Morgunblaðið - 29.09.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 29.09.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007 41 ELSTU keppendurnir tveir, Wisvanathan Anand og Boris Gelf- and eru efstir á heimsmeistara- mótinu í skák þegar örskammt er til loka. Næstsíðasta umferðin hófst seint í gærkvöldi og þá átti Anand að tefla með svörtu við Alexander Grischuk en Gelfand var með hvítt gegn Vladimir Kramnik. Staðan fyrir umferðina í gær var þessi: 1. Anand (Indland) 8 v. (af 12) 2. Gelfand (Ísrael ) 7 v. 3. Kramnik ( Rússland ) 6½ v. 4.-6. Leko (Ungverjaland), Morosevich (Rússland) og Aronian (Armenía) 5½ v. 7.-8. Svidler (Rússland) og Grischuk (Rúss- land) 5 v. Allar líkur eru á því að Anand klári dæmið og verði það sem FIDE kallar ótvíræður heimsmeistari í skák. Hann hefur borið höfuð og herðar yfir aðra keppendur, teflt af miklu öryggi og aldrei lent í tap- hættu. Anand, sem er þjóðhetja í Indlandi, varð heimsmeistari FIDE árið 2001 þegar hann vann heims- meistaramótið sem haldið var í Nýju-Delí og Írak. Þá voru ennþá tveir heimsmeistaratitlar í „umferð“. Sjálfsagður réttur Anands á frægum sameiningarfundi varðandi heims- meistarakeppnina í Prag árið 2002 var fyrir borð borinn, en einvígi sem áttu að fylgja í kjölfarið fóru út um þúfur og allt það brambolt átti mik- inn þátt í því að Kasparov hætti keppni árið 2005. Það væri mikið happ fyrir skáklistina að fá Anand sem heimsmeistara, ekki síst vegna mannkosta hans og fágaðrar fram- komu. Í svipinn man greinarhöfund- ur ekki eftir einu einasta atviki á ferli hans sem valdið hefur deilum. Er það auðvitað merkilegt í ljósi þess að skáksagan er sneisafull af stórbrotnum uppákomum og hneykslismálum. Anand þótti tefla ógnarhratt á yngri árum sínum en hefur heldur hægt ferðina eftir því sem liðið hefur á ferilinn. Hann hefur nokkrum sinnum komið til Íslands en aldrei teflt á móti með hefðbundn- um umhugsunartíma. Í grein í New in chess nýlega gagnrýnir Kasparov keppnina í Mexíkó harðlega, einkum fyrir það að Vasilij Ivantsjúk skuli ekki vera með og segir að munurinn á Úkra- ínumanninum og Kramnik liggi fyrst og fremst í því að Ivantsjúk finni bestu leikina við skákborðið en Kramnik í samningaviðræðum í bak- herbergjum. Kramnik tókst að koma inn í reglur FIDE HM gamla fyr- irkomulaginu frá Botvinnik-árunum um „hefndareinvígi“. Það liggur því fyrir að þótt Anand verði heims- meistari nú þarf hann að mæta Kramnik að ári í einvígi. Þó að Kramnik hafi fengið á bauk- inn úr ýmsum áttum, þ. á m. frá Topalov í löngu viðtali í téðu tímariti, má ekki gleyma því hversu góður skákmaður hann er. Kasparov getur vissulega sjálfum sér um kennt að hafa nánast gert Kramnik að heims- meistara með því að leggja titilinn undir í London árið 2000 þótt Kram- nik hafi tapað fyrir Shirov í einvígi sem átti að vera um réttinn til að tefla slíkt einvígi. Raunar lýkur Kasparov varla upp munni þessa dagana án þess á játa á sig þá höf- uðsynd að hafa klofið skákheiminn árið 1993. Aftur að Kramnik: Í 12. umferð lagði hann Peter Leko að velli með glæsilegum hætti og hélt þannig opnum smámöguleika á sigri í mótinu. Kramnik velur hina traustu katalónsku byrjun sem gafst honum vel í upphafi móts gegn Morosevich. Þótt hann sé gefinn fyrir rólegar stöður hikar hann ekki við að leggja út í miklar flækjur ef honum finnst það eiga við. 10. leikur hvíts, 10. Bd2 er dálítið skrítinn en byggist á hug- myndinni 10. … Rd7 11. Ba5 og hamlar því framrás c-peðsins. Leko velur ekki leið Karpovs, 11. … Bb7 en smátt og smátt nær hvítur þrýst- ingi eftir c-línunni, uppskipti á svart- reita biskup, 16. Bxf6, henta oft vel í svipuðum stöðum. Þegar Leko spyrnir við með 21. … e5 hikar Kramnik ekki við að fórna skipta- mun. Leko neyðist til að leika 26. … f6 vegna þess að 26. … strandar á 27. Rxb7 og 28. e5. 32. leikur hvíts gerir í reynd út um taflið, 32. … Be8 er sennilega best svarað með 33. Rf8+ Kh8 34. De7. Það sem eftir lifir skákarinnar er úrvinnsla Kramniks algerlega fumlaus. HM í Mexíkó 2007 Vladimir Kramnik – Peter Leko Katalónsk byrjun 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 Be7 5. Rf3 O-O 6. O-O dxc4 7. Dc2 a6 8. Dxc4 b5 9. Dc2 Bb7 10. Bd2 Be4 11. Dc1 Dc8 12. Bg5 Rbd7 13. Df4 Bb7 14. Hc1 Bd6 15. Dh4 h6 16. Bxf6 Rxf6 17. Rbd2 He8 18. e4 Rd7 19. Rb3 a5 20. Rc5 Be7 21. Df4 e5 22. Rxe5 Rxe5 23. dxe5 Bg5 24. Df3 Bxc1 25. Hxc1 Hxe5 26. Dc3 f6 27. Db3+ Kh8 28. Df7 Bc6 29. Rd3 He6 30. Rf4 Hd6 31. Rg6+ Kh7 32. e5 fxe5 33. Bxc6 Hf6 34. Dd5 Df5 35. Bxa8 Dxf2+ 36. Kh1 Dxb2 37. Dc5 Kxg6 38. Be4+ Kh5 39. Hb1 – og Leko gafst upp. Verður Anand heimsmeistari í dag? Verðugur heimsmeistari Anand hefur borið höfuð og herðar yfir aðra keppendur á heimsmeistaramótinu í Mexíkó. helol@simnet.is Helgi Ólafsson SKÁK HM í Mexíkó 12.-29. september 2007 FRÉTTIR LANDSBANKINN hefur fært námsbraut í kynjafræði við Háskóla Íslands að gjöf safn bóka og tíma- rita um femínisma og kvennabar- áttu. Þorgerður Einarsdóttir, dós- ent í kynjafræði, tók við gjöfinni úr hendi Halldórs J. Kristjánssonar bankastjóra Landsbankans í Odda á föstudag, 27. september, á fæðing- ardegi Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Safnið inniheldur um 500 bækur, þar af mikið magn enskra bóka um stefnur og strauma í femínisma síð- ustu áratugi og fjölda skáldsagna eftir íslenskar og erlendar konur, en margar bókanna eru nú ófáan- legar. Þá geymir safnið öll tölublöð Veru, tímarits um konur og kven- frelsi, sem kom úr á árunum 1982- 2005 og öll tölublöð bandaríska femínistatímaritið Ms. frá því fyrir 1982 og fram yfir 2000. Tímaritið greindi frá hræringum í alþjóð- legum femínisma á því skeiði sem talið er að hann hafi haft mest áhrif á heimsvísu. Kvennaframboðið, Kvennalistinn og síðar tímaritið Vera söfnuðu bókunum eða voru áskrifendur að þeim. Varði hluta örorkulífeyris í að kaupa bækurnar Stór hluti safnsins var gefinn af Baldri Guðmundssyni heitnum, ör- yrkja og eiginmanni Ástu Sigurð- ardóttur, sem hafði þá hugsjón að styrkja íslenska kvennahreyfingu með ráðum og dáð, segir í frétta- tilkynningu. Í því skyni eyddi hann hluta af örorkulífeyri sínum um hver mánaðamót til að kaupa bæk- ur handa kvennahreyfingunni. 500 bækur Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Rannveig Traustadóttir, varadeildarforseti félagsvísindadeildar, og Þorgerður Ein- arsdóttir, dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands. Halldór afhenti Þor- gerði bækurnar, viðstaddar voru fyrrverandi ritstýrur og pennar Veru sem og nokkrar forystukonur í kvennahreyfingunni. Gáfu safn bóka og tímarita um femínisma og kvennabaráttu ÞING unga fólksins var nýlega haldið í þriðja skiptið. Þingið er vettvangur ungliðahreyfinga stjórn- málaflokkanna til þess að takast á um málefni líðandi stundar. Ýmsar ályktanir voru samþykkt- ar og má þar t.d. nefna að breið samstaða var meðal ungliðahreyf- inganna um að færa til kosningar til Alþingis fram á haust, afnám tolla á vörur þróunarríkja og áframhald- andi útrýming kynbundins launa- munar. Þá voru einnig samþykktar tillögur þess efnis að hjónavígslur skyldu vera í höndum hins opinbera og þar skyldu samkynhneigðir njóta jafns réttar á við aðra. Þingið var haldið í Norræna hús- inu og Valhöll, húsnæði Sjálfstæð- isflokksins, auk þess sem móttaka var í húsi Framsóknar fyrir þing- fulltrúa. 63 fulltrúar hreyfinganna sátu þingið, þar á meðal allir formenn ungliðahreyfinga stjórnmálaflokk- anna. Landssamband æskulýðs- félaga er samstarfsaðili ÞUF og hefur séð um skipulagningu þess. Morgunblaðið/Eggert Þingstörfin rædd Höskuldur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands æskulýðsfélaga, ræðir við Sturlu Böðvarsson, forseta Alþingis, og Þorstein Magnússon, aðstoðarskrifstofustjóra Alþingis. Þing unga fólksins vill kosningar á haustin FÉLAGIÐ Ísland-Palestína heldur opinn fund á morgun, sunnudag- inn 30. september, kl. 15, fund- arsal Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17. Yfirskrift fundarins er: Hvað er að gerast í hertekinni Palest- ínu? Ávarp flytur Ziad Amro fé- lagsráðgjafi frá Hebron, stofn- andi Öryrkjabandalags Palestínu og baráttumaður fyrir mannrétt- indum fatlaðs fólks. Jón Magnússon alþingismaður og Ævar Kjartansson útvarps- maður segja frá og sýna myndir. Jón og Ævar eru nýkomnir úr ferð til Palestínu og Ísraels, segir í fréttatilkynningu. Fundur um Palestínu ALÞJÓÐLEGI hjartadagurinn er á morgun, sunnudaginn 30. sept- ember, og er þema dagsins í ár „Heilbrigt hjarta með samvinnu“. Hjartavernd sem fagnar 40 ára afmæli Rannsóknastöðvarinnar á þessu ári heldur upp á daginn í ár í samstarfi við Hjartaheill, sam- tök hjartasjúklinga, og Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Á Hálsatorgi í Kópavogi verður í fyrsta sinn hlaupið Hjartadags- hlaupið sem er tímamælt hlaup með 3 hlaupalengdum, 3, 5 og 10 km. Auk þess verður Hjarta- ganga um sögustaði Kópavogs undir leiðsögn Björns Þorsteins- sonar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun taka þátt í göngunni. Skemmtidagskrá hefst á sviði kl. 13 þar sem með- al annars verða veitt verðlaun fyrir Hjartadagshlaupið, Hara systur syngja og persónur úr Söngleiknum Gretti skemmta og Sveppi verður kynnir. Hægt er að lesa um Al- þjóðlega hjartadaginn á www.worldheartday.com og á www.hjarta.is. Alþjóðlegi hjartadagurinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.