Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 23
ir norðursins og vaxandi umferð í tengslum við
þær. Við þurfum að nýta okkur þau tækifæri
sem skapast við opnun Norður-Íshafsins í kjöl-
far hlýnandi loftslags og nýrrar siglingatækni
sem auðveldar siglingar á hafíssvæðum. Þá
skiptir miklu að þau ríki sem eiga beinna hags-
muna að gæta nái samningum um sjálfbæra nýt-
ingu auðlinda og öryggi samgangna á norður-
slóðum. Ísland var á meðal brautryðjendaríkja í
hafréttarmálum og hefur lagt áherslu á að ná
samningum við nágrannaríki um sanngjarna
skiptingu hafsvæða á Norður-Atlantshafi. Í
þeim anda verður lögð áhersla á að fá viðunandi
niðurstöðu í viðræður um yfirráð yfir svonefndu
Hatton Rockall-svæði.
Nú er ár liðið síðan bandaríska varnarliðið
hvarf á brott. Við það urðu ekki einungis breyt-
ingar í varnar- og öryggismálum þjóðarinnar
heldur kom upp ný staða varðandi Keflavík-
urflugvöll og það landsvæði sem varnarliðið
hafði til umráða. Sett var á fót Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar með þátttöku sveitarfélag-
anna á Suðurnesjum. Þróunarfélagið hefur unn-
ið skipulega að því að koma svæðinu í arðbær
borgaraleg not. Hundruð íbúða hafa verið leigð
út til námsmanna og margháttuð skólastarfsemi
er byrjuð á svæðinu. Þá er unnið að sölu annarra
mannvirkja sem nú standa ónotuð.
Í ljós hefur komið að áhugi fyrirtækja, t.d. á
hátæknisviði, er mikill, m.a. vegna nálægðar við
alþjóðaflugvöllinn. Er ljóst að svæðið sem áður
var frátekið til varnarþarfa býður upp á stór-
fellda vaxtarmöguleika. Í samráði við sveitar-
félögin á Suðurnesjum er nú unnið að stefnu-
mótun fyrir svæðið í heild þar sem
flugvallarstarfsemi verður auðvitað þungamiðj-
an.
Eftir brottför varnarliðsins hefur utanríkis-
ráðuneytið unnið ötullega að yfirtöku Íslands á
rekstri íslenska loftvarnakerfisins og tengdri
umsýslu á öryggissvæðinu við Keflavíkurflug-
völl. Jafnframt er verið að undirbúa færslu á yf-
irstjórn almenns reksturs Keflavíkurflugvallar
frá utanríkisráðuneyti til samgönguráðuneytis.
Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að hrinda af
stað heildarstefnumótun á sviði neytendamála.
Fyrsta skref þeirrar vinnu er víðtæk úttekt á
virkni og viðhorfum neytenda á Íslandi og sam-
anburður á stöðu neytendamála hérlendis og er-
lendis. Á þeim grunni verður unnið að bættri
löggjöf svo Ísland standi jafnfætis löndum þar
sem neytendavernd er lengst komin. Viðskipta-
ráðherra hefur einnig skipað starfshóp til að
gera úttekt á lagaumhverfi viðskipta neytenda
og banka, einkum með tilliti til gjaldtöku fjár-
málafyrirtækja fyrir þjónustu í starfsemi sinni
og rafrænna greiðslukerfa.
Hlutdeild fjármálafyrirtækja
í landsframleiðslu 10%
Í smáu hagkerfi eins og hér á landi þar sem
fákeppni ríkir á mörgum mörkuðum er nauðsyn
á öflugu samkeppniseftirliti. Á haustþingi
hyggst viðskiptaráðherra leggja fram frumvarp
sem gerir tillögur að breyttum ákvæðum um
samrunaeftirlit og tekur mið af reynslu síðustu
ára ásamt þróun Evrópuréttar á þessu sviði.
Íslenskur fjármálamarkaður hefur stækkað
og eflst verulega á undanförnum árum. Í þjóð-
hagslegu samhengi skiptir hann sífellt meira
máli. Þannig er áætlað að hlutdeild fjármálafyr-
irtækja í landsframleiðslu hafi numið um 10% í
lok síðasta árs. Ekkert bendir til annars en að
áframhaldandi aukning verði í umsvifum ís-
lenskra fjármálaþjónustufyrirtækja, bæði innan
lands og utan. Slíkt hefur haft og mun hafa
veruleg áhrif á starfsemi Fjármálaeftirlitsins en
gerðar eru miklar og vaxandi kröfur til þess af
bæði innlendum og erlendum aðilum.
Herra forseti.
Gríðarleg tækifæri bíða íslensku þjóðarinnar.
Þau felast ekki síst í mannauðnum sem í henni
býr og sem verður styrktur enn frekar á næstu
árum, m.a. með áherslu á meiri og bætta mennt-
un. Þau byggjast á þeim góða grunni sem hér
hefur verið lagður á síðustu árum og ég gerði
grein fyrir við upphaf ræðu minnar. Síðast en
ekki síst mun samstarf tveggja stærstu stjórn-
málaflokka landsins gera mögulegt að hrinda úr
vegi hindrunum og leysa úr læðingi krafta sem
nýtast munu landi og þjóð til heilla.
Ég vænti þess að á Alþingi fari í vetur fram
málefnalegar umræður og af þeim leiði góð og
vönduð lagasetning til hagsbóta fyrir landsmenn
alla.
Góðar stundir.“
arinnar er unnið að því að efla nýsköpun og
stuðla að bættum hag sprotafyrirtækja. Stefnt
er að því að tvöfalda framlög til Vísindasjóðs og
Tæknisjóðs á tímabilinu og verða fyrstu skrefin
tekin á árinu 2008. Nýsköpunarmiðstöð Íslands
hóf starfsemi 1. ágúst sl. með sameiningu Iðn-
tæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar bygg-
ingariðnaðarins. Áhersla verður lögð á öflugt
samstarf Nýsköpunarmiðstöðvar við háskólana í
landinu, stoðkerfi atvinnulífsins, frumkvöðla og
atvinnulíf um allt land.
Fjölmargir aðilar hafa sýnt áhuga á að setja
upp orkufreka starfsemi hér á landi og er sá
áhugi ekki lengur bundinn við álfyrirtæki. Hann
stafar m.a. af því að við getum boðið upp á vist-
væna, endurnýjanlega orku á samkeppnishæfu
verði. Þetta er ánægjuleg þróun en við þurfum
jafnframt að gæta þess að takmörkuðum orku-
auðlindum verði ráðstafað af skynsemi og að
rúm verði fyrir nýja atvinnustarfsemi til að
renna enn frekari stoðum undir hagkerfið. Góð-
ar líkur eru á því að erlend fyrirtæki vilji á
næstu misserum reisa hér svokallaðar gagna-
miðstöðvar eða netþjónabú í kjölfar þess að
lagður verður nýr sæstrengur til landsins. Sér-
þekking Íslendinga á ýmsum sviðum orkumála
er dýrmæt auðlind og ánægjulegt að sjá íslensk
orkufyrirtæki hasla sér völl um heim allan.
Á vettvangi samgöngumála eru fjölmörg
verkefni framundan. Flýta á vegaframkvæmd-
um á ellefu stöðum í öllum landshlutum á næstu
þremur árum og verða fluttir til verulegir fjár-
munir vegna þessa. Þrjú verkefni eru framund-
an þar sem einkaframkvæmd er talin álitlegur
kostur. Þetta eru tvöföldun Suðurlandsvegar,
gerð Sundabrautar og göng undir Vaðlaheiði.
Til stendur að stórauka eftirlit, fræðslu og
áróður gegn akstri undir áhrifum vímuefna,
ofsaakstri og akstri án bílbelta. Jafnframt verð-
ur umferðarfræðsla í skólum stóraukin.
Á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytis hef-
ur verið samið um smíði á nýju varðskipi og
kaup á nýrri flugvél fyrir landhelgisgæsluna.
Auk þess hefur tekist að leigja þyrlur til að
tryggja öfluga þyrlustarfsemi á vegum gæsl-
unnar en kaup á nýjum þyrlum eru í undirbún-
ingi. Lögð verður áhersla á náið samstarf land-
helgisgæslunnar við leitar- og björgunar-
stofnanir við Norður-Atlantshaf, einkum Dani,
sem sinna öryggisgæslu við Færeyjar og Græn-
land. Samskipti við bandarísku strandgæsluna
hafa vaxið á því ári sem liðið er frá því að samið
var um nýtt fyrirkomulag öryggismála við
Bandaríkin.
Í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
við brottför varnarliðsins haustið 2006 hyggst
dóms- og kirkjumálaráðherra leggja fram frum-
vörp til laga um almannavarnir og fleira. Unnið
er að því að skipuleggja nýjan löggæslu- og ör-
yggismálaskóla með það að markmiði að tryggja
sem best að hæft fólk fáist til þessara mikilvægu
starfa með menntun í takt við kröfur tímans.
Starf í loftslagsmálum eflt
Herra forseti.
Ný skýrsla vísindanefndar Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar, sem kynnt var á
þessu ári, segir vísindalega vissu um hlýnun loft-
hjúps jarðar af mannavöldum hafa aukist. Ís-
land er í hópi þeirra ríkja sem vilja hefja nú þeg-
ar víðtækar viðræður um nýtt hnattrænt
samkomulag sem taki við eftir gildistíma Kýótó-
bókunarinnar árið 2012. Ríkisstjórnin hyggst
efla starf að loftslagsmálum á næstunni og gera
áætlun um hvernig Ísland getur mætt vænt-
anlegum framtíðarskuldbindingum á sem bestan
og hagkvæmastan hátt. Í því samhengi má ekki
gleyma því að í lausninni á loftslagsvandanum
eru fólgin mikil tækifæri í nýsköpun. Íslensk
þekking á nýtingu jarðhita og á fleiri sviðum
loftslagsvænnar tækni er gulls ígildi í heimi sem
enn er að mestu knúinn með kolum og olíu.
Þróunarsamvinna er vaxandi þáttur í íslenskri
utanríkisstefnu og er nú stærsti einstaki út-
gjaldaliður utanríkisráðuneytisins. Með auknum
framlögum og virkari þátttöku í málaflokknum á
alþjóðavísu vinnur Ísland markvisst að því að
uppfylla skyldur sínar í samfélagi þjóðanna. Í
því ljósi fer nú fram innan utanríkisráðuneyt-
isins endurskipulagning á fyrirkomulagi og
framkvæmd opinberrar þróunarsamvinnu með
það að leiðarljósi að styrkja markvissa stefnu-
mótun og gera framkvæmdina skilvirkari ásamt
því að efla eftirlit og mat á árangri hennar.
Huga þarf að vaxandi mikilvægi norðurslóða í
utanríkismálum samfara aukinni sókn í auðlind-
ustu og vald til að hrinda verkefnum í fram-
kvæmd.
Heildstæður grundvöllur menntunar
Herra forseti.
Menntamálaráðherra leggur á þessu þingi
fram frumvörp til laga um leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla og til lögverndunar á starfs-
heitum kennara og skólastjórnenda. Er þetta í
fyrsta skipti sem lögð eru fram frumvörp um
þessi þrjú skólastig samtímis en með þeim er
mótaður heildstæður grundvöllur fyrir menntun
barna og ungmenna frá upphafi skólagöngu til
loka framhaldsskóla.
Verkefni á sviði menntamála eru óþrjótandi
og á meðal þeirra sem nú er unnið að er að
stuðla að aukinni þátttöku nemenda af erlendum
uppruna í skólakerfinu. Jafnframt hefur stuðn-
ingur við íslenskukennslu fyrir fullorðna útlend-
inga verið stóraukinn.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að
kraftmikið atvinnulíf muni einkennast í sívax-
andi mæli af þekkingarsköpun og útrás og að
virkja eigi kraftinn í menningarlífi þjóðarinnar.
Menning okkar byggist ekki síst á bókmenntum.
Bókakaupstefnan í Frankfurt er langmikilvæg-
asti vettvangur rithöfunda til að koma verkum
sínum á framfæri erlendis og hefur Ísland form-
lega óskað eftir því að vera heiðursgestur henn-
ar árið 2011. Stjórnvöld eru sannfærð um að á
þessu sviði sé mikilvægur markaður sem geti
aukið ferðamannastraum til landsins og útflutn-
ingstekjur okkar verulega og ekki síður aukið
hróður Íslendinga enn frekar sem bókmennta-
þjóðar.
Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
til þess að þeir búi við sambærileg kjör og að-
búnað og íslensk starfssystkini þeirra.
Stefna ríkisstjórnarinnar er að á Íslandi sé
veitt heilbrigðisþjónusta á heimsmælikvarða.
Hér hefur á undanförnum áratugum verið byggt
upp heilbrigðiskerfi sem stenst samanburð við
það besta í þeim löndum sem við viljum bera
okkur saman við. Á kjörtímabilinu verður ann-
ars vegar lögð áhersla á að efla enn frekar þessa
þjónustu en hins vegar, og ekki síður, unnið að
því langtímamarkmiði að stuðla að heilbrigði
þjóðarinnar og draga úr líkum á sjúkdómum. Al-
mennt verður áhersla lögð á að bjóða aukinn
fjölbreytileika í vali á heilbrigðisþjónustu, m.a.
með útboðum og þjónustusamningum. Þannig
verði tryggt að sem best og best þjónusta fáist
fyrir það fjármagn sem til þessara mála er varið.
Markmiðið er að tryggja bestu og skilvirkustu
þjónustu í þágu einstaklinga, óháð efnahag og
búsetu. Þessar áherslur munu taka til allra
þátta heilbrigðisþjónustunnar. Má hér nefna að-
gerðir til að opna lyfjamarkaðinn á Íslandi í
þeim tilgangi að efla samkeppni og ná þannig
fram auknu framboði og lægri lyfjakostnaði og
lyfjaverði.
Í stjórnarsáttmálanum er lögð stóraukin
áhersla á forvarnir á öllum sviðum. Við höfum
sett okkur það markmið að stuðla að heilbrigð-
ari lífsháttum og bæta þannig hag og heilsu allra
Íslendinga.
Breytingar á skipulagi málefna aldraðra hafa
verið boðaðar með það að markmiði að auka og
bæta þjónustu við þennan hóp en jafnframt að
stuðla að sjálfstæði aldraðra og þátttöku þeirra í
samfélaginu. Stefnt er að einfaldri og skýrri
stjórnsýslu þar sem saman fari ábyrgð á þjón-
a á Alþingi í gærkvöldi
nir, umbætur og heil-
sta á heimsmælikvarða
Morgunblaðið/Golli
Jafnvægi og stöðugleiki Flest bendir til þess að þenslan sé á undanhaldi og framundan tímabil
aukins stöðugleika og meira jafnvægis í þjóðarbúskapnum, sagði Geir H. Haarde á Alþingi í gær.