Morgunblaðið - 24.10.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 17
MENNING
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur
heldur tónleika í Neskirkju í
kvöld í tilefni af 85 ára afmæli
sveitarinnar. Með hljómsveit-
inni koma fram þeir Egill
Ólafsson söngvari og Jóel Páls-
son saxófónleikari. Stjórnandi
er Lárus Halldór Grímsson. Á
efnisskránni eru nokkur af
þekktustu tónverkum í sögu
blásarasveitatónlistar og tón-
list eftir Sting, Astor Piazzolla,
Jan Magne Förde, Richard Rodgers og Oscar
Hammerstein II, en það er sá hluti tónleikanna
sem þeir Egill og Jóel taka þátt í.
Tónleikarnir hefjast kl. 20, ókeypis aðgangur.
Afmælishátíð
Lúðrasveit Reykja-
víkur í Neskirkju
Egill
Ólafsson
Á TÓNLEIKUM Jazzklúbbs-
ins Múlans í kvöld verður flutt
ný tónlist saxófónleikarans
Sigurðar Flosasonar við ljóð
Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar.
Flytjendur eru, auk Sig-
urðar, söngvararnir Egill
Ólafsson og Ragnheiður Grön-
dal, hljómborðsleikarinn
Kjartan Valdemarsson og slag-
verksleikarinn Matthías Hem-
stock. Tónleikar Múlans fara fram á Domo bar,
Þingholtsstræti 5 og hefjast kl. 21.
Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra
hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar.
Djass
Sigurður Flosason
á Múlanum
Sigurður
Flosason
GÍTARTRÍÓIÐ Mímósa held-
ur tónleika á Næstabar, Ing-
ólfstræti 1A í kvöld. Hljóm-
sveitin leikur létta swing-
sveiflu og tónlist í anda frönsku
sígaunajazzhljómsveitanna.
Mímósa tríó var sett á lagg-
irnar sumarið 2005 og hefur
verið starfandi hljómsveit síð-
an. Hljómsveitina skipa þeir
Gunnar Hilmarsson á gítar,
Hjörtur Steinarsson á gítar og
Leifur Gunnarsson á kontrabassa og eru þeir allir
nemendur við tónlistarskóla FÍH.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er selt inn við inn-
ganginn. Aðgangseyrir er 500 kr.
Tónleikar
Mímósa leikur létta
swing-sveiflu
Tveir meðlimir
Mímósa.
ÓRÆÐ svipbrigði Monu Lisu hafa
verið mönnum ráðgáta um langa
hríð og margir hafa talið sig geta
fundið svör við ýmsum spurningum
um listamanninn Leonardo da Vinci
og fyrirsætu hans með því að rýna
nógu nákvæmlega í þau. Ef marka
má rannsóknir franska verkfræð-
ingsins Pascal Cotte er sú vinna
unnin fyrir gýg, því málverkið, eins
og það birtist gestum Louvre-
safnsins í dag, er allt öðruvísi en það
var þegar listamaðurinn tók það ný-
málað af trönunum.
Cotte ólst upp í París á sjöunda
áratugnum og varð hugfanginn af
málverkinu sem barn. Þegar hann
fullorðnaðist sérhæfði hann sig í
ljóstækni og nýtti þá kunnáttu til
þess að smíða mjög fullkomna staf-
ræna myndavél. Með henni getur
hann séð ýmislegt sem bert augað
greinir ekki, meðal annars segir
hann bros Monu Lisu hafi upp-
runalega verið mun breiðara og
greinilegra.
Niðurstöður hans benda líka til
þess að da Vinci hafi gert ýmsar
breytingar á málverkinu á meðan
hann vann að því. Hann hafi til dæm-
is breytt stöðu tveggja fingra. Áður
hefur verið sýnt fram á að hár Mónu
Lisu var í fyrstu gerð málverksins
tekið upp í hnút og þar var hún líka
klædd í óléttukjól.
Í núverandi mynd er græn slikja
yfir litunum í málverkinu, en það
segir Cotte vera áhrif tímans, mis-
heppnaðra viðgerða og skemmdir
frá lakki sem þekur myndina. Upp-
runalega hafi verið tærir, hvítir og
bláir fletir á striganum.
Mona Lisa Svona þekkja hana
flestir, en er þetta rétta myndin?
Einu sinni
brosti Mona
Lisa breitt
Ný rannsókn á fyrstu
gerð málverksins
RITHÖFUNDURINN Doris Less-
ing, sem fékk Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum fyrir skömmu, segir
að árásirnar hinn 11. september á
tvíburaturnana í New York séu
ekki svo hræðilegar samanborið við
hryðjuverkastarfsemi IRA.
„Sumum Ameríkönum finnst ég
eflaust klikkuð að segja þetta en
árásin var hvorki eins hræðileg né
eins einstök og þeir halda fram,“
sagði Lessing í viðtali við spænska
dagblaðið El Pais.
Lessing hefur ekki mikið álit á
forseta Bandaríkjanna, George W.
Bush, og sagði hann vera heims-
ógæfu. „Það eru allir þreyttir á
manninum. Annaðhvort er hann
mjög heimskur eða mjög klár, en
það má ekki gleymast að hann kem-
ur úr stétt sem hefur hagnast af
stríði,“ sagði Lessing og bætti við
að hún hefði einnig hatað Tony
Blair frá upphafi.
Hataði Blair
frá upphafi
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ÞAÐ skilur enginn hvað persón-
urnar í Ræðismannsskrifstofunni
segja, því orðin sem koma upp úr
þeim eiga ekki heima í neinum orða-
bókum. Merkinguna er hins vegar
að finna í látbragði, orðrómi og
augnaráði leikaranna.
Leikritið verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu annað kvöld. Í þessu
verki er enginn texti, en samtöl per-
sónanna fara fram á bullmáli sem
líkist svolítið rússnesku áheyrnar.
Leikstjórinn og handritshöfund-
urinn Jo Strömgren hóf feril sinn
sem dansari og danshöfundur og
hefur ferðast til yfir 40 landa með
þetta nýstárlega sviðstungumál.
Á auðvelt með að bulla
Sögusviðið er rússnesk ræðis-
mannsskrifstofa í ónefndu landi þar
sem mórallinn er ekki upp á marga
fiska. Halldóra Geirharðsdóttir leik-
ur Olgu sem hefur unnið á skrifstof-
unni í átta ár.
„Hversdagurinn hennar er mjög
grár. Hún sér um skipulagið á skrif-
stofunni og starfsmannahaldið og
líður svolítið eins og hún sé með
þessa skrifstofu alveg ein á herð-
unum. Hún er ekki mjög hamingju-
söm. En hamingjan er oft bara í
garðinum heima hjá þér, kannski
ekki endilega í garði nágrannans,“
segir Halldóra.
Hún segist hafa kviðið því að tak-
ast á við þetta óvenjulega verkefni.
„Ég á mjög erfitt með að læra ís-
lenskan texta og er mjög lengi að
því, þannig að ég kveið því mikið að
fara að læra bulltexta. Ég á mjög
auðvelt með að bulla en það eru
ákveðnir hlutir sem við verðum að
læra, hinir verða að vita hvenær ég
er búin að segja það sem ég ætla að
segja. En þetta gengur miklu betur
en ég bjóst við.“
Halldóra hefur reynslu af því að
hafa ekki orð til að styðjast við í sínu
starfi því hún hefur oft komið fram
sem látbragðstrúðurinn Barbara. Sú
reynsla nýtist henni að vissu marki í
þessari sýningu. „Það nýtist að því
leyti að þetta er dansleikhús. Leik-
stjórinn er dansari og hann býr til
sýningu út frá þeim forsendum. Bar-
bara fúnkerar þannig líka, það er
þessi hreinleiki í trúðnum.“
Þó að það séu engin orð í textan-
um í leikritinu er hver leikari með-
vitaður um hvað hann er að segja á
bullmáli í hvert skipti og smám sam-
an urðu til á æfingatímanum útlínur
af texta sem leikararnir fara með.
Halldóra segir mikilvægt að tala
ekki of mikið. „Maður byrjaði stund-
um með ofsalega langa setningu og
stytti hana niður í kannski þrjú orð
þannig að áhorfandinn færi ekki að
hlusta of mikið og reyna að skilja
tungumálið. Að hann héldi áfram að
lesa hreyfinguna og líkamsbeit-
inguna á sviðinu og tóninn á bak við
orðin.“
Rokkað leikhús
Bergur Þór Ingólfsson leikur
Andre, þjakaðan skrifstofumann
sem er fastur í þrúgandi umhverfi á
ræðismannsskrifstofunni.
Hann saknar þess ekki að hafa
texta til að styðjast við. „Þetta er
geðveikt! Þetta er mikið rokk, eins
og leikhúsútgáfa af Nick Cave eða
Quentin Tarantino.“
Hann segir verkið fjalla um mann-
inn sem dýr, hvernig viðbrögð hans
eru þegar þrengt er að honum.
„Leikritið lýsir því sem gerist hjá
fólki sem er lengi í einangruðum og
úrkynjuðum aðstæðum. Þetta er
eiginlega mannfræðileg stúdía.“
Þegar nýtt fólk kemur inn í þetta
umhverfi verður titringur meðal
þeirra sem fyrir voru. „En það endar
náttúrlega bara illa fyrir Andre,“
segir Bergur.
Leikritið Ræðismannsskrifstofan frumsýnt annað kvöld
Bullmál í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Ræðismannsskrifstofan Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson í hlutverkum sínum.
Hljómar líkt
og rússneska
♦♦♦
Leikfélag Reykjavíkur í samstarfi
við Jo Strömgren Kompani.
Jo Strömgren er handritshöfundur,
leikstjóri og danshöfundur auk þess
sem hann hannar leikmynd og bún-
inga.
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen.
Ljós: Magnús Arnar Sigurðarson.
Leikgervi: Svanhvít Valgeirsdóttir.
Leikarar: Birgitta Birgisdóttir,
Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra
Geirharðsdóttir, Helga Braga Jóns-
dóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ilm-
ur Kristjánsdóttir og Þór Tulinius.
Ræðismanns-
skrifstofan
Kynning SAF á lykilmörkuðum
NORÐURLÖND
Svíþjóð - Noregur - Danmörk - Finnland
Samtök ferðaþjónustunnar halda fund 26. októ-
ber 2007 kl. 9-12 á Grand Hótel Reykjavík
(Gullteigur A) og er markmið fundarins að ræða
norræna markaðinn og hvernig ferðamenn þaðan
hegða sér nú og í framtíðinni.
Dagskrá
Setning fundarins
Jón Karl Ólafsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Scandinavian Travel Trends
Eftirspurn - hvaða breytingar eru framundan?
Greining á markaðnum.
Sagt frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar „Scandinavian Travel
Trend Survey“ þar sem lögð verður áhersla á markaðshlut og
möguleika Íslands á hinum 4 Norðurlöndunum.
Johanna Danielsson, framkvæmdastjóri „Travel & Tourism“ hjá
KAIROS FUTURE INTERNATIONAL AB.
Að selja Ísland á hinum Norðurlöndunum
- hvar liggja tækifærin?
Hvar stendur Ísland miðað við önnur markaðssvæði?
Kröfur og væntingar skandinavískra ferðamanna.
Birkir Hólm Guðnason, svæðisstjóri Icelandair í Skandinavíu.
Hagtölur um ferðir Norðurlandabúa á Íslandi
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF.
Þátttökugjald: kr. 6.000 fyrir félagsmenn SAF
(kr. 3.000 fyrir umfram einn frá hverju fyrirtæki)
kr. 8.500 fyrir fyrirtæki utan SAF
Þátttaka tilkynnist í síma 511-8000 eða með tölvupósti info@saf.is
Fundinn styrkja: Samgönguráðuneytið, Icelandair
og Grand Hótel Reykjavík.
S A F