Morgunblaðið - 12.07.2007, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 23
Ganga í fjöllum í Alicante
Express-ferðir munu í haust bjóða
upp á gönguferðir um fjallahéruð
Alicante. Gengið verður í fjóra daga,
en aldrei lengur en í fimm til sex
tíma á dag. Miðað er við að göngu-
fólk sé í þokkalegu gönguformi og er
ferðinni í senn ætlað að vera fræð-
andi og heilsusamleg, en fararstjóri
verður Ingibjörg Þórhallsdóttir.
Verð á mann í tvíbýli er 86.900 kr. og
í einbýli 104.900 kr., með fullu fæði.
Flogið á ný til
Lúxemborgar
Iceland Express hefur flug til
Lúxemborgar tvisvar í viku í haust
og verður staðurinn þar með fjór-
tándi áfangastaður félagsins. Flug-
tíminn er um þrjár og hálf klukku-
stund og frá Lúxemborg eru
möguleikar á tengiflugi til allra átta.
Beinar flugsamgöngur milli Kefla-
víkur og Lúxemborgar hafa legið
niðri frá ársbyrjun 2000.
Aukaflug til Billund
Iceland Express hefur ákveðið að
bæta við aukaferðum til Billund í júlí
og ágúst til að anna eftirspurn og
mun félagið svo halda uppi vikulegu
flugi þangað í vetur. Í Billund og ná-
grenni er m.a. að finna Legoland og
Ljónagarðinn.
Boltaferðir til Bretlands
ÍT-ferðir ætla að leggja áherslu á
boltaferðir til Manchester og Liver-
pool í beinu flugi Icelandair á kom-
andi keppnistímabili. Ferðirnar inni-
halda flug, gistingu og miða á leik
auk skatta. Akstur til og frá flugvelli
er ekki innifalinn, en er settur upp
fyrir hópa, sem í eru a.m.k. tuttugu
manns. Fararstjóri verður í sumum
ferðum, en þegar hópur telur færri
en tuttugu manns eru menn á eigin
vegum. ÍT-ferðir selja almennt ekki
miða eingöngu á leiki.
Ganga á Grænlandi
Trex-Hópferðamiðstöðin í sam-
vinnu við Ferðafélag Íslands efnir til
gönguferðar á slóðum norrænnar
byggðar á Grænlandi 20.-27. júlí nk.
undir leiðsögn Jóns Viðar Sigurðs-
sonar. Í ferðinni gefst kostur á að
kynnast náttúrufari Suður Græn-
lands og sögu norrænnar byggðar.
Flogið er til Narsarsuaq og haldið
þaðan til Igaliko þar sem gangan
hefst. Frá Igaliko er gengið til Qa-
qortoq þar sem siglt er inn Eiríks-
fjörð til Brattahlíðar og skoðaður
bær Eiríks rauða. Ferðin er fyrir
vana göngumenn, sem þurfa að bera
allan búnað og mat með sér. Gist er
3 nætur í tjöldum og 4 í svefnpoka-
plássum á farfuglaheimilum.
Verð ferðar er 108.000 kr.
www.expressferdir.is
www.trex.is
www.itferdir.is
Í SUMAR mun Slysavarnafélagið
Landsbjörg manna 4-5 sveitir sjálf-
boðaliða á hálendinu sem verða til
taks allan sólarhringinn alla vikuna.
Sveitunum er ætlað að vera við-
bragðseiningar sem geta brugðist við
skakkaföllum sem fólk getur lent í á
hálendinu enda engin vanþörf á þar
sem borið hefur á alvarlegum slysum
og jafnvel dauðsföllum sl. 3 ár. Sveit-
irnar vinna einnig að slysavörnum á
hálendinu en mikið af þeim slysum
sem verða á hálendinu má rekja til
vanþekkingar og vanbúnaðar.
Verkefnið verður sett á laggirnar í
annað sinn í sumar og verða við-
bragðseiningarnar til taks á hálend-
inu fram til 12. ágúst.
Hálendinu hefur verið skipt niður í
fjögur svæði; Kjalveg og nágrenni,
Sprengisandsleið, Fjallabaksleiðir og
svæðið norðan Vatnajökuls og verður
ein viðbragðseining staðsett á hverju
svæði nema að Fjallabaki en þar
verða tvær sveitir til taks.
Á hverju ári hefur verið mikið um
slys á hálendinu sem oft er hægt að
rekja til vanbúnaðar og vanþekkingar
ferðamanna. Mikið hefur verið um
aðstoð við ökumenn, fyrstu hjálp og
ábendingar til ferðafólks um vanbún-
að þess til að takast á við íslenska há-
lendið.
Sl. 3 ár hafa ferðamenn látist á há-
lendinu og er vonast til að með því að
stytta viðbragðstíma með staðsetn-
ingu viðbragðseininganna megi hefja
leit fyrr en áður. Björgunarsveitir
landsins hafa stutt verkefnið með því
að útvega búnað og mannskap í viku í
senn og ná má sambandi við sveit-
irnar með því að hringja í Neyðarlín-
una, 112 sem hefur upplýsingar um
staðsetningu björgunarsveitanna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Viðbragð Slysavarnarfélagið Landsbjörg eru samtök sjálfboðaliða og mun
félagið halda úti fjórum viðbragðssveitum á hálendinu í sumar.
Til taks allan
sólarhringinn
vítt og breitt
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111