Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TORFUSAMTÖKIN efna til fundar, í Iðnó næstkomandi laugardag kl. 14.00, um framtíð miðbæjarins und- ir yfirskriftinni 101 tækifæri – gildi og hlutverk byggingararfsins í upp- byggingu Laugavegar og Kvos- arinnar? Meðal frummælanda eru Eva María Jónsdóttir, dag- skrárgerðarkona, Guja Dögg Hauksdóttir forstöðumaður, Mar- grét Harðardóttir og Steve Chris- ter arkitektar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hagfræðingur og fréttamaður. 101 tækifæri ÞING Starfs- greinasambands Íslands, á Hótel Loftleiðum, verð- ur sett kl. 16:00 í dag, miðvikudag. Kristján G. Gunnarsson, for- maður SGS setur þingið með ræðu, en ávörp við setninguna flytja þau Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, og Johnny Hagen, fyrrum formaður norska og norræna matvælasambandsins. Málstofa verður á fimmtudag um hlutverk verkalýðshreyfingar á tímum hnattvæðingar atvinnulífs. Þing SGS verð- ur sett í dag Kristján G. Gunnarsson GIGTARFÓLK mun fimmtudaginn 4. október ganga með fjölskyldum sínum og vinum frá Lækjartorgi upp á Skólavörðuholt undir kjör- orðinu „Gigtin gefur“. Gangan er til að vekja athygli á því m.a. að börn og ungt fólk er með gigt- arsjúkdóma, að það eru margir sem eiga við gigtarsjúkdóma að stríða og yngri en flestir halda, að snemmgreining gigtarsjúkdóma skiptir öllu máli, að aðgengilegt heilbrigðiskerfi er nauðsyn. Gangan hefst á Lækjartorgi og safnast þar um kl. 17. Gengið verð- ur upp Bankastræti og Skólavörðu- stíg en göngulok verða á Skóla- vörðuholti. Göngufólki er boðið að hlusta á stutt orgelverk í Hall- grímskirkju að göngu lokinni. Mælt er með því að þeir sem erfiðast eiga með gang komi inn í gönguna við Bergstaðastræti. Gigtarganga SLÖKKVILIÐIN um allt land eru að hefja samstarf við leikskólana á starfssvæðum sínum um átak í eld- varnaeftirliti og fræðslu til að auka öryggi á leikskólunum og heimilum barnanna. Verkefnið er unnið í sam- vinnu við Eignarhaldsfélagið Bruna- bótafélag Íslands sem leggur slökkviliðunum til fjölbreytt og vandað efni til fræðslu og eftirlits, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðanna eru slökkviálfarnir Logi og Glóð sem eru jafnframt helsta auðkenni verkefnisins. Átakið er stærsta einstaka for- varnaverkefni slökkviliðanna til þessa. Tilefni þess að ráðist var í þetta verkefni er meðal annars könnun sem sýndi að eldvörnum heimilanna er verulega áfátt, ekki síst á heimilum ungs fólks. Brunavarnir á leikskólum Eftir Silju Björk Huldudóttur og Guðna Einarsson Við erum þakklát fyrir stuðn-inginn því án hans hefðumvið ekki getað farið þessaferð,“ segir Beverly Daley, félagsráðgjafi hjá Barnaspítalanum í Los Angeles, sem stödd er hér á landi ásamt þremur öðrum starfs- mönnum spítalans, listakennara frá Fischer gallerí hjá Háskólanum í Suður-Kaliforníu og tíu langveikum bandarískum unglingum sem fengu draum sinn uppfylltan fyrir tilverknað Vildar- barna sem styrkja menn- ingaferð þeirra til Evrópu. Að láta draum- inn rætast „Þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum er- lendum hóp í draumaferð sína,“ segir Gunnar Már Sig- urfinnsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og stjórnarmaður í Vildarbörnum. „Það er afskaplega gaman að geta hjálpað þeim að láta drauminn verða að veruleika. Það er náttúrlega bæði mikil fyrirhöfn að fara með svona hóp og dýrt ferðalag.“ Ungmennin, sem eru á aldrinum 15-19 ára, glíma öll við langvinna sjúkdóma á borð við meðfædda hjartagalla, hvítblæði, nýrnaveiki, rauða úlfa og liðagigt. Að sögn Daley er þetta þroskandi ferðalag fyrir ungmennin, enda sé þetta í fyrsta sinn sem þau ferðast án foreldra sinna og það krefjist mikils trausts, því þau beri t.d. sjálf ábyrgð á lyfja- gjöf sinni. Aðspurð segir Daley krakkana ekki hafa þekkt hvert ann- að áður en þau fóru í ferðina, en hafa náð afskaplega vel saman og sýnt hvert öðru mikla umbyggju og hlýju. Þróa vináttubönd á jafnréttisgrundvelli „Eitt þeirra markmiða sem lagt er upp með í þessari ferð er að ung- mennin verði sjálfstæðari og skilji að þrátt fyrir að sjúkdómar þeirra feli í sér ákveðnar hindranir þá geta þau samt notið þeirrar upplifunar að ferðast. Með þessu viljum við hvetja þau til þess að hugsa út fyrir tak- markanir og hindranir,“ segir Daley og tekur fram að annað markmið ferðarinnar sé að stuðla að samskipt- um unglinganna við jafnaldra sína. Segir hún langveik börn oft upplifa sig sem fremur einangruð og því sé mikilvægt að þau fái tækifæri til að þróa vináttubönd á jafnréttisgrund- velli. Fram úr björtustu vonum Spurð um ferðalagið sjálft segir Daley þau hafa flogið frá Los Angel- es til Parísar þar sem þau dvöldu í fimm daga í því skyni að skoða lista- söfn og heimsækja m.a. Euro Disn- eyland. Á heimleið sinni til Banda- ríkjanna hefur hópurinn þriggja daga viðdvöl á Íslandi. Þau fóru í dagsferð að skoða Gullfoss og Geysi á mánudaginn var, skoðunarferð í gær um Reykjavík og heimsóttu m.a. Listasafn Reykjavíkur. Beverly Daley sagði ferðina hafa farið langt fram úr hennar björtustu vonum. Hún sagði hópinn hafa feng- ið framúrskarandi góðar viðtökur. „Þetta hefur verið svo áhugavert og fræðandi frá upphafi til enda. Ynd- islegt. Náttúrufegurð landsins er eitthvað sem við eigum eftir að tala um lengi. Þrátt fyrir rigninguna höf- um við notið hverrar mínútu,“ sagði Daley. Í dag fara Vildarbörnin í hestaferð með Íshestum og loks í Bláa lónið áð- ur en leiðin liggur aftur heim til Bandaríkjanna. Langveik, bandarísk Vildarbörn komu við á Íslandi í menningarferð til Evrópu Nutu hverrar mínútu – þrátt fyrir rigninguna Morgunblaðið/RAX Menningarferð Vildarbörnin kunnu vel að meta myndir Erros. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Vinabönd Bandarísku unglingarnir sögðust hafa tengst traustum böndum í Evrópuferðinni. Einn unglinganna var fjarverandi er myndin var tekin. Beverly Daley Gunnar Már Sigurfinnsson „ÞETTA er búið að vera frábær ferð,“ sögðu Samantha Hernandez og Maria Arias þegar þær settust niður með blaðamanni. Samantha Hern- andez sem er 16 ára þjáist af liðagigt og tekur fram að hún þurfi ávallt að passa upp á að sér verði ekki of kalt. Maria Arias sem er 15 ára er nýrnaveik og fór fyrir stuttu í nýrnaígræðslu og þarf því að gæta þess að hún fái ávallt nógan vökva með reglulegu millibili. „Flugferðirnar hafa verið mjög langar, en það er svo sannarlega þess virði,“ sagði Arias. Aðspurðar segjast þær hvorug hafa heimsótt Evrópu áður og Hern- andez tók fram að hún hafi aldrei yfirgefið Bandaríkin áður. Þær hafi heldur aldrei ferðast án foreldra sinna áður. Þær létu vel af hópnum og sögðu vináttutengsl hafa myndast. „Við þekktumst ekkert áður en við lögðum upp í ferðina, en erum nú þegar búin að skiptast á netföngum og munum örugglega halda tengslum eftir að heim kemur,“ sagði Samantha Hernandez og tók fram að í sumum tilfellum hefðu þau komist að því að þau búa ör- stutt hvert frá öðru heima í Los Angeles. „Það er gott að hitta aðra krakka sem eru í sömu sporum og maður sjálfur og þurfa að glíma við langvinna sjúkdóma, stundum jafnvel ná- kvæmlega sama sjúkdóminn og maður sjálfur. Það er svo gott að vita að maður er ekki einn í heiminum, ekki sá eini sem er að takast á við langvinn veikindi,“ sagði Arias. Spurðar hvernig það hafi lagst í þær að koma til Íslands sögðu þær það hafa verið afar spenn- andi. „Ég hafði aldrei heyrt um Ísland áður og hafði því ekki hugmynd um hvar í heiminum þetta land væri. Ég þurfti því að fletta því upp á landakorti,“ sagði Samantha Hernandez og bætti við að hún hlakkaði til að fara í hestaferð og kynnast bæði landi og þjóð. „Ég heyrði fyrst um Ísland í kennslutíma í 8. bekk og fannst þetta spennandi land. Ég var því himinlifandi þegar ég frétti að við myndum koma við hér,“ sagði Maria Arias. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gaman Samantha Hernandez og Maria Arias. Gott að hitta aðra krakka í sömu sporum „Ferðin hefur verið stórkostleg. Mér finnst landið mjög fallegt. Það hefur rignt, en er samt fallegt. Við höfum farið í ferðir og þetta er mjög ólíkt öllu heima. Þetta hefur allt verið mikil lífsreynsla og ég elska það. Ég er mjög glöð yfir að vera hér,“ sagði Sakay Sanchez, 15 ára stúlka í hópi Vildarbarna frá Kaliforníu. Sakay hafði veitt eftirtekt myndastyttum sem prýða borg og bæi. Hún sagði að sér þætti mikið varið í að geta virt fyrir sér lista- verk þó maður væri að ferðast í bíl. Þá þótti henni athyglisverð til- hugsun að vera stödd á eyju sem er umlukin hafinu. En landsmenn vöktu líka athygli hennar. „Hér eru allir brosandi og það kann ég vel að meta.“ Sakay þekkti nokkuð til Íslands áður en hún kom. Það þakkar hún aðdáun sinni á söngkonunni Björk Guðmundsdóttur. Morgunblaðið/RAX Fallegt á Íslandi Sakay Sanchez. „Hér eru allir brosandi“ TENGLAR .............................................. www.vildarborn.is Fyrsti hópur er- lendra Vildarbarna sem kemur hingað „Ísland er fallegt – útsýnið og öll litadýrðin í náttúrunni! Þetta er virkilega fallegt,“ sagði Dayton Stewart, 15 ára piltur frá Kaliforníu. Hann kvaðst hafa skoðað tvær Íslandsbækur áður en hann kom hingað. „Landið er alveg jafn fallegt og í bók- unum,“ sagði Dayton. Hann sagðist hafa sannarlega not- ið ferðalagsins og dval- arinnar hér á landi. Morgunblaðið/RAX Litadýrð Dayton Stewart. „Virkilega fallegt“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.