Morgunblaðið - 12.07.2007, Síða 48
UM 2.500 manns hafa lifibrauð sitt
af því að spila knattspyrnu á Eng-
landi. Opinberlega er enginn þeirra
samkynhneigður og í sögu enskrar
knattspyrnu hefur aðeins einn leik-
maður komið út úr skápnum.
Aðra sýn á þetta má þó sjá í leik-
riti sem frumsýnt verður hinn 7.
ágúst – Heteróhetjur: Með fullri
virðingu fyrir Ashley Cole. Leik-
ritið fjallar um samband Cole og
Williams Gallas, sem fór til Arsenal
í skiptum fyrir Cole. Við sögu koma
einnig samherjar þeirra, menn á
borð við Thierry Henry, Claude
Makelele, Frank Lampard og Jose
Mourinho. Leikstjóri og höfundur
er Heiðar Sumarliðason sem tekur
þó fram að verkið sé að mestu leyti
skáldskapur fléttaður við raun-
veruleikann. | 41
Ástarsaga
úr enska
boltanum
Morgunblaðið/Sverrir
Leikarar Hilmar Guðjónsson leikur
Gallas og Hilmir Jensson Cole.
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Öllum sagt upp
Starfsfólki í rækjuvinnslu Ramma
hf. á Siglufirði var í gær tilkynnt að
félagið ætlaði að hætta vinnslu frá
lokum októbermánaðar nk. Ljóst er
því að 31 starfsmaður missir vinn-
una. Ólafur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri rækjuvinnslunnar,
harmar uppsagnirnar en segir þær
óumflýjanlegar. » 2
Mikil samgöngubót
Hafþór Guðmundsson, sveitar-
stjóri Djúpavogshrepps, fagnar fyr-
irhuguðum vegi yfir Öxi sem hann
segir að muni skipta bæjarfélagið
gífurlega miklu máli. Hafþór telur
jafnframt að eðlilegt framhald sé að
Axarvegur verði gerður að hluta
þjóðvegar 1. » Forsíða
Dregur úr spillingu
Úr niðurstöðum rannsóknar á
baráttu gegn spillingu má lesa að hjá
mörgum Afríkuríkjum hafi verið
tekið á málunum af mikilli festu, á
árunum 1996-2006. Þrátt fyrir batn-
andi ástand í sumum löndum hefur
hins vegar lítið þokast almennt í
heiminum við að bæta stjórnarfar.
Ástandið er einna best á Íslandi, í
Finnlandi og Danmörku. »12
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Landbúnaður á
nýrri öld | Er það skrýtið?
Staksteinar: Gömul og þreytt pólitík
Ljósvakinn: Sól, sól, skín á mig!
Viðhorf: Nauðgaði óvart
UMRÆÐAN»
Gildir lögmál skortsins við stjórn …
Á að kæla köldu svæðin?
Lífeyrissjóðirnir og eignarétturinn
Á grænni grein alla daga
Ferðaþjónusta og fornleifar
Anders Holmgren: Ávallt viðbúinn
Brúm fjölgar í Danmörku
Verðbólgan komin undir 4%
VIÐSKIPTI»
1
)7#
-(
)
8
"
/ / / / / /
/ / /
/ /
/ /
/
+95 #
/ /
/
/
/ / / / /
:;<<=>?
#@A><?.8#BC.:
9=.=:=:;<<=>?
:D.#99>E.=
.;>#99>E.=
#F.#99>E.=
#6?##. G>=.9?
H=B=.#9@HA.
#:>
A6>=
8A.8?#6(#?@=<=
Heitast 20 °C | Kaldast 7 °C
Hæg austlæg eða
breytileg átt, yfirleitt
léttskýjað inn til lands-
ins. Sums staðar þoku-
loft eða súld út við sjóinn. »10
Fríða Björk Ingv-
arsdóttir var sér-
deilis hrifin af leik
hljómsveitarinnar
Andromedu4 í fyrra-
kvöld. » 42
TÓNLIST»
Heiðríkur
bræðingur
FÓLK»
Elton John lærir á
þvottavél. » 45
Austfirsku þunga-
rokkararnir í Tröss-
um gefa út sína
fyrstu plötu, Amen,
og spjalla við Morg-
unblaðið. » 40
TÓNLIST»
Trassar taka
sig loksins á
FÓLK»
Brad Pitt er steinaldar-
maður. » 47
TÓNLIST»
Hljómleikar Toto ollu
vonbrigðum. » 43
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Hildur Sif Helgadóttir látin
2. Þagði yfir martröðinni í tæp …
3. Lögregla ræðir við nána vini …
4. West Ham hótað frekari refsingum
AUKIN umferð hefur veruleg áhrif
á loftgæði og með aukinni umhverf-
isvitund fer eftirspurn eftir um-
hverfisvænni
bílum sífellt
vaxandi. Kol-
efnisjöfnun
er á allra
vörum um
þessar
mundir, en er kemur að spurning-
unni um það hve vistvænn bíll sé
skiptir útblástur koldíoxíðs og
nituroxíðs, aldur og eldsneytiseyðsla
ekki minna máli.
Lausleg könnun hjá íslenskum
bílaumboðum leiðir líka í ljós að ís-
lenskum neytendum virðast standa
ýmsir vistvænni kostir til boða, en
hjá tíu umboðum var að finna eina
eða fleiri tegund bifreiða með lágu,
eða tiltölulega lágu útblástursgildi
koldíoxíðs. Og þó að dísilbílar séu al-
gengasti kosturinn fer tvinnbílum
líka fjölgandi, auk þess sem Saab
býður upp á bíl sem gengur fyrir líf-
rænt ræktuðu etanóli. | 20
Vistvænni
bílar víða
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
VEÐURFAR í Evrópu hefur verið
með miklum ólíkindum í sumar.
Stórflóð hafa verið í Englandi og í
Norður-Evrópu, víða hefur gengið á
með þrumuveðri og í Suðaustur-
Evrópu var hitabylgja fyrr í sumar.
Þorleifur Örn Arnarsson leik-
stjóri er búsettur í Berlín og segir
miklar sviptingar hafa verið í veðr-
inu þar nú í sumar. „Grunnveðrið er
molluhiti sem er reglulega brotinn
upp með þrumuveðri – það kom
margoft fyrir bara í júní. Og þetta
eru miklir stormar, þannig að vatnið
flæðir um göturnar og bílar fjúka
um koll. Svo, hálftíma seinna, eru
engin ummerki um að nokkuð hafi
gerst,“ segir Þorleifur sem segist
sakna íslenska fjallaloftsins.
Betra á Íslandi en í London
Þóra Kristín Þórsdóttir er nemi í
Lundúnaborg, en eins og kunnugt
er hefur rignt mikið á Bretlands-
eyjum síðustu vikur. „Já, ég veit
ekki alveg hvernig ég á að orða
þetta – sko, ég fór til Íslands um síð-
ustu helgi, og það voru eiginlega
bestu dagar sumarsins, svona veð-
urfarslega séð,“ segir Þóra og skell-
ir upp úr, spurð um veðrið í London.
Hún segir að Lundúnabúar hafi
vissulega séð til sólar í sumar, sér í
lagi í vor, en undanfarið hafi sólin
helst sést á milli skúra. „Það er bara
verst að maður getur ekki vanið sig
á það eins og Bretarnir að fara ekki
út úr húsi nema með regnhlíf, maður
er búinn að vera meira og minna
gegndrepa í allt sumar,“ sagði Þóra
að lokum.
Hrönn Jónsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur er búsett á Jótlandi og segir
að það sé „ekta íslenskt veður“ í
Danmörku í sumar – það kom meira
að segja haglél nú í vikunni. „Veðrið
hérna í Danmörku er dálítið flatt –
svona eins og landslagið – svo það
getur verið mjög lengi sama veðrið.
Veðurfræðingarnir eru búnir að spá
því að það geti jafnvel rignt í sex til
átta vikur í viðbót,“ segir Hrönn,
sem er búin að panta sér flug til suð-
rænni slóða um leið og hún kemst í
sumarfrí.
Hvar er sumarið?
Íslendingar búsettir á meginlandi Evrópu, í Bretlandi og á
Norðurlöndum eru orðnir langþreyttir á rigningunni
Í HNOTSKURN
»Sólin sést aðeins í örskammastund á milli skúranna.
»Víða í Evrópu eru íbúarnirorðnir gáttaðir á þrumuveðri
og öllu sólarleysinu.
»Bretar fara helst ekki úr húsinema með regnhlíf.
AP
Vatnsveður Blautt er það þegar
hlífa þarf regnhlífunum við vatni.
MIKIÐ gekk á þegar fimmtán keppendur tóku þátt í
kappróðri á straumvatnskajökum á vegum Kayak-
klúbbs Reykjavíkur í Tungufljóti um liðna helgi. Tveir
ræðarar voru ræstir út í hvert sinn og þurftu að leysa
tvær þrautir á leið sinni niður fljótið. Við þrautirnar
var hvað mestur hamagangur enda einna auðveldast að
komast fram úr keppinautum á þeim kafla.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er brautin síður
en svo auðveld viðureignar og allmargir lentu í kröpp-
um dansi á leiðinni.
Kappróður á straumvatnskajökum í Tungufljóti
Átök í og við fljótið