Morgunblaðið - 24.10.2007, Qupperneq 16
sýslum Kaliforníu og fyrirskipaði al-
ríkisstofnunum að aðstoða við
slökkvi- og björgunarstarfið.
Alls hafa sautján stórir skógar-
eldar geisað í sunnanverðri Kaliforn-
íu frá því um helgina og þrír bættust
Eftir Boga Þór Arason
og Gísla Árnason
HUNDRUÐ þúsunda manna hafa
flúið heimili sín vegna skógarelda
sem geisa í sunnanverðri Kaliforníu
og um 1.300 hús hafa orðið eldunum
að bráð. Um 56.000 önnur hús eru í
hættu að því er CNN-sjónvarpið
hafði eftir bandarískum embættis-
mönnum í gærkvöldi.
Yfirvöld sögðu að a.m.k. 513.000
manns hefði verið skipað að forða
sér af hættusvæðinu í San Diego-
sýslu einni og um þúsund hús hafa
brunnið í sýslunni.
San Diego-borg lömuð
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir,
sem býr ásamt fjölskyldu sinni í San
Diego, segir að borgin sé algjörlega
lömuð vegna eldanna.
„Allir skólar hafa verið lokaðir í
dag,“ sagði Steinunn Ólína í viðtali á
vefvarpi mbl.is og bætti við að at-
vinnulífið í San Diego væri lamað.
„Fólki er ráðlagt að vera innandyra
og vera ekki að keyra að óþörfu, til
að halda götum opnum. Borgin er
algerlega lömuð. Um 10.000 manns
gistu í íþróttaleikvanginum Qual-
comm Stadium og þar fór allt saman
vel fram. Embættismenn segja að
sjálfboðaliðarnir sem hafa boðið sig
fram séu álíka margir og fólkið sem
þarf á hjálp að halda.“
Steinunn Ólína býr í miðborg San
Diego og hún sagði að heimili sitt
væri ekki í bráðri hættu. „Eldarnir
geisa á tveimur stöðum sitt hvorum
megin við okkur, en þeir eru langt
frá og við erum alveg róleg ennþá.“
Steinunn Ólína sagði í samtali við
Morgunblaðið síðar í gærkvöldi að
vindáttin hefði verið hagstæðari í
gær og unnt hefði verið að nota flug-
vélar við slökkvistarfið, en það hafði
ekki verið hægt daginn áður.
„Hérna er stór fuglagarður sem er
að brenna og það er búið að fylla bíl-
skúrinn okkar af fágætum fuglateg-
undum þannig húsið okkar er að
breytast í dýragarð. Ég held að
hingað séu komnir um 40 fuglar.“
Steinunn Ólína bætti við að mikil
reykjarlykt væri í borginni. „Víðs
vegar er verið að tæma heilu hverfin
út af reyk, því loftið er orðið svo
óheilnæmt. Þótt miðborgin sé langt
frá eldunum er reykjarlykt yfir öllu
og mjög lítið skyggni. Þess vegna er
fólki ráðlagt að halda börnum innan-
dyra og vera sem minnst á ferli.“
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti yfir neyðarástandi í sjö
við í gær. Eldarnir hafa breiðst
mjög hratt út vegna hvassviðris,
mikils hita og þurrks á þessum slóð-
um.
Alls hefur um 1.500 ferkílómetra
svæði brunnið í sunnanverðri Kali-
forníu og eldar geisa á fjórðungi
strandar Kaliforníu, að sögn frétta-
stofunnar AP. Eldarnir hafa breiðst
svo hratt út að rýma hefur þurft
nokkrar byggingar sem notaðar
hafa verið sem neyðarskýli.
Tveir hafa látið lífið af völdum
eldanna og tugir manna fengið reyk-
eitrun. Þrír stórir eldar hafa geisað í
grennd við Los Angeles og CNN-
sjónvarpið hafði eftir slökkviliði
borgarinnar í gærkvöldi að óttast
væri að þeir myndu sameinast í einn
risastóran skógareld sem mjög erf-
itt yrði að slökkva.
Ekki í bráðri hættu
Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri
í utanríkisráðuneytinu, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi að
sendiráð Íslands í Washington og
ræðismannsskrifstofan í Los Angel-
es fylgdust vandlega með því hvort
Íslendingar kynnu að vera í hættu
vegna eldanna. Talið væri að engir
Íslendingar væru í hættu á Los
Angeles-svæðinu og haft hefði verið
samband við Íslendinga á San
Diego-svæðinu og engin ástæða
væri að ætla að Íslendingar væru í
bráðri hættu þar.
Hálfri milljón manna
sagt að flýja heimili sín
Um 1.300 hús hafa brunnið í skógareldum í Kaliforníu og um 56.000 hús í hættu
$%&'()*+,() $-.-)/%(+01)2-
! "!
! "
#$# %&# !
& & #
& ##
!
' ( ) * + ,
Morgunblaðið/Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Skæðir eldar Skógareldar við útjaðar San Diego í Kaliforníu. Um 1.000 hús hafa brunnið í grennd við borgina.
16 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ingi bæði frá tyrkneskum stjórn-
völdum og bandarískum – sem óttast
slæm áhrif aðgerða PKK á samskipti
Bandaríkjanna og Tyrklands, enda
líta Tyrkir svo á að Bandaríkjaher í
Írak eigi að vera fær um að hafa
hemil á PKK – að beita sér meira
gegn PKK.
Babacan lagði áherslu á að Tyrkir
vildu friðsamlega úrlausn mála, en
þeir hafa þó hótað því að fara með
her sinn inn í Kúrdahéruðin í Norð-
ur-Írak og ráða sjálfir niðurlögum
PKK. Hann hafnaði jafnframt tilboði
PKK um vopnahlé, sem sett var
fram í fyrradag og fól í sér nokkur
skilyrði af hálfu PKK. „Vopnahlé er
eitthvað sem tvö ríki og tveir herir
semja um, ekki eitthvað sem samið
er um við hryðjuverkasamtök,“ sagði
Babacan.
Tyrkneski herinn er með mikinn
viðbúnað á landamærunum að Írak
Bagdad. AFP. | Nuri al-Maliki, for-
sætisráðherra Íraks, fyrirskipaði í
gær að öllum skrifstofum Verka-
mannaflokks Kúrdistans (PKK) yrði
lokað í Írak. Sagði hann að þessum
„illu hryðjuverkasamtökum“, sem
hann kallaði svo, yrði ekki lengur
leyft að starfa í Írak.
„Við leggjum alla áherslu á að
uppræta hryðjuverkastarfsemi PKK
en hún ógnar Írak og Tyrklandi,“
sagði al-Maliki eftir fund sem hann
átti með Ali Babacan, utanríkisráð-
herra Tyrklands, í Bagdad. Var hann
þar að vísa til árása sem kúrdískir
skæruliðar hafa gert á tyrkneska
herinn, en liðsmenn PKK hafa síðan
jafnan flúið yfir landamærin og inn í
Norður-Írak.
Al-Maliki hafði verið undir þrýst-
en tólf hermenn féllu í árás PKK á
sunnudag og þá segja talsmenn PKK
að þeir hafi nokkra tyrkneska her-
menn í haldi eftir aðgerðirnar.
Maliki bannar starf-
semi PKK í Írak
Öllum skrifstofum kúrdísku skæruliðanna verður lokað
Reuters
Spenna Tyrkneskur hermaður á vegi við landamærin að Írak þar sem til
átaka hefur komið milli tyrkneskra hersveita og kúrdískra skæruliða.
AIGARS Kalvit-
is, forsætisráð-
herra Lettlands,
stóð af sér van-
trauststillögu í
lettneska þinginu
í gær en 56
greiddu atkvæði
gegn tillögu
stjórnarandstöð-
unnar en 38 með.
Stjórnarandstaðan hafði gagnrýnt
Kalvitis fyrir gerræðislega fram-
göngu, í kjölfar þess að hann rak
Aleksejs Loskutovs úr embætti, en
hann hafði haft það hlutverk að
rannsaka spillingu, vegna ásakana
um fjármálamisferli á skrifstofu
hans. Loskutovs neitar öllum ásök-
unum og segist fórnarlamb í pólitísk-
um hráskinnaleik.
Stóð af sér
vantraust
Aigars Kalvitis
OFFITA er vaxandi vandamál út um
allan heim, að Suður- og Austur-
Asíu hugsanlega undanskilinni, sam-
kvæmt nýrri könnun sem náði til 63
landa. Um helmingur til tveir þriðju
karla og kvenna í þessum löndum
taldist of þungur eða of feitur. Sér-
fræðingar sögðu niðurstöðuna mikið
áhyggjuefni. Könnunin byggðist á
því að heimilislæknar vigtuðu alls
um 168.000 manns og reiknuðu út
BMI-stuðul þeirra.
Heimsfaraldur
AP
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans, hefur ver-
ið bannað að yfirgefa landið, að því
er fulltrúar flokks hennar sögðu í
gær. Bhutto sneri heim úr útlegð
fyrir helgi en ráðist var á hana og
fylgdarlið hennar við komuna, með
þeim afleiðingum að 140 týndu lífi.
Bhutto slapp hins vegar ómeidd.
Fær ekki fara
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti segir að Evrópa þurfi bráð-
nauðsynlega á eldflaugavarnakerfi
að halda, hvað sem líði mótbárum
Rússa, enda stafi vaxandi ógn af Ír-
an. Sagði Bush að fyrir árið 2015
kynnu Íranar að verða búnir að
koma sér upp vopnum sem næðu til
Bandaríkjanna og Evrópu.
Varnir Evrópu
Steinunn Ólína: San Diego lömuð
vegna skógareldanna
VEFVARP mbl.is
Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170
Innrettingar
Fataska´par
X
E
IN
N
IX
0
7
10
0
18