Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.10.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 43 Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG FÉKK frábærar fréttir í morg- un og er því mjög kátur núna,“ sagði danski leikstjórinn Peter Schønau Fog þegar blaðamaður hringdi í hann til Danmerkur einn septembermorg- un. Það var líka ekki að undra að Fog væri í skýjunum því hann var að frétta að leikstjórnaverkefni sitt, kvikmyndin Listin að gráta í kór (Kunsten at græde i kor), yrði fram- lag Dana til Óskarsverðlaunanna. – Þú ert nú varla undrandi yfir þeim fréttum því myndin hefur notið mikillar velgengni um víða veröld. „Ég er undrandi því þegar myndin var gerð bjóst ég ekki við þessari vel- gengni. Ég gerði myndina, ekki til að verða frægur, heldur vegna þess að þetta er mikilvæg saga um mikilvægt viðfangsefni sem ég vildi koma á framfæri. Þetta er saga um hræði- lega hluti sem fólk vill í raun og veru ekki heyra sögur um,“ segir Fog. Umræðan ekki nógu djúp Listin að gráta í kór segir frá ellefu ára dreng sem elst upp á Suður- Jótlandi upp úr 1970. Sagan er sögð frá sjónarhorni drengsins og lýsir til- raunum hans til að halda öllum góð- um í sinni trufluðu fjölskyldu. Pabb- inn er sígrátandi, hótar reglulega að fremja sjálfsmorð og misnotar dóttur sína. Móðirin er búin að gefast upp á eiginmanninum, stóri bróðir er flutt- ur að heiman og mjólkurbúðin sem fjölskyldan rekur gengur ekki nógu vel. „Ég hugsaði sem svo að ef ég gæti sagt söguna með augum 11 ára stráks væri meiri möguleiki á að ná til fólks og fá það til að hugsa um misnotkun á börnum á dýpri hátt. Það er of oft fjallað um misnotkun á æsifréttahátt, þar sem sagt er frá með augum ut- anaðkomandi,“ segir Fog. – Hefur farið af stað umræða um sifjaspell í Danmörku út frá mynd- inni? „Já, myndin hefur opnað fyrir umræðu með nýju sjónarhorni. Þó okkur finnist umræðan í dag opin um barnamisnotkun þá nær hún oft ekki dýpra en æsifréttir, við hneykslumst og gleymum þessu svo.“ Peter Schønau Fog er fæddur árið 1971 á dönsku eyjunni Fanø. Hann lærði kvikmyndagerð við FAMU kvikmyndaskólann í Prag áður en hann hóf nám við danska kvikmynda- skólann. Listin að gráta í kór er fyrsta leikna kvikmynd hans í fullri lengd. Myndin hefur nú verið sýnd á 32 alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og unnið til 17 verðlauna. „Í þessari sögu eru tveir af aðal- leikurunum börn og það lá mikið á þeim. Myndin er tekin í suðurhluta Jótlands og þar er töluð mjög sterk mállýska, svo sterk að þegar myndin var sýnd annarsstaðar í Danmörku var hún textuð. Við urðum að finna börn á Suður-Jótlandi til að leika í myndinni því það er erfitt að kenna börnum að tala með hreim. Það hafði aldrei verið gerð mynd á svæðinu svo við fundum „venjuleg“ börn og kenndum þeim að leika. Ég er mjög ánægður með gott gengi mynd- arinnar því það er mikil ábyrgð að taka börn og setja þau svona fyrir framan myndavélina.“ Sérvitur á verkefni Listin að gráta í kór er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norð- urlandaráðs 2007 ásamt íslensku myndunum Mýrinni og Börnum. Að- spurður segist Fog ekki hafa séð þær myndir en vonast til að berja þær augum einn daginn. Þar sem Fog er í Óskarstilnefning- arvímu þykir blaðamanni vert að spyrja hvort hann gæti hugsað sér að vinna í Hollywood. „Ég er mjög sér- vitur á verkefni. Ég vil segja sögu og ef eina ástæðan fyrir því að segja ein- hverja sögu er til að græða peninga þá virkar það ekki fyrir mig. Ég vil halda mig við það sem er mikilvægt.“ Fog er nú kominn hingað til lands til að verða viðstaddur Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík þar sem mynd hans er sýnd. „Ég hef komið einu sinni áður til Íslands og kann vel við landið, enda ólst ég upp í litlum bæ við vesturströnd Danmerkur og Ísland minnir mig á æskuumhverfið,“ segir Fog og kveður blaðamann með þeim orðum að hann hlakki mikið til að koma aftur. Vill segja mikilvægar sögur Peter Schønau Fog, leikstjóri Kunsten at græde i kor, er gestur á Kvikmyndahátíð í Reykjavík Listin að gráta í kór verður sýnd í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20 og þar mun Peter Schønau Fog einnig sitja fyrir svörum um myndina. Peter Fog Hæfileikaríkur leikstjóri sem hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir Kunsten at græde i kor, fyrstu mynd sína í fullri lengd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.