Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 41

Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2007 41 WWW.SAMBIO.IS / KEFLAVÍK / SELFOSSI CHUCK AND LARRY kl. 10 B.i. 12 ára SHOOT'EM UP kl. 8 B.i. 16 ára VACANCY kl. 10 B.i. 16 ára LICENSE TO WED kl. 8 LEYFÐ / AKUREYRI NO RESERVATIONS kl. 8 - 10 LEYFÐ 3:10 TO YUMA kl. 8 - 10 B.i. 16 ára BRATZ kl. 6 LEYFÐ ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 6 LEYFÐ DISTURBIA kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára KNOCKED UP kl. 10:10 B.i. 14 ára VEÐRAMÓT kl. 8 B.i. 14 ára HVERSU LANGT MYNDIRU GANGA FYRIR BESTA VIN ÞINN? SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS eeee – KVIKMYNDIR.IS eee – L.I.B TOPP5.IS SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI YFIR 40.000 MANNS SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK eeee - E.E., DV eeee - S.V., MBL SÝND Á SELFOSSISÝND Á SELFOSSI eeee - JIS, FILM.IS eeee - A.S, MBL eeee - RÁS 2 SÝND Á AKUREYRI SÝND Í KEFLAVÍK BOÐIÐ verður upp á bílabíó á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í kvöld í flugskýli 885 á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Kvikmyndin American Graffiti verður sýnd. Með því að sýna myndina í flugskýlinu er nær tryggt að sýningin geti farið fram þótt veður verði válynd. Flatarmál skemmunnar er slíkt að 1500 bílar rúmast auðveldlega þar inn- andyra – enda er skýlið stærsta bygging lands- ins. Kvikmyndin American Graffiti (1973) eftir George Lucas gerist árið 1962 og segir af fjór- um vinum sem ákveða að rúnta um bæinn og njóta lífsins til fulls síðasta kvöld sumarsins – síðasta kvöldið áður en þeir halda hver í sína áttina í háskóla. Aðgangseyrir í bílabíóið er 1000 krónur á bíl. Miðasala stendur yfir á www.midi.is og í upplýsingamiðstöð hátíðarinnar á Hressó. Bílabíó í kvöld Kunsten at græde i kor - Listin að gráta í kór RIFF 2007: Tjarnarbíó, Háskólabíó, Regnboginn.  Leikstjóri: Peter Schønau Fog. Aðalleik- arar: Jannik Lorenzen, Jesper Asholt, Ju- lie Kolbeck. 106 mín. Danmörk. 2006. heiman og dóttirin þarf að „hugga“ föð- ur sinn í grátköstunum. Þegar hún er sett á hæli tekur Allan litli við hlutverki systurinnar og gerir sér grein fyrir því hvers eðlis það er og segir frá. Kynferðisleg misnotkun á börnum og sifjaspell eru vandmeðfarið umfjöll- unarefni sem Fog nálgast á óvenju- legan hátt. Listin að gráta í kór (nafnið er dregið af þeim sérhæfileikum mjólk- urmannsins að flytja svo átakanleg minningarorð í jarðarförum að við- staddir bresta í grát) er þrátt fyrir andstyggilegt efnið frekar tragikómed- ía en harmleikur. Með því móti fyllir Fog áhorfandann enn meiri viðbjóði á gjörðum föðurómyndarinnar, sem As- holt leikur af óhugnanlegri nákvæmni. Lorenzen litli eykur áherzluna á alvöru málsins með eftirminnilegri túlkun á litlum og saklausum snáða sem vill ekki trúa neinu ljótu um hann pabba sinn – fyrr en um seinan. Útkoman er óaðl- aðandi en vel heppnuð mynd, gerð af dönsku umburðarlyndi og húmor um fyrirlitlega mannpersónu og sárin sem hún skilur eftir sig. ÞEGAR pabbi man ekki eftir því að hann ætlar að drepa sig gleymum við því líka og erum venjuleg fjölskylda. Á þessa leið lýsir sögumaðurinn All- an (Lorenzen) hörmungarástandinu á æskuheimilinu. Faðir hans, mjólk- ursalinn, vorkennir sjálfum sér eilíf- lega, móðirin er löngu kafsigld í af- neitun, eldri sonurinn er flúinn að Sæbjörn Valdimarsson Mjólkurpóst- urinn sem misnotaði börnin sín Sýnd í Tjarnarbíói 3., 5. og 7. október.Listin að gráta í kór „Útkoman er óaðlaðandi en vel heppnuð mynd,“ segir m.a í dómnum. Gildran - Klopka  Leikstjóri: Srdan Golubovic. Aðalleikarar: Nebjosa Glogovac, Natasa Ninkovic, Anica Dobra, Miki Manojlovic, Marko Djurovic. 106 mín. Serbía/Þýskaland/ Ungverjaland. 2007. FÓTUNUM er kippt undan lífi serb- nesku hjónanna Mladens (Glogovac) og Mariju (Ninkovic) þegar sonur þeirra Nemanja (Djurovic) greinist með alvarlegan hjartagalla. Trygg- ingar þeirra borga ekki aðgerðina. Bankinn neitar þeim brosandi um lán! Þeirra nánustu eru einfaldlega ekki nógu stöndugir. Í örvæntingu auglýs- ir Marija eftir hjálp og Mladen fær óhugnanlegt tilboð. Þetta snyrtilega unna sál- fræðidrama fjallar um misskipt- inguna sem ríkir nú í Belgrad. Spill- inguna og glæpastarfsemina sem grasserar allt í kringum venjulegt fólk. Myndin líður samt fyrir það hve framvindan virkar á köflum þvinguð og tilgerðarleg. Að sama skapi stuðla sumar endurtekningar, sem eiga að skapa tilfinningu fyrir innilok- unarkennd og vanlíðan aðalsöguhetj- unnar, að því að gera verkið líkara sjónvarps- eða leikhússtykki en kvik- mynd. Engu að síður er tilfinningahiti þarna og leikstjórinn hefur eitthvað að segja svo það verður gaman að sjá hvað kemur frá honum næst. Anna Sveinbjarnardóttir Sýnd í Tjarnarbíói 3., 5. og 7. októ- ber. Kvikmyndahátíð í Reykjavík Sófakynslóðin  Íslensk heimildarmynd. Leik- stjórn: Áslaug Einarsdóttir, Garð- ar Stefánsson. 35 mín. Ísland. 2007. HVER kynslóð á sér ein- staklinga sem finna hjá sér þörf til að gera uppreisn gegn gömlum hefðum. Oftast finna þeir sér farveg í stjórnmálum, allavega hafa flestar, umtals- verðar breytingar komið úr þeirri átt, og úr röðum um- svifamikilla kaupsýslumanna. Í Sófakynslóðinni er fjallað um ungt fólk sem hefur tekið þátt í almennt hávaðasömum mótmælum og verið með upp- steyt í kringum álverksmiðjur og virkjanaframkvæmdir sem er lokið eða eru á lokasprett- inum. Jafnframt er spurt hvort við hreiðrum ekki um okkur í sófanum og látum allt yfir okkur ganga. Það er mikið til í því. Ef við mótmælum gerum við það seint og illa á þann hátt að það nær ekki til fjöldans. Oft- ast látum við nægja að kvarta og kveina, hvert í sínu horni. Látum bjóða okkur að níðst er á landinu og við rænd og rupluð í hvert skipti sem við lyftum veskinu. Flestir leiða hjá sér há- vaðabelgi, bíða þess að þeir hljóðni og láta snakk misvitra „álitsgjafa“ sem vind um eyr- un þjóta. Þögul mótmæli vekja almennari virðingu og eru líklegri til árangurs. Hvað gerði Gandhi, hvernig og hversvegna berjast munk- arnir í Búrma um þessar mundir og á hvaða hátt hafa íslenskir „aktívistar“ stutt réttlætisbaráttu þeirra? Mótmæli geta verið beitt vopn ef þau fara fram á virð- ingarverðan hátt, annars draga þau dám af slæmu jafn- vægi, innibyrgðri heift sem krefst útrásar og athygl- issýki. Sæbjörn Valdimarsson Sýnd í Regnboganum 3. og 7. október. Immer nie am Meer / Forever Never Anyw- here  Leikstjóri: Antonin Svobod. Aðal- leikarar: Christoph Grissemann, Dirk Stermann, Heinz Strunk. 88 mín. Austurríki. 2007. ÞRÍR einstaklingar sitja inni- lokaðir í bíl eftir umferð- aróhapp. Tíminn líður og ástandið versnar með hverjum degi. Þremenningarnir eru ólíkir á flesta vegu, en hver og einn á við sálarflækjur að stríða og vandamál í einkalíf- inu sem brjótast upp á yf- irborðið í nekt þrengslanna. Nokkrar smellnar hug- myndir stinga upp kollinum í Sæbjörn Valdimarsson Sýnd í Regnboganum 3., 4. og 7. október. bland við aðrar og síðri sem hafa vinninginn, og myndin virkar ekki sem heild. Þáttur aðvífandi óknyttastráks hress- ir heldur betur upp á fram- vinduna og er virkilega for- vitnilegur vinkill en hann koðnar niður. Myndin heldur hvorki haus sem dæmisaga, myndlíking né gamanmynd, hráefnið er til staðar, innlok- aðra en fórnarlömbin í bílnum. Svobod getur gert margt vafa- samara en að fínpússa hug- myndina um ódáminn (leik- arinn er fundinn), sem stendur upp úr miðlungs tilraunastarf- semi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.