Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 9

Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 9 FRÉTTIR heimildirnar. Hann áréttir að stefna Samfylkingarinnar hafi ekki breyst í þessum efnum. „Það er alveg ljóst að þau mark- mið sem fyrri ríkisstjórn setti um að draga úr losun fyrir árið 2050 Eftir Andra Karl andri@mbl.is „MÉR finnst eðlilegt að umhverf- isráðherra gefi skýringar á því hvers vegna hún hafi breytt um skoðun, og hvers vegna hún berjist ekki fyrir því núna í ríkisstjórninni að setja á þetta gjald,“ segir Kol- brún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og nefndarmaður í um- hverfisnefnd Alþingis, um úthlutun umhverfisráðherra á heimildum til að losa gróðurhúsalofttegundir. Kolbrún sat í umhverfisnefnd á síðasta kjörtímabili og tók þátt í umræðunni á Alþingi um gjald fyr- ir heimildirnar, ásamt þingmönn- um Samfylkingarinnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráð- herra sagði í Morgunblaðinu á mánudag að ekkert væri því til fyrirstöðu að bjóða heimildirnar upp, hins vegar ætti eftir að skrifa regluverkið í kringum lögin. „Mér finnst þetta bera vott um mikla deyfð og litla löngun til að takast á við ákveðið vandamál sem er sam- fara þeirri losun sem á sér stað hjá okkur. Mér finnst þetta ekki boða gott hvað varðar afstöðu Samfylkingarinnar til auðlindanýt- ingar almennt,“ segir Kolbrún. Stefna Samfylkingarinnar í málinu óbreytt Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingarinnar og formaður um- hverfisnefndar, segir úthlutunina hafa verið gerða á grundvelli gild- andi laga og þeim hafi verið fram- fylgt. „En það breytir því ekki að stefna Samfylkingarinnar, eftir sem áður, er að taka gjald og beita öðrum hagrænum hvötum til að draga úr mengun. Það virðist hins vegar ekki verða gert í þessu máli, nema með skýrum lagaheimildum frá Alþingi,“ segir Helgi. Í lögum um gróðurhúsaloftteg- undir segir að taka megi gjöld sem standi straum af kostnaði við að halda utan um kerfið og bendir Helgi á að hvergi séu hins vegar heimildir til að taka gjöld fyrir eru ansi langt úti í framtíðinni. Það verkefni blasir við mönnum að setja sér áfanga í því að draga úr mengun og skýra áætlun um það hvernig við ætlum að gera það. Við vitum að öflugasta tækið til þess er að láta menn finna fyrir því í veskinu; með gjöldum á mengun og hvötum til að nota ómengandi lausnir.“ Erfitt að segja til um stefnu stjórnvalda Fimm stóriðjufyrirtæki fengu á fimmtudag í sl. viku úthlutað alls 8,6 milljónum tonna kvóta til los- unar gróðurhúsalofttegunda. Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varafor- maður umhverfisnefndar, segir margt framundan í þessum mál- um. „Við erum að horfa á tímabilið til 2012 og það að margir hafa áhuga á því að reisa hér orkufrek- an iðnað. Það getur vel farið svo að það endi með að við verðum að kaupa kvóta til landsins. Það kem- ur vel til greina,“ segir Kjartan. Hann segir margt vera að fara í gang og erfitt að segja til um hvaða stefna verði tekin. „Það má kannski segja að stjórnvöld séu ekki búin að ganga frá því ná- kvæmlega, en það verður spenn- andi á næsta ári að sjá hvernig þessi mál þróast.“ „Ber vott um mikla deyfð“ Heimildir Alcoa á Reyðarfirði fékk úthlutaðan 2,5 milljóna tonna kvóta. Skýrar lagaheimildir frá Alþingi þarf til að setja gjöld á heimildir til að losa gróðurhúsalofttegundir Morgunblaðið/Helgi Garðars Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is NÝ gerð nafnskírteina og ríkisnet- fang til handa almenningi gætu auðveldað upptöku rafrænnar þjónustu og lagt grunn að örugg- ara rafrænu samfélagi, að því fram kemur í nýju fjárlagafrumvarpi. Þar er kveðið á um sérstakar fjár- veitingar til verkefna sem tengjast þessu. Gert er ráð fyrir að fimm milljónir króna renni á næsta ári í tilraunarekstur ríkisnetfangaþjón- ustu og sjö milljónir fari í að breyta gerð nafnskírteina en hvorttveggja heyrir undir Þjóð- skrá. Skúli Guðmundsson, skrifstofu- stjóri Þjóðskrár, segir verkefnin tengjast rafvæðingu þjóðskrár sem nú standi yfir, en Þjóðskrá vinni að því að koma sem mestu af gagnasafni sínu yfir á rafrænt form. Hann segir að kæmust rík- isnetföng í gagnið myndu einstak- lingar geta fengið eitt varanlegt ríkisnetfang. Fólk gæti þá átt í rafrænum samskiptum með örugg- ari hætti en almenn notkun kenni- talna er í dag. „Þetta er tilraun og getur orðið spennandi að sjá hvort það sé hægt að koma á gagnvirk- ari samskiptum milli borgaranna og ríkisins, til dæmis um vefgátt eins og island.is og væntanlegt rafrænt þjónustulag hins opin- bera,“ segir hann. Vitaskuld haldi kennitölur áfram að vera í notkun í samfélaginu. Skúli segir að enn eigi eftir að útfæra hugmyndina nánar. Hann kveðst ekki þekkja til þess að rík- isnetföng séu notuð í öðrum lönd- um en smæðin hér á landi verði ef til vill til þess að auðvelda slíkt fyrirkomulag. Hvað ný nafnskír- teini varðar er hugmyndin sú að þau verði gefin út samkvæmt al- þjóðlegum öryggisstöðlum, inni- haldi nándarörgjörva svipað og vegabréf og verði með sömu upp- lýsingum. Því geti skírteinin nýst sem ferðaskilríki innan Schengen- svæðisins. Skúli bendir á að hin hefðbundnu nafnskírteini séu ára- tugagömul og lítið notuð núorðið. Breytt form kortanna myndi að líkindum verða til þess að margir sæju sér hag í að nota þau. Ríkisnetföng að veruleika? Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Nýir stakir jakkar Framhaldsskólanemar með ADHD ADHD samtökin halda fræðslufund í Safnaðarheimili Háteigskirkju fimmtudag 4. október kl. 20. Fyrirlesari er Sigrún Harðardóttir, kennari, félagsráðgjafi og námsráðgjafi í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Allir velkomnir. M b l 9 17 60 1 Stofnfjáreigendafundur hjá Byr-sparisjóði verður haldinn í dag 3. október á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14.00. Á fundinum verður lögð fram tillaga um sameiningu Byrs-sparisjóðs og Sparisjóðs Kópavogs Sparisjóðsstjórn. Stofnfjáreigendafundur hjá BYR-sparisjóði í dag „HJÚKRUNARFRÆÐINGUR framtíðarinnar í fararbroddi“ er yf- irskrift þings Evrópusamtaka hjúkr- unarforstjóra, sem haldið er í Reykjavík dagana 3.-5. október. Þingið er hið áttunda sem samtökin halda, en þau eru haldin annað hvert ár, nú í fyrsta skipti hér á landi. Þingið sækja hjúkrunarstjórnendur frá 25 Evrópulöndum, alls um 260 manns. Fyrirlesarar eru bæði ís- lenskir og erlendir. Forseti þingsins er Anna Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á Landspít- ala. Á þinginu verður m.a. fjallað um menntunarmál hjúkrunarfræðinga og flytur Anne Lekeux, varaforseti Sambands hjúkrunarkennara í Evr- ópu, einn aðalfyrirlesturinn. Einnig flytur Harriet Feldman, deildarfor- seti hjúkrunarfræðideilar Page Uni- versity í New York, aðalerindi. Mörg áhugaverð erindi á þinginu fjalla um nauðsyn þess að hjúkrunarfræðing- ar taki þátt í stefnumótun og skipu- lagningu heilbrigðisþjónustunnar. Mannekla í hjúkrun er eitt undir- þema þingsins. Þingið verður haldið á Grand Hót- el og hefst í dag, miðvikudaginn 3. október kl. 09.00. Hjúkrunar- fræðingar funda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.