Morgunblaðið - 24.10.2007, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
I don’t love you, I don’t love you, I don’t love you.
VEÐUR
Það vakti athygli, þegar KristjánKristjánsson sjónvarpsmaður
fór til starfa hjá FL-Group en hann
hafði vakið eftirtekt fyrir að vera
einarður í spurningum við viðmæl-
endur sína.
Það vekur líka athygli þegarKristján Kristjánsson lætur af
störfum hjá sama félagi eftir til-
tölulega stuttan starfstíma og gefur
upp þá ástæðu að hann hafi ekki
lengur talið sig eiga samleið með
félaginu.
Þetta er for-vitnileg skýr-
ing, sem bendir til
að brottför Krist-
jáns Kristjáns-
sonar hafi ekki
verið hávaðalaus.
Af hverju áttihann ekki lengur samleið með
þessu öfluga fjárfestingarfélagi?
Var hann beðinn um að gera eitt-hvað, sem braut í bága við
grundvallarafstöðu hans til þess
hvernig umgangast eigi upplýs-
ingar?
Áttu menn ekki skap saman?Það hefur færzt í vöxt, að
blaðamenn og fréttamenn ráði sig
til starfa við upplýsingamiðlun til
stórfyrirtækja. Það er svona upp og
ofan hvernig þeim líður í slíkum
störfum og sumir hverfa frá þeim
kalnir á hjarta.
En Kristján Kristjánsson hefurgefið upp boltann. Með örfáum
orðum gefur hann til kynna, að sag-
an sé ósögð.
Hvað kemur í veg fyrir, að húnverði sögð?
Samningur um þögn??
STAKSTEINAR
Kristján
Kristjánsson
Að eiga samleið – eða ekki
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#
#
$
!
%% &
$%% '%
'
:
*$;< %%%
!
"
*!
$$; *!
()
*%!
%) %!
"
! +
=2
=! =2
=! =2
("!*
%,
& -%. /
<>!-
/
# $%
&%
' =7
!(
#
&%
()
!
=
* +
#,
# -
.
/ .)
!0 1% )
01 %% 22 !%%3 %,
&
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
' 4
4
' ' '
' ' ' '
'
' '
'
'
' 4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir | 23. okt.
Siglfirðingar framhald
Ég fékk tölvupóst í
gegnum föður minn frá
áhugamanni um ætt-
fræði Siglfirðinga. Það
hefur einhver tekið að
sér að skoða borgar-
fulltrúana líka, kannski
vegna færslu minnar um daginn.
Birti tölvupóstinn hér að neðan en
enn vantar upplýsingar um Sóleyju
Tómasdóttur. Pabbi er að vísu fædd-
ur í Reykjavík en flutti nokkurra
vikna norður. Afi er ættaður úr
Fljótunum en amma var…
Meira: thorbjorghelga.blog.is
Steinunn Ólína Þorsteinsd. | 22. okt.
Eldar í Kaliforníu
Yfir 300.000 manns
hafa þurft að yfirgefa
heimili sín hér í San
Diego-sýslu. Tugir
heimila brunnin til
kaldra kola. Hræðileg-
ir vindar geysa inn til
landsins og svo eru hitinn og þurrk-
arnir ekki til að bæta ástandið. Hér í
miðbæ San Diego er allt með kyrr-
um kjörum ennþá. Í Malibu ríkir líka
neyðarástand og margar merkar
byggingar brunnar til ösku. Og úr
hvíta húsinu er það að frétta…
Meira: steinunnolina.blog.is
Birkir Jón Jónsson | 23. október 2007
Ekkert er dýrmætara
en heilsan
Ábending um mögu-
lega lækningu á sykur-
sýki á heilsusetri á
Indlandi var meðal
fjölda tölvupósta og
sms-skilaboða sem ég
fékk eftir pistil gær-
dagsins. Hljómar ótrúlega í mínum
eyrum, þar sem ég er með sykursýki
1 sem verður víst fylgikvilli minn
það sem eftir er. En það má lifa í
voninni og ég mun skoða lækningu
Indverjanna betur…
Meira: birkir.blog.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 23. okt.
Bleikir dagar
framundan
Á morgun er 24. októ-
ber! Afmælisdagur
Sameinuðu þjóðanna
og kvennafrídaganna
okkar íslensku. Hér er
póstur sem ég fékk frá
Femínistafélaginu sem
tiltekur ýmislegt sem er í gangi af
þessu tilefni:
Femínistafélag Íslands vekur at-
hygli á fjölda viðburða í tengslum við
femínistavikuna 2007. Tvær ráð-
stefnur um jafnréttismál verða
haldnar á morgun, 24. október. Ann-
ars vegar: Erum við hrædd við jafn-
rétti? sem fer fram í ráðstefnusal
Keilis á Keflavíkurflugvelli, og hins
vegar: Jafnrétti og skóli, sem jafn-
réttisnefnd Kennaraháskólans
stendur fyrir og fer fram í Skriðu,
fyrirlestrasal KHÍ. Um kvöldið
verður svo kvennas(t)und í Vest-
urbæjarlauginni, þar sem ÍTR býð-
ur konum ókeypis í sund og sturtu-
söng milli 19 og 22. Úthlutun úr
Jafnréttissjóði og afhending árlegr-
ar viðurkenningar Jafnréttisráðs
fara einnig fram 24. október að
vanda.
Á fimmtudag, 25. október stendur
Rannsóknastofa í kvenna- og kynja-
fræðum við Háskóla Íslands fyrir
hádegisrabbi um Doris Lessing, ný-
bakaðan nóbelsverðlaunahafa í bók-
menntum. Það er Sigfríður Gunn-
laugsdóttir bókmenntafræðingur
sem heldur erindið sem hún kallar
„Að hafa töglin og hagldirnar: Doris
Lessing og feminisminn“. Erindið
verður haldið í fyrirlestrasal Þjóð-
arbókhlöðunnar kl. 12-13. Síðar
sama dag stendur jafnréttisnefnd
Kópavogs fyrir málþingi um konur í
sveitarstjórnum, í tilefni af því að nú
eru 50 ár liðin frá því að fyrsta kon-
an varð sveitarstjóri á Íslandi, en
það var Hulda Jakobsdóttir sem var
bæjarstjóri í Kópavogi. Málþingið
heitir „Ég þori, get og vil!“ og fer
fram á neðri hæð Gerðarsafns í
Kópavogi kl. 17-19.
Á föstudagsmorgun stóð til að
hafa fund með handhöfum bleiku
steinanna, en þeir eru hvatning-
arverðlaun Femínistafélagsins.
Handhafar bleiku steinanna í ár eru
þingmenn norðvesturkjördæmis, en
þegar verðlaunin voru afhent sat
engin kona á þingi fyrir…
Meira: hugsadu.blog.is
BLOG.IS
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands vek-
ur athygli á fjölda viðburða í
tengslum við femínistavikuna sem
nú stendur yfir.
Tvær ráðstefnur um jafnréttismál
verða haldnar í dag, 24. október.
Annars vegar: Erum við hrædd við
jafnrétti? sem fer fram í ráðstefnu-
sal Keilis á Keflavíkurflugvelli, og
hins vegar: Jafnrétti og skóli, sem
jafnréttisnefnd Kennaraháskólans
stendur fyrir og fer fram í Skriðu,
fyrirlestrasal KHÍ. Um kvöldið
verður svo kvennas(t)und í Vestur-
bæjarlauginni, þar sem ÍTR býður
konum ókeypis í sund og sturtusöng
milli 19 og 22. Úthlutun úr Jafnrétt-
issjóði og afhending árlegrar við-
urkenningar Jafnréttisráðs fara
einnig fram 24. október að vanda.
Konur í sveitarstjórnum
Á fimmtudag, 25. október stendur
Rannsóknastofa í kvenna- og kynja-
fræðum við Háskóla Íslands fyrir
hádegisrabbi um Doris Lessing, ný-
bakaðan nóbelsverðlaunahafa í bók-
menntum. Sigfríður Gunnlaugsdótt-
ir bókmenntafræðingur heldur
erindið í fyrirlestrasal Þjóðarbók-
hlöðunnar kl. 12-13. Síðar sama dag
stendur jafnréttisnefnd Kópavogs
fyrir málþingi um konur í sveitar-
stjórnum, í tilefni af því að nú eru 50
ár liðin frá því að fyrsta konan varð
sveitarstjóri á Íslandi, en það var
Hulda Jakobsdóttir sem var bæj-
arstjóri í Kópavogi. Málþingið fer
fram á neðri hæð Gerðarsafns í
Kópavogi.
Femínistateiti á Viktor
Á laugardag, 27. október lýkur
Femínistavikunni. Þá stendur Fem-
ínistafélagið fyrir ráðstefnunni
„Kynlaus og litblind? Samræða um
margbreytileika.“ Þar kemur saman
fólk úr ýmsum áttum, sem á það
sameiginlegt að vera virkt í ein-
hvers konar jafnréttisbaráttu, hvort
sem er út frá kyni, kynhneigð, upp-
runa, fötlun eða öðru. Ráðstefnan er
haldin í tilefni af Evrópuári jafnra
tækifæra með styrk frá félagsmála-
ráðuneytinu. Um kvöldið verður
femínistateiti á efri hæð Café Vikt-
ors, þar sem femínistar eru hvattir
til að stíga á svið og láta í sér heyra.
Nánari dagskrá er að finna á fem-
inistinn.is.
Femínistafélagið vill einnig vekja
athygli á breytingum á ráðinu, en
Auður Magndís Leiknisdóttir lætur
af talskonustarfinu en starfar áfram
með ráðinu. Steinunn Gyðu- og Guð-
jónsdóttir tekur við af henni. Stein-
unn hefur setið í ráði Femínista-
félagsins í 2 ár, sem ráðskona
ungliða- og atvinnu- og stjórnmála-
hópa.
Femínistavikan er haldin árlega í
vikunni í kringum 24. október.
Fjöldi viðburða í
femínistavikunni