Morgunblaðið - 15.08.2007, Page 37

Morgunblaðið - 15.08.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2007 37 MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600 JONATHAN Lethem hefur gaman af að bregða á leik, skemmta sér við furðulegheit og sérkennileg stílbrögð. Þessi stutta bók hans er dæmi um það, snúin og skondin saga sem lesa má á ýmsa vegu - sem dæmisögu, æv- intýri, ádeilu, skemmtun og harmleik. Hún segir frá Henry Farbur, sem alla jafna er kallaður Hr. F eða kapteinninn, sem er í miðri grillveislu í forminu (grillað prótínstykki) þegar Balkan kunningi hans birtist og fer að tala um að hann hafi séð augað, þ.e. þriðja augað. Þegar við bætist að þar rakst hann á Dennis, son Hr. F, sem strauk að heiman löngu áður, verður úr rifrildi milli Hr. F og konu hans, sem lyktar með því að þeir Balkan leggja af stað í leiðangur í forminu sem hefur afrifaríkan endi. Lesandinn veit aldrei almennilega hvert formið er en því er lýst eins og verið sé að lýsa líkama (það er dómkirkja í öðru lung- anu og barir í bringunni (og almennt her- útboð líka)), en það hefur einnig ýmsa eig- inleika sem líkami hefur ekki. Ekki er bara að lesendur eigi erfitt með að átta sig á hvert formið er (er það líkami með útlimi og innyfli eða einskonar Tróju- hestur, kannski Trójuhestur í Disneylandi?, Guffi eða Tróju-Guffi?) heldur deila íbúar þess um það líka - sumir telja að það sé loft- varnabyrgi, aðrir telja það geimskip. Fljótlega verður ljóst að Hr. F er ætlað stórt hlutverk og eins að hann er ekki allur þar sem hann er séður; hann drekkur til að gleyma (og drekkur reyndar býsna mikið, en það er önnur saga). Einnig kemur Mið- stjórnin líka við sögu og rauðir símar henn- ar (kynlífsþjónusta?) og ekki má gleyma páfagaukunum. Mjög skemmtileg undirfurðuleg saga og dæmigerð fyrir Lethem um leið og hún er einstök. Þess má geta að bókin er prentuð í Odda og til vitnis um umtalsverða fag- mennsku þar á bæ. Er Trójuhest- urinn hundur? This Shape We’re In eftir Jonathan Lethem. McSweeney’s gefur út. 55 síður innb. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini. 2. The Quickie - James Patterson & Michael Ledwidge 3. The Secret Servant - D. Silva 4. High Noon - Nora Roberts 5. The Tin Roof Blowdown - James Lee Burke 6. Beyond Reach - K. Slaughter 7. Lean Mean Thirteen - Janet Evanovich 8. The First Commandment - Brad Thor 9. The Bourne Betrayal - Eric Van Lustbader 10. Justice Denied - J. A. Jance New York Times 1. The House at Riverton - Kate Morton 2. Relentless - Simon Kernick 3. A Spot of Bother - Mark Haddon 4. The Memory Keeper’s Daughter - Kim Edwards 5. One Good Turn - Kate Atkinson 6. Getting Rid of Matthew - Jane Fallon 7. Salmon Fishing in the Yemen - Paul Torday 8. The Kite Runner - Khaled Hosseini 9. Blind Willow, Sleeping Woman - Haruki Murakami 10. Half of a Yellow Sun - Chimamanda Ngozi Adichie Waterstone’s 1. Harry Potter & the Deathly Hallows - J.K. Rowling 2. The Secret - Rhonda Byrne 3. The Water’s Lovely - Ruth Rendell 4. A Place Called Here - Cecelia Ahern 5. Last Testament - Sam Bourne 6. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini 7. The Bourne Ultimatum - Robert Ludlum 8. Hide - Gardner, Lisa 9. Blind Willow, Sleeping Woman - Haruki Murakami 10. Liseýs Story - Stephen King Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is HARRY Stephen Keeler er frægur fyrir að hafa verið versti rithöfundur sögunnar og þó það sé kannski ofmælt er ljóst að hann er arfaslæmur, svo slæmur reynd- ar að því verður varla trúað. Keeler byrjaði að skrifa sextán ára gamall og var fljótur að finna útgefanda, eða réttara sagt útgef- endur því hann seldi framhalds- og smásögur í óteljandi tímarit og smásagnasöfn. Hann lærði raf- magnsverkfræði en er hann var tvítugur lét móðir hans leggja hann inn á geðsjúkrahús fyrir ein- hverjar sakir. Hann losnaði þaðan og fékk vinnu sem rafvirki, en skrifaði á kvöldin og fram á nótt. Minnkandi jarðsamband Fyrsta skáldsaga hans kom út 1924 og þó hann hafi ekki notið vinsælda framan af fór honum að ganga betur þegar tvær hryllings- myndir voru gerðar upp úr einni bóka hans. Vinsældirnar urðu þó ekki til að auka jarðsamband hans og bækur hans urðu æ ein- kennilegri, söguþráðurinn ótrú- legri og persónurnar óvenjulegri og hann tók að flétta smásögum eftir konu sína inn í bækurnar; söguhetjan kemur inn í bókasafn, eða tekur upp blað og rekst á sögu sem síðan er birt í heild sinni, áð- ur en þráðurinn er tekinn upp að nýju. Níutíu útgefnar skáldsögur Keeler lést 1967 og lét eftir sig níutíu útgefnar skáldsögur og óteljandi smásögur, aukinheldur sem fjöldi bóka eftir hann kom aldrei út, sérstaklega það sem hann skrifaði síðustu æviárin en hann var sískrifandi. Lítið sagði af Keeler eftir frá- fall hans, en það orð fór snemma af honum að þar væri kominn jafnversti rithöfundur banda- rískrar bókmenntasögu og að mati áhugamanna um slíkt var hann svo slæmur að hann var býsna góður. Fléttan er röð tilviljana Þar kom og að bók eftir hann var gefin út að nýju eftir hálfrar aldar útgáfuhlé, því The Riddle of the Traveling Skull kom út hjá The Collins Library, undirmerki McSweeney’s, 2005. Fléttan í bókinni er röð tilvilj- ana sem hefst með því að tösku- skipti verða í sporvagni og sögu- hetja okkar uppgötvar að hún hefur fengi í misgripum tösku með höfuðkúpu með silfurplötu greypta í kollinn og byssukúlu og kuðlað ljóð inni í. Síðan hefst svo flókin atburðarás að lesandinn veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið - að lesa þessa bók er eins og að sitja í háværu samkvæmi og heyra margar sögur samtímis, eða réttara sagt óteljandi sögubrot - í gegnum glasaglaum og skvaldur - sem passa saman - en þó ekki. Forvitnilegar bækur: Í samkvæmi með Harry S. Keeler Versti rithöfundur sögunnar Fjölbreytt Bókarkápur Harry Stephen Keeler er margar stórskemmti- legar og færa lesandanum nokkurn forsmekk af því sem koma skal. BLÁSIÐ var til útgáfuteitis í tilefni nýrrar plötu Valgeirs Sigurðs- sonar, Ekvílibríum, í gær með pomp og prakt. Fór gleðin fram í fataversluninni Liborius, en þar var einnig frumsýnt myndband, Evolu- tion of Waters, eftir Unu Lorenzen, samið við eitt laga Valgeirs. Er myndbandið sýnt í sýningarsal verslunarinnar, Flösubóli. Líkt og myndirnar bera með sér fór vel á með listamönnunum og gestum þeirra. Morgunblaðið/Eggert Í Flösubóli Listakonan Una Lorenzen og Oddný Eir Ævarsdóttir. Flasa í jafnvægiPrakkaralegir Jóhann Meunier, Valgeir Sigurðsson, höfundur plötunnarEkvílibríum, og Gabríel Dagur Valgeirsson, sonur Valgeirs. Vinaleg Söngkonan Kira Kira, réttu nafni Kristín Björk Kristjánsdóttir, ogFinninn Samuli Kosminen, sem spilar með Kiru Kiru á slagverk. „Sís“! Jón Páll, Karítas Árný Sturludóttir og Linda Björk Eiríksdóttir Fjálg Hörður Torfason og Vilborg Valgarðsdóttir, móðir Valgeirs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.