Morgunblaðið - 12.07.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 45
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
Evan hjálpi okkur
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRUCE
ALMIGHTY
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
HARRY POTTER K. 6 - 9 B.i. 10 ára
EVAN ALMIGHTY kl. 8 LEYFÐ
DIE HARD 4 kl.10 B.i. 14 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKU
OG EN
SKU
TALI
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
SHREK, FÍÓNA, ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
STÆRSTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
ÁSTIN ER BLIND
HEFURÐU UPPLIFAÐ
HIÐ FULLKOMNA
STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS
WWW.SAMBIO.IS
VEGNA mikillar eftirspurnar og vel lukkaðra
tónleika fyrr í vetur ætla þær söngstöllur Mar-
grét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða
Ólafsdóttir að endurtaka (söng)leikinn og halda
tvenna tónleika. Hinir fyrri verða í kvöld, á
Dómó í Reykjavík, og hefjast klukkan 21:00;
hinir síðari fara fram á Græna hattinum á
Akureyri að viku liðinni, hinn 19. júlí, kl. 21:00.
Með stúlkunum leikur hinn fingrafimi Kalli
Olgeirs, og á slaghörpu, vitaskuld.
Stúlknasveit á Dómó
Dívurnar Ekki bara sætar.
KLUKKAN 17.30 hefst forvitni-
legur fyrirlestur í 12 tónum. Þá hef-
ur upp raust sína hinn bandaríski
Joel Lewis, tónlistarblaðamaður og
ljóðskáld, fyrrum nemandi Allens
Ginsberg.
Fyrirlestur Joels nefnist Moon-
dog: Víkingur í Manhattan og
fjallar um hinn sérlundaða og ævin-
týralega tónlistarmann Moondog.
Plötur hans þykja með frumlegustu
smíðum tónlistarsögunnar. Hafðist
hann jafnan við á götum Manhattan
klæddur fullum víkingaskrúða. Síð-
ar flutti hann til Þýskalands og
kallaði sig „evrópubúa í útlegð“.
Joel Lewis býr yfir áratuga-
reynslu af tónlistarblaðamennsku
og hefur tekið viðtöl við helstu stór-
menni djasssögunnar, ritað ótal
greinar í blöð og tímarit og gefið út
fjölmargar ljóðabækur. Hver veit
nema hann hafi yfir nokkur ljóð eft-
ir fyrirlesturinn …
Sérstök uppákoma í 12 tónum
Í KVÖLD mætir á Gauk á Stöng
Mark- Anthony Abel, ungur og efni-
legur sálartónlistarmaður, og flyt-
ur gestum tónlist sína. Hann flýgur
til landsins frá Bretlandseyjum en
þar er hann smám saman að geta
sér nafns. Þá strýkur rokkarinn og
trúbadorinn Siggi Lauf strengi og
þenur raddbönd. Sveitin TAB 22
stígur einnig á svið.
Á morgun, föstudag, verða það
svo strákasveitir sem einkenna
Gaukinn – Wulfgang, Touch og
Shadow Parade.
Tónleikar á
Gauknum
SIR Elton John gat ekki þvegið föt-
in sín í samstarfi við þvottavél fyrr
en hann var orðinn 43 ára. Í hið
minnsta stofnaðist aldrei til per-
sónulegs sambands milli hans og
slíks apparats. Öðrum var falið að
þrífa glysflíkur popparans.
Elton, sem sigrast hefur á
kókaínfíkn, segir: „Ég skammaðist
mín ekki fyrir að vera eiturlyfja-
fíkill, en ég var of stoltur til þess að
spyrjast fyrir um það hvernig mað-
ur vinnur með þvottavél. Ég gat
ekki gert nokkurn skapaðan hlut
sjálfur!“
Hinn skrautlegi söngvari lét eng-
an segja sér fyrir verkum á sínum
yngri árum. Rogaðist hann um með
útþanið og níðþungt egó á bakinu.
Elton giftist ástmanni sínum,
David Furnish, árið 2005. Telur
skemmtikrafturinn þá ráðstöfun
mikið heillaspor á þroskabraut
sinni.
Reuters
Oj! Ekki ætla ég að þrífa fötin mín!
Elton John lærir
á þvottavél
ÚTGÁFA Bang Gang af „Stop in
the Name of Love“ keppir nú við
fimm önnur lög um að komast í
reglulega spilun á háskólaútgáfu
MTV-sjónvarpsstöðvarinnar,
MTVu. Þar er reglulega liðurinn
„nýliðar vikunnar“ þar sem áhorf-
endur fá að velja myndband með
einum lítt þekktum tónlistarmanni
eða hljómsveit sem kemst svo í
reglulega spilun. Listamennirnir
sem keppa við Barða og Bang Gang
eru Plan B með lagið „No Good“,
Love in October með „A Day in the
Life of“, Kennedy með „Your
Mama“ og Kiss Kiss með vélasöng-
inn „Machines“. Hægt er að greiða
atkvæði á heimasíðu sjónvarps-
stöðvarinnar en því miður er ekki
hægt að horfa á myndböndin þar
nema vera búsettur í Bandaríkj-
unum. Það má þó auðveldlega leysa
með því að finna lögin á youtube
eða öðrum álíka síðum.
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson,
útgefandi Bang Gang, segir að
keppnin skipti þátttökusveitirnar
öllu máli: „Sjónvarpið er sterkasti
miðill í heimi og ef við komumst að
á jafn vinsælli stöð gerbreytist
landslagið.“ Hér fyrir neðan geta
áhugasamir tónlistarunnendur kos-
ið uppáhaldið sitt.
Kjósið í nafni
ástarinnar!
http://www.mtvu.com/music/
freshmen/
SAGNIR herma að kryddpíurnar í
Spice Girls ætli að fá sér húðflúr í
stíl. Er leikurinn gerður í tilefni af
endurkomu sveitarinnar. Stúlk-
urnar fimm, Victoria Beckham, Mel
B, Emma Bunton, Mel C og Geri
Halliwell, vilja fá nákvæmlega sams
konar tákn á húðina – til marks um
það hversu kærar þær eru hver ann-
arri.
Hinum fræga húðflúrmeistara,
Louis Molloy, hefur verið falið það
verkefni að skapa hring úr nöfnum
stúlknanna. Téður hringur á að
tákna „allan þann spöl sem stúlk-
urnar hafa fetað sem vinir“.
Reuters
Sannir vinir Stúlkurnar staðfesta
vináttuna með húðskreytingu.
Bragðmikið
húðflúr