Morgunblaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 19
Best er að játa það strax: Ég las
þessa bók með áfergju eins og um
spennusögu væri að ræða. Kannski
ber það því einfaldlega vitni hversu
mikill fagídjót ég er en þó held ég að
allir sem áhuga hafa á íslenskum
bókmenntum yfirhöfuð hljóti að hafa
gaman af Sköpunarsögum Péturs
Blöndals blaðamanns. Hér er um að
ræða viðtöl við 12 íslenska rithöfunda
sem fæddir eru á árabilinu 1922-1976
og spanna verk þeirra allan síðari
hluta 20. aldarinnar ef miðað er við
útkomuár bókanna. Viðtölunum er
raðað eftir aldri rithöfundanna, sá
yngsti, Guðrún Eva Mínervudóttir,
er fyrst og sá elsti, Kristján Karls-
son, síðastur. Pétur hefur valið sér
viðmælendur af öllum kynslóðum nú-
lifandi höfunda og höfundarverk
þeirra spanna flestar greinar bók-
mennta; það er helst leikritunin sem
situr á hakanum. Alltaf má deila um
hvaða höfundar eru með og hverja
vantar en allur 12 manna hópurinn er
vel að heiðrinum kominn og síðan
getur maður bara vonast til að Pétur
sendi frá sér fleiri sköpunarsögur
síðar.
Það er kúnst að taka viðtöl sem
eitthvað er varið í og það vekur strax
eftirtekt hversu vel hér er vandað til
verks. Viðtalshöfundur dettur ekki
niður í þann pytt að skauta yfirborðs-
lega í gegnum „ævi og verk“ viðmæl-
enda sinna, heldur er ljóst frá upp-
hafi að hann hefur metnað til að skila
vel unnu verki og í formála kemur
fram að hann hefur gefið sér tíma til
að lesa öll útgefin verk höfundanna
auk þess sem hann hefur kynnt sér
rjómann af útgefnum viðtalsbókum,
svo sem samtalsbækur Matthíasar
Johannessen og bók Matthíasar Við-
ars Sæmundssonar, Stríð og söngur,
o.fl. slíkar. Þessa forvinnu má vel
merkja á spurningum Péturs og úr-
vinnslu hans á viðtölunum.
Hann hefur að leiðarljósi að reyna
að veita lesandanum innsýn inn í það
ferli sköpunar sem á sér stað í vinnu
höfundanna auk þess sem hann for-
vitnast um vinnulag hvers og eins,
spyr um kveikjurnar að skáldverkum
þeirra og krefur þá jafnvel um skýr-
ingar á einstaka þáttum í skáldverk-
um. Öll viðtölin hefjast á stuttri og
hnitmiðaðri persónu- og eða um-
hverfislýsingu og á eftir fylgir ít-
arlegt viðtal við viðkomandi höfund.
Viðtölin eru fjölbreytt og ólík inn-
byrðis, eins og gefur að skilja þegar
um ólíka viðmælendur er að ræða.
Þau eru hins vegar, fyrir minn hatt,
öll áhugaverð og fróðleg og mörg
bráðskemmtileg. Sérstaklega er hér
fengur að viðtölum við tvo heið-
ursmenn sem hurfu af sjónarsviðinu
meðan á vinnslu bókarinnar stóð:
Þorstein Gylfason og Elías Mar.
Bráðskemmtilegt er viðtalið við þann
síðarnefnda því hann tekur sig mátu-
lega hátíðlega og hikar t.d. ekki við
að segja frá hugmyndum að verkum
sem aldrei urðu til. Sérlega gaman er
einnig að lesa viðtalið við Sigurð Guð-
mundsson myndlistarmann sem
nálgast skriftirnar á allt annan hátt
en aðrir viðmælendur Péturs.
Sköpunarsögur er eiguleg bók, í
fallegu broti og prentuð á vandaðan
pappír og prýdd sérlega góðum ljós-
myndum Kristins Ingvarssonar;
myndin af Guðrúnu Evu sem tekin er
gegnum gluggarúðu er mögnuð; það
er engu líkara en að úr höfði hennar
vaxi greinamikið tré, sem kannski
má líta á sem táknmynd fyrir alla
góða rithöfunda.
Skemmtilegar sköpunarsögur
BÆKUR
Viðtalsbók
Texti: Pétur Blöndal. Ljósmyndir:
Kristinn Ingvarsson. Mál og menning
2007, 311 bls.
Sköpunarsögur. Viðtöl við 12 rithöfunda
Soffía Auður Birgisdóttir
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Góðar ljósmyndir Pétur Blöndal ræðir við Kristján Karlsson rithöfund.
Það er ennþá stríð í Afganistan.
Þrjátíu ára hörmungum lauk ekki
alveg eftir að Talíb-
anar voru hraktir frá
þegar Bandaríkja-
menn réðust inn í
landið. Talíbanar eru
ennþá sterkir, stríðs-
sveitir andspyrnu-
manna eru ennþá að
og Bandaríkjamenn
gera árásir á þá sem
stundum misheppn-
ast. Þessi ógnvekj-
andi staðreynd er
efst í huga mínum
þegar ég hef lokið
lestri Þúsund bjartra
sóla eftir Afganann
Khaled Hosseini.
Hann skrifaði einnig
Flugdrekahlauparann og hefur
gefið okkur, sem þurfum ekki að
óttast um líf okkar hvern dag,
sýn í líf þeirra stríðshrjáðu. Við
trúum því sem Hosseini skrifar
þó að þetta séu skáldsögur, við
trúum því vegna þess að honum
er lagið að segja sögu á hógvær-
an, einlægan og spennandi hátt
með lifandi persónusköpun, slá-
andi raunsæislýsingum á stríðs-
hörmungum og fögrum ljóð-
rænum lýsingum.
Þúsund bjartar sólir er sögð frá
sjónarhóli tveggja kvenna, þeirra
Mariam og Lailu, sem eru fæddar
1959 og 1978. Þær koma úr ger-
ólíku umhverfi, önnur er alin upp í
skömm sem lausaleiksbarn ríks
manns sem á þrjár eiginkonur en
hin er dóttir menntamanns og alin
upp við að hún eigi að fara í há-
skóla og láta að sér kveða. Vegna
hroðalegra stríðshörmunga eru
þær leiddar saman á
heimili manns sem
lætur þær klæðast
búrku þegar þær fara
út á meðal fólks.
Mariam sættir sig við
búrkuna, Laila gerir
það ekki í fyrstu en
lætur svo undan þar
sem refsingin er
gegndarlaust ofbeldi
manns sem finnst
konur vera úrhrök. Í
gegnum netið á búrk-
um kvennanna
tveggja fylgjumst við
með stríðinu, eyði-
leggingunni, lífsvilj-
anum, uppgjöfinni og
ástinni. Það er næstum því eins og
að vera á staðnum. En við erum
ekki á staðnum, við erum örugg
hér heima.
Með Flugdrekahlauparanum
flysjaði Khaled Hosseini nokkur
lög af fjölmiðlamyndinni af Afgan-
istan. Með Þúsund björtum sólum
sýnir hann okkur alla leið inn í
kjarnann. Ég þakka honum kær-
lega fyrir það og þakka JPV fyrir
að gefa bókina út í góðri þýðingu.
Inni í búrkunni
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Khaled Hosseini
Þýdd af Önnu Maríu Hilmarsdóttur
335 bls. JPV útgáfa, Reykjavík 2007.
Þúsund bjartar sólir
Hrund Ólafsdóttir
Khaled Hosseini
Eins og titill bókarinnar gefur til
kynna á að telja dýr í þessari bók.
Í fyrstu opnunni er einn hvalur, í
þeirri síðustu eru tíu hunangs-
flugur og þar á milli er komið víða
við í íslenska dýraríkinu.
Bókin hentar vel lesendum frá
tveggja ára, eða þeim eru að byrja
að læra að telja. Og í bókinni er
margt að telja og finna. Með hval-
inum eina er ein sól og eitt ský,
en með refunum fimm eru fimm
ský, fimm steinar og fimm blóm.
Eflaust geta allt að 4-5 ára
krakkar líka haft gaman af bók-
inni, þar sem þau kunna að telja
en eru nú að læra tölustafina. Þau
geta þá fundið út um hvaða tölu-
staf ræðir með því að telja dýrin,
muna hvaða tölustafur kemur á
undan eða kíkja á blaðsíðuhornið
þar sem litlar hendur með réttum
fjölda fingra á lofti geta verið góð
ábending.
Lesendurnir geta lært fleira en
að telja, því hverju dýri fylgja 1-2
setningar af vel völdum upplýs-
ingum um eðli þeirra eða sér-
kenni. Dóttur minni fannst mjög
gaman að vita að refur getur líka
heitið tófa, lágfóta og melrakki,
enda skýrði það ýmislegt í sam-
bandi við lagið um Sigga sem var
úti.
Myndirnar eru skýrar og
skemmtilegar, letrið lifandi. Allt
við þessa bók er úthugsað og hnit-
miðað. Með henni má bregða á
margvíslegan leik, og þá reynir á
upplesarann að finna verkefni sem
leyfa yngri lesendanum að telja,
finna, muna, fylla í eyðurnar, vera
klár og finna til sín.
Margslungin talning
BÆKUR
Barnabók
Myndir og texti: Halldór Á. Elvarsson.
Mál og menning. 2007. 20 bls.
Teljum dýr 1, 2 & 3
Hildur Loftsdóttir
TEXTI bókar þessarar er óform-
legur og þar með óþvingaður en
hefði mátt vera meira unninn. Frá-
sögn sögumanns er vafalaust látin
halda sér að svo miklu leyti sem unnt
er. Það hefur þann kost að frásögnin
kemst til lesandans nær því sem
sögumaður segir frá. Gallinn er á
hinn bóginn sá að venjulegt talað
mál er varla nokkru sinni svo skipu-
legt að það njóti sín með sama hætti í
prentuðum texta eins og það hljómar
af vörum sögumanns. Skrásetjarinn
hefði gjarnan mátt hafa það í huga.
Sögumaðurinn, Sveinn í Kálfs-
skinni, hefur annars frá mörgu að
segja, segir vel og fjörlega frá og
skemmtir lesandanum með skondn-
um gamansögum af fólki og atburð-
um. Hann er smiður og bóndi en hef-
ur líka verið virkur í félagsmálum
stéttar sinnar. Á búnaðarþingum og
í öðrum bændasamtökum hefur
hann bent á hversu ferðaþjónusta
geti styrkt byggðina þar sem þrengt
hefur að hefðbundinni búvörufram-
leiðslu. Jafnframt leggur hann
áherslu á að bændur verði að bjóða
ferðamanninum eitthvað sem aðrir
geti ekki boðið. Sjálfur hefur hann
leitast við að sanna það í verki.
Sveinn hefur víða farið, bæði inn-
anlands og erlendis, og segir margt
af ferðum sínum og annarra. Sá sem
vill feta í spor hans og njóta ferð-
arinnar getur sitthvað af ferðalýs-
ingum hans lært.
Nafnaskrá fylgir. Lofsvert er það
út af fyrir sig. En það verk hefði líka
þurft að vera betur unnið. Gælunöfn
eins og Gústi og Kalli upplýsa ekki
fleira en það sem í sjálfum textanum
stendur. Sá sem hyggst taka saman
nafnaskrá verður að geta flett upp í
manntali.
Smiður og bóndi
BÆKUR
Endurminningar
Endurminningar Sveins í Kálfsskinni.
Höf. Björn Ingólfsson. 448 bls. Útg.
Bókaútgáfan Hólar. 2007.
VASAST Í ÖLLU
Erlendur Jónsson
RISA JÓLAUPPBOÐ
Næsta listmunauppboð Gallerís Foldar verður haldið á
Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudagskvöldið 2. desember og
mánudagskvöldið 3. desember.
Á uppboðinu verður að venju gott úrval verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Öll verkin eru sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg föstudag 10–18,
laugardag 11–17 og sunnudag 12–17, en það sem boðið verður upp á
mánudagskvöld verður einnig sýnt á mánudag 10–18.
Hægt er að skoða uppboðsskrána með myndum á vefslóðinni myndlist.is.
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is
N
ína Tryggvadóttir