Morgunblaðið - 24.10.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJÓRÐA Strandbergsmótið í skák,
milli yngri og eldri skákmanna,
verður haldið helgina 27.–28. októ-
ber í Strandbergi, safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju. „Æskan og
Ellin“ reyna þá með sér á hvítum og
svörtum skákreitum. Að mótinu
standa, auk Hafnarfjarðarkirkju,
Skákfélagið Hrókurinn og skák-
félög í Hafnarfirði; Riddarinn,
Skákdeild Hauka og Kátu biskup-
arnir.
Vegleg verðlaun verða í boði,
m.a. peningaverðlaun og flugfar-
seðlar til Færeyja með hóteldvöl.
Þátttaka miðast við börn og ung-
menni á grunnskólaaldri 15 ára og
yngri og roskna skákmenn, 60 ára
og eldri. Á síðasta ári var 80 ára
aldursmunur milli yngsta og elsta
keppandans.
Strandbergsmótið hefst kl.13 á
laugardag í Hásölum Strandbergs
og stendur til kl. 17. Einar S. Ein-
arsson er formaður mótsnefndar og
Páll Sigurðsson skákstjóri. Ellý
Erlingsdóttir forseti bæjarstjórnar
setur mótið og leikur fyrsta leikinn.
Á sunnudag fer fram skákmessa í
Hásölum kl.11. Sr. Gunnþór Inga-
son sóknarprestur messar, Bar-
börukórinn syngur undir stjórn
Guðmundar Sigurðssonar. Fulltrú-
ar yngri og eldri skákmanna lesa
ritningarorð. Mótið endar á fjöltefli
Helga Ólafssonar stórmeistara.
Lesa má frekari upplýsingar um
mótið á www. skak.is
Æskan að tafli Frá stelpuskákmóti Olís og Hellis, sem nýlega var haldið.
Æskan og ellin að tafli
HAFLIÐI Skúlason sem stundaði
nám í golfvallafræðum við Elm-
wood College í Skotlandi síðasta
vetur hlaut fyrr í þessum mánuði
æðstu verðlaun (TORO Award) sem
skólinn veitir fyrir námsárangur.
Hafliði fékk fyrr á þessu ári hæsta
styrk sem Royal & Ancient golf-
klúbburinn í St. Andrews veitir ár-
lega fyrir framúrskarandi náms-
framvindu.
Auk þess heiðurs að vera valinn
nemandi ársins á hæsta námstigi í
Elmwood College verður Hafliða
boðið á stærstu golfsýningu heims
sem haldin verður í Florída í janúar
en þar mun hann sækja ýmsa fyrir-
lestra og námskeið tengd faginu.
Elmwood College er talinn einn
fremsti skóli í Evrópu í golfvallar-
fræðum og hann sækja nemendur
allastaðar að úr heiminum, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Golf Hafliði Skúlason hlaut styrk
sem kenndur er við St. Andrews.
Viðurkenning í
golfvallafræðum
UMHVERFISSTOFNUN hefur nú sérstakt eftirlit með
innflutningi á möndlum og möndluafurðum frá Banda-
ríkjunum. Myglueitur, aflatoxín, hefur mælst í banda-
rískum möndlum. Innflutningur er einungis heimilaður
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, samkvæmt auglýs-
ingu.
Innflytjendur verða að framvísa vottorði frá opinber-
um aðila sem sýnir að aflatoxín séu undir leyfilegum
mörkum samkvæmt reglugerð um gildistöku tiltekinna
gerða Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
Vottorðið þarf að vera þannig útbúið að hægt sé að
rekja það til viðkomandi sendingar.
Einnig skal fylgja með heilsuvottorð fyrir innflutning vöru frá þriðju
ríkjum inn í Evrópska efnahagssvæðið. Ef ofangreint skilyrði er ekki upp-
fyllt þá er farið fram á sýnatöku og rannsókn á kostnað innflytjenda.
Eftirlit með möndlum hert
Möndlur Fylgst
með innflutningi.
FÆREYSKIR bændur hafa í mörg
ár keypt hey frá Íslandi og Dan-
mörku. Íslenska heyið er vel verkað
og Færeyingar vilja það frekar en
það danska þó dýrara sé, að því er
fram kemur í Bændablaðinu.
Þeir feðgar Jón Blöndal í Lang-
holti og Eiríkur Blöndal í Bæjar-
sveit, framkvæmdastjóri Búnaðar-
sambands Vesturlands, hafa selt
hey til Færeyja af og til í mörg ár. Í
Langholti var rekið kúabú, en nú
eru þar fáar skepnur og heyið af
túnunum selt. Bændablaðið hefur
eftir Eiríki að þeir selji um tíu
gáma af heyi til Færeyja á ári.
Eiríkur segir að fyrir rúmum 60 ár-
um hafi tengsl Bæsveitunga við
Færeyjar myndast með færeyskum
vinnumönnum sem komu hingað til
lands á þeim tíma.
Vilja íslenskt hey
SAMTÖKIN Vinir Perú voru ný-
lega stofnuð og er hlutverk þeirra
að stuðla að auknum samskiptum
milli Íslands og Perú. Í byrjun
standa samtökin fyrir fjáröflun til
styrktar börnum í Perú, einkum í
hálöndunum og eru Soroptimista-
klúbbar aðilar að verkefninu.
Fyrsta verkefnið er að styrkja
barnaskóla í smáþorpinu Chosecani
til kaupa á eldavél og bakarofni í
eldhús skólans svo hægt sé að gefa
börnunum heitan mat þegar þau
koma í skólann, en hitastigið þarna
getur farið niður undir frostmark á
nóttunni. Formaður er Sigrún
Klara Hannesdóttir, sigrun@hi.is
Vinir PerúEftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Heiðmörk | Prýðileg samvinna
hefur ríkt undanfarið milli Kópa-
vogsbæjar, Skógræktar Reykja-
víkur og verktaka við vatnslögn
Kópavogsbæjar, eftir að gefið var
út framkvæmdaleyfi þar sem kveð-
ið var á um samráð, að sögn Helga
Gíslasonar, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags Reykjavíkur.
„Frágangurinn hjá þeim er til
fyrirmyndar og umgengni til
prýði,“ sagði Helgi.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
hefur umsjón með Heiðmörk og
vakti athygli á því fyrr á þessu ári
að stór og stæðileg tré, m.a. úr
svonefndum Þjóðhátíðarlundi,
hefðu verið fjarlægð vegna fram-
kvæmda við vatnslögn Kópavogs-
bæjar. Helgi sagði ekki búið að
ákveða endanlega hvernig gengið
yrði frá lagfæringum í Þjóðhátíð-
arlundinum. Vegna dráttar á fram-
kvæmdum væri tómt mál að tala
um að reyna endanlegan frágang á
þessu ári. Fullt samráð verður
milli aðila um hvernig að frágang-
inum verður staðið.
Við framkvæmdirnar myndaðist
geil í skóg hárra trjáa í Þjóðhátíð-
arlundi. Trén sem eftir standa
varpa skugga sem taka verður til-
lit til þegar nýjum trjám verður
plantað. Helgi sagði ljóst að nýju
trén yrðu miklu minni en þau sem
fyrir væru enda ekki gerlegt að
reisa 12 metra há tré í stórum stíl.
Ekki er búið að ákveða hvernig
trjám verður plantað í stað þeirra
sem tekin voru en Helgi taldi lík-
legt að helst yrði plantað lauf-
trjám og runnum, en í lundinum
eru nú aðallega barrtré. Ákvörðun
verður að liggja fyrir snemma
næsta vor svo hægt verði að hefj-
ast handa um leið og frost er farið
úr jörðu.
Hleypt á um mánaðamótin
Stefán Loftur Stefánsson, deild-
arstjóri framkvæmdadeildar Kópa-
vogsbæjar, sagði að framkvæmd-
um við vatnsleiðslu Kópavogs-
bæjar væri nú að verða lokið.
Hann sagði að frágangur Þjóðhá-
tíðarlundarins yrði unninn í sam-
vinnu við Skógræktarfélag
Reykjavíkur en að öðru leyti væri
frágangur eftir framkvæmdirnar
með hefðbundnum hætti.
Stefán átti von á að vatni yrði
hleypt á nýju vatnslögnina um
næstu mánaðamót.
Prýðileg samvinna um
frágang í Heiðmörk
Framkvæmdir við vatnslögn eru á lokastigi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sárið grætt Þjóðhátíðarlundur bíður þess að þar verði plantað nýjum trjám og runnum næsta vor.