Morgunblaðið - 15.08.2007, Side 17

Morgunblaðið - 15.08.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 17 LANDIÐ AÐ KAUPA VÍN ER EKKERT GRÍN Haf›u skilríkin me›fer›is. Takk fyrir að sýna okkur skilríki að eigin frumkvæði þegar þú kemur í Vínbúðina. Þannig leggjumst við á eitt um að takmarka aðgengi unglinga að áfengi. Reykjanes | Boðið er til menning- ar- og sögutengdrar gönguferð sunnudaginn 19. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Garðs í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERL- IR. Gangan hefst við Hólmsnes- kirkjugarð í Keflavík og verður gengið í Sveitarfélagið Garð eftir Garðstíg sem er gömul þjóðleið um 6,5 km á milli Keflavíkur og Garðs. „Svæðið býr yfir minjum og mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumenn Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki um 3-4 klst. með stoppum. Auðveld leið en gott er að vera með nesti og í góð- um skóm. Allir á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka 500 kr.,“ segir í frétt frá skipuleggjendum göng- unnar. Gangan er þriðji hluti af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskag- anum sem farnar verða á tíma- bilinu frá 6. ágúst til 2. sept. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3-5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttak- endur eru beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Útivist Göngugarpar á ferð á Reykjanesi. Þar er nú boðið upp á skipulegar menningar- og sögutengdar ferðir. Gengið um Garðstíg næsta sunnudag Fljótshlíð | Nú hefur Markarfljótið tekið upp á því að brjóta sér leið gegnum núverandi veg inn á Þórs- mörk við svonefnda Lága. Þarna liggur vegurinn um svonefnt Langa- nes og liggur niður á aurinn við svo- nefnda Lága, svo hefur bílvegurinn alltaf gert. „Þetta kemur á engan hátt á óvart enda hefur Fljótið verið að narta í veginn í a.m.k. ár. Vegslóð- inn hefur verið færður aðeins ofar í landið en það er skammgóður verm- ir. Ef ekkert verður að gert leggst Fljótið að Lágunum á mjög stuttum tíma, sérstaklega ef einhverja vatnavexti gerir, gæti gerst á einni nóttu,“ segir Árni Alfreðsson. Hann sendi Morgunblaðinu meðfylgjandi mynd, sem sýnir vel hvernig staðan er. „Það að ryðja veg gegnum Lág- ana er mjög slæmur kostur. Þeir eru fallegar hvilftir, vaxnir stórum víðirunnum. Það er, jú, eðli jökul- vatna að flæmast sitt á hvað, hlaða undir sig öðrum megin og leggjast að hinum megin og svo koll af kolli. Stór varnargarður við innanvert Þórólfsfell í Fljótshlíðinni veitir öllu Fljótinu beint inn að Lágunum. Það er eins gott að menn villist ekki inn á fyrrverandi vegstæði. Spurning hvort mætti verja vegstæðið með einhverju grjóti án þess að byggja fáránlega langa og stóra varnar- garða sem eyðileggja ósnortna land- ið á þessu svæði. Spennandi að sjá hvað gerist á næstunni,“ segir Árni. Ljósmynd/Árni Alfreðsson Landbrot Fljótið hefur verið að narta í veginn í a.m.k. ár. Vegslóðinn hefur verið færður aðeins ofar í landið. Ófært inn á Þórsmörk? Bolungarvík | Bolungarvíkurkaup- staður og Netheimar ehf. hafa und- irritað þriðjudaginn þjónustusamn- ing á sviði tölvu- og upplýsingamála sveitarfélagsins. Skrifað var undir samninginn í húsnæði Netheima Að- alstræti 20 á Ísafirði. Tæknileg ráðgjöf Samningurinn er gerður á grund- velli úttektar og þarfagreiningar á öllum sviðum upplýsingatæknimála sveitarfélagsins. Meginþættir samn- ingsins lúta að tæknilegri ráðgjöf, umsjón og eftirliti tæknibúnaðar ásamt vefhýsingu og vefumsjón. Með samningnum eru upplýsinga- tæknimál sveitarfélagsins nær alfar- ið útvistuð frá meginstarfsemi þess. Netheimar hafa einnig smíðað nýjan vef fyrir Bolungarvíkurbæ sem byggir á vefumsjónarkerfi sem verið hefur í þróun hjá fyrirtækinu um nokkurt skeið. Ný heimasíða Með tilkomu nýrrar heimasíðu og þeirra breytinga og endurbóta sem fram munu fara á upplýsingatækni- umhverfi sveitarfélagsins mun þjón- usta við íbúa og gesti batna verulega. Það er að auki markmið þessa samn- ings að auk bættrar þjónustu og að- gengis fyrir notendur þá muni einnig nást fram veruleg fjárhagsleg hag- ræðing. „Það er stefna Bolungarvíkur- kaupstaðar að skipta við fyrirtæki á svæðinu en þó á samkeppnishæfum forsendum og er samningurinn við Netheima dæmi um slíkt,“ segir í frétt frá Bolungarvíkurbæ. Netheimar þjónusta Bolungarvíkurbæ Patreksfjörður | Um 70 manns voru við formlega opnun framhalds- skóladeildar á Patreksfirði á mið- vikudag. Deildin er undir stjórn Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Um tilraunaverkefni er að ræða til fjögurra ára og þá fyrir fyrstu tvö árin í framhalds- skólanámi. Staðsetning skólans verður í húsnæði Grunnskóla Vest- urbyggðar á Patreksfirði sem hef- ur staðið ónotað í tæp tuttugu ár. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, kom til að undirrita samninga um rekstur skólans. Auk hennar mætti forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson og fleiri alþingismenn Norðvest- urkjördæmis, starfsmenn úr menntamálaráðuneytinu, kenn- arar, starfsmenn og skólameistari FSN auk verkefnisstjóra og verk- efnisstjórn undirbúnings deild- arinnar. Samkvæmt Svæðisútvarp- inu á Ísafirði hafa tuttugu nemendur sótt um í skólann, þar af tíu í fullt nám. Talið er að með til- komu framhaldsskóladeildar í heimabyggð spara foreldrar sér um eina miljón króna á ári. Framhaldsskóladeild opnuð á Patreksfirði SUÐURNES

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.