Morgunblaðið - 15.08.2007, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BANDARÍSKIR kaupsýslumenn
hafa áhuga á að hafa lystisnekkju
staðsetta í Reykjavík næsta sumar
og bjóða þaðan upp á ferðamögu-
leika á sjó fyrir vel efnaða ferða-
menn.
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
Faxaflóahafna, segir að mikill vöxt-
ur sé í lystisnekkjugeiranum og
fylgi hann svipaðri þróun og hafi
gerst í sambandi við skemmti-
ferðaskipin. Í fyrstu hafi þau eink-
um siglt á Karíbahafi og Miðjarð-
arhafi en síðan fært út kvíarnar og
sigli nú nánast um öll heimsins höf.
Sama eigi sér stað með lystisnekkj-
urnar og ferðir þeirra til Íslands
verði til dæmis æ tíðari.
Um 170 snekkjur á ári
Þessar lystisnekkjur eru af ýms-
um stærðum og gerðum en eiga það
sameiginlegt að bjóða upp á mikil
gæði á hinum ýmsu sviðum. Fyrir
helgi kom t.d. Turmoil, ný lysti-
snekkja, til Reykjavíkur. Hún er
smíðuð í Danmörku, er um 60
metra löng og búin hinum ýmsu
þægindum, meðal annars þyrlupalli
og þyrla fylgir. Eigandinn er frá
Chicago og hefur nokkrum sinnum
siglt hingað til lands á fyrri snekkj-
um sínum sem báru sama nafn.
Bylting varð í smíði lystisnekkja
eftir að járntjaldið féll og segir
Ágúst að um 170 snekkjur séu smíð-
aðar árlega. Smíðin fari fyrst og
fremst fram í Evrópu og Asíu og
eftirspurn sé mun meiri en fram-
boðið en með auknum fjölda komi
upp nýtt vandamál sem sé að
manna áhafnir.
Til að byrja með voru það fyrst
og fremst auðkýfingar og stórfyr-
irtæki sem fjárfestu í lystisnekkjum
og aðrir stigu vart fæti inn fyrir
borðstokkinn en fólk með aðgang
að töluvert meira fé en gengur og
gerist. Ágúst segir að þetta hafi
breyst og í Bandaríkjunum sé æ al-
gengara að almenningi gefist kost-
ur á að festa sér til dæmis eina viku
á ári í svona fleyi, rétt eins og þekk-
ist í leiguíbúðum, þar sem borgað
er ákveðið gjald fyrir ákveðinn
tíma og viðkomandi getur þá geng-
ið að plássi sínu eða ráðstafað því á
annan hátt. Auk þess segir Ágúst
að við ákveðin tímamót eins og
stórafmæli eða brúðkaup sé al-
gengt vestra að fólk slái saman og
leigi lystisnekkju í nokkra daga.
Hægt sé að leigja mismunandi stór-
ar snekkjur, allt frá nokkurra
manna upp í snekkjur sem geti tek-
ið allt að eitt til tvö hundruð far-
þega.
Fyrr í sumar kom fram í Morg-
unblaðinu að Historical Ships Ltd.
er að skipuleggja seglskútusigl-
ingar á sextíu metra langri lúx-
usskútu við Ísland næsta sumar og
hafa íslensk fyrirtæki sýnt fram-
takinu áhuga. Ágúst segir að
bandarísku kaupsýslumennirnir
leggi upp með svipuð áform í sam-
bandi við snekkjurnar.
Lystisnekkjur nýr valkostur
Morgunblaðið/Frikki
Lystisnekkja í Reykjavíkurhöfn Fyrir helgi kom ný lystisnekkja til Reykjavíkur. Hún er smíðuð í Danmörku, er
um 60 metra löng og búin hinum ýmsu þægindum, meðal annars þyrlupalli og þyrla fylgir.
Í HNOTSKURN
» Eigandi og framkvæmda-stjóri Historical Ships
Ltd., er að skipuleggja segl-
skútusiglingar á sextíu metra
langri lúxusskútu við Ísland
næsta sumar.
» Bandarískir kaupsýslu-menn vilja gera út lysti-
snekkju frá Reykjavík.
Vilja gera út lysti-
snekkju frá
Reykjavík 2008
STARFSMENN meindýravarna
hafa unnið að því í sumar að fækka
mávum í Reykjavík og hafa skotið þá
í þúsundatali, enda hefur ítrekað
verið kvartað undan ónæði sem hlýst
af þeim. Mávadrápin munu halda
áfram þar til í haust þegar sílamáv-
urinn flýgur á brott.
Ekki er vitað nákvæmlega hversu
mörgum mávum hefur verið fargað
hingað til, en sú tala hleypur á þús-
undum. „Við erum að skjóta á þeim
stöðum innan borgarinnar þar sem
aðstæður leyfa hverju sinni og þar
sem von er um einhvern feng,“ segir
Guðmundur Björnsson, rekstrar-
stjóri meindýravarna.
Um miðjan júlí síðastliðinn snar-
fækkaði mávum í miðborginni. Talið
er að þeir hafi fundið æti í sjónum á
ný og flutt sig um set, frekar en að
þeim hafi verið fækkað svo mikið af
borgaryfirvöldum.
Guðmundur segir að kvartanir
vegna mávanna snúist fyrst og
fremst um ónæði og hávaða sem
þeim fylgir og dæmi eru um að þeir
hafi stolið steikum af útigrillum
borgarbúa.
Mörg þús-
und mávar
skotnir
Morgunblaðið/G.Rúnar
Við Tjörnina Mávum hefur snar-
fækkað í miðborginni í sumar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
OPNAÐ var fyrir tilboð í viðbygg-
ingu við Háskólann á Akureyri í gær,
og þá bárust tvö tilboð. Bæði eru þau
verulega yfir kostnaðaráætlun Rík-
iskaupa.
Tilboðin eru gerð í svokallaðan 4.
áfanga í uppbyggingu húsnæðis Há-
skólans við Sólborg. Fjölnir ehf.
bauð tæpar 743 milljónir króna í
verkið og Ístak hf. bauð um 758,7
milljónir króna. Tilboðin eru rúmum
40 prósentustigum yfir áætluninni
sem hljómaði upp á 530 milljónir
króna.
Í viðbyggingunni verða stór hátíð-
arsalur og fyrirlestrasalir og verður
þá hægt að kenna mun fleiri nem-
endum en áður við Sólborg. Auk þess
verða í viðbyggingunni ýmiss
smærri kennslurými. Í áfanganum
er einnig gert ráð fyrir bílastæðum
og sérstöku Háskólatorgi á milli
Borga og bygginganna við Sólborg.
Samkvæmt verkáætlun á byggingu
4. áfanga að vera lokið ekki seinna en
1. júlí 2009.
Tvö tilboð
bárust í við-
byggingu
Háskólans
Morgunblaðið/Kristján
Uppbygging Tilboð í viðbyggingu
Háskólans á Akureyri voru yfir
kostnaðaráætlun Ríkiskaupa.
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
SAMEIGINLEGUR starfsdagur
kennara í grunnskólum Akureyrar
var haldinn í gær. Kennsla í mann-
réttindum og lýðræði var aðal-
umfjöllunarefnið dagsins en samtals
tóku um 400 kennarar þátt í starfs-
deginum.
Að sögn Gunnars Gíslasonar, deild-
arstjóra skóladeildar á Akureyri, var
fyrirlestrunum á starfsdeginum ætl-
að að vera „kveikja að umræðum um
mannréttindi inn í skólana“. Efnið
var ákveðið með tilliti til þess að und-
anfarin misseri hefur skóladeild Ak-
ureyrar og skólastjórar Brekkuskóla
og Giljaskóla í samvinnu við fé-
lagsvísinda- og lagadeild Háskólans á
Akureyri unnið að undirbúningi þess
að Brekkuskóli verði gerður að móð-
urskóla í almennum mannréttindum
og Giljaskóli í lýðræði.
Fulltrúar MA og VMA hafa einnig
tekið þátt í undirbúningnum, og er
stefnan tekin á að kennsla í mann-
réttindum og lýðræði fari fram á öll-
um skólastigum á Akureyri, allt frá
leikskóla til háskóla.
Ágúst Þór Árnason og Guðbjörg
Lilja Hjartardóttir fjölluðu á starfs-
deginum um mannréttindakennslu
og Guðmundur Heiðar Frímannson
um „civic education.“ Að auki var
bók Ágústar Þórs, Mannréttindi,
sem gefin var út af Rauða kross-
inum, dreift til allra kennara.
Kristín Dýrfjörð fjallaði um lýð-
ræðiskennslu í leikskóla og grunn-
skóla auk þess sem Árný Þóra Ár-
mannsdóttir gerði grein fyrir
verkefninu Mannréttindaskólar á
Akureyri.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Samvinna Um 400 kennarar tóku þátt í sameiginlegum starfsdegi á Ak-
ureyri. Stefnan er að mannréttindi verði kennd á öllum skólastigum.
Brekkuskóli verði
móðurskóli í
mannréttindum
Á HÁTÍÐINNI Uppskera og hand-
verk 2007 sem haldin var um síð-
ustu helgi við Hrafnagilsskóla var
Guðrún Hadda Bjarnadóttir valinn
Handverksmaður ársins 2007. Hún
er vel að þessum titli komin, enda
er hún „fumkvöðull sem hefur lengi
unnið að þjóðlegu íslensku hand-
verki“ og „óþreytandi talsmaður
þess að við varðveitum þennan
merka menningararf og skilum
honum óbrotnum til komandi kyn-
slóða“. Þetta kom fram í ávarpi til
Guðrúnar Höddu á hátíðarsam-
komu sl. laugardagskvöld.
Einnig var hún sögð „boðberi
hugsjóna sem spyr aldrei um verka-
laun að kvöldi en leggur allt í söl-
urnar fyrir hugsjónir sínar“ sem
„eins og aðrir hugsjónamenn hefur
oft talað fyrir daufum eyrum“. Að
sama skapi var Guðrúnu Höddu
þakkað fyrir hennar þátt í að efla
hina árlegu handverkssýningu að
Hrafnagili.
Guðrún Hadda hand-
verksmaður ársins 2007
Guðrún Hadda Bjarnadóttir
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norð-
urlands mun í ágústmánuði hefja sitt
15. starfsár. Á Akureyrarvöku hinn
25. ágúst verður óperan La Traviata
flutt í samvinnu við Óperu Skaga-
fjarðar í íþróttahúsinu við Glerár-
skóla. Sýningin hefst kl. 16. Sunnu-
daginn 9. september verða tónleikar
í Íþróttahöllinni ásamt Kristjáni Jó-
hannssyni sem bera yfirskriftina
„Fyrir mömmu“. Tónleikarnir eru
unnir í samstarfi við KA en á efnis-
skránni verða aríur úr óperum eftir
Verdi, Bizet, Mascagni og Leonca-
vallo.
Sunnudaginn 28. október verða
tónleikar í Glerárkirkju, en þá mun
flutt Requiem eftir Gabriel Faure og
óbókonsert eftir T. Albinoni. Ein-
leikari á óbó er Gillian Haworth.
Með hljómsveitinni syngur kór Gler-
árkirkju.
Að lokum verður aðventuveisla í
Íþróttahöllinni í samstarfi við Knatt-
spyrnudeild Þórs hinn 9. desember.
Garðar Thor Cortes mun syngja
jóla- og aðventutónlist ásamt Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Að tón-
leikunum loknum verður boðið upp á
jólahlaðborð.
Eftir áramót verða Elfa Rún
Kristinsdóttir fiðluleikari og Áshild-
ur Haraldsdóttir flautuleikari meðal
einleikara, en ekki liggja fyrir ná-
kvæmar dagsetningar á tónleik-
unum. Stjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands er Guðmundur
Óli Gunnarsson
Glæsileg efnisskrá hjá
Sinfóníuhljómsveitinni