Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 37

Morgunblaðið - 12.07.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 37 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin frá kl. 9-16.30. Boccia kl. 10. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 9.30 boccia. Kl. 13.30 hjólreiðahópur. Kl. 10- 16 púttvöllurinn. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Hálendisferð FEBK í Veiðivötn og virkjanir verður farin fimmtudaginn 26. júlí. Brottför frá Gjábakka kl. 8 og frá Gullsmára kl. 8.15. Skráningarlistar og ítarlegar ferðalýsingar eru í fé- lagsmiðstöðvunum Gullsmára, s. 564 5260, og Gjábakka, s. 554 3400. Skráið ykkur sem fyrst. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinnustofan er opin og heitt á könnunni og heimabakað meðlæti til kl. 16. Há- degisverður kl. 11.40. Allir velkomnir að líta við, kíkja í blöðin, taka í spil eða spjalla. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10 handavinna og ganga, kl. 11.40 hádeg- ismatur, kl. 13 handavinna. Félagstarfið Langahlíð 3 | Handverks- og bókastofa opin. Kl. 10 boccia, karla- hópur. Kl. 13.30 boccia, kvennahópur. Kl. 14.30 kaffiveitingar. Kl. 17 sum- arfagnaður, söngur og dans með Þor- valdi Halldórssyni. Grillað á staðnum. Upplýsingar í síma 552 4161. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 matur, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Hádegisverður kl. 11.30. Félagsvist kl. 13.30, góð verðlaun og gott með kaffinu, allir velkomnir. Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Hársnyrt- ing, s. 517 3305/849 8029. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-12 aðstoð við böðun. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia, Sigurrós (júní). Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13-14 leikfimi, Janick (júní – ágúst). Kl. 14.30-15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morg- unstund kl. 9.30, handavinnustofan opin, brids kl. 13-16.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-22. Sr. Jóna Lísa Þorsteins- dóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282. Kvöld- bænir kl. 20. Allir velkomnir. Áskirkja | Velkomin í síðustu gönguna inn í dalinn frá Áskirkju í þessum júl- ímánuði kl. 14. Andakt og kaffisopi. Háteigskirkja | Taizé-messur. Lág- stemmdir söngvar, bænir og Guðs orð lesið alla fimmtudaga kl. 20. Laugarneskirkja | Kl. 21: AA-fundur í safnaðarheimilinu. Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund er hvert fimmtu- dagskvöld í Vídalínskirkju kl. 21. Prest- ar og djákni taka við bænarefnum. Boðið er upp á kaffi í lok stundar. Morgunblaðið/Golli Pútt Eldri borgarar í golfklúbbnum Nesi á púttvelli Rafveitunnar. Brúðkaup | Gefin voru saman 7. júlí sl. í Safnkirkju Árbæjar af sr. Ragnhildi Jónsdóttur Anitha Sanstedt og Thorsteinn Magn- usson. Þau eru búsett í Svíþjóð. dagbók Í dag er fimmtudagur 12. júlí, 193. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.Kor. 12, 7) Við rætur Heklu stendur bær-inn Leirubakki. Þar er í boðiýmiss konar þjónusta fyrirferðamenn og fyrr á árinu var þar opnuð Heklusýning. Valgerður Brynjólfsdóttir er fram- kvæmdastjóri Leirubakka: „Við höfum leitast við að byggja hér upp menning- ar- og þjónustumiðstöð fyrir bæði inn- lenda og erlenda ferðamenn, en Leir- ubakki er í leið þeirra sem ætla í Landmannalaugar og upp á Sprengi- sandsleið,“ segir Valgerður en hún og eiginmaður hennar keyptu Leirubakka fyrir tveimur árum og hafa unnið þar að endurbótum, meðal annars bætt gistiaðstöðuna og opnað veitingastað í hinu nýja Heklusetri. Margmiðlunarsýning um Heklu „Árni Páll Jóhannsson er aðalhönn- uður Heklusýningarinnar en Ari Trausti Guðmundsson útbjó fræðilega hluta sýningarinnar. Margmiðlunarfyr- irtækið Gagarín var fengið til sam- starfs og er útkoman glæsileg marg- miðlunarsýning sem leiðir gesti í gegnum bæði sögu og jarðfræði Heklu, og sýnir allar hliðar þessa merkilega fjalls.“ Valgerður segir mikinn fjölda leggja leið sína að Heklu, og fer ferðamönnum fjölgandi, enda uppsveitir Rangárvalla- sýslu dásamlegt svæði: „Fyrir utan að heimsækja Laugarnar, eða Veiðivötn, eru ótalmargar fallegar gönguleiðir og stígar í landi Leirubakka. Gaman er að skoða byggðaminjar á svæðinu og njóta útiverunnar í þeirri miklu veðursæld sem hér er, en aðstæður valda því að hér verður oft mun hlýrra en við strendur landsins.“ Fjölbreyttar reiðleiðir Á Leirubakka er einnig starfrækt hestaleiga: „Boðið er upp á skemmri og lengri hestaferðir með leiðsögn. Svæð- ið hefur mikla sérstöðu að því leyti að það býður upp á mikla fjölbreytni í hestamennsku. Hægt er að gista hér í nokkrar nætur og fara í reiðtúr á hverj- um degi án þess að þurfa nokkurn tíma að heimskækja sama staðinn tvisvar,“ segir Valgerður. Finna má nánari upplýsingar um Heklusýninguna og aðra þjónustu á Leirubakka á slóðinni www.leiru- bakki.is. Ferðalög | Margmiðlunarsýning og þjónusta á Leirubakka í Landsveit Upplifun við Heklurætur  Valgerður Brynjólfsdóttir fæddist á Bíldudal 1956. Hún lauk stúdentsprófi frá öldungadeild MH, BA-prófi frá HÍ 1993 og meist- araprófi í íslensk- um bókmenntum frá sama skóla 2002. Valgerður starf- aði við Stofnun Árna Magnússonar frá árinu 1993 og rak ásamt eiginmanni sínum útgáfufyritækið Fjölni. Frá 2005 hefur hún verið framkvæmda- stjóri Leirubakka. Valgerður er gift Anders Hansen, bónda og fram- kvæmdastjóra á Leirubakka, og eiga þau þrjú börn. MILLJARÐAFJÁRFESTIRINN Warren Buffet svalar þorstanum í matarhléi á Allen og Co.-ráðstefnunni í Sun Valley. Coca Cola-drykkurinn var upprunalega fundinn upp sem tilraunalyf seint á nítjándu öld. Viðskiptaséníið Asa Griggs Candler uppgötvaði drykk- inn, og með snilldarlegum markaðsbrögðum tókst honum að gera kókið að vinsælasta gosdrykk jarðkringlunnar. Kók líka fyrir milljónamæringa Reuters Tónlist Deiglan | The Story of Modern Farming: Jessica Sligter á hljóm- borð, flautu og gítar, Louise Jensen á altsax og Hilmar Jensson gesta- leikari á gítar. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Hallgrímskirkja | Douglas A Brotc- hie, organisti Háteigskirkju, leikur á hádegistónleikum 12. júlí kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Dietrich Buxtehude, Olivier Messiaen og Jón Nordal. Skálholtskirkja | Kl. 20. Kamm- ertónleikar með verkum eftir aust- urrísku tónskáldin Klaus Ager, Hel- mut Neumann, Pál P. Pálsson og Werner Schulze. Flytjendur: Graffe- strengjakvartettinn, Ingibjörg Guð- jónsdóttir sópran, Einar Jóhann- esson klarinett, Sigurður Hall- dórsson selló og Jörg Sondermann orgel. Ókeypis aðgangur. Útivist og íþróttir Skógræktarfélag Íslands | Sjötta skógarganga skógræktarfélaganna í sumar er fimmtudaginn 12. júlí kl. 20. Upphaf göngunnar er við Rann- sóknastöðina á Mógilsá. Nánari upp- lýsingar á heimasíðu Skógrækt- arfélags Íslands, www.skog.is. MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. FRÉTTIR FYRSTA sumarferð Alþjóða- hússins á árinu verður í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. júlí. Í fréttatilkynningu segir að farið verði í hvalaskoðun frá Reykjavíkurhöfn. Búast má við því að sjá lunda og höfr- unga og smáhveli á borð við hnísu eða hrefnu. Ferðin kost- ar kr. 1.000 fyrir manninn. Mæting er kl. 19.15 við Al- þjóðahúsið, Hverfisgötu 18. Allir eru velkomnir, en nauðsynlegt er að skrá þátt- töku í síma 530-9300 eða með því að senda póst á info- @ahus.is. Sumarferðirnar verða viku- lega fram í miðjan ágúst. Allar nánari upplýsingar fást á vefsíðu Alþjóðahússins, www.ahus.is. Hvalaskoðun Alþjóðahússins MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Drífanda stéttarfélagi í Vest- mannaeyjum vegna kvótaskerð- ingar: „Stjórn Drífanda stéttarfélags lýsir yfir áhyggjum vegna mik- illar kvótaskerðingar á þorski og takmarkana á loðnuveiðum. Skorar stjórnin á kvótaeigendur í Vestmannaeyjum að sýna sam- félagslega ábyrgð undir þessum kringumstæðum og tryggja næga atvinnu fyrir fiskvinnslu- fólk í Eyjum á næstu misserum þar sem nægur kvóti er til staðar til þess, þrátt fyrir skerðingar. Jafnframt skorar stjórnin á ríkisstjórnina að grípa til að- gerða nú þegar til að létta höggið er byggðarlagið verður fyrir. Það er hægt að gera með því að minnka okrið á far- og farm- gjöldum með ríkisferjunni Herj- ólfi og lækka þau eða fella niður, auk þess að setja nú þegar aukið fé í rannsóknir á framtíðarsam- göngumöguleikum Vestmanna- eyja. Byggja þarf strax upp auk- ið rannsóknar- og fræðastarf, hefja tilflutning á störfum til Eyja auk þess að skapa ný störf á vegum ríkisins. Ríkisstjórnin þarf að grípa til þessara aðgerða strax þar sem áhrifanna af kvóta- skerðingunni gætir nú þegar.“ Fiskvinnslufólki verði tryggð atvinna Í TILEFNI Evrópuársins 2007, árs jafnra tækifæra, hefur verið efnt til ljósmyndasamkeppni meðal allra vinnuskóla landsins. Þema keppninnar er fjölbreyti- leiki og eru nemendur hvattir til að fanga hann í myndefni sínum. Í fréttatilkynningu segir að árið sé ætlað til að berjast gegn hvers konar mismunun í sam- félaginu og fagna því að við er- um ólík. Markmið ársins er að samfélagið verði umburðarlynd- ara og víðsýnna þar sem fólk nýtur jafnra tækifæra. Skapa þarf jöfn tækifæri fyrir alla ef samfélagið á að dafna og ein leið til þess er að líta á fjölbreytni sem kost. Framtíð landsins er unga fólkið og því mikilvægt að virkja það í átaki ársins og fá það til að nýta þann sköp- unarkraft sem það býr yfir. Keppnin er tvískipt og er hægt að senda inn myndir í hópakeppnina og einstaklings- keppnina. Seinna í sumar verða verðlaunamyndirnar prentaðar á póstkort sem dreift verður víðs vegar um land auk þriggja annarra mynda. Keppnin stend- ur yfir dagana 9.–24. júlí og verða úrslit kunngjörð hinn 19. ágúst nk. á reif-hátíð í Norræna húsinu þar sem afrakstur keppninnar verður sýndur. Ljósmyndasamkeppnin er samstarfsverkefni félagsmála- ráðuneytisins, Reif 2007, Vinnu- skóla Reykjavíkur, Fjölmenn- ingarsetursins, Hans Petersen og Farsímalagersins. Ljósmyndasam- keppni meðal allra vinnuskóla landsins Álftanesárin 1957-1963 VARÐANDI grein mína „Álftanesárin 1957-1963“ sem birtist í Morgunblaðinu 10. júní síðastliðinn vil ég koma eftirfarandi á fram- færi: Jón Oddsson (1857-1895) var fyrri maður Mörtu Níelsdóttur (1858-1941) afasystur minnar, en foreldrar Jóns Oddssonar voru Oddur Sigurðsson (1829-1893) og Halla Jónsdóttir (1830-1923). Leifur Sveinsson. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.