Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 29
Elsuleg móðursystir okkar Helga Kristinsdóttir, eða Dedda eins og vin- ir og ættingjar hennar kölluðu hana, hefur kvatt þetta líf, hún andaðist hinn 18. september síðastliðinn. Þeg- ar ástvinir kveðja fer hugurinn á flug og minningarnar hrannast upp. Við systkinin vorum svo heppin að fá að kynnast henni Deddu því hún var systir Ástu móður okkar. Dedda bjó á Öngulsstöðum með einkadóttur sinni Guðnýju, hjá afa okkar og ömmu ásamt þremur af systkinum sínum. Það voru okkar forréttindi að fá að koma í sveitina, hitta þetta elskulega fólk og fá að kynnast störfunum í sveitinni. Mynd af Deddu kemur alltaf upp í hugann þegar hugurinn er látinn reika til Öngulsstaða, hvort sem við hugsum um heimilið, fjósið, fjárhúsið eða hænsnakofann. Það var hún sem kynnti okkur dýrin í sveitinni, og hún bar hag allra fyrir brjósti – bæði menn og málleysingjar fengu sinn skerf af elsku hennar og umhyggju. Í minningunni sjáum við sterka konu sem gekk glöð til sinna verka. Vinnu- dagurinn var oft langur en þrátt fyrir það hafði hún alltaf nægan tíma fyrir okkur börnin. Þegar við komum í heimsókn að Öngulsstöðum hafði maður ávallt á tilfinningunni að verið væri að taka á móti þjóðhöfðingjum. Þar var manni tekið opnum örmum og með bros á vör og kræsingarnar sem á borð voru bornar voru eins og í fermingar- veislu. Þar voru kleinurnar hennar Deddu í miklu uppáhaldi því þær voru bestar en einnig bakaði hún heimsins besta flatbrauð og við fengum ekki bara að njóta þess sem börn því eftir að við urðum fullorðin og stofnuðum okkar eigin heimili fengum við pakka frá Deddu með flatbrauði og þá var veisla. Við gætum skrifað heila bók um hana Deddu því minningarnar eru svo margar og yndislegar en við mun- um geyma þær í hjörtum okkar um ókomna tíð. Við biðjum algóðan Guð að blessa Guðnýju, Gunter og dætur sem og aðra ástvini, þeirra söknuður er mik- ill. Takk fyrir allt, elsku Dedda, við þökkum Guði fyrir góða frænku. Hjarta þitt var hlýtt og gott hugurinn rór og mildur. Fas þitt allt bara fagran vott um fórnarlund og skyldur. (Valgeir Helgason.) Systkinin úr Sólvöllunum. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 29 ✝ Finnbogi MárÓlafsson er fæddur í Reykjavík 19. desember 1974. Hann lést 19. sept- ember sl. í Nott- ingham, Bretlandi. Foreldrar hans eru Ólafur Ísleifs- son, fæddur 28.8. 1953, og Sigríður Rósa Finnbogadóttir, fædd 2.1. 1954, maki Völundur Þorgilsson, fæddur 24.11. 1945. Systkini: Sigvaldi Búi Þórar- insson, sammæðra, fæddur 2.8. 1971, maki Sylvía Erna Ó. Waage, f. 27.2. 1974, börn þeirra eru a) Sigríður Birna Sigvaldadóttir, f. 11.6. 1994, b) Bjarni Ólafur Sigvalda- son, f. 18.7. 2003. Alsystkin eru Ollý Björk Ólafs- dóttir, f. 25.2. 1978, hennar dóttir er Birta Huld Hauks- dóttir, f. 17.10. 2000. Eydís Björk Ólafsdóttir, f. 18.4. 1989. Rósa Signý Ólafsdóttir, sam- feðra, f. 2.10. 1999. Finnbogi átti eina dóttur, Ölmu Hrund Hafrúnardóttur, f. 6.8. 1997. Barnsmóðir Hafrún Páls- dóttir, f. 10.9. 1973. Minningarathöfn um Finn- boga Má var haldin í Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ 1. október sl. „Here’s to weathered eyes wear- ing gypsy smiles/lovely ladies and a million miles.“ Finnbogi var stór hluti af ung- lingsárunum mínum. Hann var á föstu með bestu vinkonu minni og ég með besta vini hans. Við fjögur vorum stórkostlegur hópur. Þetta var á þessum tíma sem við töldum okkur vera meistara alheimsins, gátum allt og kunnum allt, það var sjálfsagt að við gætum orðið rokk- stjörnur og milljónamæringar. Við upplifðum ótrúleg ævintýri í þá daga, svo ótrúleg reyndar að ég finn fyrir efasemdasvip á andliti fólks þegar ég segi frá þeim. En þetta gerðist allt og er mér svo minnisstætt. Við vorum að taka okkar fyrstu raunverulegu skref út í lífið og gátum treyst á hina í hópnum til að aðstoða, hvetja og styrkja hvert skref. Finnbogi var sá sem var með stærstu og bestu hugmyndirnar um framhaldið og við hin sáum framtíðina sem hann lýsti í ævintýraljóma. Við áttum af- skaplega góðar stundir saman og gátum öll setið fram í morgunsárið á spjalli um allt og ekkert. Við vin- konurnar fengum líka nasaþefinn af því að eiga rokkstjörnur fyrir kærasta þegar við fórum á tónleika með hljómsveitinni þeirra. Mikið vorum við stoltar af því að standa í salnum og horfa upp til strákanna, í huga okkar vorum við að horfa á þá spila fyrir framan 50 þúsund manns á stærðarinnar tónleika- svæði. Það sem virðist í dag vera heil eilífð, voru nokkur yndisleg ár, en svo kom að því að raunveruleik- inn ýtti til hliðar stóru draumunum og við þurftum að takast á við lífið. Tengslin voru teygð og sambandið minna. Ég frétti þó alltaf af honum reglulega í gegnum gamla hópinn, hann og Justin fluttu út og komu sér fyrir. Síðast þegar ég sá Finn- boga þegar hann kom til landsins hefði ég aldrei þekkt hann, svo breyttur var hann í útliti frá í gamla daga, en göngulagið hans sérstaka gaf til kynna að um engan annan væri að ræða. Við ræddum um hversu gaman það væri að hitt- ast eitthvert kvöldið, bara við fjög- ur að fara í gegnum gamla tíma og fá fréttir af hvar við værum stödd í dag. Hann fór fljótlega aftur út, en alltaf annað slagið á síðustu árum hef ég hugsað til þess að í næstu heimsókn hans hingað heim mynd- um við gera þetta. Eftir að frétt- irnar um andlát hans bárust kom- um við saman eina kvöldstund og rifjuðum upp þessa gömlu, góðu daga. Það var afskaplega gott að geta talað við hin tvö um Finn- boga, hlegið yfir hlutum sem við gerðum og grátið yfir því að við munum aldrei aftur vera órofinn hópur. Ég votta hans nánustu alla mína samúð og kveð draumóramann mikinn með stórt hjarta. Elsku vinur, hvíl í friði. Erna. Finnbogi Már Ólafsson Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, ANNA LILJA GESTSDÓTTIR flugfreyja, Heiðarbakka 1, Keflavík, verður jarðsungin í Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 4. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð Ólafs Sólimanns Lárussonar og barna hans hjá Þroskahjálp á Suðurnesjum, sími 421 5331. Reynir Ólafsson, Gestur Páll Reynisson, Inga María Vilhjálmsdóttir, Kristín Guðrún Reynisdóttir, Bjarki Ómarsson. ✝ Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN HJARTARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju laugar- daginn 6. október. Kristinn Vermundsson, Guðrún Sigurðardóttir, Ingibjörg Vermundsdóttir, Mjöll Vermundsdóttir, Ágúst Atlason, Drífa Vermundsdóttir, Elías Björn Angantýsson, Ásmundur Vermundsson, Kristbjörg Magnúsdóttir, Björk Vermundsdóttir, Eiður Haraldsson, Jón Vermundsson, Fríða Dóra Júlíusdóttir, Sunna Vermundsdóttir, Ragnar Ölver Ragnarsson, Óðinn Vermundsson, Ottó Helgi Vermundsson, Linda Jónsdóttir, Jón Marinó Birgisson, Herdís Kjartansdóttir, Vera Rún Erlingsdóttir, Ásgeir Már Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNLAUGUR ARNÓRSSON, fyrrverandi aðalendurskoðandi Seðlabanka Íslands, Bakkavör 11, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 26. september. Útförin fer fram mánudaginn 8. október frá Fossvogskirkju kl 13.00. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarfélög. Sofía Thorarensen, Eiður Th. Gunnlaugsson, Örn Gunnlaugsson, Heiðrún Bjarnadóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott McLemore, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÍVARSDÓTTIR, Furugerði 1, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. október kl. 13.00. Sverrir Sighvatsson, Kristín Þórðardóttir, Haukur Sighvatsson, Valgerður Sigurðardóttir, Svanlaug Sighvatsdóttir, Erla Sighvatsdóttir, Sævar Hallgrímsson, Sigurður Sighvatsson, Þóra Helgadóttir, Hilmar Sighvatsson, Bryndís Hreinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, ARNA GÍGJA, er látin. Davíð Björn Gígja, Debbie Gígja. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR G. HALLDÓRSSON rafmagnsverkfræðingur, áður til heimilis að Mávanesi 11, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 4. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Magnús Sigurðsson, Kristrún B. Jónsdóttir, Halldór Sigurðsson, Helga Gunnarsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Þorvaldur Þorvaldsson, Svava Sigurðardóttir, Þorsteinn Ragnarsson, Lilja Hreinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.