Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Málflutningur Valgerðar Sverr-isdóttur, fyrrverandi utanrík- isráðherra, í umræðum um stefnu- ræðu forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöldi var á köflum stórbrotinn.     Fyrrverandi utanríkisráðherraveittist að eftirmanni sínum, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyr- ir það að kalla heim þann starfs- mann frá Írak, sem Valgerður sendi þangað.     Röksemdafærslafyrrverandi utanríkisráðherra var í stuttu máli á þann veg að þessi ákvörðun sýndi að núverandi utan- ríkisráðherra vildi ekki taka neinn þátt í uppbygging- arstarfi í Írak!     Hversu langt er hægt að ganga ísvona vitleysu á Alþingi Íslend- inga?     Sá íslenzki starfsmaður, sem Val-gerður Sverrisdóttir sendi til Íraks var samkvæmt yfirlýsingu ut- anríkisráðuneytis á þeim tíma send- ur til hins svonefnda græna svæðis í Bagdað og átti þar með að vera óhultur.     Að vísu kom í ljós eins og búastmátti við að skömmu síðar urðu miklar sprengingar innan græna svæðisins sem sýndu að þar var eng- inn óhultur.     Utanríkisráðuneyti ValgerðarSverrisdóttur datt greinilega ekki í hug að það gæti gerzt. Fylgj- ast þeir ekki með á þeim bæ?     Vill nú ekki Valgerður Sverr-isdóttir upplýsa hvaða uppbygg- ingarstarf það er sem hinn íslenzki sendimaður hennar átti að vinna að á græna svæðinu í Bagdað! STAKSTEINAR Valgerður Sverrisdóttir Uppbygging á græna svæðinu! FRÉTTIR                      ! " #$    %&'  (  )                  *(!  + ,- .  & / 0    + -                        12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (        !       " # $ "        :  *$;< ##          !"   #  $% &   !   *! $$ ; *! % &' #"  #& #"  $ (" )( =2 =! =2 =! =2 %$"' #* + ,#-(.  >!-         /    '"  ( !)"  *   !  # $"+  *  =7  ,"* *-"  "  +!- !)" # . /   !  + =      .  " 0"*  1"" #   .  /0# #(11  ("#  #2 (  (#* + 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B 3 4 4  3 3 3 3 3 3  3  3 3 3 3  3  3  3  3 3  4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 2. okt. Nr. 135 Þingið var sett í gær með pomp og prakt og sú nýlunda tekin upp að bjóða mökum þing- manna með í setningu þingsins – sem er í senn smart og nútíma- legt … Hvort sem setning þingsins getur talist skemmtidagskrá eða ekki þá var hún í það minnsta með léttara móti núna … … fjármálafrumvarpið mun senni- lega kynda undir heitari umræðum þegar líður á vikuna. Meira: bryndisisfold.blog.is Kolbrún Baldursdóttir | 2. október Frístundakortin Kynna þarf frístunda- kortin mikið betur en gert hefur verið. Marg- ir tengja frístunda- kortin einna helst við íþróttafélögin en aðild- arfélög kortanna eru mýmörg og fjölbreytni þeirra mikil. Um er að ræða tónlistarskóla, kóra, dansfélög svo fátt eitt sé nefnt. ... Kópavogur og önnur sveitarfélög ættu að taka Reykjavík sér til fyr- irmyndar í þessum efnum hafi þau ekki þegar gert það. Meira: kolbrunb.blog.is Emil H. Valgeirsson | 2. október Álftanesflugvöllur Menn velta enn vöng- um um hugsanlega staðsetningu á nýjum flugvelli fyrir höf- uðborgarsvæðið. Nefndir hafa verið staðir eins og Hólms- heiði, Löngusker og Keflavík. Ég hef hins vegar ekki séð miklar vangaveltur um Álftanes... Ein- hvernveginn hef ég ekki mikla trú á að flugvöllur verði byggður í þok- unni á Hólmsheiði eða í briminu á Lönguskerjum... Meira: emilhannes.blog.is BLOG.IS BRÁÐAMÓTTAKA Landspítalans við Hringbraut hélt upp á 20 ára afmæli deildarinnar 1. október og að vanda litu margir við í býtibúrinu á afmælisdaginn. Um 70 manns starfa á mótttökunni og sem fyrr bökuðu þau kökur fyrir gesti og gangandi; sjúkraflutningamenn, lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, fyrrverandi starfsmenn og fleiri. „Þetta heppnaðist mjög vel,“ segir Anne Mette Pedersen, deildarstjóri, og sagði að vegna stórafmælisins hefði öll framkvæmdastjórn spítalans komið færandi hendi og gætt sér á góðgætinu. Morgunblaðið/RAX Bráðamóttakan 20 ára Ólína Þorvarðardóttir | 2. október Skottulækningar Pétur Tyrfingsson sál- fræðingur fór mikinn í Kastljósþætti sjón- varpsins í gærkvöldi. Umfjöllunarefnið var höfuðbeina- og spjald- hryggjarjöfnun sem hann kallar „skottulækningar“ og „hindurvitni“. Iðkendur þessarar meðferðar telja hana gagnlega við ýmsum kvillum, m.a. einhverfu. Kvöldið áður hafði verið talað við mann að nafni Stanley Robinson sem nú er staddur hér á landi til að kynna meðferðina. Einnig var rætt við móð- ur einhverfs barns sem sýndi bata- merki eftir slíka meðferð. Það sem virðist helst hafa farið fyrir brjóstið á Pétri Tyrfingssyni er grein Gunnars Gunnarssonar sál- fræðings þar sem hann mælir með höfuðbeina- og spjaldhryggjarjöfnun fyrir einhverfa. Röksemd Péturs er sú að rannsóknir skorti til þess að mæla með þessari meðferð eða heita árangri af henni og því geti sálfræð- ingur – sem telst til viðurkenndrar heilbrigðisstéttar – ekki mælt með slíkum aðferðum. Gott og vel. Pétur svaraði því hins- vegar ekki hvernig stendur á því að starfsfólk hinna svokölluðu „við- urkenndu“ læknavísinda – sálfræð- ingar þar á meðal – skuli taka við ein- hverfusjúklingum og veita þeim meðferð eða ráð af einhverju tagi þegar engar vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á „lækningu“ við þessum kvilla. … Hitt er svo annað mál – að þeir sem trúa staðfastlega á ágæti höfuðbeina- og spjaldhryggj- arjöfnunar ættu að afla sér rann- sóknarstyrkja til þess að sýna fram á gagnsemi meðferðarinnar. Þannig myndu þeir gera þessari meðferð og þeim sem hennar njóta gagn til fram- tíðar. … Sjálf hef ég tekið lýsi og birkiösku í fjölda ára. Engar vísindalegar sann- anir hafa sýnt fram á gagnsemi birki- öskunnar – en lýsið hefur verið rann- sakað að einhverju marki. Ef ég ætti að sleppa öðru hvoru myndi ég frek- ar sleppa lýsinu en birkiöskunni, ein- faldlega vegna þess að ég hef reynt það á sjálfri mér að mér verður meira um að hætta að taka hana en lýsið. Engar vísindalegar rannsóknir liggja til grundvallar þessari reynslu minni. Hún er sönn engu að síður – og þannig er um margt í veröldinni. Meira: olinathorv.blog.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Tryggingamiðstöðinni rúmar 130 milljónir króna vegna uppgjörs á verkkostnaði við endurbætur á hús- næði Þjóðminjasafnsins. Þar að auki var ríkinu gert að greiða TM þrjár milljónir í málskostnað. Aðkomu TM að málinu má rekja til þess að Kraftvaki, sem sá um 2. áfanga í endurbótum og stækkun á húsnæðinu og var með verktrygg- ingu hjá TM, sagði sig frá verkinu og gerðu Framkvæmdasýsla ríkisins og TM samning til að tryggja framgang verksins. TM tók að sér skyldur Kraftvaka varðandi stjórnun og samræmingu og réð utankomandi verktaka til að ljúka þeim verkþátt- um sem innifaldir voru í samningn- um. Framkvæmdasýsla ríkisins átti að greiða reikninga verktaka en TM taka á sig kostnað vegna stjórnunar, samræmingar og reksturs vinnu- staðar. Aðalkrafa TM var samþykkt og segir m.a. í niðurstöðu héraðsdóms að Framkvæmdasýsla ríkisins geti ekki firrt sig ábyrgð á þeim forsend- um að ekki hafi verið haft samráð við hana vegna tafa sem urðu og eftir- litsaðila hlaut að vera ljóst að verið var að gera samninga og ráða verk- taka í samræmi við samkomulag að- ila. „Þá átti ekki að fara fram hjá honum að verkið hafði tafist eða að stefnandi varð að gera nýja samn- inga vegna raflagna og terrassólagn- ar.“ Greta Baldursdóttir héraðsdóm- ari kvað upp dóminn ásamt með- dómsmönnunum Ásmundi Ingv- arssyni verkfræðingi og Vífli Oddssyni verkfræðingi. Jóhannes Karl Sveinsson hrl. sótti málið fyrir Tryggingamiðstöðina og Heiðar Ás- berg Atlason hdl. var lögmaður ís- lenska ríkisins. Ríkið greiði TM 130 milljónir kr. Morgunblaðið/Golli Endurbætur Mikil vinna var við Þjóðminjasafnið við Hringbraut. Tilkomið vegna uppgjörs á verkkostnaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.