Morgunblaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 27
sér að ég hefði þurft að skipta út
öllum húsgögnum og ég er bara
nokkuð sátt við þá hluti sem ég á
og því hefði verið sorglegt að láta
þá fara bara fyrir einhverjar tísku-
sveiflur. Þess vegna ákvað ég líka
að fara dökku leiðina og hún er líka
bara meira ég.“
Athygli vekur að sami viður og
er í parketinu gengur upp einn
vegg eyjunnar í eldhúsinu og er
sömuleiðis notaður á milli efri og
neðri skápa í innréttingunni og
skapar þannig skemmtilega teng-
ingu við stofuna. „Þessi hugmynd
er komin frá honum Ragga smið,“
segir Elín Guðrún.
„Við vorum búin að velta eyjunni
heilmikið fyrir okkur. Svo hringdi
Raggi í mig einn daginn og sagði:
„Ég er búinn að fá hugmynd. Það
er svo mikið af afgöngum af park-
etinu eigum við ekki að bara að
líma það á eyjuna og eins á milli
skápanna?“ Þannig að við límdum
parketið á. Hann ítrekaði að það
væri jú alltaf hægt að taka það af,
en ég hugsa að það eigi eftir að
verða varanlegt.“
Elín Guðrún gerði fjárhags-
áætlun áður en hún hófst handa við
framkvæmdirnar og hefur náð að
halda sig innan ramma hennar.
„Ég á reyndar eftir að tyrfa lóð-
ina á bak við hús en jú, fjárhags-
áætlunin hefur staðist,“ segir hún
og bætir við að hún hafi vissulega
haft svolítið fyrir því láta hana
standast. Áður en hún hófst handa
var hún hins vegar búin að skrifa
niður hvað hlutirnir kostuðu, kanna
verð og fá tilboð.
„Ég get ekki sagt annað en að ég
hafi farið vel út úr þessu fjárhags-
lega. En það hafa náttúrlega ekki
allir jafn góðan aðgang að laghent-
um iðnaðarmanni. Við innréttingu
íbúðarinnar hef ég þó líka víða leit-
ast við að finna ódýrar lausnir þar
sem þess er kostur,“ segir Elín
Guðrún og bætir við að hún sé bara
nokkuð sátt við árangurinn.
annaei@mbl.is
Flísarnar Elín Guðrún var ákveðin í að setja dökkan náttúrustein á gólfið,
enda hafði hana lengi langað í slíkar flísar.
Svefnherbergið Dökkur viðurinn gefur því hlýlegt yfirbragð.
Baðherbergið Baðkarið er frístandandi og rauðir fæturnir gefa því
skemmtilegt og sérstætt yfirbragð. Það hvarf heldur ekki úr huga Elínar
Guðrúnar eftir að hún hafði komið auga á það.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 27
Fréttir á SMS
SÖLUSÝNING – VESTURGATA 54 REYKJAVÍK
Rúmgóð og björt um það bil 125
fm, þriggja til fjögra herbergja, efri hæð, í þessu trausta steinhúsi í vesturbænum. Húsið stendur á
eignalóð. Tvennar svalir. Bílastæði fylgir. Miklir möguleikar. Gengið er inn bakdyramegin.
V. 37,4 millj. Sigurður tekur á móti gestum á milli kl. 14:00-15:00.
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is