Morgunblaðið - 29.09.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 39
KIRKJUSTARF
vogur | Guðsþjónusta kl. 10.30. Rósa
Kristjánsdóttir djákni, organisti Ingunn
Hildur Hauksdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur sr. Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir. Organisti Bjarni Þ. Jónatansson,
kvartett úr kammerkór Langholtskirkju
syngur. Barnastarfið hefst í kirkjunni en
síðan fara börnin í safnaðarheimilið með
Rut og Steinunni. Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 11 guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli. sr. Bjarni Karls-
son predikar og hópur fólks þjónar í helgi-
haldinu. Messukaffi. Kl. 13 guðsþjónusta
í sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Guðrún K. Þórsdóttir annast þjónustuna
ásamt sóknarpresti og organista og sjálf-
boðaliðum.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Lindakirkju leiða safn-
aðarsönginn undir stjórn Keith Reed.
Prestur: Guðmundur Karl Brynjarsson.
MOSFELLSKIRKJA: | Lágafellssókn.
Messa í Mosfellskirkju sunnudaginn 30.
september kl. 11. Prestur Ragnheiður
Jónsdóttir, organisti Jónas Þórir. Kór Lága-
fellskirkju leiðir söng. Sunnudagaskólinn í
Lágafellskirkju kl. 13 í umsjá Hreiðars
Arnar og Jónasar Þóris. Velkomin. Prest-
arnir.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal: |
Messa kl. 14. Sr. Rúnar Þór Egilsson.
MOSFELLSKIRKJA í Grímsnesi: | Messa
kl. 11. Sr. Rúnar Þór Egilsson.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl.
11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Jón Bjarnason. Sr.
Sigurður Árni Þórðarson predikar og þjón-
ar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni en
fara síðan í safnaðarheimilið. Brúður,
söngur, sögur. Kaffi, djús og spjall á Torg-
inu eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): |
Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja
Vigdís Þorsteinsdóttir, Dagmar Kunákova
og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir. Guðs-
þjónusta kl. 20. Prestur er sr. Kjartan
Jónsson héraðsprestur. Organisti er Dag-
mar Kunákova og meðhjálpari Kristjana
Gísladóttir.
SALT kristið samfélag | Salt kristið sam-
félag, Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Salt-
aðar samkomur kl. 17. Ræðumaður Har-
aldur Jóhannsson. Yfirskrift
„Hvíldardagurinn“. Mikil lofgjörð og fyr-
irbæn. Velkomin.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11, 17. sd.
e. trin. Barnasamkoma kl. 11.15. Léttur
hádegisverður að lokinni athöfninni.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Kirkjukór Selfoss undir stjórn
Jörgs E. Sondermanns. Sóknarprestur
predikar og þjónar fyrir altari. Sr. Gunnar
Björnsson.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, saga, ný mynd í möppu. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur
Bollason predikar. Kirkjukórinn leiðir
sönginn. Organisti Jón Bjarnason. Alt-
arisganga. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl.
16. Sr. Bolli Pétur Bollason predikar. Org-
anisti Jón Bjarnason.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl. 11.
Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlistarflutn-
ing undir stjórn Friðriks Vignis organista.
Fermingarbörn lesa ritningartexta og að-
stoða við undirbúning stundarinnar.
Sunnudagaskólinn á sama tíma, minnum
á æskulýðsfélagið kl. 20. Prestur er Sig-
urður Grétar Helgason. Verið velkomin.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa kl. 11.
Félagar úr Skálholtskórnum syngja. Sókn-
arprestur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og
predikar. Organisti er Ester Ólafsdóttir.
Meðhjálparar eru Erla Thomsen og Eyþór
Jóhannsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta
verður í Stokkseyrarkirkju 30.9. kl. 11.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl 11. Sr Frið-
rik J. Hjartar þjónar. Sunnudagaskólinn á
sama tíma. Félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða sönginn. Organisti Jóhann Baldvins-
son. Molasopi í safnaðarheimilinu að lok-
inni messu. Allir velkomnir! Kvöldmessa
með léttri sveiflu í kirkjunni kl. 20. Gosp-
elkór Jóns Vídalíns, kirkjukór o.fl.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyr-
ir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13.
Prestur: Sr. Kjartan Jónsson, héraðs-
prestur. Kór Víðistaðasóknar syngur létta
söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar. Verið
velkomin!
VÍFILSSTAÐIR | Guðsþjónusta klukkan 14
í samkomusalnum á Vífilsstöðum. Org-
anisti Jóhann Baldvinsson og félagar úr
Vídalínskirkjukórnum syngja. Prestur sr.
Svanhildur Blöndal. Heimilisfólk, aðstand-
endur og starfsfólk, verið öll hjartanlega
velkomin.
VÍKURKIRKJA Í Mýrdal: | Guðsþjónusta
verður í Víkurkirkju í Mýrdal sunnudaginn
30. sept. nk. kl. 14. Kór Víkurkirkju syng-
ur. Organisti er Kitti Kóvács. Eftir predikun
leika saman á fiðlu og orgel þau Balázs
Stankowsky og Kitti Kovács frá Ungverja-
landi. Væntanleg fermingarbörn næsta
vors hvött til að mæta með foreldrum sín-
um. Sóknarprestur
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Sunnudags-
kóli kl. 11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálms-
dóttir og Ástríður Helga Sigurðardóttir.
Sóknarprestur.
Leikið á Stradivarius-
fiðlu í messu
í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju
Helgihald á vegum Hafnarfjarð-
arkirkju fer nú fram í Hásölum
Strandbergs vegna viðgerða á kirkj-
unni. Við messu í
Hásölum á sunnudaginn kemur,
30. september kl. 11, mun fiðlusnill-
ingurinn Hjörleifur Valsson leika
fjölbreytt og skemmtileg verk á for-
láta Stradivarius-fiðlu við undirleik
Guðmundar Sigurðssonar kantors.
Þóra Björnsdóttir syngur forsöng.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason messar.
Hjörleifur mun jafnframt kynna sér-
stöðu og eigindir Stradívarus-
fiðlunnar. Allir eru hjartanlega vel-
komnir
Kvöldvökur
í Vídalínskirkju
Í vetur verða kvöldguðsþjónustur
eða kvöldvökur síðasta sunnudag í
hverjum mánuði í Vídalínskirkju kl.
20.00. Tilgangurinn með þessu nýja
helgihaldi er að lækka þröskuldinn
að kirkjunni og víkka dyrnar, svo að
fleiri finni sig í guðsþjónustu safn-
aðarins. Einnig er tilgangurinn að
brúa kynslóðabilið og efla félagsauð
í bæjarfélaginu. Samverustundirnar
munu einkennast af léttri sveiflu í
helgri alvöru. Tónlistin mun skipa
mjög háan sess og gospelkór Jóns
Vídalíns og kórfélagar í kór Vídal-
ínskirkju munu leiða lofgjörðina á
kvöldvökunum ásamt unglinga-
hljómsveitum Vídalínskirkju. Tón-
listarstjórar eru Þóra Gísladóttir
kórstjóri, Jóhann Baldvinsson org-
anisti og æskulýðsleiðtogarnir Ár-
mann H. Gunnarsson og Andri
Bjarnason. Jafnframt verða bæj-
arbúar fengnir til að svara spurn-
ingunni „Hvað geri ég til að halda
fjölskyldunni saman á 21. öld?“ Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir kvöld-
vökurnar og flytur hugleiðingu.
Hressing í safnaðarheimilinu að
stund lokinni. Allir velkomnir.
Þrjár kvöldvökur verða fyrir jól:
30. september kl. 20 í Vídalínskirkju.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, eig-
inkona, móðir og forstöðumaður
stúdentaþjónustu Háskólans í
Reykjavík, hugleiðir spurningu
kvöldsins. 28. október kl. 20 í Vídal-
ínskirkju. Halldóra Matthíasdóttir,
eiginkona, móðir og framkvæmdar-
stjóri Sölusviðs, hugleiðir spurningu
kvöldsins. 25. nóvember kl. 20 í Ví-
dalínskirkju. Sturla Þorsteinsson,
eiginmaður, faðir og kennari í
Garðaskóla, hugleiðir spurningu
kvöldsins.
Gleym mér ei
í Vídalínskirkju
Gleym mér ei er vinahópur fyrir
ungt fólk á aldrinum 14-20 ára. Fátt
er eins mikilvægt á unglingsárunum
og að eiga góða vini. Ýmsar að-
stæður geta valdið því að ungt fólk
einangrast, t.d. einelti. Hópurinn
Gleym mér ei hefur verið starf-
ræktur í átta ár og margt ungt fólk
hefur notið samfélagsins þar. Sam-
verustundir hópsins eru í safn-
aðarheimili Vídalínskirkju í Garða-
bæ kl. 16.30 á föstudögum. Hægt er
að senda póst á netfangið jona-
hronn@gardasokn.is til að fá frek-
ari upplýsingar. Einnig hafa ung-
lingarnir sett upp bloggsíðu. Slóðin
er blogg.central.is/gleym-mer-ei.
Vetrastarf í
Lágafellssókn hafið
Lágafellssókn hefur hafið vetr-
arstarf sitt og hvetjum við þau börn
sem fermast vorið 2008 og foreldra
þeirra til að fjölmenna í guðsþjón-
usturnar í vetur. Bókin „Kirkjulyk-
ilinn“ verður afhent hverju barni
þegar það mætir í fyrstu guðþjón-
ustuna. Sunnudagaskólinn er í
Lágafellskirkju hvern sunnudag kl.
13 og er í umsjá Hreiðars Arnar og
Jónasar Þóris. Annað barna- og
æskulýðsstarf sóknarinnar er af fjöl-
breyttum toga og vísum við til nán-
ari upplýsinga um það og annað efni
á heimasíðu sóknarinnar,
www.lagafellskirkja.is.
Foreldramorgnar eru í safn-
aðarheimili Lágafellssóknar í Þver-
holti 3, 3. hæð. Bænahópurinn er
með bænastundir í Lágafellskirkju á
mánudögum kl. 19.30. Verið vel-
komin. Prestar og sóknarnefnd
Lágafellssóknar.
Kirkjuskólinn
í Mýrdal
Kirkjuskólinn í Mýrdal byrjar vetr-
arstarfið laugardaginn 29. sept.
2007 kl. 11.15 í Víkurskóla. Söngur,
sögur, brúðuleikhús og litastund.
Nýjar bækur og límmiðar. Verið nú
dugleg að mæta krakkar og bjóðið
fullorðna fólkinu með í kirkjuskól-
ann. Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarprestur.
Kirkjuskóli
á Sólheimum
Kirkjuskólinn á Sólheimum hefst
laugardaginn 29. september kl. 11 í
Sólheimakirkju með samstarfi Mos-
fellsprestakalls og Sólheima, þar
sem efni sunnudagaskólans verður
kynnt fyrir börnunum. Kirkjuskól-
inn á Sólheimum verður síðan annan
hvern laugardag.
Kvöldvökur
Bessastaðasóknar
Næstkomandi sunnudag kl. 20 verð-
ur fyrsta samverustundin af hinum
nýstárlegu mánaðarlegu sam-
verustundum sem Bessastaðasókn
stendur fyrir í hátíðarsal íþrótta-
hússins. Samverustundunum er ætl-
að að sameina margar kynslóðir og
verða blanda af kvöldvöku og helgi-
haldi, með léttri tónlistarsveiflu sem
gleðja hlýtur alla. Samverustund-
irnar minna á kaffihúsamessu að því
leytinu að setið verður til borðs. Þær
minna á tónleika vegna þess að þar
verður flutt tónlist og þær minna á
kvöldvökur því þar verður borinn
fram fróðleikur í lausu og bundnu
máli. Efnið verður með þeim hætti
að margir aldurshópar eiga að geta
notið þess, enda fer vel á því að fjöl-
skyldur eigi gæðasamverustundir á
vegum safnaðarins.
Samverustundum þessum er m.a.
ætlað að lækka þröskuldinn að starfi
kirkjunnar og draga fram þá hæfi-
leika sem búa í sóknarbörnum. Þar
verður lifandi samfélag, sem sjón-
varps- og tölvuöld hefur ógnað í
seinni tíð. Sérstakur gestur á þessari
fyrstu samverustund verður Anna
Sigríður Helgadóttir söngkona, en
hún er afbragðstúlkandi gosp-
eltónlistar, djass- og dægurlaga.
Hún mun syngja við flygilslátt
Bjarts Loga Guðnasonar. Þau munu
flytja létta tónlist í 5 mínútur áður
en stundin hefst. Hugsað er fyrir
andlegum og líkamlegum þörfum
þátttakenda en prestarnir Hans
Guðberg Alfreðsson og Friðrik J.
Hjartar munu leiða stundina. Boðið
verður upp á léttar veitingar á þess-
um fjölskylduvænu samverustund-
um sem allir eru velkomnir að taka
þátt í.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
Ensk messa verður á morgun, 30.
september, kl. 14. Prestur verður sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
verður Lenka Mátéová og Jónína
Kristinsdóttir mun leiða safn-
aðarsöng. Messukaffi. Enskar mess-
ur eru haldnar síðasta sunnudag
hvers mánaðar í kirkjunni.
Service in English on the seven-
teenth Sunday after Pentecost at
Hallgrímskirkja. September 30th at
2 pm. Holy Communion. Preacher
and celebrant: The Revd. Bjarni Þór
Bjarnason. Organist: Lenka Má-
téová. Leading singer: Jónína Krist-
insdóttir. Refreshments after the
service.
Biblían í sögu og samtíð
Þriðjudaginn 2. október hefst í
Breiðholtskirkju í Mjódd fjögurra
kvölda námskeið þar sem fjallað
verður um Biblíuna, m.a. í ljósi
þeirra tímamóta, að nú er að koma
út ný Biblíuþýðing. Námskeiðið
verður þriðjudagskvöldin 2., 9., 16.
og 23. október kl. 20-22 í umsjá sr.
Bryndísar Möllu Elídóttur og sr.
Gísla Jónassonar.
Skráning fer fram í kirkjunni
(sími 587 1500). Einnig má senda
tölvupóst á netfangið srgisli@kirkj-
an.is. Þátttökugjald er 1.500 kr.
12 spor – andlegt ferða-
lag í Kópavogskirkju
Fimmtudaginn 4. október hefst
námskeiðið 12 sporin, andlegt ferða-
lag í safnaðarheimilinu Borgum.
Námskeiðið hentar og hefur hjálpað
afar mörgum. Það hjálpar fólki til
aukinnar sáttar og lífshamingju.
Námskeiðið verður síðan í Borgum á
fimmtudagskvöldum frá kl. 20-22.
Sr. Auður Inga Einarsdóttir leiðir
námskeiðið. Munið að fyrsta sam-
verustundin verður fimmtudaginn 4.
október og hefst kl. 20. Allir vel-
komnir.
Stóra-Laugardalskirkja
í Tálknafirði 100 ára
Laugardaginn 29. september verður
hundraðasti kirkjudagur Stóra-
Laugardalskirkju haldinn hátíðleg-
ur með messu í Stóra-Laugardals-
kirkju kl. 14 þar sem prófastur Vest-
fjarðaprófastsdæmis, sr. Agnes M.
Sigurðardóttir, mun predika en
sóknarprestur, sr. Sveinn Val-
geirsson, þjónar fyrir altari. Fyrr-
verandi þénarar til Stóra-Laug-
ardals munu einnig taka þátt í
messunni.
Vert er að geta þess að orgel
kirkjunnar hefur nýlega verið gert
upp; er það hinn merkasti gripur,
smíðað af Ísólfi Pálssyni og er senni-
lega frá því um 1920. Björgvin Sig-
urbjörnsson hafði veg og vanda af
því að ráðist var í viðgerðina. Minn-
ingarsjóður Jóns Guðmundssonar
hefur ennfremur látið smíða við-
hafnarstóla og verða þeir afhentir
við messuna.
Að messu lokinni verður efnt til
kaffisamsætis í félagsheimilinu. All-
ir eru hjartanlega velkomnir.
Fyrirlestur í Landakoti:
„Saga Ísraels og forn-
aldarinnar“ (II. hluti)
„Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í
nánd.“ Þetta eru fyrstu orð Jesú
Krists samkvæmt Markúsarguð-
spjalli (Mk 1, 15). En hvað þýðir ein-
mitt þetta „fullnaður“? Hvaða merk-
ingu hefur sagan og tíminn sem var
á undan Jesú? Í þessum fyrirlestri
reynir sr. Jürgen Jamin að draga
upp mynd af sögu Ísraels og fornöld
allri sem undirbúningi fyrir komu
Jesú Krists. Með það að leiðarljósi
birtist saga Ísraels og fornald-
arinnar á allt annan hátt en við erum
ef til vill vön þegar horft er til baka.
Fyrirlestrinum er skipt í tvö er-
indi og var hitt erindið flutt síðasta
mánudag. Hverju kvöldi er einnig
skipt í tvennt. Fyrst flytur sr. Jürgen
erindið og eftir kaffihlé fylgir kvik-
mynd, „In the beginnings“ („Í upp-
hafi“) frá árinu 2000, um sögu Ísr-
aels allt til brottfararinnar úr
Egyptalandi (og að þessu sinni um
Jósef og bræður hans). Aðgangur er
ókeypis og eru allir áhugasamir vel-
komnir.
Fyrirlesturinn hefst mánudaginn
1. október kl. 20 í safnaðarheimili
kaþólskra á Hávallagötu 16.
Opið hús í Neskirkju
Starf fyrir eldri borgara hefst mið-
vikudaginn 3. október. Biskup Ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, vísiterar
Nessöfnuð í byrjun október og kem-
ur í heimsókn í fyrsta Opna hús
þetta haust. Hjörtur Pálsson skáld
mun sjá um efni fundarins ásamt
Neskirkjuprestum. Hjörtur mun
stýra dagskrá Opnu húsunna í vetur.
Hann er þjóðkunnur fyrir skáldskap
og útvarpsstörf, var forstjóri Nor-
ræna hússins í Færeyjum um tíma
og lýkur guðfræðiprófi á næstu vik-
um. Allir eru velkomnir á Opið hús í
Neskirkju, sem hefst kl. 15 með
kaffiveitingum.
Fyrsta Tómasarmessan
á þessu hausti
Fyrsta Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudagskvöldið 30. sept-
ember kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu tíu árin og verður sami
háttur hafður á í vetur. Fram-
kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi
eru Breiðholtskirkja, Kristilega
skólahreyfingin, Félag guð-
fræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist, mik-
il áhersla er lögð á fyrirbænaþjón-
ustu og sömuleiðis á virka þátttöku
leikmanna. Stór hópur fólks tekur
jafnan þátt í undirbúningi og fram-
kvæmd messunnar, bæði leikmenn,
djáknar og prestar.
Norræn og ensk messa
í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 30. sept. verður mikil
hátíð í Hallgrímskirkju. Dagurinn
hefst á norrænni messu og barna-
starfi kl. 11. Biskup Kaupmanna-
hafnar, Eric Normann Svendsen,
predikar en altarisþjónustuna ann-
ast biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, og sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
ásamt lesurum frá öllum Norð-
urlöndunum og messuþjónum. Mess-
an er lokaathöfn Norræna höf-
uðborgarmótsins sem hér er um
helgina um leið og hún er opin öll-
um. Ræða biskupsins verður túlkuð
á íslensku. Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Harðar
Áskelssonar kantors. Organisti
verður Björn Steinar Sólbergsson
og barnastarfið er í umsjá Magneu
Sverrisdóttur djákna.
Kl. 14 verður ensk messugjörð í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
Jónína Kristinsdóttir verður for-
söngvari og leiðir almennan safn-
aðarsöng.
Séra Jakob kveður
Sunnudaginn 30. september kveður
séra Jakob Ágúst Hjálmarsson Dóm-
kirkjusöfnuðinn eftir nær tveggja
áratuga þjónustu. Kveðjumessa
hans er kl. 11 í Dómkirkjunni og
þjóna ásamt honum sr. Hjálmar
Jónsson og sr. Þorvaldur Víðisson.
Dómkórinn syngur undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar dómorg-
anista. Séra Jakob kom til prests-
þjónustu í Dómkirkjunni sumarið
1989. Honum verður þökkuð dygg
og trú þjónusta við Dómkirkjuna á
sunnudaginn. Verið velkomin.
Stóra-Laugardalskirkja á Tálknafirði.