Morgunblaðið - 29.09.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSA KALLAR FRAM
KARLMANNINN Í MÉR
EKKI HLÆJA AF MÉR NEMA
ÞAÐ SÉ AUGLITI TIL AUGLITIS!
EN ÞAÐ VÆRI
DÓNASKAPUR
ÉG HEF
ÁHYGGJUR
AF ÞÉR
KALLI
MINN!
JÁ, ÉG
TRÚI ÞVÍ
NEI, Í
ALVÖR-
UNNI
ÉG HELD AÐ ÞÚ SÉRT
AÐ FITNA Á ENNINU
HEFUR ÞÚ FARIÐ
TIL LÆKNIS NÝLEGA?
*ROP*
MÉR
ER
ÓGLATT
HÆTTU ÞESSU
VÆLI! ÞETTA ER
BARA ÖNNUR
SKÁLIN ÞÍN!
ÞETTA
ER
HREINN
SYKUR
JÁ, EN ÞAÐ
ER BÚIÐ AÐ
BÆTA ÚT Í ÞAÐ
MIKIÐ AF
VÍTAMÍNUM,
TIL AÐ GERA
ÞAÐ HOLLT!
ÞETTA
ER SAMT
BARA EINS
OG AÐ
BORÐA
FULLA SKÁL
AF NAMMI
ÞAÐ STEN-
DUR Á
KASSANUM
AÐ ÞETTA
SÉ HLUTI AF
HOLLUM OG
GÓÐUM
MORGUN-
VERÐI
ÞAÐ ER
MYND AF
MANNI AÐ
BORÐA
ÁVEXTI OG
HRÖKK-
BRAUÐ
ÉG HELD AÐ
ÞÚ HRISTIST
VEGNA ÞESS
AÐ ÞÚ
ERT MEÐ
VÍTAMÍNSKORT
ÉG VAR AÐ
KAUPA SÉRSTAKA
ANDAFLAUTU!
HVAÐ ER
SVONA
SÉRSTAKT
VIÐ HANA?
SÖLUMAÐURINN
SAGÐI AÐ HÚN VÆRI
FYRIR HEYRNASKERTAR
ENDUR
ÞAÐ SEM
GERIST ÞEGAR
STARFSMENN Á
KASSA BÚA VIÐ HLIÐ
HVORS ANNARS
HVERNIG
HEFUR
KALLI ÞAÐ?
HANN FÓR Í
FÝLU ÞEGAR VIÐ
TAKMÖRKUÐUM ÞANN
TÍMA SEM HANN MÁ
VERA Í TÖLVUNNI...
EN ÉG HELD AÐ ÞAÐ HAFI
VERIÐ GOTT FYRIR FÉLAGS-
LÍFIÐ HJÁ HONUM. HANN ER
BÚINN AÐ VERA HEIMA HJÁ
VINI SÍNUM Í ALLAN DAG
VILJIÐ ÞIÐ EITTHVAÐ
AÐ DREKKA STRÁKAR?
MM
HVAÐ
ERT
ÞÚ AÐ
GERA
HÉR?
BARA AÐ
HANGA
ERTU AÐ
LEITA UPPI
ILLMENNI?
ÉG ÞARF EKKI AÐ
LEITA AÐ ÞEIM,
ILLMENNNIN LEYNAST
ALLS STAÐAR
ERTU TIL Í AÐ GERA EITTHVAÐ
SÉRSTAKT FYRIR MYNDAVÉLINA
SÉRSTAKT? HVAÐ
HELDUR ÞÚ AÐ ÞETTA SÉ?
dagbók|velvakandi
Íslandspóstur
ÞAÐ er ekki lengur hægt að fá gulu
miðana hjá Íslandspósti, sem voru
þó nokkur vörn gegn ómerktum
pósti og auglýsingabæklingum sem
fylla pósthólfin svo fólk hefur ekki
undan að bera þetta dót í ruslaföt-
una.
Íslandspóstur er nú farinn að taka
þátt í „græðgisvæðingunni“ og eyk-
ur nú tekjur sínar með því að láta
bréfberana dreifa auglýsingablöðum
eins og t.d. TV-guide og Fræi, en
uppistaðan í báðum þessum auglýs-
ingapésum er dagskrá fjölmiðlanna.
Vinkona mín fór á heilsuhælið í
Hveragerði og var þar í fjórar vikur.
Hún býr í stóru fjölbýlishúsi þar
sem póstkassarnir eru mjög litlir.
Hún þurfti að fara heim þrisvar í
viku til að tæma póstkassann sinn.
Ég heyrði talað um það að ungir
sjálfstæðismenn hefðu verið að
gagnrýna Íslandspóst.
Ég hef ekki fram að þessu kosið
Sjálfstæðisflokkinn en mundi gera
breytingu þar á ef þeir gætu komið
því til leiðar að almenningur gæti
fengið að nota póstkassana sína eins
og til var ætlast, þ.e. eingöngu fyrir
merktan póst.
Guðný Jóhannsdóttir.
Grandi – vagga
íslenskrar menningar
ÞEGAR ég heyrði af tilkomu nýrrar
Krónuverslunar úti á Granda stóðst
ég ekki mátið og hélt af stað í leið-
angur til þess að líta gripinn augum.
Sem meðvitaður neytandi legg ég í
vana minn að skoða úrval, gæði og
verð í nýjum verslunum.
Í stuttu máli sagt stóðst þessi nýja
Krónuverslun fullkomlega kröfur
mínar. Til þess að sýna og sanna
hversu miklar mætur ég hef á versl-
un þessari má geta þess að ég kaupi
aðeins fáar vörur í einu til þess að
fjölga ferðum mínum þangað. Í síð-
ustu ferð minni keypti ég aðeins
ferskan aspas en hann er afar fágæt-
ur. Í þessari ferð uppgötvaði ég ým-
islegt fleira merkilegt í nágrenninu,
þar fremst í flokki var Europris að
ógleymdri versluninni Ellingsen. Í
Europris er hægt að finna eitthvað
við allra hæfi, allt frá ullarsokkum til
blautbúninga, og það á mjög hag-
stæðu verði. Í Ellingsen birgðum við
fjölskyldan okkur upp af gúmmí-
skóm.
Því hvet ég landann eindregið til
þess að fara og líta þetta svæði eigin
augum!
Böðvar.
Aðstoð við unga menn
MAN nokkur lesandi eftir sam-
tökum, sem kynntu sig í fjölmiðlum
fyrr á árinu, og hafa það markmið að
aðstoða unga menn, sem áhuga hafa
á að vinna fyrir sér þótt í smáum stíl
sé í byrjun?
Sérstaklega var minnst á aðstoð
við verkhagan dreng sem með smá-
framlögum gat stofnað sitt eigið litla
hjólhestaviðgerðarverkstæði.
Þeir sem kynnu að hafa upplýs-
ingar um þetta eru vinsamlegast
beðnir að hringja í Árna í síma
551 3019.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Að geta leikið sér eins og barn er eiginleiki sem margir þeir sem eldri eru
vildu gjarna getað tileinkað sér. Þessir kátu krakkar nýttu hádegishléið
sitt vel í rólunum á Landakotstúni.
Morgunblaðið/Golli
Hve glöð er vor æska
FRÉTTIR
STOFNUN stjórnsýslufræða og Fé-
lag forstöðumanna ríkisstofnana
standa sameiginlega að morgunverð-
armálþingi miðvikudaginn 3. októ-
ber nk. í Víkingasal Hótel Loftleiða.
Ný ríkisstjórn – ný tækifæri? – 15
ráð til ráðherra og stjórnenda hins
opinbera til að bæta opinberan
rekstur, er yfirskrift málþingsins.
Framsögumenn verða einstak-
lingar sem öll hafa umtalsverða
reynslu og þekkingu á opinberum
rekstri. Þau munu á málþinginu gefa
ráðherrum og stjórnendum hins op-
inbera ráð sem stuðlað geta að þeim
umbótum, sem ríkisstjórnarsáttmál-
inn gefur fyrirheit um, og benda á
mikilvæg verkefni í því sambandi,
segir í fréttatilkynningu.
Að loknum framsögum munu tveir
ráðuneytisstjórar, einn núverandi og
annar fyrrverandi bregðast við hug-
myndum fyrirlesara. Fundinum
stýrir Haukur Ingibergsson, for-
maður Félags forstöðumanna ríkis-
stofnana og forstjóri Fasteignamats
ríkisins.
Fyrirlesarar verða: Ómar H.
Kristmundsson dr. í stjórnsýslu-
fræðum, dósent við HÍ og fv. skrif-
stofustjóri Barnaverndarstofu; Sig-
urbjörg Sigurgeirsdóttir dr. í
stjórnsýslufræðum og ráðgjafi, fv.
yfirmaður öldrunarþjónustu
Reykjavíkurborgar; Sigurður
Helgason stjórnsýsluráðgjafi og fv.
sérfræðingur hjá fjármálaráðuneyt-
inu og OECD og aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í Kaupmannahöfn;
Margrét S. Björnsdóttir forstöðu-
maður Stofnunar stjórnsýslufræða
og stundakennari í MPA-námi í op-
inberri stjórnsýslu og Þorkell Helga-
son dr. í stærðfræði, orkumálastjóri
og fv. ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneyti. Viðbrögð við
hugmyndum fyrirlesara munu gefa
þau: Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu
og Vilhjálmur Egilsson frkvstjóri
Samtaka atvinnulífsins, fv. alþingis-
maður og fv. ráðuneytisstjóri í sjáv-
arútvegsráðuneytinu
Þátttökugjald er kr. 4.300, morg-
unverður innifalinn. Nauðsynlegt er
að skrá þátttöku með tölvupósti á
msb@hi.is eða á heimasvæðinu:
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/
page/ny-rikisstjorn-ny-taekifaeri.
Málþing um um-
bætur í ríkisrekstri