Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 44

Morgunblaðið - 03.10.2007, Side 44
Á Íslandi Schygulla heimsótti með- al annars Þingvelli í gær. ÞÝSKA leikkonan Hanna Schygulla er stödd hér á landi um þessar mundir en hún mun á morgun hljóta heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Reykjavík fyrir ævistarf í þágu kvikmyndalist- arinnar. Schygulla, sem er 63 ára og ein þekktasta leikkona Þýskalands, segir það mikinn heiður að fá þessi verðlaun. „Ég vildi náttúrlega að ég væri að fá verðlaun sem besti nýlið- inn því það myndi þýða að ég ætti allt lífið framundan,“ segir hún og hlær. „En það er vissulega gott að einhver taki eftir því sem maður er að gera, því oft tekur maður ekki eft- ir því sjálfur.“ Nýjasta mynd leikkonunnar, Himinbrún, er sýnd á RIFF um þessar mundir, en Schygulla er lík- legast þekktust fyrir samstarf sitt við þýska leikstjórann Rainer Wer- ner Fassbinder. „Hann var öfga- kenndasta dæmi um mannlegar and- stæður sem ég hef nokkru sinni kynnst,“ segir hún meðal annars um leikstjórann fræga. Á morgun ætlar Schygulla svo að gleðja landann með tónleikum á NASA, en þar mun hún flytja mörg af sínum uppáhaldslögum eftir tón- skáld á borð við Schubert, Mahler, John Lennon og Janis Joplin. | 38 Frá Mahler til Lennons MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 276. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Hækka afsláttinn  Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni í gær að stefnt væri að því að lækka skatta bæði á einstaklinga og fyrirtæki, m.a. að því að hækka persónuafslátt- inn og endurskoða skattkerfið og al- mannatryggingar til að bæta hag lág- og millitekjufólks. » Forsíða 1.700 óskráðir  Talið er að 1.700 erlendir verka- menn séu ekki rétt skráðir hér á landi. Félagsmálaráðuneytið hyggst ráðast í sérstakt átak til að ná til þessara aðila. Tekið verður af fullri hörku á fyrirtækjum sem brjóta reglur um skráningu og kjör. » 6 Fullsaddir foreldrar  Foreldrar barna í leikskólum í Grafarvogi standa að undir- skriftalista þar sem hvatt er til þess að launakjör leikskólakennara verði bætt og að fagfólk starfi með börn- um á leikskólum. » 4 Áhugalaus gestgjafi  Forseti Norður-Kóreu, Kim Jong- Il, tók óvænt á móti starfsbróður sínum í Suður-Kóreu, Roh Moo- Hyun, er sá síðarnefndi kom í heim- sókn í gær. Gert hafði verið ráð fyrir að næstráðandi einræðisherrans tæki á móti gestinum. Til þess var tekið að Kim virtist afar áhugalaus um gestinn og stökk vart bros við móttökuathöfnina. » 15 SKOÐANIR» Ljósvakinn: BBC-konan Staksteinar: Uppbygging á græna svæðinu Forystugrein: Umræður um stefnu- ræðu UMRÆÐAN» Á glapstigum Þvílíkt blessað sumar Óverjandi launamismunun Um Reykjavíkurbréf 30. september  4 4 4 4 4 4 4 4 4 5 " +6#% . #* + 7    ##3# $. # 4 4  4 4 4 4 4  4 4 - 8(1 %    4 4 4 4 4  4 9:;;<=> %?@=;>A7%BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA%8#8=EA< A:=%8#8=EA< %FA%8#8=EA< %2>%%A3#G=<A8> H<B<A%8?#H@A %9= @2=< 7@A7>%2*%>?<;< Heitast 14 °C | Kaldast 7 °C Suðlæg átt, 5-13 m/s, rigning sunnan- og vestanlands um há- degi en léttskýjað norðaustan til » 10 Mýrin, kvikmynd Baltasars Kormáks, verður framlag Ís- lands til bandarísku Óskarsverðlaunanna árið 2008. » 36 KVIKMYNDIR» Fær Mýrin Óskarinn? TÓNLIST» Sigur Rós spilar í Kaup- mannahöfn. » 39 Nokkrir meðlimir Baggalúts eru á leið- inni til Skotlands þar sem þeir ætla að borða og kynna sér sveppi. » 36 FÓLK» Baggar og sveppir TÓNLIST» Dr. Gunni spilar á DOMO í kvöld. » 36 FÓLK» Britney Spears er búin að missa forræðið. » 37 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Ást. fyrir forræðismissi Britney 2. Gillzenegger hleypur nakinn 3. Madeleine ekki borin sofandi út 4. Tvö 103 t. sjónvörp seld á 8 millj. VÍÐTÆK leit var í gærkvöldi gerð að tveimur föngum sem strokið höfðu úr fangelsinu Litla-Hrauni fyrr um kvöldið. Þeir höfðu verið á AA-fundi sem lauk um klukkan 21 en skiluðu sér ekki af fundinum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var byrjað á að ganga úr skugga um að þeir leyndust ekki innan girðingar en síðan hófust umfangsmiklar að- gerðir lögreglu. Allir bílar á leið til höfuðborgarsvæðisins voru stöðvað- ir og leitað var í þeim auk þess sem svipast var um eftir þeim víðar. Strokufangarnir voru ófundnir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Struku úr fangelsinu eftir AA-fund Eftir Andra Karl andri@mbl.is FORELDRUM barna sem lögregla hefur afskipti af vegna búðahnupls kemur það oft á tíðum ekki á óvart, þar sem barnið hafði áður talað um að önnur börn hefðu verið að stela úr verslunum. Nýverið sendi aðalvarð- stjóri svæðisstöðvar lögreglunnar á Seltjarnarnesi og Vesturbæ bréf til skóla á svæðinu þar sem segir að búðahnupl og veggjakrot sé farið að valda áhyggjum. Þrátt fyrir að lögregla taki ekki fleiri börn fyrir búðahnupl leikur grunur á að það sé að aukast í Vest- urbænum. „Það vekur athygli mína þegar maður hefur afskipti af þessum krökkum að þau segja þetta ekki í fyrsta skiptið og ekki það tíunda. Aft- ur á móti segja þau að allir krakkar stundi þetta,“ segir Eggert Ól. Jóns- son aðalvarðstjóri. „Svo hefur maður samband við foreldrana og þá er þetta altalað á heimilunum einnig.“ Lögreglan hefur biðlað til foreldra að tala við börn sín og benda þeim á að um refsiverðan verknað sé að ræða. Eggert segir að aðallega sé um að ræða krakka á aldrinum 12-15 ára, og 10-11 verslanirnar í Vesturbænum virðist aðallega verða fyrir barðinu á þessu, enda séu þær opnar allan sól- arhringinn. Guðjón Reynisson, framkvæmda- stjóri 10-11, segir að um viðvarandi ástand sé að ræða. „Ég merki ekki neina sérstaka aukningu, þetta er stöðugt vandamál og í raun ekki verra í Vesturbænum en annars staðar.“ Hann bætir við að sífelld vinna sé í gangi til að uppræta þjófnað. „Allir krakkar hnupla“  Borið hefur á auknu búðahnupli í Vesturbæ Reykjavíkur  „Viðvarandi vandamál,“ segir framkvæmdastjóri 10-11 Í HNOTSKURN »Lögreglan á svæðisstöð Sel-tjarnarness/Vesturbæjar sendi skólunum á svæðinu bréf þess efnis að búðahnupl og veggjakort hefði aukist. »Er biðlað til foreldra að að-stoða við að uppræta brotin, m.a. með því að fræða börnin um að refsing og sektir liggi við. »Framkvæmdastjóri 10-11 seg-ist ekki merkja aukningu á búðahnupli í Vesturbænum en bætir við að um viðvarandi vanda- mál sé að ræða í öllum hverfum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrifið Veggjakrot er vaxandi vandamál á höfuðborgarsvæðinu MARGRÉT María Sigurðardóttir, sem tók við embætti umboðsmanns barna í sumar, er að hefja yfirreið um landið og hóf för á Akureyri þar sem hún var í gær og fyrradag. „Ég er að vinna í því að fá skóla í lið með mér við ýmis verkefni, ég heimsótti líka tvær meðferð- arstofnanir fyrir börn í héraðinu, fór á fund skóla- nefndar Akureyrar og heimsótti skóla og leikskóla,“ sagði Margrét María við Morgunblaðið. Þá hélt hún er- indi á Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri þar sem hún fjallaði um hagsmuni og réttindi barna. „Ég er að kynna ýmsum aðilum embættið sem vonandi verður til þess að landsbyggðin nýti sér þjónustu þess meira en verið hefur.“ Á myndinni spjallar umboðsmaðurinn við stúlkur á leikskólanum Iðavöllum í gær. Umboðsmaður barna á vettvangi Heimsótti börn og fullorðna Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.