Morgunblaðið - 12.07.2007, Page 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 19
Aðaltíðindi dagsins – stundin sem
allir hafa beðið eftir: Friðrik V tekur
formlega til starfa núna seinni part-
inn. Ekkert grín, húsið er tilbúið.
Endurbótunum sem fóru fram fyrir
augum bæjarbúa í miðju gilinu (og
hægðu stundum á umferðinni) er
lokið. Hin aldargamla Böggla-
geymsla verður hér eftir veitinga-
staðurinn Friðrik V. Nýir tímar,
breyttir tímar.
Í Gilinu verða líka athyglisverðir
tónleikar í kvöld. Dúettinn Saga nú-
tímabúskapar eða The Story of
Modern Farming mun þá leika en
hann er skipaður Jessicu Sligter,
sem syngur og leikur á hljómborð,
og Louisu Jensen altsaxófónleikara.
Það fylgir sögunni að fjölbreyttur og
nýstárlegur flutningur dúettsins nái
tökum á áheyrendum og hafa er-
lendur gagnrýnendur keppst við að
lofa þær.
Annars hafa ýmsar fréttir af at-
vinnumálum verið ofarlega á baugi
þessa vikuna. Í fyrsta lagi að fleiri
íbúar telja auðveldara að fá vinnu við
hæfi en áður. Í könnun Capacent
Gallup á málinu kemur fram að
47,3% segja mjög eða frekar auðvelt
að finna vinnu, en voru 40,8% fyrir
ári síðan. Svo virðist sem yngra fólk
telji auðveldara að fá vinnu við hæfi
en áður. Aftur á móti telja um 42%
bæjarbúa enn frekar eða mjög erfitt
að finna vinnu við hæfi.
Einnig var haldinn stofnfundur
Fjölsmiðju á Akureyri í vikunni.
Hún mun styðja við ungt fólk sem
flosnað hefur upp úr vinnu eða námi.
Fjölsmiðjan byggist á fyrirmynd úr
Kópavogi, þar sem Þorbjörn Jens-
son handboltajaxl hefur stýrt svip-
aðri starfsemi með myndarskap.
Fjölsmiðjan verður vinnusetur
ungmenna á aldrinum 16-24 ára sem
eru atvinnulaus vegna reynsluleysis,
menntunarskorts, félagslegra og/
eða andlegra vandamála og felst
starfsemi hennar einkum í fram-
leiðslu vara, faglegri verkþjálfun og
ýmiss konar þjónustu.
Og það var slegið met í Gler-
árdalshringnum um daginn. 72 fóru í
gönguna: 45 karlar, 26 konur og einn
hundur. 49 göngumenn ásamt hund-
inum kláruðu allan hringinn. Í til-
kynningu frá hópnum sagði að það
hefði verið þoka í fjöllunum neðan til
en „þegar gengið var upp úr henni
tók við sól og mikið blíðviðri á öllum
tindum leiðarinnar“.
Merkið inn laugardag á dagatalið.
Milli kl. 11 og 15 verður nefnilega
útimarkaður á Ráðhústorgi. Kjörið
tækifæri til að kaupa kræsilegt dót,
nú eða selja það ef maður er svo
heppinn að ná plássi.
En maður vikunnar, jafnvel mán-
aðarins er Margeir Steingrímsson.
Hann á bæði heiður og hrós skilið.
Margeir er íbúi á dvalarheimilinu
Hlíð og færði Öldrunarheimilum Ak-
ureyrar þrjár milljónir króna að
gjöf. Með gjöfinni höfðinglegu sýndi
Margeir velvilja sinn í garð Öldr-
unarheimila Akureyrar og mun féð
nýtast vel til að bæta aðbúnað á
heimilunum.
AKUREYRI
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Endurnýjuð Gamla bögglageymslan í Kaupvangsstræti verður veitinga-
staðurinn Friðrik V frá og með deginum í dag.
Hreiðar Karlsson segir aðíþróttaandinn bregðist ekki:
Knattspyrnufólki er flest til baga
svo fáum auðnast að skilja það.
Og andinn er slíkur á Skipaskaga,
– þar skora menn – án þess að vilja það.
Hann veltir upp þeirri spurningu
hvort þetta sé ekki eitthvað fyrir
karlalandsliðið:
Jafnan er rýrt það sem liðið úr býtum ber,
bæði er kerfið gloppótt og sóknin veik.
Strákarnir okkar ættu að tileinka sér
ómeðvituð spörk - fyrir næsta leik.
Hjálmar Freysteinsson yrkir af
sama tilefni:
Vitlausara og verra spark
er varla hægt að finna,
en að hitta óvart mark
andstæðinga sinna.
Rúnar Kristjánsson yrkir um
dánartilkynningar í útvarpinu:
Dauðinn kemur – fólkið fer,
flytur í æðra stifti.
Vængbrotnir þá verða hér
vinir í hvert eitt skipti.
En þó að tregans þunga stund
þvingi hugsun bjarta.
Á þó von um endurfund
inni í hverju hjarta.
Hann kveður góða vinkonu sína:
Sérhver á farmiða í síðustu ferð,
sífellt úr hlaði er ekið.
Eilífðar smáblóm af einstakri gerð
er nú úr heiminum tekið.
Lítt var á baslinu í lífinu hlé,
lifði hún samt ekki geðill.
En nú er hún farin og farmiðinn sé
fullgildur alvíddarseðill.
Erlendur Hansen á Sauðárkróki
yrkir um samgönguráðherra:
Ýmsir ráfa um eyðisand
eykur það á vandann.
Möller hefur lítið land
og litla hjálp að handan.
VÍSNAHORNIÐ
Af marki og
Skipaskaga
pebl@mbl.is
fisk! Er þetta hafandi
yfir börnum? Hvað
eiga þau að borða?
Greinilega ekki fisk og
ekki kjöt. Eiga þau að
nærast á grænmeti
eingöngu? Jafnvel Vík-
verja sem er græn-
metisaðdáandi er bara
nóg boðið. Auðvitað á
maður að borða fisk
og mikið af fiski, feit-
um fiski eins og laxi
og lúðu. Og hafa
grænmeti með. Einnig
á maður að borða kjöt,
lambakjöt, grillaðar
kótelettur, rifjasteik
og hamborgara, en
sleppa déskotans sælgæti alla daga
og öllu þessu svakalega íslenska
gosþambi. Þar er hættan fyrir
krakkana en ekki fisk- og kjöt-
neysla.
x x x
Víkverji komst að því um daginnað hann er forríkur. Á tíu ár-
um sem hann hefur ekki reykt
pakka af sígarettum daglega hefur
hann rakað saman á þriðju milljón
króna. Það kostar nefnilega yfir
200 þúsund kall árlega að reykja
pakka á dag. Víkverji hefur ekki
enn ákveðið hvernig hann ráðstafar
þessum peningum öllum. Það hlýt-
ur að finnast smuga einhvers stað-
ar.
Víkverja finnstgrænmeti gott
eins og mörgum öðr-
um og þarf ekki að
undra; grænmeti er
bráðhollt. Nýlega var
Víkverji í grænmet-
isinnkaupum og fór þá
að söngla Grænmet-
isvísur úr hinu sí-
vinsæla leikriti Thor-
björns Egners,
Dýrunum í Hálsa-
skógi. Þar er hamrað
á ágæti þess að borða
grænmeti en þegar
nánar er að gáð, er of-
stækið gagnvart kjöt-
neyslu og fleiru meira
en hægt er að láta bjóða sér. Enn
fremur geta Grænmetisvísur verið
særandi í garð þeirra barna sem
eru í þéttara lagi og svo að lokum
er jafnvel fiskneysla fordæmd í
þessum vísum. Tökum dæmi: „Þeir
sem bara borða kjöt og bjúgu alla
daga, þeir feitir verða og flón af því
og fá svo illt í maga.“ Er þetta nú
boðlegt? Ef þú ert ekki spengileg-
ur, þá ertu feitur og flón í þokka-
bót? Hverskonar innræting er
þetta? Er á vanlíðan feitra barna
bætandi að segja að þau séu flón?
Síðan segir: „Sá er fá vill fisk og
kjöt, hann frændur sína étur og
maginn sýkist, molnar tönn …“ Já,
það er nefnilega það. Maginn sýk-
ist og tennur molna af því að borða
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Ljósmyndari: Davíð Eldur Baldursson
Nafn myndar: Karmelluárás
Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru:
50 fríar 10 x 15 myndir
<< 1.verðlaun
Kodak EasyShare Z712 IS
2.verðlaun
Kodak EasyShare V610
3.verðlaun
Samsung Digimax i6 PMP
Heimsferðir bjóða frá-
bært tilboð á síðustu
sætunum til Fuertevent-
ura í júlí. Höfum fengið
örfá viðbótarherbergi á
hinu vinsæla Hotel
Barceló Jandia Mar sem
við bjóðum á frábæru
verði. Frábær gisting.
Aðstaða og allur aðbún-
aður á hótelinu er mjög
góður. Skelltu þér til Fuerteventura og njóttu lífsins í sumarfríinu
við frábæran aðbúnað. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í
boði á þessu verði!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Fuerteventura
í júlí
frá kr. 59.990
Ótrúlegt tilboð - aðeins örfá herbergi
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með "allt
innifalið" í viku á Jandia Mar, 17. júlí. Brottfar-
ir 24. og 31. júlí kr. 5.000 aukalega.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sértilboð á Jandia Mar
- „allt innifalið“
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali