Morgunblaðið - 15.08.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
! "#$% &'(()
"#
$ %$
(&
6&37#
8
.56&37#
19 (
7#
+6&37#
6 ( 2
7#
:#1 3
#;
!
<=
6&37#
"
30 !2
7#
+
2
7#
*&
=
7 & 7#
(
-8
//#27#
>
? 7#
@7#
' # ( )*
7#
=(
. 6&37#
#
=
7#
(
( =A
(&
A
1 8
!
6&37#
B&?
8
<=
=6&37#
*
7#
C47
7#
>?!! !
(5 7#
D (5 7#
" + ( ,
E
(? E&
:86
7#
:
3
7#
-*.
/
*
$ $
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
D 3(
! > 2&,&
!F
"
3
-
-
-
-
-
-
-
-
5
. 3(
-
-
-
-
-
-
-
-
G
!
( . .
H*I H*I
%$
%$
J
J
H*I 38I
%$
%$
J
J
G&KL&
C
M
%$
%$
J
J
G I
%$
%$
J
J
H*I4
H*I+
%$
%$
J
J
ÞETTA HELST ...
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
NORSKA fjármálaeftirlitið hefur
sent Exista og Kaupþingi bréf þar
sem krafist er skýringa á tengslum
félaganna varðandi hlut þeirra í
norska tryggingafélaginu Store-
brand. Samkvæmt norskum lögum
er hámarkseign í norskum fjármála-
stofnunum 10%, nema stjórnvöld
veiti sérstaka undanþágu.
Sameinaður eignarhluti of stór
Kaupþing fékk leyfi til að eiga
20% hlut í Storebrand, eftir að hafa
sótt um að eiga 25% hlut og er ekki
heimilt að eiga stærri hlut í félag-
inu. Saman fara Kaupþing og Ex-
ista nú með 25,6% hlut í Store-
brand.
Exista er jafnframt stærsti hlut-
hafi Kaupþings með eignarhlut upp
á 23%.
Telur norska fjármálaeftirlitið því
ástæðu til að rannsaka hvort félögin
séu að fara í kringum lögin með því
að óbeinn eignarhluti Exista er nú
25,6% í gegnum Kaupþing.
Krafin svara með bréfi
Sent var bréf til félaganna þar
sem þau eru krafin svara við fjölda
spurninga, m.a. hvað varðar ná-
kvæman eignarhluta hvors félags og
hvort þau eigi kauprétt á fleiri hlut-
um. Einnig um tengsl í gegnum
stjórnir, sameiginlega eignarhluti
eða á annan hátt. Eftirlitið vill fá
upplýsingar um hvort félögin hafi
átt í viðræðum vegna kaupa þeirra á
hlutum í Storebrand og þá hvort
gerðir hafi verið munnlegir eða
skriflegir samningar þar að lútandi.
Hvort Exista hafi á einhvern hátt
áhrif á fjárfestingarstefnu Kaup-
þings og að síðustu hvort félögin
hafi unnið beint eða óbeint saman
við kaup á stórum eignarhlutum í
félögum sem skráð eru á markað.
Gætu þurft að selja
„Ég get staðfest að við höfum
fengið bréfið og að við munum svara
innan þeirra tímamarka sem sett
eru,“ sagði Sigurður Nordal, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs hjá
Exista. Benedikt Sigurðsson, upp-
lýsingafulltrúi hjá Kaupþingi, sagði
málið vera í athugun. Hvorugur
vildi tjá sig frekar að svo stöddu.
Þegar leitað var álits hjá Fjár-
málaeftirlitinu varðandi líkindi með
Norska fjármálaeftirlitið
krefst svara um tengsl
íslenskri löggjöf við þá norsku,
sagði Guðbjörg Bjarnadóttir, sviðs-
stjóri á lánasviði, grunnreglur ís-
lenskra og norskra laga um virka
eignarhluti í meginatriðum þær
sömu. Íslenskar reglur kunni þó að
vera skýrari hvað þetta varðar.
Meginreglan sé sú að ef einn aðili á
20% hlut í félagi og báðir aðilar eiga
hlut í sama fjármálafyrirtækinu eigi
að taka þá hluti saman, samkvæmt
40. gr.a. í lögum um fjármálafyr-
irtæki (l.161/2002).
Verði niðurstaðan sú að hlutir
Kaupþings og Exista í Storebrand
teljist sem einn eignarhlutur, er
þeim skylt að sækja um leyfi vegna
kaupanna. Komi til þess og verði
leyfisumsókn hafnað neyðast félögin
til að minnka samanlagðan hlut sinn
í Storebrand niður í 20%.
● HEILDARVELTA viðskipta í Kaup-
höll OMX á Íslandi nam 17,4 millj-
örðum króna í gær, viðskipti með
hlutabréf námu 7 milljörðum.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,6%
og var lokagildi hennar 7.970 stig.
Mest voru viðskipti með bréf
Kaupþings, fyrir 2,3 milljarða og
Landsbankans, fyrir 2,1 milljarð.
Bréf Føroya Banka lækkuðu
mest, eða um 6%.
Bréf Eimskips voru þau einu sem
hækkuðu í verði, um 0,5%.
Gengi krónunnar lækkaði í dag og
nam krónuvísitalan 121,46 stigum í
lok dags. Gengi Bandaríkjadals er
nú 65,6 krónur en gengi evrunnar
89,2.
Lækkun í kauphöllinni
● ERLENDAR
hlutabréfa-
vísitölur voru enn
á ný rauðar í gær.
Bandarísku vísi-
tölurnar féllu eftir
að fréttir bárust
af því að smá-
sölurisarnir tveir,
Wal-Mart og
Home Depot myndu væntanlega
ekki standast væntingar á árinu.
Einnig var orðrómur um að enn einn
sjóðsstjórinn ætti í vandræðum.
Dow Jones vísitalan féll um 1,6%
og Nasdaq um 1,7%.
Fallið á Wall Street skilaði sér til
Evrópu því breska FTSE vísitalan
endaði með lækkun upp á 1,2% í lok
dagsins. Þýska Dax vísitalan lækk-
aði um 0,7%.
Rauðar tölur erlendis
VELTA í dagvöruverslun jókst um
rúm 10% í júlí sl. miðað við sama
mánuð á síðasta ári, samkvæmt
nýrri mælingu Rannsóknaseturs
verslunarinnar. Miðað við fast verð-
lag og árstíðarleiðréttingu nam
hækkunin 12,7%. Á sama tímabili
lækkaði verðlag á dagvöru um 3%
samkvæmt tölum Hagstofunnar. Sé
miðað við júní sl. jókst veltan í dag-
vörunni um 4,2%.
Mesta aukningin er á sölu áfengis,
sem jókst milli ára um 13% á breyti-
legu verðlagi en 6,8% á föstu verð-
lagi. Telur Rannsóknasetrið að það
megi að stórum hluta skýrast á veð-
urblíðunni, menn hafi gert vel við sig
í mat og drykk.
Þá voru sumarútsölur í fata- og
skóverslun líflegar í júlímánuði.
Verð á fatnaði lækkaði um 10% á
milli mánaða og velta fataverslunar
dróst saman um 0,2% milli mánaða,
miðað við breytilegt verðlag, en
jókst um 14,6 á föstu verðlagi og að
teknu tilliti til árstíðarleiðréttingar.
Skóverslun jókst um 3% milli mán-
aða á breytilegu verðlagi og 12,1% á
föstu verðlagi. Samanlögð velta í
þeim flokkum smásöluverslunar sem
mælingar Rannsóknaseturs verslun-
arinnar ná til jókst um 3,1% á milli
júní og júlí. Hefur veltuaukningin
verið stöðug síðan í mars sl. er virð-
isaukaskattur var lækkaður og vöru-
gjöld afnumin.
Aukin velta í dagvöru og
áfengissala jókst um 13%
HAGNAÐUR Sparisjóðsins í Kefla-
vík (SPKEF) á fyrstu sex mánuðum
ársins nam 4,6 milljörðum króna eft-
ir skatta, sem er
aukning um 339%
frá sama tímabili í
fyrra. Arðsemi
eiginfjár var
63,8%, sem er ein
sú mesta frá
stofnun sjóðsins.
Hagnaðurinn fyr-
ir skatta var 5,6
milljarðar, borið
saman við 1,2
milljarða í fyrra.
Hreinar rekstrartekjur jukust um
4,5 milljarða og voru tæpir 6,5 millj-
arðar á tímabilinu. Eigið fé SPKEF í
lok júní nam ríflega 14 milljörðum og
hefur aukist um 5,4 milljarða. Þar af
er stofnfjáraukning upp á 700 millj-
ónir króna að nafnvirði. Stofnfjáreig-
endur eru 724 talsins. Eiginfjárhlut-
fallið er komið í 17,3%, var rúm 10%
á sama tíma í fyrra.
Haft er eftir Geirmundi Kristins-
syni sparisjóðsstjóra í tilkynningu að
rekstur sjóðsins hafi gengið framar
vonum. Þetta sé langmesti hagnaður
sjóðsins á einum árshelmingi, eða
fjórfaldur miðað við sama tíma í
fyrra. Hagnaður síðastliðinna ára
hafi verið notaður til uppbyggingar á
ýmsum tekjusviðum sjóðsins sem
muni koma honum til góða í framtíð-
inni.
339% aukn-
ing á hagn-
aði SPKEF
Geirmundur
Kristinsson
● ÞAU mistök urðu í frétt um rýrnun
á samanlögðu markaðsvirði fyr-
irtækja í úrvalsvísitölu kauphallar
OMX á Íslandi, laugardaginn 11.
ágúst sl., að rangar tölur birtust með
fréttinni.
Hið rétta er að markaðsvirði um-
ræddra fyrirtækja rýrnaði samtals
um rúma 146 milljarða, frá 8. ágúst
til 10. ágúst. Fór úr 2.942 millj-
örðum króna niður í tæpa 2.796
milljarða. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Leiðrétting
● FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Eyrir In-
vest hagnaðist um rúma 2,2 millj-
arða króna eftir skatta á fyrri helm-
ingi þessa árs. Jafngildir það 39%
ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli. Á
sama tímabili í fyrra nam tap félags-
ins 978 milljónum króna. Viðsnún-
ingur er því töluverður í rekstrinum
hjá þeim feðgum Þórði Magnússyni
og Árna Oddi Þórðarsyni, sem eiga
ríflega 51% hlut í félaginu. Helstu
eignir þess eru hlutir í Marel Food
Systems, Össuri og Stork gegnum
eignarhaldsfélagið LME. Eigið fé Eyr-
is þann 13. ágúst sl. var 19,8 millj-
arðar, borið saman við tæpa 12
milljarða í byrjun ársins.
Mikill viðsnúningur
hjá Eyri Invest á árinu
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR tilkynnti í
gær um hækkun vaxta á nýjum út-
lánum, úr 4,8% í 4,85% af lánum sem
eru með sérstöku uppgreiðsluálagi.
Þá hækka vextir úr 5,05% í 5,1% af
útlánum sjóðsins sem eru án upp-
greiðsluálags. Í tilkynningu segir að
vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs sé
byggð á ávöxtunarkröfu í útboði
íbúðabréfa sem haldið var í gær
ásamt vegnum fjármagnskostnaði
uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa.
Íbúðalánasjóður hækkar
vexti á nýjum útlánum
ICELANDAIR Group kynnti upp-
gjör sitt fyrir fyrri helming ársins í
gær. Tap félagsins fyrir skatta nem-
ur um milljarði króna samanborið
við nær 660 milljóna króna hagnað
fyrir sama tímabil í fyrra. Hagnaður
félagsins eftir skatta á öðrum árs-
fjórðungi var 205 milljónir króna en
1,2 milljarðar á sama tímabili 2006.
Heildartekjur félagsins jukust um
17% milli ára. Voru rúmir 28 millj-
arðar króna í ár en rúmir 24 millj-
arðar á fyrri helmingi árs í fyrra.
Heildartekjur annars ársfjórðungs
námu rúmum 16 milljörðum króna
sem er 12% aukning frá 14,5 millj-
arða tekjum á sama tíma í fyrra.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði,
skatta og afskriftir á fyrri helmingi
ársins var 1,2 milljarðar króna en 1,3
milljarðar króna fyrir sama tíma í
fyrra. Á öðrum ársfjórðungi var
hagnaðurinn 1,3 milljarðar króna en
1,6 milljarðar króna fyrir sama tíma í
fyrra. Eignir í lok fyrri helmings árs-
ins 2007 námu 71,6 milljörðum króna
en voru 76,6 milljarðar við árslok
2006. Eiginfjárhlutfall í lok fyrri
helming árs 2007 er 33% á móti 34% í
lok árs 2006.
Varðandi horfur út árið segir Jón
Karl Ólafsson forstjóri að gert sé ráð
fyrir góðum hagnaði af starfseminni
á árinu og betri en á síðasta ári. Jafn-
framt segir í tilkynningu að unnið
hafi verið að skipulagsbreytingum
innan samstæðunnar sem hafi verið
nauðsynlegar vegna örs vaxtar og
yfirtöku á Travel Service og verði
nýtt skipurit kynnt á næstunni.
Aukið framboð skili ekki jafn mikl-
um tekjum og búist var við en bók-
anir fyrir sumar og haust líti vel út.
Lögð verði áhersla á aðhald í kostn-
aði út árið.
Tap Icelandair
einn milljarður
Uppgjör
Icelandair Group
sigrunrosa@mbl.is