Morgunblaðið - 03.10.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 03.10.2007, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á HEIMSÞINGI þjálfunarsamtak- anna Powertalk International, sem fram fór í Brisbane í Ástr- alíu í júlí í sumar, sigraði íslenski keppandinn, Sig- rún Guðmunds- dóttir, í ræðu- keppni á ensku fyrir þá sem ekki hafa ensku að móðurmáli sínu. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur nær svo langt í þessari keppni. Ræða Sigrúnar „The Moment“, fjallaði um nútímann og að njóta augnabliksins án þess að hafa of miklar áhyggjur. Sigrún er félagi í ITC deildinni Jóru á Selfossi. Sigraði í ræðukeppni Sigrún Guðmundsdóttir FÉLAGSFUNDUR Drífanda í Vest- mannaeyjum stéttarfélags undrast þá uppgjöf er felst í umræðu um flutninga atvinnulausra ein- staklinga milli byggðarlaga. Nær sé að efla byggðarlögin og skapa grundvöll til atvinnuuppbyggingar og þá jafnframt grundvöll búsetu víða um land. Fundurinn tekur und- ir þau orð forseta Íslands að „rætur þjóðarinnar liggja á landsbyggð- inni.“ Hugmyndir um að slíta rætur fólks upp með 200.000 kr. flutnings- greiðslum virðist benda til ráða- leysis stjórnvalda í byggðamálum. Rætur slitnar EIGANDI Schäferhunds á Akranesi tilkynnti lögreglu í gær að hann hefði lógað hundinum, sem réðst að konu á götu í bænum. Fram kom á fréttavefnum Skessu- horni í vikunni, að dýraeftirlitsmað- ur á Akranesi treysti sér ekki til að aðhafast vegna hundsins þar sem eigandinn hefði haft í alvarlegum hótunum við sig. Lögreglan á Akranesi segir, að eigandinn hafi í gær höggvið á þann hnút, sem málið var komið í. Grimmum hundi lógað á Akranesi STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands stendur fyrir jafnréttisviku dagana 2. til 5. október. Markmiðið með vikunni er að vekja athygli á því hversu margir ólíkir hópar með ólíka hagsmuni þrífast innan Há- skólasamfélagsins. Fjölmargt verður í boði og má þar nefna fyrirlestra af ýmsum toga, matreiðslunámskeið þar sem erlendir nemar við HÍ kenna mat- reiðslu frá sínu heimalandi, barna- skemmtanir og kvikmyndasýn- ingar. Dagskrá vikunnar í heild sinni má nálgast á veffanginu www.stu- dent.is Jafnréttisvika hafin í HÍ Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is GERT er ráð fyrir ríflega sjö hundr- uð gestum á ársfund NATO-þings- ins sem hefst hér í Reykjavík á föstudag og stendur til þriðjudags. Þar af eru um 350 fulltrúar þjóð- þinga aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins og aukaaðildarríkja en þau eru þrettán að tölu. Fulltrúar á fundinum koma víða að en í hópi gesta verða Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, Sali Ber- isha, forsætisráðherra Albaníu, og Antonio Milososki, utanríkisráð- herra Makedóníu. Fulltrúar Alþingis á NATO- þinginu boðuðu til blaðamannafund- ar í Laugardalshöllinni í gær til að fara yfir þau mál sem efst verða á baugi á fundinum hér í Reykjavík. NATO-þingið er samstarsfvett- vangur þingmanna NATO-ríkjanna tuttugu og sex sem og aukaaðildar- ríkjanna þrettán, samkoma þar sem þingmenn geta miðlað upplýsingum milli þjóðþinga landanna. Er NATO- þingið eini vettvangurinn innan NATO þar sem kjörnir fulltrúar eiga aðild, að því er fram kom hjá Ragn- heiði Elínu Árnadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í gær en hún er formaður Íslandsdeildar NATO- þingsins. Fyrsta sinn á Íslandi „Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland heldur ársfundinn. Við höfum haldið stjórnarnefndarfundi og aðra fundi en höfum ekki haft aðstöðu fyrr til að halda ársfundinn,“ sagði Ragn- heiður Elín og bætti því við að ánægjulegt væri nú að komast í þennan hóp. „Við vorum eina „gamla“ aðildarríkið sem ekki hafði haldið fund áður,“ sagði hún. Fimm málefnanefndir starfa á vegum NATO-þingsins og verða þær að störfum á fundinum í Laug- ardalshöll bæði laugardag og sunnu- dag til að ræða ályktanir sem síðan verða lagðar fyrir þingfund á þriðju- dag. Nefndirnar fá einnig til sín fyr- irlesara, bæði erlenda og innlenda, en m.a. mun Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir utanríkisráðherra ávarpa stjórnmálanefndina, Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra ávarpar fund vísinda- og tækninefndar og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ávarpar nefndina um borgaralegt öryggi. Ennfremur mun Sturla Sig- urjónsson, sendiherra og ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum, ávarpa varnar- og öryggismála- nefndina og Þorsteinn Ingi Sigfús- son prófessor mun fjalla um orku- málin á fundi efnahags- og öryggismálanefndar. Ýmis mál á dagskrá En hvaða þýðingu hefur þessi fundur fyrir Íslendinga? „Það er margþætt,“ segir Ragnheiður Elín. „Okkur gefst þarna tækifæri til að kynna NATO-þingmönnunum stöðu öryggis- og varnarmála hér á Íslandi og fara yfir og greina frá hvað við getum sem herlaus þjóð lagt til sam- starfsins, t.d. á sviði borgaralegrar friðargæslu eins og við höfum verið að gera, með æfingaaðstöðunni á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli sem hefur nú þegar verið nýtt til æf- inga og svo í formi tæknikunnáttu varðandi orkumál. Við lítum líka svo á að þetta sé tækifæri til að beina sjónum NATO að öryggismálum á norðurslóðum í víðara samhengi og einnig blasir það við að þessi fundur er okkar framlag til Atlantshafs- bandalagsins, bæði sýnilegt og tákn- rænt, hluti þess að við öxlum okkar skyldur sem bandalagsríki.“ Meðal þeirra mála sem verða á dagskrá má nefna hlutverk NATO í Afganistan, málefni Kosovo og stöð- ugleika á vesturhluta Balkanskaga. Þá verður rætt um samskipti NATO við Rússland, loftslagsmál og eld- flaugavarnir, auk þess sem rætt verður um stækkun bandalagsins. Ísland heldur ársfund NATO-þingsins í fyrsta sinn Morgunblaðið/Golli Fulltrúar Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins en einnig eiga þar sæti Ásta R. Jó- hannesdóttir, Samfylkingu, og Magnús Stefánsson, Framsókn. Í HNOTSKURN »Ársfundur NATO-þingsinsverður haldinn í Laugardals- höll en með viðbyggingu við hana, sem reist var 2005, varð breyting á aðstöðu fyrir stórar ráðstefnur. »„Fimmtíu starfsmenn Alþing-is hafa unnið baki brotnu við að koma þessu dæmi saman,“ segir Ragnheiður Elín Árnadótt- ir. »Kostnaður vegna NATO-þingsins er áætlaður 150 milljónir króna. »Talsverð öryggisgæsla verð-ur vegna fundarins en hana annast starfsmenn Alþingis í samstarfi við lögregluna. LYKILL að lífi, landssöfnun Kiw- anis-hreyfingarinnar til stuðnings geðsjúkum og aðstandendum þeirra, hefst á morgun og lýkur næstkom- andi sunnudag. Nú er athyglinni beint sérstaklega að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál. Stefnt er að því að afla a.m.k. 40 milljóna króna með sölu K-lykilsins og mun ágóðinn renna til Geðhjálpar, Barna- og unglingageðdeildar Land- spítala (BUGL) og Forma. Landssöfnunin var kynnt á blaða- mannafundi í gær. Við það tækifæri sagði Gylfi Ingvarsson, umdæm- isstjóri Kiwanis, að hreyfingin hefði það meginmarkmið að hjálpa börn- um heimsins og þetta verkefni félli að því markmiði. Kiwanis-hreyfingin hefur staðið fyrir landssöfnunum þriðja hvert ár frá 1974. Ágóðanum af þeim söfnunum hefur verið varið til hjálpar geðsjúkum. Bernhard Jóhannsson, formaður K-dagsnefndar Kiwanis, sagði að þúsund félagar í Kiwanis-hreyfing- unni leituðu nú liðsinnis allra lands- manna við þetta verkefni. Hann sagði tilganginn með söfnuninni ekki einungis að safna peningum, heldur einnig að vekja sem flesta til um- hugsunar um vandamál sem væru til staðar og hvernig megi finna lausn á þeim. Athygli beint að ungu fólki Svanur Kristjánsson, formaður Geðhjálpar, sagði að söfnunarféð yrði notað til að ná til fólks á aldr- inum 12-25 ára. Geðhjálp hefði ekki náð nægilega vel til þess aldurshóps hingað til. Svanur sagði þunglyndi fara eins og faraldur um Vesturlönd. Ekki væri vitað um orsakir margra geðsjúkdóma, líkt og þunglyndis, en þeir gætu verið banvænir. Fólk sem þjáist af geðsjúkdómum geti bók- staflega verið í lífshættu. Svanur sagði mikilvægt að byggja upp per- sónuleg tengsl og samfélag. Því yrði Geðhjálp að ná tengslum við unga fólkið. Svanur sagði góðu fréttirnar þær að batahorfur geðsjúkra væru mjög góðar. Edda Ýrr Einarsdóttir, stjórn- arformaður Forma, sagði að sam- tökin mundu nota styrkinn til að efla ráðgjöf um átröskun um allt land. Ætlunin er að koma á fót skipulegri fræðslu í 8. bekk grunnskóla og í fyrsta bekk framhaldsskóla til að sporna við fjölgun átröskunar- sjúklinga. Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir á BUGL, sagði ætlunina að nota þeirra hluta söfnunarfjárins til að bæta hreyfingu og þjálfun skjólstæðinga deildarinnar. Hún sagði hreyfingu vera mikilvægan þátt í forvarnastarfi fyrir börn og unglinga. Því væri nauðsynlegt að bæta aðstöðu fyrir börnin sem dveldu á BUGL. Þörf væri fyrir bætta leikaðstöðu hjá barnageðdeild og eins betri aðstöðu fyrir unglinga- geðdeild. K-lykillinn boðinn víða Sölufólk mun ganga í hús með K- lykilinn, einnig verða sölumenn við verslunarmiðstöðvar og víðar á fjöl- förnum stöðum. Einnig verða K- lyklarnir til sölu í verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís. Að þessu sinni verða K-lyklarnir í þremur lit- um, rauðum, bláum og gulum lit. Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjár- vörsluaðili söfnunarinnar og er hægt að styrkja málefnið með því að leggja inn á reikning 1100-26-55000, kt. 640173-0179. Bakhjarlar verkefnisins eru Bón- us, Olís, Sparisjóðirnir á Íslandi og Toyota. Söfnunin Lykill að lífi er haldin í tengslum við alþjóðlega geð- heilbrigðisdaginn 10. október. Stuðningur við ungt fólk Morgunblaðið/Frikki Landssöfnun F.v.: Edda Ýrr Einarsdóttir frá Forma, Svanur Kristjánsson frá Geðhjálp og Kiwanis-mennirnir Bernhard Jóhannesson og Gylfi Ingvarsson tóku þátt í kynningu landssöfnunar til stuðnings geðsjúkum. Í HNOTSKURN »Geðhjálp vinnur að eflingugeðheilbrigðis á landsvísu. Stofnaðar hafa verið sjö deild- ir um landið. »BUGL er deild innan geð-sviðs Landspítala sem er sérhæfð í meðferð á geðrösk- unum barna og unglinga. »Forma er samtök sem hafaþað markmið að vera mál- svari átröskunarsjúklinga. Allir ráðgjafar Forma hafa sjálfir glímt við átröskun og náð bata. FJÓRIR ökumenn voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu á mánudag og í fyrrinótt. Tveir voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Til viðbótar stöðvaði lög- reglan för sex annarra ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir öku- leyfi eða aldrei öðlast ökuréttindi. Yngstur þeirra er 14 ára piltur sem var tekinn við akstur í nótt en stráksi hafði tekið bíl afa síns traustataki og brugðið sér á rúntinn. 14 ára á bíl afa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.