Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING HÓPUR kín- verskra hljóð- færaleikara og söngvara frá borginni Wuhan í Kína leika á tón- leikum í Salnum í kvöld og á föstudag kl 20. Hópurinn hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og spilað um víða ver- öld, allt frá Norður-Kóreu til Ungverjalands til Venesúela. Um er að ræða Þjóðlagahljómsveit Söngleikja- og dansstofnunar Wuhan, sem um árabil hefur unnið að varðveislu hefðbundinnar al- þýðutónlistar og frumflutt ný verk. Hópurinn mun flytja hefðbundna og nýja kínverska tónlist, sem og spreyta sig á íslenskri tónlist. Tónlist Kínverskir gestir í Salnum Hljóðfæraleikarar frá Wuhan. Á FYRSTU háskólatónleikum skólaársins sem fram fara í dag kl. 12.30 flytja Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir, Páll Palom- ares, Svava Bernharðsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir eitt vinsælasta og mest leikna verk tónbókmenntanna: Píanó- kvintett í A-dúr, ópus 81 eftir Dvorák. Verkið var frumflutt árið 1888 í Rudolphinum- salnum í Prag og gefið út sama ár í Berlín. Stein- unni Birnu hefur hlotnast sá heiður að flytja verk- ið í Prag að viku liðinni, ásamt Virtuosi di Praga. Tónleikarnir í dag fara fram í hátíðarsal HÍ. Tónlist Píanókvintett á háskólatónleikum Steinunn Birna Ragnarsdóttir HJÁ Sævari Karli stendur yfir sýning á málverkum Karl Jó- hanns Jónssonar, sem nefnist Sviðsett dagbók. Í frétta- tilkynningu segir að myndir Karls séu í raun hugleiðing um málarahefðina sjálfa, stundum með óbeinum tilvísunum í ýmsa listamenn - hugleiðing um myndefni sem búið sé að endurtaka það oft, að þau séu jafnvel hætt að vera klisja. Þessum margendurteknu viðfangsefnum er flétt- að við hugleiðingar um hversdagslega hluti á borð við heimilið og eigin vinnu. Málverkin verða í raun að sviðsettri dagbók. Sýningin stendur til 20. okt. Myndlist Sviðsett dagbók hjá Sævari Karli Karl Jóhann Jónsson TJÖLDIN eru fallin hinsta sinni á óperustjörnuna Angelu Gheorghiu – að minnsta kosti í Chicago-óperunni – Chicago Lyric. Þar átti Gheorghiu að syngja hlutverk Mímíar í óperunni La boheme; frumsýning var á mánu- dagskvöld, og var það jafnframt fyrsta frumsýning starfsársins. Áður en að frumsýningu kom, komst prímadonnan að því að Chicago- óperan ætlast til þess af fagfólki sínu, að það hegði sér fagmannlega og fyrir að standast ekki þær kröfur var hún rekin. Skýr brot á starfssamningi Óperustjórinn, William Mason sagði í fréttatilkynningu í gær: „Ghe- orghiu hefur skrópað á sex af tíu æf- ingum, þar á meðal bæði á aðalæfingu með píanóleikara og aðalsviðsæfingu með hljómsveitinni. Hún skrópaði á einni mikilvægustu sviðsæfingu með hljómsveitinni þegar hún fór í óleyfi til New York en það voru skýr brot á starfssamningi hennar.“ Að sögn talsmanns óperuhússins skrópaði Gheorghiu einnig þegar hún átti að máta nýja búninga sem höfðu þó verið saumaðir sérstaklega fyrir hana að hennar kröfu. Óperustjórinn sagði í tilkynningu sinni að með hegðuninni hefði Angela Gheorghiu sýnt Chicago-óperunni, dyggu starfsfólki hennar og sam- söngvurum algjöra fyrirlitningu. „Hefðum við haldið áfram að eltast við tiktúrurnar í henni hefði það verið á kostnað okkar allra annarra starfs- manna hússins.“ Elaine Alvarez heitir hins vegar sú sem leysti prímadonnuna frægu af hólmi og er það í fyrsta sinn sem hún syngur við húsið. Síðast urðu læti í Chicago-óperunni vegna brott- rekstrar árið 1989 þegar Luciano Pavarotti var látinn taka pokann sinn fyrir að forfallast einum of oft. Angela Gheorg- hiu þótti við upp- haf ferils síns fyr- ir rúmum áratug ein mesta von- arstjarna óp- erunnar. Þegar hún giftist ten- órsöngvaranum Roberto Alagna var parið tekið í stjörnutölu, því hann þótti ekki síður góður. Mikil mark- aðssetning var í kringum parið og óp- eruhús kepptust um að fá þau til að syngja saman á sviði. Í dag er parið hins vegar betur þekkt fyrir stjörnustæla og almenn leiðindi sem lítið hafa með óperul- istina að gera og er þess skemmst að minnast þegar Alagna gekk á dyr í Scala-óperunni í fyrra í miðri sýningu þegar áheyrendur bauluðu á hann. Hann var rekinn með það sama og hótaði því sjálfur að syngja aldrei aft- ur í Scala-óperunni. Í tilkynningu sem Angela Gheorg- hiu sendi frá sér um brottrekstur sinn sagði hún: „Roberto, maðurinn minn, er að syngja tvö stór hlutverk í Metropolitan-óperunni. Ég bað um að fá að fara til New York í tvo daga en fékk neitun. Sjálf hef ég sungið mörg hundruð sinnum í La boheme og það var enginn skaði skeður þótt ég mætti ekki á æfingar.“ Angela Gheorghiu Gheorghiu rekin fyrir stjörnustæla Skrópaði á æfingum og stakk af til New York Roberto Alagna Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „Í MAÍ á næsta ári eru fjörutíu ár síðan ég fyrsti pistillinn minn um ljósmyndun birtist opinberlega, í vikuritinu Village Voice í New York. Í þessum fjörutíu mínútna fyrirlestri ætla ég að fjalla um allt sem ég hef skrifað á þessum fjöru- tíu árum!“ Greinahöfundurinn og gagnrýn- andinn A.D. Coleman hlær stríðn- islega eftir að hafa skilgreint fyr- irlesturinn sem hann heldur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi í kvöld. Vitaskuld er ekki nokkur leið að pakka inn í eina tölu öllu því sem hann hefur fjallað um í greinum sínum og bókum á þessum langa tíma. Bækurnar eru orðnar átta talsins, og þar á meðal rómuð greinasöfn um ljósmyndun og stöðu miðilsins í samfélaginu og menningunni. Birtar greinar Co- lemans eru fleiri en 2.000 og hafa birst í miðlum á borð við New York Times, New York Observer, ART- news, Artforum og Village Voice. Hann hefur kennt víða, meðal ann- ars verið gesta-fræðimaður hjá Getty-safninu og Fulbrightstofnun og þá hefur hann verið á lista tíma- ritsins American Photo yfir 100 áhrifamestu einstaklinga ljós- myndaheimsins. Frá árinu 1995 hefur Coleman verið útgefandi veftímaritsins The Nearby Cafe, þar sem hann birtir reglulega fréttabréf sitt, C: The Speed of Light. Þá stýrir hann stærsta gagnasafninu á Netinu með greinum um ljósmyndun, The Pho- tography Criticism CyberArchive. Líflegt, skemmtilegt, ögrandi Coleman er nýlentur á landinu og sýpur á kaffi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur; reynir að hrista ferða- rykið af hugsununum. „Ég kalla fyrirlesturinn Fyrsta persóna eintala: Að uppgötva sjálf- an mig sem ljósmyndagagnrýn- anda. Ég ætla að fara yfir vegferð mína og helstu áhersluatriði og vonast síðan til að fá sem mest af spurningum frá áheyrendum. Ég vona að það verði líflegt, skemmti- legt – og jafnvel ögrandi. Ég reyni að vera upplýsandi og skemmti- legur í senn – þótt mér takist kannski ekki að pakka ljós- myndasögu 40 ára allri í stuttan fyrirlestur.“ – Eftir að hafa lesið skrif þín í mörg ár, þá hef ég stundum undr- ast að það er eins og allar hliðar ljósmyndunar veki áhuga þinn; þú finnur ætíð fleti að fjalla um. „Já og nei. Linsan sem menning- arlegt fyrirbæri er áhugaverð. Ég hef skrifað talsvert um það, jafnvel um notkun á linsunni fyrir daga ljósmyndunar og áhrif hennar á vestræna menningu. Ljósmyndun sem tækni og áhrif hennar á menn- inguna vekur líka áhuga minn. Ef þú nálgast ljósmyndun sem menn- ingarlegt tæki, sem hefur áhrif á umhverfi sitt, þá má nálgast fyr- irbærið í gegnum nánast hvaða ljós- mynd sem er. Ég hef hins vegar minni áhuga á tísku-, auglýsinga-, iðnaðar- og vísindaljósmyndun en á heimildaljósmyndun, fótó- journalisma og skapandi, listrænni ljósmyndun. Ég hef meiri áhuga á ljósmyndun sem ber með sér per- sónuleg einkenni eða hugmyndir ljósmyndarans. Jafnvel þótt ljós- myndarinn reyni að bæla þau ein- kenni, eins og lengi vel var málið í heimildaljósmyndun og fótó- journalisma. Á þessum sviðum er aðalatriðið að hafa bein samskipti, að upplýsa, frekar en að selja eitt- hvað.“ – Þar sem skaparinn hefur skoð- un á því sem hann ljósmyndar. „Já, hefur skoðun, og er ekki að mynda af markaðslegum ástæðum. Eins og er raunin í tísku- og aug- lýsingaljósmyndun. Ég er ekki að dæma þessi svið miðilsins sem eitt- hvað ómerkilegri. Það má rannsaka vestræna menningu gegnum það að greina samskiptatæknina sem þróast hjá textahöfundum í auglýs- ingageiranum. Það er fullkomlega lögmætt viðfangsefni – þótt það höfði ekki eins til mín,“ segir Co- leman og brosir. „Ég bregst miklu sterkar við efni, í hvaða miðli sem það er, þar sem ég greini persónulega rödd. Þar sem er hreint sjónarhorn ein- hvers sem hefur eitthvað að segja. Ef ég yrði að velja eitt eða tvö ljósmyndaprent, að taka með mér á eyðieyju, myndu það vera meist- araleg handgerð prent eftir ljós- myndara á borð við W. Eugene- Smith eða Minor White. Ekki Bec- ker eða Gursky – þótt ég geti skilið, að vissu leyti, hvað gerir verk þeirra svo verðmæt.“ Coleman og Ragnar Axelsson ljósmyndari taka nú að ræða af mikill ástríðu um Smith, sem virðist vera eftirlætisljósmyndari þeirra beggja, og gerði jafnframt einstök prent af myndum sínum. Einungis nokkrir epíkerar „Fyrir mér er ljósmyndun full af lýrískum skáldum en einungis nokkrir epíkerar; Eugene-Smith er eitt af epísku skáldunum. Það er ekki endilega betra en það er erf- iðara að vera epískt skáld. Það er erfiðara að vera Homer en Dylan Thomas. Án þess að leggja nokkuð fagurfræðilegt mat á afraksturinn. Ég minntist líka á Minor White, sem er ekki epískur ljósmyndari eins og Smith en hafði samt mikill áhuga á hinum stærri formum. Takmarkaði sig ekki við stakar myndir. Og ekki má gleyma Robert Frank! Hann er í grunninn lýrískt skáld en varð epískur, við úrvinnslu mynda sinna í bókinni The Americ- ans og síðar The Lines of my Hand. Það er ekki bara hvernig þú tekur stakar myndir, heldur hvernig þú hugsar um þær í heildrænu sam- hengi, og yfirlýsingarnar sem þú vilt gefa með myndunum.“ Fyrirlestur A.D. Colemans er í sýningarsal Ljósmyndasafns Reykjavíkur, á 6. hæð í Grófarhúsi og hefst klukkan 20 í kvöld. A.D. Coleman, einn þekktasti ljósmyndarýnir samtímans, flytur fyrirlestur í kvöld Ljósmyndun og lýrísk skáld Morgunblaðið/RAX A.D. Coleman „Ef ég yrði að velja eitt eða tvö ljósmyndaprent, að taka með mér á eyðieyju, myndu það vera meist- araleg handgerð prent eftir ljósmyndara á borð við W. Eugene-Smith eða Minor White. Ekki Becker eða Gursky - þótt ég geti skilið hvað gerir verk þeirra verðmæt.“ Hefur skrifað yfir 2.000 greinar Í HNOTSKURN » Á fjörutíu ára ferli hefurA.D. Coleman skrifað yfir 2.000 greinar um ljósmyndun í dagblöð og tímarit. Hann gef- ur út nettímarit og ritstýrir greinasafni um ljósmyndun á Netinu. » Fyrirlestur Colemans íLjósmyndasafni Reykja- víkur fjallar m.a. um það hvernig dæma megi ljós- myndir og hver sé munurinn á gagnrýni og umfjöllun. »Coleman segir marga lýr-íska ljósmyndara til en ein- ungis fáa epíska, eins og Eu- gene-Smith. TENGLAR .............................................. www.nearbycafe.com www.photocriticism.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.