Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Shoot’em Up kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8 - 10:30
Vacancy kl. 10:40 B.i. 14 ára
Knocked Up kl. 5:20 - 8 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45
SuperBad kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Chuck and Larry kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Hairspray kl. 6
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 6
Sími 564 0000Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Sími 551 9000
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA
eeee
- S.V., MBL
eeee
- R.H., FBL
- Kauptu bíómiðann á netinu -
- T.V., kVikmyndir.is
eeee
- r.V.E., FréTTablaðið
eeee
- s.V., morgunblaðið
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
55.000
G
ESTIR
Dagskrá og miðasala á
WWW.RIFF.IS
HVERSU LANGT MYNDIRU GANGA
FYRIR BESTA VIN ÞINN?
Frá gaurnum sem færði okkur The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
Engin fortíð,
Engu að tapa
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Ver
ð aðeins
600 kr.
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eee
„Stórskemmtileg og snar-
brjáluð hasarmynd þar sem
aldrei er langt í húmorinn.“
t.V. Kvikmyndir.is
eee
- J.I.S., Film.is
eee
„Skotheld skemmtun“
- T.S.K., Blaðið
Vinsælasta kvikmyndin
á íslandi í dag
“Skylduáhorf fyrir alla unglinga”
- Dóri DNA, DV
„Sprenghlægileg...“
Jóhannes Árnason, Monitor.
90 af 100
„Illa góðir á því“
- Dóri DNA, DV
- J.I.S., FILM.IS
eee
- L.I.B., Topp5.is
ÞAÐ sem er svo stórkostlegthér á landi eru öll þessiopnu svæði. Svo er himinn-inn og birtan stöðugt að
breytast, landslagið hér er eins og
lifandi málverk fyrir mér. Maður
skynjar kraft náttúrunnar með mjög
áhrifaríkum hætti.“
Þannig lýsir Hanna Schygulla
fyrstu upplifun sinni af Íslandi en
hún kom hingað til lands á mánu-
dagskvöldið. Í gær fór hún svo í
stutt ferðalag um Suðurland og
heimsótti meðal annars Þingvelli,
Stokkseyri og Eyrarbakka. „Ég get
samt ekki borið nein þessara nafna
almennilega fram,“ segir hún og
hlær.
Schygulla hefur verið ein þekkt-
asta leikkona Þýskalands síðustu
áratugina en hún hefur leikið í
myndum eftir leikstjóra á borð við
Godard og Fassbinder. Þá er hún
margverðlaunuð og var til að mynda
valin besta leikkonan á kvik-
myndahátíðinni í Cannes árið 1983
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
The Story of Piera, auk þess sem
hún hlaut Silfurbjörninn í Berlín ár-
ið 1979 fyrir titilhlutverkið í mynd
Fassbinders, The Marriage of Maria
Braun.
Fyrirgefning syndanna
Nýjasta mynd Schygulla, Auf der
anderen Seite, eða Himinbrún, er
sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík um þessar mundir.
„Hún fjallar um ungan mann sem
tekst að glæða von í hjörtum manna
á miklum hörmungartímum,“ segir
Schygulla, og bætir því við að dauði
tveggja einstaklinga vegi þungt í
myndinni. „Hún fjallar líka um
hvernig fólki tekst að takast á við
þennan missi. Dauðinn er eitthvað
sem okkur finnst alltaf erfitt að tak-
ast á við, en það verður jafnvel enn
erfiðara þegar einhver deyr í kjölfar
ofbeldisverks. En ungi maðurinn í
myndinni tekst á við þetta með því
að fyrirgefa, í stað þess að verða bit-
ur.“
Schygulla segist ákaflega ánægð
með myndina enda hefur hún hlotið
einróma lof gagnrýnenda. „Þetta er
mjög mannleg mynd og hún gefur
manni von. En hún er um leið ákaf-
lega raunsæ og segir okkur margt
um þjóðfélagið sem við búum í.“
Mannlegar andstæður
Þótt Schygulla hafi leikið í miklum
fjölda kvikmynda um ævina er hún
trúlega þekktust fyrir samstarf sitt
við þýska leikstjórann Rainer Wer-
ner Fassbinder, en Fassbinder hafði
gríðarleg áhrif á þýska kvikmynda-
gerð á áttunda og níunda áratug síð-
ustu aldar, og gætir áhrifa hans
raunar enn.
Aðspurð segist Schygulla hafa
leikið í að minnsta kosti 20 myndum
Fassbinders. „Ég hef reyndar aldrei
talið þær því ég veit ekki hvað ég á
að telja með. Þarna á meðal eru
kvikmyndir, sjónvarpsmyndir og
fleira. En ég lék örugglega í um það
bil helmingi verka hans.“
En hvaða verk Fassbinders er í
mestu uppáhaldi hjá Schygulla?
„Það er mynd sem ég tók engan þátt
í,“ segir hún og hlær. „Myndin heitir
Fear Eats the Soul og er frá 1974.
En af þeim verkum sem ég lék í er
The Marriage of Maria Braun í
mestu uppáhaldi,“ segir Schygulla,
en umrædd mynd er ein vinsælasta
mynd Fassbinders, og um leið ein sú
aðgengilegasta.
Aðspurð segir Schygulla Fass-
binder hafa verið mjög sérstakan
mann. „Hann var öfgakenndasta
dæmi um mannlegar andstæður sem
ég hef nokkru sinni kynnst. Hann
gat verið blíður og ljúfur aðra stund-
ina en svo ótrúlega grimmur þá
næstu. En það gerði hann líklega að
þeim snillingi sem hann var,“ segir
hún. „Allar myndirnar hans eru líka
mjög dæmigerðar fyrir hann, en
samt eru þær allar svo ólíkar, sem er
auðvitað frekar sérstakt. Hann var
mikill uppreisnarmaður en reyndi
um leið að halda í glataðar hefðir.
Þannig að hann var maður mikilla
andstæðna.“
Áhugi á lífinu
Á morgun mun Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík,
afhenda Schygulla heiðursverðlaun
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík í ár fyrir ævistarf hennar
í þágu kvikmyndalistarinnar. Hún
segir þessi verðlaun vera mikinn
heiður. „Ég vildi náttúrlega að ég
væri að fá verðlaun sem besti nýlið-
inn því það myndi þýða að ég ætti
allt lífið framundan,“ segir hún og
hlær. „En það er vissulega gott að
Einbeitir sér að augnablikinu
Náttúra Schygulla ferðaðist um Suðurland í gær og heimsótti meðal annars Stokkseyri og Eyrarbakka.
Þýska söng- og leikkonan Hanna Schygulla
hlýtur heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Reykjavík í ár fyrir ævistarf
í þágu kvikmyndalistarinnar. Nýjasta mynd
leikkonunnar, Himinbrún, er sýnd á RIFF um
þessar mundir, auk þess sem hún mun koma
fram á tónleikum á NASA á morgun. Jóhann
Bjarni Kolbeinsson hitti Schygulla og ræddi
við hana um leiklistina, sönginn og fleira.