Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 1
HLEYPT var upp tveimur borholum
á Þeistareykjum í gær og að sögn
Franz Árnasonar, formanns stjórnar
Þeistareykja ehf., reyndist önnur
borholan mjög góð og hin skárri en
reiknað hafði verið með. Franz segir
þó alltof snemmt að segja nokkuð til
um holurnar því nokkurn tíma taki
fyrir þær að jafna sig. Niðurstaðan
nú sé þó í það minnsta eftir björtustu
vonum. Enn er eftir að bora tvær til
þrjár holur á Þeistareykjum en viss-
an um að þar fáist 40-80 megavött
hið minnsta styrkist sífellt. „Aðalnið-
urstaðan er sú að menn eru nú bjart-
sýnni en áður. Álverið þarf nú ein-
hver lifandis ósköp en það er verið
að hugsa um miklu fleiri svæði fyrir
það,“ segir Franz og nefnir m.a.
Kröflu og Bjarnarflag. „Það er gert
ráð fyrir að Þeistareykir gefi 140
MW á endanum og ég get ekki svar-
að því hvort það stenst, en allavega
helminginn af því.“ Myndin sýnir
Kristján Stefánsson, Karl Emil
Sveinsson og Sigurjón Benediktsson
þegar opnað var fyrir borholu.Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Tveimur borholum hleypt upp á Þeistareykjum og bora á tvær til þrjár til viðbótar
Bjartsýnni
en áður
STOFNAÐ 1913 327. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
JÓL 2007 | KRÆSILEGT JÓLABLAÐ
MORGUNBLAÐSINS KEMUR ÚT Í DAG
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
MEIRA en hundrað aðventu- og jóla-
tónleikar verða haldnir opinberlega á
aðventu, samkvæmt tónleikalista
Jólablaðs Morg-
unblaðsins. Fyrir
um mánuði var
birt auglýsing í
Morgunblaðinu
og tónlistarfólk og
tónleikahaldarar
beðnir að senda
upplýsingar um
jólatónleika til
blaðsins. 90 tón-
leikar í fullri
lengd eru á listan-
um, en að auki um 10 skemmri tón-
leikar, innan við klukkustundar lang-
ir.
Tæplega fimmtíu kórar koma fram
á þessum tónleikum, auk hljómsveita,
einleikara, einsöngvara og stjórn-
enda. Ef litið er til kóranna eingöngu,
og þess að í meðalkór eru um 40
manns og æft er einu sinni til tvisvar í
viku frá hausti; þá má gera ráð fyrir
því að um 98 þúsund vinnustundir
liggi að baki tónleikum í æfingatíma
kóranna. Sé sá tími yfirfærður í hóg-
vær kvöldvinnulaun, þar sem æfinga-
tími er undantekningarlítið um kvöld
og helgar, nemur vinnuframlagið
andvirði um 200 milljóna króna. Alla
jafna fá kórfélagar ekki greitt fyrir
vinnu sína, en tekjur af tónleikum
renna til starfseminnar.
Andvirði 250 milljóna króna
Í kórum starfar fyrst og fremst
áhugafólk um tónlist, en ekki mennt-
aðir tónlistarmenn, þótt undantekn-
ingar séu á því. Ef teknir eru aðrir
tónleikar en kórtónleikar, þar sem at-
vinnutónlistarfólk kemur fram, má
gera ráð fyrir mun skemmri æfinga-
tíma. Miðað við að slíkir tónleikar séu
um 50 talsins, og að þar liggi að jafn-
aði að baki 10 æfingar 20 manns fyrir
hverja þeirra, sem er varlega reikn-
að, þar sem kammersveitir og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands myndu falla
undir þennan hóp, jafnt sem minni
hópar; og með nokkuð hærri launum
en ófaglærða tónlistarfólkið hefði, eða
um 3.500 krónum á tímann, yrði and-
virði vinnuframlags þessa hóps um 35
milljónir.
Sé tónleikatími einnig reiknaður
með, sá tími, sem það tekur 3.800
manns að flytja sína tónlist, á 3.000
króna jafnaðarkaupi – eða tæpum 23
milljónum alls – þá nemur heildar-
andvirði vinnu tónlistarfólks á að-
ventu ríflega 250 milljónum króna.
Varlega áætlað má reikna með að
um 48 þúsund manns sæki þá tón-
leika sem skráðir eru, og að jafnaði
greiði hver þeirra 2.000 krónur í að-
gangseyri, sem nemur þá um 9,6
milljónum alls.
Ómæld
aukavinna
söngfugla
Yfir 100 jólatón-
leikar á 3 vikum
VONIR manna standa til að hægt verði að ganga
frá samningum milli Samson Properties og
Listaháskóla Íslands (LHÍ) á allra næstu dögum.
Þetta segir Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri
Samson Properties, en gangi samningar efir
myndi Samson Properties fá 11 þúsund fermetra
lóð í Vatnsmýri í skiptum fyrir uppbyggingu LHÍ
á svokölluðum Frakkastígsreit í miðborginni, en
sá reitur er um 3 þúsund fermetrar og afmarkast
af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vatns-
stíg. Leyfilegt byggingarmagn á hvorum reit fyrir
sig er sambærilegt, sem skýrist af því að byggðin
er þéttari í miðbænum og nýtingarhlutfall hærra.
Aðspurður segir Sveinn ekki búið að ákveða
hvernig uppbyggingin á Frakkastígsreitnum
verði en segist ekki útiloka að haldin verði hug-
Sveinn og tekur fram að slík uppbygging verði út-
færð í sátt og samráði við skipulagsyfirvöld borg-
arinnar. Í borgarráði í gær var samþykkt að
ganga til samninga við Samson Properties um
kaup á eignum borgarinnar á svokölluðum Bar-
ónsreit, sem afmarkast af Laugavegi, Vitastíg,
Skúlagötu og Barónsstíg. Að sögn borgarstjóra
fær borgin tæpar 1.300 milljónir fyrir sinn snúð.
Spurður hvort fyrirtækið sé nú búið að kaupa
allar þær lóðir á reitnum sem það þurfti til að geta
hafið uppbygginguna segir Sveinn að enn eigi eftir
að semja við ýmsa aðila sem eigi eignir á reitnum.
„Verkefnið um miðborgarkjarnann þróast bara í
kringum það hvernig sátt næst á þessum reit.“
Stórtæk uppbygging
Útilokar ekki hugmyndasamkeppni um uppbyggingu Samson Properties á
Frakkastígsreit Framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands gæti verið í miðbænum
myndasamkeppni um uppbygginguna. Spurður
hvað Samson Properties hyggist gera við lóðina í
Vatnsmýrinni gangi samningar eftir segir Sveinn
ótímabært að gefa neitt upp um það á þessum
tímapunkti. „En ef við eignumst lóðina þá höfum
við klárlega í hyggju að byggja á henni,“ segir
Uppbygging | 20
Leikhúsin í landinu
Velkomin í
leikhúsið >> 44
á www.jolamjolk.is
Spennandi leikur hefst
1. desember.
Fylgstu með
SIGURÐI Guðmundssyni landlækni líst almennt ágætlega
á þá hugmynd að selja nikótínlyf víðar en í apótekum, t.d. í
matvöruverslunum. Hið sama gildi um einföld verkjalyf
s.s. parasetamól.
Hugmyndin um að selja nikótínlyf víðar en í apótekum
er ekki ný en hún var meðal þeirra atriða sem Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, nefndi í fram-
sögu sinni á fundi um fákeppni og samkeppnishindranir á
íslenskum lyfjamarkaði sem Rannsóknarstofnun um lyfja-
mál við Háskóla Íslands stóð fyrir í gærmorgun.
Sigurður sagði að þar sem slík lyf væru seld utan apó-
teka hefði lyfjanotkun ekki aukist, fólk keypti þau ekki nema það þyrfti á
þeim að halda. „Nikótínlyfin eiga tvímælalaust að vera á þessum lista, þetta
eru lyf sem koma að klárlega að gagni í baráttu við eitt helsta heilsufars-
vandamál 21. aldar sem eru reykingar,“ sagði hann. | Miðopna
Líst vel á að selja nikótínlyf
og parasetamól í búðum
Sigurður
Guðmundsson