Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 28
✝ Sigríður Ásgeirs-dóttir fæddist í Reykjavík 14. apríl 1927. Hún lést á gjör- gæsludeild Landspít- alans við Hringbraut 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Elín Jóhanna Guðrún Hann- esdóttir Hafstein húsfreyja, f. á Ísa- firði 25.12. 1900, d. 4.9. 1988 og Ásgeir Þorsteinsson efna- verkfræðingur, f. í Reykjavík 7.10. 1898, d. 1.1. 1971. Systkini Sigríðar eru, Þorsteinn, f. 1929, d. 1931, Ragnheiður Guðrún, f. 1931, gift Guðmundi H. Garðarssyni, og Þorsteinn Ásgeir, f. 1933, d. 1997, kvæntur Vilhelmínu Sveinsdóttur. Hinn 4. desember 1954 giftist Sig- ríður Hafsteini Baldvinssyni hæsta- réttarlögmanni, f. 24.4. 1927, d. 23.11. 1988. Foreldrar hans voru Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 18.10. 1899, d. 22.5. 1950 og Baldvin Hall- dórsson skipstjóri, f. 16.11. 1889, d. 10.4. 1950. Börn Sigríðar eru: 1) Ás- geir Hannes Eiríksson, f. 1947, kvæntur Valgerði Hjartardóttur, f. Hafsteins starfaði hún á eigin mál- flutningsstofu til ársins 1997. Hún var lögfræðingur Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur 1971-1978, lög- fræðingur Félags einstæðra foreldra 1975-1980 og lögfræðingur Sam- bands dýraverndunarfélaga Íslands frá 1973. Á árunum 1972-1982 starf- aði Sigríður einnig á vettvangi stjórn- mála. Hún var í stjórn Hvatar félags sjálfstæðiskvenna 1972-1978, vara- borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1974-1982, í stjórn Stræt- isvagna Reykjavíkur 1974-1982, í Umferðarnefnd Reykjavíkur 1978- 1982 og varamaður í Skipulagsnefnd Reykjavíkur 1974-1978. Sigríður vann nærfellt alla sína starfsævi ötullega að dýravernd- armálum. Hún var formaður Dýra- verndunarfélags Reykjavíkur frá 1980-2004, formaður Sambands Dýraverndunarfélaga Íslands 1996- 2004 og formaður Dýravernd- arsambands Íslands frá 2004. Hún var formaður Sjálfseignarfélagsins Dýraspítali Watsons frá 2000. Hin seinni ár tók Sigríður virkan þátt í safnaðarstarfi Hallgrímskirkju og var í stjórn Kvenfélags Hallgríms- kirkju frá 2002, einnig var hún í stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík 2003-2006. Útför Sigríðar verður gerð frá Hallgrímskirkju og hefst athöfnin klukkan 15. 1952. Faðir Ásgeirs er Eiríkur Ketilsson, f. 1924, d. 1999. Börn Ás- geirs og Valgerðar eru a) Sigríður Elín, f. 1976, sambýlismaður Haukur Már Einarsson, f. 1977, dóttir þeirra er Kol- brún Tinna, f. 2003, b) Sigurður Hannes, f. 1982, og c) Sigrún Helga, f. 1989. 2) Bald- vin Hafsteinsson, f. 1955. Baldvin var kvæntur Björgu Vig- gósdóttur, f. 1952. Börn þeirra eru a) Helga, f. 1981, b) Hildur, f. 1983, sambýlismaður Sigmar Freyr Jónsson, f. 1983, og c) Hafsteinn, f. 1985. 3) Elín Jóhanna Guðrún Haf- steinsdóttir, f. 1957, gift Hauki G. Gunnarssyni, f. 1952. Börn þeirra eru: a) Ingunn Hafdís, f. 1976, gift Þórlindi Kjartanssyni, f. 1976, og b) Hafsteinn Gunnar, f. 1989. Sigríður varð stúdent frá Versl- unarskóla Íslands 1946. Hún lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla Íslands 1971 og varð héraðsdómslögmaður 1974. Sigríður starfaði ásamt eiginmanni sínum Hafsteini á málflutningsstofu þeirra hjóna frá 1976-1988. Eftir lát Svo máttvana er ég við móðurlát. Lífsglatt fólk þarf ekki löng eftir- mæli og sjálfstætt fólk skrifar sín eig- in eftirmæli jafnóðum. Eigi að síður er það skelfileg lífs- reynsla að horfa ráðalaus á móður sína engjast á dánarbeði. Svar lífsins við harminum hlýtur því að vera fólgið í gleðinni. Móðurástin er gróandi mannkyns- ins og móðirin kletturinn í hafinu – og lítill mömmustrákur þakkar fyrir sex- tíu ára umhyggju og ást. Ásgeir Hannes. Elsku amma. Síðustu daga hafa komið upp í hug- ann margar góðar minningar um stundir sem við höfum átt saman. Það er ómetanlegt að hafa fengið að vera svona mikið hjá þér þegar ég var lítil, hvort sem var að gista um helgar eða að fá að koma í franskbrauð með sultu og kakómalt eftir skóla. Ég lærði hjá þér í stofunni, við spil- uðum rommý, horfðum á Dallas og lásum Fríðu Fjörkálf. Þú teiknaðir fyrir mig dúkkulísur og prjónaðir töskur fyrir Barbie-dúkkurnar mínar. En þó að ég eltist þá varstu dugleg að fylgjast með öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Ég mun sakna símtal- anna þinna til mín í vinnuna þegar þú hringdir í mig undir því yfirskini að spyrja mig um eitthvað en raunveru- lega vildum við bara spjalla. Það var alltaf svo gott að heyra í þér og mér þótti svo vænt um að þú hringdir. Elsku amma, þú varst svo dugleg að fylgjast með öllu sem við barna- börnin tókum okkur fyrir hendur og það var svo gott að tala við þig. Þú skildir allt svo vel og varst svo vel inni í öllu sem maður talaði um við þig. Það var eins og þú værir alltaf svo ung. Það var gott að alast upp með þig hjá sér, því í þínum augum gerði mað- ur aldrei neitt rangt. Þú varst stór- kostleg kona. Það eru ekki margar ömmur sem halda úti heimasíðu og vita meira um Internetið en barna- barnið. Dýrin voru heppin að eiga þig að sem málsvara sinn. Fyrir litla stúlku og unga konu er ómetanlegt að hafa fengið að hafa fyrirmynd eins og þig í sínu nánasta umhverfi. Þú sýndir mér að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Mér er það mikils virði að þú tókst þátt í brúðkaupi og brúðkaups- undirbúningi okkar Þórlinds nú fyrr á árinu. Elsku amma, þú verður alltaf hluti af mér og margt í umhverfinu sem minnir á þig í daglegum störfum. Þú ert örugglega búin að því en knúsaðu afa frá mér. Þín, Inga Dís. Enn fækkar í hópnum sem útskrif- aðist úr fjórða bekk Verzlunarskólans árið 1944 skömmu fyrir stofnun lýð- veldis á Íslandi. Kær bekkjarsystir, Sigríður Ásgeirsdóttir, héraðsdóms- lögmaður, lézt 2. ágúst sl. og var okkur öllum harmdauði. Árið 1945 hafði Verzlunarskólinn fengið heimild til að útskrifa stúdenta og var Sigríður ein af fimmtán bekkj- arsystkinum sem fóru í lærdómsdeild- ina og útskrifuðust sem stúdentar sumarið 1946. Hún var ein af þremur fyrstu kvenstúdentum sem luku stúd- entsprófi frá skólanum. Hún fagnaði því sextíu ára stúdentsafmæli árið 2006 ásamt okkur hinum sem enn lifðu. Sigríður var einstaklega vönduð og góð kona, bráðgáfuð og gekk vel í námi. Hún hafði fastmótaðar skoðanir og var órög við að gera athugasemdir í ræðu og riti ef henni mislíkaði. Dýra- vernd var henni einkar hugleikin og mikið baráttumál alla tíð. Eins og oft vill verða tvístraðist hópurinn að námi loknu og sambönd rofnuðu en okkur bekkjarfélögunum bar gæfu til að endurnýja gömul kynni og síðustu tíu árin hittumst við mán- aðarlega yfir vetrarmánuðina, auk þess sem sum okkar stunduðu qi gong hjá Gunnari Eyjólfssyni bekkjarbróð- ur okkar og var Sigríður þar á meðal. Að leiðarlokum kveðjum við kæra bekkjarsystur með virðingu og þökk og sendum börnum hennar, barna- börnum og öðrum aðstandendum ein- lægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigríðar Ásgeirsdóttur. F.h. bekkjarsystkina, Guðni Hannesson. Mér var brugðið þegar ég frétti að Sigríður Ásgeirsdóttir væri látin því að við höfðum rætt saman skömmu áð- ur og var hún þá glöð og reif. Fundum okkar bar fyrst saman fyr- ir um 30 árum þegar hún var lögfræð- ingur Sambands dýraverndarfélaga Íslands, vegna Sauðfjárverndarinnar, minningarsjóðs í vörslu samtakanna sem stofnað var til á 8. áratug liðinnar aldar með höfðinglegri gjöf Jóns Kon- ráðssonar á Selfossi. Sem stjórnar- maður átti ég alltaf gott samstarf við Sigríði er ætíð gekk vel frá árlegum reikningsskilum, nú síðast fyrir rúm- Sigríður Ásgeirsdóttir 28 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson ✝ Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, SIGRÚN BÁRÐARDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sunnu- daginn 12. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björgvin Þorleifsson, Bárður Sigurðsson, Jón Gestur Björgvinsson, Natalía Ósk Ríkarðsdóttir, Bernharð Máni Snædal, Óðinn Rafn Jónsson Snædal, Katrín Bárðardóttir, Magnús Einarsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF SVEINBJÖRG ÖRNÓLFSDÓTTIR frá Austari-Hóli í Fljótum, sem lést mánudaginn 6. ágúst, verður jarðsungin laugardaginn 18. ágúst. Minningarathöfn hefst í Siglufjarðarkirkju kl. 14. Jarðsett verður á Barði í Fljótum. Ásmundur Frímannsson, Frímann Ásmundsson, Aud Hole Ásmundsson, Þórir Jón Ásmundsson, Margrét Hjaltadóttir, Þórey Ásmundsdóttir, Hörður Jósefsson, Guðrún Hjördís Ásmundsdóttir, Kristinn Jóhannesson, Þórhallur Ásmundsson, Halla Kjartansdóttir, Örnólfur Ásmundsson, Ásdís Magnúsdóttir, Kristinn Brynjar Ásmundsson, Sigrún Ósk Snorradóttir, Jóesep Smári Ásmundsson, Rebekka Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÁSGEIR SIGURÐSSON útvarpsmaður, Birkigrund 39, Kópavogi, lést þriðjudaginn 14. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd vina og vandamanna, Margrét Oddsdóttir, Sigurður Árni Jónsson, Oddur Björn Jónsson, Þorgrímur Darri Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, Hallsteinn Magnússon og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, afi og langafi, ERLENDUR STEFÁNSSON, Vallargötu 6, Vestmannaeyjum, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, sunnudaginn 12. ágúst, verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni í Eyjum, föstudaginn 17. ágúst, kl. 16.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans eru beðnir að láta líknarfélög njóta þess. Við minnum á minningarsjóð sonar hans, Stefáns Erlendssonar, til styrktar ÍBV. Reikningsnúmerið er: 1167 05 445. Kennitala: 590886-1659. Guðfinna K. Ólafsdóttir, Ólafur Erlendsson, Gunnhildur Kjartansdóttir, Kjartan Erlendsson, Rikke Kiil Erlendsson, Sigrún Ósk Ingadóttir, Guðmundur Sigurðsson, Ingi S. Ingason, Katrín Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, DANÍEL G. EINARSSON, Sundlaugavegi 18, Reykjavík, lést á Landakotsspítala, mánudaginn 13. ágúst. Eva Þórsdóttir, Sigurberg Hraunar Daníelsson, Kristinn V. Daníelsson, Unnur Garðarsdóttir, Sigríður I. Daníelsdóttir, Þórður R. Guðmundsson, Þór Ingi Daníelsson, Anneli Planman, Einar Daníelsson, Kristjana Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skila- frests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.