Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.08.2007, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á UNDANFÖRNUM vikum höf- um við nokkrir knattspyrnu- áhugamenn gagnrýnt verðlagningu 365 miðla á enska bolt- anum á einu vinsæl- asta bloggi landsins, Liverpool-blogginu. Í hnotskurn snýst málið um þá óánægju sem ríkir vegna þess að áskrift á enska bolt- anum hefur hækkað úr 2.341 kr. á mánuði fyr- ir 10 mánaða bindingu hjá SkjáSport síðasta vetur upp í 4.171 kr. fyrir 12 mánaða bind- ingu hjá Sýn 2. Þeir sem keyptu enska boltann í fyrra á 23.410 kr. á ári eru því nú að borga 50.052 kr. Ef 12 mánaða bindingu er sleppt og 10 stakir mánuðir teknir í stað- inn hækkar mánaðarverðið upp í 4.390 kr. á mánuði eða 43.900 kr á ári. Ef maður kaupir fleiri rásir hjá 365 miðlum tekur við óhemjuflókinn verðlisti sem skilar án efa sumum stórnotendum svipuðu eða aðeins hærra verði en á síðasta tímabili. Rök 365 miðla í þessu máli hafa verið eftirfarandi. Efnið var dýrt í innkaupum, þeir munu veita mun betri þjónustu heldur en var í fyrra og fyrirtækið leitast við að umbuna viðskiptavinum sem kaupa fleiri stöðvar. En þó að núverandi réttur á enska boltanum hafi verið seldur á metfé út um allan heim, er hækkunin á Íslandi í engum takti við þá í nágrannalönd- um okkar. Að Sýn 2 skuli bjóða upp á svo mikið betri þjónustu en SkjárSport er í hæsta máta umdeilanlegt. En stöldrum við þann pakka sem 365 er að bjóða bestu neyt- endum sínum. Þeir fá Stöð 2, Sýn, Sýn 2 og Fjölvarpið á 12.950 kr. á mánuði ef þeir binda sig allt árið. Þeir sem vilja þennan pakka þurfa svo að bæta við afnotagjaldi RÚV sem er 2.742 kr. á mánuði. Á hverju ári eru þessir neytendur að greiða 188.304 kr. á ári í sjónvarp. Þessi upphæð er fyrir utan aðra fjölmiðla eins og dagblöð eða afþreyingu á borð við kvikmyndahús. Nú vakna þrjár spurningar. Er sjónvarp munaðarvara á Íslandi, sem ekki allir geta leyft sér? Er yf- irbygging og rekstrarkostnaður þeirra fjölmiðla sem kalla sig frjálsa orðin úrelt nú á dögum Netsins og straumlínulagaðra miðla? Og getur ríkið virkilega réttlætt það að þrengja svona að hinum frjálsa fjöl- miðlamarkaði þannig að heildar- upphæðin verður að lokum hærri en venjulegt fólk ræður við? Varla má búast við svari frá stjórnmálamönnum sem halda þétt- ingsfast í RÚV. Á næsta ári borgar RÚV stórfé af skattpeningum fyrir EM í knattspyrnu. Búast má við flóknum útúrsnúningum frá stjórn- endum í fjölmiðlageiranum. Ef til vill finnst öllum þetta fullkomlega eðlilegt verð? Ég hef hins vegar hugsaði mig tvisvar um og komist að þeirri niðurstöðu að þó ég hafi efni á 188.304 kr. í sjónvarp á ári finnst mér það ekki vera þess virði. Er sjónvarp munaðarvara á Íslandi? Daði Rafnsson skrifar um verðlagningu á enska boltanum í sjónvarpi »Ég hef hugsað migtvisvar um og kom- ist að þeirri niðurstöðu að þó ég hafi efni á 188.304 kr. í sjónvarp á ári finnst mér það ekki vera þess virði. Daði Rafnsson Höfundur er markaðsfræðingur og skrifar á www.eoe.is/liverpool. S amfélagsleg fjölbreytni dregur úr samfélags- legri þátttöku, dregur úr trausti manna í millum, dregur úr kjörsókn og framlögum til líknarmála. Með öðr- um orðum, samfélagsleg fjölbreytni – hvort heldur af þjóðerni eða kyn- þáttum – veldur því að fólk dregur sig inn í skelina. Í stað þess að fara út meðal samborgara sinna situr það heima og horfir á sjónvarpið. Þetta eru helstu niðurstöður ít- arlegrar rannsóknar sem banda- ríski stjórnmálafræðingurinn Ro- bert Putnam hefur birt, og blaðið Boston Globe (boston.com) sagði frá fyrr í mánuðinum. Niðurstöður Putnams eru í samræmi við nið- urstöður sífellt fleiri rannsókna er benda til að eftir því sem fjölbreytni samfélagsins vex – eftir því sem íbúarnir koma úr fleiri áttum – því minni líkur séu á að fólk láti sig varða sameiginlega hagsmuni. Niðurstöður rannsóknar Put- nams, og væntanlega fleiri rann- sókna, stangast á við báðar kenn- ingarnar sem hingað til hafa verið helstar í þessum efnum. Annars vegar þá, að eftir því sem samskipti fólks af ólíkum þjóðernum og kyn- þáttum aukist, því meiri skilningur og samstaða ríki meðal þess; og hins vegar þá, að aukin samfélags- fjölbreytni leiði til spennu og átaka milli samfélagshópa. Þessar kenn- ingar hafa verið kallaðar „sam- bandskenningin“ og „átakakenn- ingin“. Haft er eftir Putnam í Boston Globe, að í samfélögum þar sem fjölbreytni íbúanna – af þjóðerni og kynþáttum – er mikil myndist hvorki náin tengsl milli ólíkra þjóð- ernis- og kynþáttahópa né skapist mikil átök milli þessara hópa. Fólk einfaldlega hafi tilhneigingu til að halda sig innan síns hóps, en jafnvel dragi úr trausti og samskiptum inn- an hvers hóps fyrir sig. Þannig að það dragi úr öllum samskiptum, og fólk dragi sig inn í sína eigin skel. „Fjölbreytni, að minnsta kosti til skemmri tíma litið,“ hefur blaðið eftir Putnam, „virðist höfða til skjaldbökunnar í okkur öllum.“ Hann segist hafa tekið tillit til allra hugsanlegra og óhugsanlegra óvissuþátta, og margoft farið yfir niðurstöðurnar áður en hann birti þær (í júníhefti tímaritsins Scand- inavian Political Studies), vegna þess að hann hafi gert sér grein fyr- ir því hversu eldfimar þær myndu verða. Putnam þessi er prófessor við ekki ómerkari stofnun en Harvard- háskóla, og mun ekki vera neinn íhaldsmaður í samfélagsmálum, heldur þvert á móti frjálslyndur og eindreginn talsmaður samfélags- legrar fjölbreytni. Hann segist hafa óttast að niðurstöðurnar yrðu túlk- aðar á þá lund að þær bendi til að kynþáttahyggja sé af hinu góða. Hann segir niðurstöður rann- sóknarinnar engu hafa breytt um sannfæringu sína í þeim efnum. Samfélagsleg fjölbreytni sé einfald- lega krefjandi verkefni sem takast verði á við. Einhverjir fræðingar munu hafa orðið til þess að gagn- rýna Putnam fyrir það að grein hans um niðurstöðurnar væri ekki óhlutdræg útlistun heldur tæki hann afstöðu í henni, og það eigi fræðimenn ekki að gera í fræða- skrifum. Í Boston Globe kemur enn frem- ur fram, að aðrar rannsóknir hafi sýnt að samfélagsleg fjölbreytni auki framleiðni og nýsköpun, eins og glöggt megi sjá í stórborgum á borð við London og New York, þar sem fjölbreytni samfélagsins er hvað mest, og nýsköpun í fram- leiðslu er einnig hvað mest – en um leið má kannski segja að í stór- borgum sé samkenndin meðal fólks hvað minnst. Blaðið hefur eftir Scott Page, stjórnmálafræðingi við University of Michigan, að á vinnustöðum þar sem mikillar sérþekkingar sé kraf- ist komi í ljós kostir þess að fólk af ólíkum toga hugsi hvert með sínum hætti. Það sé ögrandi og krefjandi að vinna með fólki sem hugsi öðru vísi en maður sjálfur, en einmitt þess vegna leiði fjölbreytnin til auk- innar framleiðslu og nýbreytni. Þegar ólík viðhorf blandist saman verði til ný. Eru niðurstöður þessara manna, Putnams og Page, og annarra sem rannsakað hafa samfélagsfjöl- breytni rök með eða á móti fjöl- menningarsamfélögum á borð við það sem er að verða til hér á Ís- landi? Um það verður ekkert full- yrt, að minnsta kosti ekki í ljósi einnar blaðafregnar af þeim. Ég verð að viðurkenna að ég hef alltaf verið eindreginn fylgismaður „sam- bandskenningarinnar“ um áhrif samfélagsfjölbreytni, þannig að mér þykja niðurstöður Putnams ekkert alltof uppörvandi. En það verður að slá að minnsta kosti einn, almennan varnagla í sambandi við þær, og hann er sá, að rannsóknina gerði hann í Banda- ríkjunum, og það er ekki víst að fjölmenningarsamfélagið þar sé sömu gerðar og önnur slík sam- félög. Þess vegna verður að hafa varann á þegar niðurstöður rann- sóknar Putnams eru heimfærðar upp á önnur lönd en Bandaríkin. Bandarísku samfélagi er stund- um líkt við deiglu, þar sem ólíkir samfélagshópar eiga að bræðast saman í einn. Ókostinn við þetta segja sumir vera þann, að fólki finn- ist það vanta samfélagslegar rætur sem eru nauðsynlegar fyrir sterka sjálfsímynd – og svar við grundvall- arspurningunni: Hver er ég? Norðan landamæranna, aftur á móti, í Kanada, er fjölmenning- arsamfélagið hugsað lítið eitt öðru- vísi og gjarnan líkt við mósaík, þar sem lögð er áhersla á að ólíkir sam- félagshópar fá að halda mörkum sínum og einkennum. Aftur á móti blandast hóparnir á almennum vettvangi, ekki síst í háskólum og í atvinnulífinu, einmitt þar sem rann- sóknirnar sýna að fjölbreytni er tví- mælalaus kostur. Það er ekkert sem bendir til ann- ars en að rannsóknir og niðurstöður Putnams séu áreiðanlegar og mark- tækar. Þess vegna verður ekki hjá því komist að horfast í augu við að niðurstöðurnar eru óþægilegar. Nema auðvitað ef manni er illa við fjölbreytni og fjölmenningu, þá get- ur maður fundið talsvert púður í þeim. Óþægilegar niðurstöður » Samfélagsleg fjölbreytni – hvort heldur af þjóðerni eða kynþáttum – veldur því að fólk dregur sig inn í skelina. Í stað þess að fara út meðal samborgara sinna situr það heima og horfir á sjónvarpið. BLOGG: kga.blog.is VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is ÞAÐ hefur eflaust ekki farið fram hjá mönnum að um síð- ustu helgi var hin svo- kallaða versl- unarmannahelgi. Þá hópast fólk saman og skemmtir sér, hvort sem er á skipulögðum skemmtunum víðs vegar um landið eða á afskekktum stað úti í sveit. Það virðist þó sem þessi helgi eigi sér leiðinda fylgifiska, svo sem fíkniefnamál, líkamsárásir og nauðganir. Sumir telja þessa fylgi- fiska eðlilega, því miður. En á verslunarmannahelgin að snúast um áfengi, ofbeldi og haga sér eins og fífl? Eða á þessi helgi að vera skemmtun fyrir alla fjölskyldu- meðlimi, þar sem bæði gamlir og ungir geta skemmt sér saman og notið þessarar löngu helgi? Þetta er einmitt það sem við þurfum að gera upp við okkur. Hvernig viljum við hafa hátíðina? Þegar við erum búin að ákveða hvernig hátíð við viljum hafa, verðum við að standa við þá ákvörðun, verja hana og fyrst og fremst vera með samrýmd- ar ákvarðanir. Þannig geta flestir verið ánægðir. Vel heppnuð hátíð á Akureyri Starfshópur á vegum bæj- arstjórnar lagði til að ekki yrði haft sér unglingatjaldsvæði. Bæjarráð og síðan bæjarstjórn ákvað að fara eftir þeim ráðleggingum, ákváðu að einstaklingar á aldrinum 18-23 ára ættu að eiga það á hættu að vera rekin út af eða meinaður aðgangur að tjaldsvæðum. Fjölskyldufólk átti að eiga forgang. Margir hlupu á sig, hrópuðu, kölluðu og höfðu hátt og töldu þetta vera brot á jafnræð- isreglunni. Meira að segja töldu sumir að það væri verið að banna 18-23 ára hjónum með börn aðgang að tjaldsvæði. En það er aðeins byggt á misskilningi. Einnig hljóta þeir rekstraraðilar að fá að ráða hvaða fólk það tekur við. Ekki satt? Þessi ákvörðun var erfið en ef til vill nauðsynleg. Hátíðin í ár gekk vel, engin stór fíkniefnamál komu upp, engar meiriháttar líkams- árásir hafa verið kærðar, jafnframt því að enginn nauðgun hefur verið kærð – enn sem komið er. Það hlýt- ur að hafa verið markmiðið með þeim reglum sem bærinn setti og þeim öllum hefur verið náð. Samt sem áður getum við Akureyringar gert enn þá betur. Þó svo að bær- inn hafi einnig náð þessum mik- ilvægu markmiðum, eru margir ósáttir við ákvörðun bæjarins. En þó aðeins vegna einkahagsmuna. Einnig opnaði þessi ákvörðun Ak- ureyrarbæjar fyrir þarfa umræðu um verslunarmannahelgina og skipulagðar skemmtanir. Hvert er markmið þeirra og hver er mark- hópurinn? Samræmi verður að vera Ákvörðun bæjarins var erfið. Það er erfitt að banna fullorðnum ein- staklingum að tjalda á tjaldsvæðum en þessi ákvörðun gerði það að verkum að ofantalin markmið náð- ust. Þrátt fyrir það teljum við að bærinn hafi mátt ganga enn lengra. Vinir Akureyrar ætluðu sér greini- lega að ná í unglinga og buðu dag- skrá samkvæmt því. Því teljum við að Akureyrarbær hefði mátt sýna enn meira samræmi og banna ung- lingadansleiki og eyrnamerkja þannig enn meira fé til Vina Ak- ureyrar til fjölskylduskemmtunar. Þá hefði eflaust hátíðin fengið enn meiri fjölskyldubrag á sig. Ímynd bæjarins gegn einkahagsmunum Eru Vinir Akureyrar sannir vin- ir? Eða eru þeir einungis Vinir Ak- ureyrar til að geta grætt á íbúum og því fólki er þangað kemur? Það er ekki skrítið að það eru nær ein- göngu kaupmenn sem eru félagar í Vinum Akureyrar og það eru þeir einmitt sem græða mest á ungling- um. Því er það í sjálfu sér ekki skrítið að þeir hafi verið á móti ákvörðun bæjarins. En núna, eftir hátíðina hóta þeir að engin hátíð verði að ári breyti bærinn ekki fyrri ákvörðun sinni. En við spyrj- um þá, er það vinum líkt að hóta hvor öðrum? Akureyrarbær vill halda sinni ímynd, ekki bara sem skólabær eða ferðabær heldur sem fjölskyldubær fyrst og fremst. Við viljum allt gera fyrir fjölskyldufólk. Ef Vinir Ak- ureyrar eru sannir vinir, þá munu þeir hjálpa bænum að gera Eina með öllu að alvörufjölskylduhátíð. Semja dagskrá sem dregur fjöl- skyldur að og í staðinn fyrir ung- lingadansleik að halda fjölskyldu- dansleik fyrir alla. Gæti Akureyrarbær ekki verið leiðandi í dagskrárhaldi sem sameinar alla fjölskylduna, jafnt unga sem aldna. Verið með dagskrá svo allir aldurs- hópar fáið notið sín og sýnt það í verki að Akureyrarbær er umfram allt fjölskyldubær. Við viljum því hvetja Vini Ak- ureyrar að hjálpa bænum að bæta ímynd sína enn frekar. Og ef menn eru vinir þá hugsa menn ekki fyrst og fremst um einkahagsmuni held- ur hagsmuni heildarinnar. Ekki viljum við vera þekkt hjá túristum fyrir unglingadrykkju og líkamlegt ofbeldi? Hvernig ímynd vilja Vinir Akureyrar að bærinn hafi. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu Dagný Rut Haralds- dóttir og Sölmund- ur Karl Pálsson skrifa um unga fólk- ið og verslunar- mannahelgina » Þessi ákvörðun Ak-ureyrarbæjar opn- aði fyrir þarfa umræðu um verslunarmanna- helgina og skipulagðar skemmtanir. Sölmundur Karl Pálssonm Dagný er mastersnemi í lögfræði við Háskólann á Akureyri og Sölmundur er nemi í Samfélags- og hagþróunar- fræði við Háskólann á Akureyri. Dagný Rut Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.