Morgunblaðið - 03.10.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 31
Atvinnuauglýsingar
Starfsfólk óskast
BabySam óskar eftir starfsfólki í verslanir sínar
í Skeifunni og Smáralind. Reynsla við af-
greiðslu og/eða verslun æskileg.
Sendið umsóknir á babysam@babysam.is .
Símsvörun / tölvur
RE/MAX Lind, fasteignasala, óskar eftir starfskrafti
í fullt starf við símsvörun og létt skrifstofustörf.
Sérlega góð tölvukunnátta skilyrði.
Sendið umsóknir og starfsferilsskrár á
axel@remax.is
Grandaskóli
við Keilugranda
óskar eftir starfsmanni til að hafa umsjón með
kaffistofu starfsfólks. Starfshlutfall 75 - 80%
Upplýsingar veittar í síma 561 1400 eða í
tölvupósti borkur@grandaskoli.is eða
inga@grandaskoli.is
Veffang : http://www.grandaskoli.is
Frá Klébergsskóla
Kjalarnesi
Vegna forfalla vantar okkur kennara í
sérkennslu.
Um er að ræða 60% starf, en til greina
kemur að ráða í hærra stöðuhlutfall.
Umsóknarfrestur er til 12. október 2007.
Upplýsingar veita Björgvin Þór Þórhallsson,
skólastjóri, netfang bjorgvinthor@klebergs-
skoli.is (gsm: 6648270) og Snorri Hauksson,
aðstoðarskólastjóri, netfang snorrih@klebergs-
skoli.is. Eða í síma 566-6083.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Hafnarfirði
Aðalfundur
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
er boðaður í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29,
miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20:00.
Dagskrá
1. Hefðbundin aðalfundarstörf.
2. Tillaga nefndar um framtíðarhúsnæði
sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði.
3. Önnur mál.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Listmunir
Listmunauppboð
Næsta listmunauppboð verður haldið
14. október. Erum að taka á móti verkum í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg og getum bætt
við góðum listaverkum.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400.
Nauðungarsala
Uppboð
Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Austurmörk 24,
Hveragerði, fimmtudaginn 11. október 2007 kl. 15:00:
Byggingarréttur samkv. samningi við Hveragerðisbæ, dags.
24. október 2005 á lóð nr. 24 við Austurmörk, Hveragerði.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
2. október 2007.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Tilboð/Útboð
14334 - Auglýsing eftir húsnæði fyrir
vínbúð í Reykjanesbæ
Ríkiskaup, fh. Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins,
óska eftir húsnæði á leigu fyrir vínbúð í Reykja-
nesbæ, á bilinu 350-450 fermetra á jarðhæð.
Húsnæði þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
1. Vera á skilgreindu miðbæjarsvæði í
aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
2. Vera á jarðhæð og á bilinu 350-450 fermetrar.
3. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum
sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnar-
aðilar gera til slíks og samþykkt af þeim.
4. Góð aðkoma fyrir viðskiptavini og næg
bílastæði fyrir þá.
5. Góð aðkoma fyrir flutningabíla með vörur og
vörulyftara.
6. Sérstaklega er lögð áhersla á meðal annars
gott aðgengi hreyfihamlaða, birtulýsingu (500-
600 lux) og hljóðdempun í verslun ásamt góðri
aðstöðu starfsfólks.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það hús-
næði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til
skrifstofu Ríkiskaupa, Borgatúni 7, 105 Reykjavík
fyrir 18. október 2007.
Merkt : 14334 - Leiga á húsnæði fyrir Á.T.V.R.
í Reykjanesbæ.
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftir-
farandi:
1. Staðsetningu.
2. Teikningar af húsnæði.
3. Afhendingartíma.
4. Ástand húsnæðis við afhendingu.
5. Leiguverð á fermetra með virðisaukaskatti.
Í leiguverðinu skal vera tilgreindur allur kostn-
aður sem til fellur.
6. Leigutími.
Tilkynningar
Auglýsing
um breytingu á deiliskipulagi í landi
Kross (1. áfangi) Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 25 gr. Skipulags-og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að breytingu á deili-
skipulagi í Krosslandi (1. áfangi) Hvalfjarðar-
sveitar.
Tillagan felur í sér breytingu á lóð Fögruvalla 1,
þar sem lóðinni er skipt upp í tvær lóðir með
heimild til þess að byggja tvö 2. hæða fjölbýlis-
hús með allt að 28 íbúðum í stað eins húss á
einni lóð með 26 íbúðum. Bílastæði verða á lóð
og heimild til byggingar bílgeymslu fellur
niður. Aðkomu að lóðum Fögruvalla 1 – 4
verður ein í stað tveggja áður.
Tillagan ásamt byggingar og skipulags-
skilmálum liggur frammi á skrifstofu skipulags-
og byggingarulltrúa Hvalfjarðarsveitar,
Miðgarði, frá 3.10. til 1.11. 2007 milli 10:00 –
12:00 daglega.
Athugasemdum skal skila á sama stað fyrir
15.11. 2007 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan til-
greinds frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar.
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi
Skaftárhrepps 2002 - 2014
Sveitarstjórn Skaftárhrepps samþykkti á fundi
sínum 20. ágúst 2007 að auglýsa til kynningar
eftirfarandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi
Skaftárhrepps 2002 - 2014 samkv. 1. málsgrein
18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr 73/1997
með síðari breytingum:
Skaftárhreppur – Aðalskipulag 2002-2014.
Breyting á aðalskipulagi í landi Dalshöfða.
Í breytingartillögunni felst að gert er ráð fyrir
allt að 2,5 MW vatnsaflsvirkjun í Hverfisfljóti
við Hnútu í landi Dalshöfða. Landnotkun við
fyrirhugaða virkjun breytist úr óbyggðu svæði í
Iðnaðarsvæði ( I2) sem verður 5 ha að stærð.
Virkjunin felur í sér gerð stíflu og inntaksmann-
virkja, lagningu þrýstipípu, byggingu stöðvar-
húss og gerð frárennslisskurðar frá stöðvar-
húsi út í Hverfisfljót. Nýr 7 km vegaslóði verður
lagður í austurjaðri Skaftáreldahrauns frá
heimreið Dalshöfða að stöðvarhúsi og mun
vegurinn þvera Hverfisfljót með brú skammt
suðvestur af Dalshöfða.
Skipulagsuppdráttur með greinargerð ásamt
umhverfisskýrslu ”Umhverfismat breyt-
ingar á aðalskipulagi í landi Dalshöfða í
Skaftárhreppi” og umsögnum Umhverfis-
stofnunar dags 3. júlí 2007, Fornleifaverndar
ríkisins dags 22. maí 2007, Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, dags. 23. maí 2007, Orkustofnunar,
dags. 30. nóvember 2006 og 21. maí 2007 ,
Landgræðslu ríkisins dags. 7. júní 2007 og
Landsnets/ Rarik, dags. 11. júní og 12 júní 2007,
munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu
Skaftárhrepps, Klausturvegi 15 á Kirkjubæjar-
klaustri og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi
166 Reykjavík frá 3. október 2007 til 31. október
2007.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við breytingartillöguna. Athugasemdum skal
skila á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi
15, 880 Kirkjubæjarklaustur í síðasta lagi 14.
nóvember 2007 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breyting-
artillöguna innan tilskilins frests teljast
samþykkir henni.
Skipulags- og byggingar-
fulltrúi Skaftárhrepps.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri þriðjudaginn 9. október 2007 kl. 14:00
Þrúðvangur 36, Rangárþing ytra, fnr.226-8821, þingl. eig. Hendrik Ole
Tausen, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Reykjavíkur
og nágr.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
2. október 2007.
Kjartan Þorkelsson, sýslumaður.
Félagslíf
I.O.O.F. 9 188100371/2 Rk
I.O.O.F. 7. 1881037½
I.O.O.F. 18 1881038 Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
GLITNIR 6007100319 I Fjhst.
Raðauglýsingar • augl@mbl.is