sem voru nógu dökkir í hlutverk blökkumannanna Cole, Gallas og félaga? „Það var ekki leyst. Leik- ararnir eru ekki beint að leika Cole og Gallas. Þeir byggðu karakterana á þeim en þetta er algjör skáld- skapur. Byggt í kringum eitthvað sem gerðist en ekki síður það sem ég ímynda mér að hafi getað gerst.“ En vissulega vekja hvítir menn að leika svarta ákveðnar spurn- ingar. „Leikritið fjallar mikið um fordóma og baráttu fólks fyrir að vera það sjálft, óháð litarafti eða kynhneigð. Þetta er ástarsaga en það skiptir engu máli að þeir séu karlmenn. Þetta er bara saga um fólk og tilfinningar, en samt ógeðs- lega fyndin,“ fullyrðir leikstjórinn áður en hann er krafinn svara við því hvort þeir geti eitthvað í fót- bolta. Hilmar Guðjónsson (sem leikur Gallas) er ansi góður að sögn leikstjórans Heiðars sem sjálfur hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍR og Stjörnunni. Ashley Cole sviðsins er svo Hilmir Jensson sem getur víst ekki neitt í fótbolta. „Hann er hins vegar fyrrverandi Norð- urlandameistari í dansi,“ bætir Heiðar við – og hvað er betri und- irbúningur fyrir leiftursókn upp kantinn? Sýningin er opnunarsýning Art Fart-leiklistarhátíðarinnar og er frumsýnd 7. ágúst. Hátíðin stendur í tvær vikur og aðeins verður hægt að berja sýninguna augum þessar tvær vikur. Ástir samlyndra varnarmanna Í HNOTSKURN »Fyrsti enski knattspyrnu-maðurinn til þess að koma út úr skápnum var Justin Fashanu árið 1990. Fáeinum dögum síðar hafði bróðir hans, John Fashanu, sem einnig var þekktur knatt- spyrnumaður, afneitað honum opinberlega og það sama gerði fyrrum þjálfari hans, goðsögnin Brian Clough. Árið 1998 framdi leikmaðurinn svo sjálfsmorð. »Um 2.500 knattspyrnumenná Englandi hafa fótbolta að atvinnu. Enginn þeirra hefur gengist við því að vera samkyn- hneigður og fullyrða þeir sem hafa rannsakað málið að margir þeirra hafi fengið hjálp frá um- boðsmönnum og félögum við að finna sér sýndarkærustur. Morgunblaðið/Sverrir Einvígi Ashley Cole (Hilmir Jensson) og William Gallas (Hilmar Guð- jónsson) fara í skallaeinvígi undir vökulu auga Heiðars leikstjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.