Morgunblaðið - 15.08.2007, Side 2

Morgunblaðið - 15.08.2007, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is BERJASPRETTAN svíkur engan í ár og gildir þá einu hvar á landinu fólk býr. Það fékk Helgi Már Ingvarsson, 10 mánaða Eskfirðingur, að reyna ný- lega þegar hann fór í berjamó með mömmu sinni í Hólmahálsi, sunnan fjarðarins. Helgi Már undi sér vel í mónum með gnægð berja til að gæða sér á en hirti ekki um að safna berjunum í ílát eins og fullorðna fólkið. Ungir sem aldnir fara í berjamó Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Tínum berin blá „ÞAÐ sem skiptir mestu máli er að foreldrum ein- hverfra barna sé boðið upp á val fyrir börnin sín,“ segir Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir mennta- málaráðherra en í grein Morgun- blaðsins á sunnu- daginn kom fram að innlendir sem erlendir sérfræðingar telja að stofn- un skóla fyrir einhverfa einstaklinga sé nauðsynleg. „Við verðum að hafa það í huga að það er stefna okkar að hafa sem flest börn í almennum grunn- og fram- haldsskólum en markmiðið með því er fyrst og fremst að fatlaðir nem- endur geti umgengist heilbrigða og þannig stefna menn að því að forðast alla félagslega einangrun. Á hinn bóginn verðum við að vera með val- kosti innan skólakerfisins, hvort sem er á grunnskóla- eða framhaldsskóla- stigi, sem þjóna þessum einstakling- um með það í huga hvaða þarfir þarf að uppfylla.“ Tilraunir sýni hvað hentar Þorgerður Katrín segist hafa heyrt afar ólíkar skoðanir frá foreldrum einhverfra barna. Sumir hverjir telji barnið sitt best komið í almennum skóla en hins vegar séu aðrir sem hafi mesta trú á árangri í sérskólum. Hún segir tilraunir vera gerðar þar sem börn með misjafnar raskanir eru tek- in úr skólum um tíma en síðan færð aftur í skólana. Hún telur það vera eitthvað sem koma skuli en við búum í litlu landi og ættum að hafa burði, tæki og tækni til þess að fara út í ákveðna sérhæfingu. „Bæði sveitar- félögin og menntamálaráðuneytið hafa svigrúm og burði til að fara í ákveðnar tilraunir til þess að sjá hvað hentar best íslenskum veruleika.“ Hvað varðar þá fullyrðingu sér- fræðinga að einhverf börn læri ekk- ert innan almenns skólakerfis segir Þorgerður Katrín að eftir að stefnan Skóli án aðgreiningar var mörkuð hafi ekki verið hoppað inn í algerlega fullkomið umhverfi. „Ég held að þetta séu eðlileg skref, að leita þeirra leiða þannig að barnið fái sem mest úr sinni skólagöngu, bæði félagslega og námslega. Við fáum ábendingar frá foreldrum um að það þurfi að bjóða upp á fleiri úrræði, sérskóla eða sérdeildir. Í sjálfu sér skiptir ekki máli hvort þetta heitir sérdeild eða sérskóli, bara að við bjóðum þessa þjónustu.“ Foreldrar hafi val Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir FRRAMKVÆMDIR við nýja vatnsverksmiðju á Rifi munu hefj- ast í næsta mánuði eftir að sam- komulag náðist milli Snæfellsbæjar og fyrirtækisins Iceland Glacier Products ehf. Standa vonir til að verksmiðjan muni taka til starfa seinni hluta næsta árs og til að byrja með skapa 40-50 ný störf. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir samkomulagið við Iceland Glacier afar jákvætt fyrir samfélagið, verkefnið komi á mjög góðum tíma. Fjölbreytni í at- vinnulífinu verði aukin og grunnur samfélagsins í Snæfellsbæ styrkt- ur. Hann segir sveitarfélagið hafa um nokkurt skeið reynt að fá fyr- irtæki til að reisa vatnsverksmiðju og nú hafi það loksins tekist. Lóð undir verksmiðjuna er tilbú- in og að sögn Kristins verður strax í næsta mánuði byrjað að leggja nýja vatnslögn að fyrirhugaðri vatns- verksmiðju. Hann segir það ljóst að framkvæmdin muni hafa mikil margfeldisáhrif fyrir sveitarfélagið, ekki eingöngu með auknum útsvarstekjum heldur einnig með margs konar þjónustu við fyrirtæk- ið og starfsmenn þess. Um aðkomu Snæfellsbæjar að öðru leyti en að útvega verksmiðjunni vatn og að- stöðu, segir Kristinn að sveitarfé- lagið muni eignast 1,24% hlut í Ice- land Glacier. Vatni pakkað á Rifi ♦♦♦ ENN er biðstaða í skipulagsmálum Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna áætlana Landsvirkjunar um Holta- og Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár. Fjögur sveitarfélög þurfa að breyta skipulagi sínu til að virkj- unin geti orðið að veruleika. Sveit- arstjórn Skeiða- og Gnúpverja- hrepps hefur tekið þá afstöðu að skipulaginu verði ekki breytt fyrr en Landsvirkjun hafi samið við þá land- eigendur sem myndu missa land undir lón virkjunarinnar. Fundað var í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps í gær og farið yfir stöðu mála. Sigurður Jónsson sveitarstjóri segir að enn sé beðið eftir svörum frá Landsvirkjun en þangað til verði farið yfir athuga- semdir sem borist hafi. Umhverfis- nefnd og iðnaðarnefnd Alþingis munu á föstudaginn eiga fundi á svæðinu með sveitarstjórnarmönn- um, fulltrúum Landsvirkjunar og andstæðingum virkjunarinnar. Biðstaða við neðri Þjórsá ALLT hefur gengið að óskum á landvarnaræfingunni Norðurvíkingi 2007 hingað til að sögn Friðþórs Ey- dal, fulltrúa flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli. Allar tímaáætl- anir höfðu staðist þegar Morg- unblaðið ræddi við hann seinnipart- inn í gær. Þá voru loftbardaga- æfingar bandarískra F-15 og norskra F-16 orrustuþotna enn í gangi. Fyrri hluta dags var flogið á öllum flugvélum æfingarinnar í einu. Rat- sjáreftirlitsflugvél (AWACS) frá NATO stjórnaði aðgerðum í lofti, en hún er mönnuð alþjóðlegri áhöfn frá ríkjum beggja vegna Atlantshafsins. Ratsjármiðstöð íslenska loftvarn- arkerfisins þjónaði sem umsjón- armiðstöð með æfingunni, en þaðan fengu flugáhafnirnar fyrirskipanir og upplýsingar. Norsk flugvél af Orion-gerð lék óþekkta flugvél sem fór inn á loftvarnarsvæði Íslands en tvær F-15 þotur leituðu hana uppi og báru kennsl á hana. Með í för voru tvær KC-135 eldsneytisbirgða- flugvélar sem æfðu eldsneytisgjöf á flugi. Þá voru sérsveitarmenn við æf- ingar í Hvalfirði í gær og verða áfram við æfingar í dag og á morgun á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Æfing þeirra gekk að sögn vel. Varnir í lofti og á landi æfðar Víkurfréttir/Hilmar Bragi Bensínþamb F-15 orrustuþota tekur eldsneyti frá KC-135 eldsneytisbirgðavél á æfingunni í gær. Norðmenn í hlut- verki óvinarins Lítil æfing fyrir stóra heri VEFVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.