Morgunblaðið - 30.11.2007, Qupperneq 14
MAREL fjármagnar liðlega helming
eða 54% kaupverðs Stork Food Syst-
em með langtímalánum til fimm til
sjö ára sem Landsbanki sér um en
hinn hlutinn verður fjármagnaður
með hlutafé.
Þetta var meðal þess sem kom
fram á kynningarfundi þar sem
Hörður Arnarson forstjóri og Árni
Oddur Þórðarson, stjórnarformaður
Marels, fóru yfir kaupin á Stork og
framtíðarstefnu félagsins.
Um 4.200 starfsmenn
Stjórnendur Marels munu, eftir að
kaupin á Stork verða formlega geng-
in í gegn, einbeita sér að rekstrinum
– enda einar þrjár yfirtökur að baki á
fáum árum – og því að auka arðsemi
félagsins. Velta Marels mun meira
en tvöfaldast við kaupin á Stork og
losa 60 milljarða króna og starfs-
menn verða um 4.200 í fleiri en 40
löndum.
Stefnt verður að því að skrá
hlutafé félagsins í evrum um leið og
það verður hægt en ekki stendur til
að skrá félagið í annarri kauphöll en
OMX á Íslandi.
Eins og greint hefur verið frá
greiðir Marel 415 milljónir evra eða
um 38 milljarða íslenskra króna fyrir
Stork Food System. 12% kaupverðs-
ins, eða 53 milljónir evra, eru fjár-
mögnuð með fé sem Marel hefur
þegar aflað sér með hlutafjárútgáfu
og þess sem eftir stendur, eða 147
miljónir evra, verður aflað með hluta-
fjárútboði með forkaupsrétti til nú-
verandi hluthafa, en Landsbankinn
sölutryggir útboðið. Eiginfjárhlutfall
Marels verður áfram sterkt þrátt fyr-
ir kaupin eða um 33%.
Ekki ókeypis
Það kostar hins vegar augljóslega
orðið skildinginn að standa í stórræð-
um eins og kaupum Marels á Stork:
Kostnaðurinn nemur um 20 milljón-
um evra eða 4,8% af kaupverðinu,
jafngildi um 1,8 milljarða íslenskra
króna. Sá kostnaður varð meiri en
ráð var fyrir gert, m.a. vegna krepp-
unnar á fjármálamörkuðum.
Velta losar 60 milljarða
Marel mun einbeita sér að rekstri og arðsemi fyrst um sinn
14 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
1,24% í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær og var lokagildi hennar
6.410,48 við lokun markaða. FL
Group hækkaði um 3,76%, SPRON
um 3,62% og Icelandair um 2,77%.
Krónan styrktist um 0,39% í gær,
en velta á millibankamarkaði var í
meðallagi. Gengi Bandaríkjadals var
69,40 krónur við lokun markaða,
evru 90,7 krónur og punds 126,71
krónur.
Hækkanir í kauphöll
● FJÁRFESTINGARSJÓÐURINN
KCAJ, sem er í eigu Arev-verðbréfa,
hefur gert tilboð í allt hlutafé sport-
vöruverslanakeðjanna Intersport og
Sportmaster. Keðjurnar, sem báðar
starfa á Norðurlöndunum, eru sam-
tals með um 200 verslanir á sínum
snærum. Elín Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Arev-verðbréfa, segir
að hluthafar Intersport séu þegar
búnir að samþykkja kauptilboðið,
en hluthafar í Sportmaster hafa
frest til 4. desember til að taka til-
boðinu. Stjórn Sportmaster hefur
mælt með því við hluthafa að þeir
taki tilboði KCAJ. Aðspurð segir Elín
langt frá því að fólk sé að velta fyrir
sér sameiningu keðjanna tveggja,
en getgátur um slíkan samruna
hafa gengið í norrænum miðlum frá
því að greint var frá yfirtökutilboð-
unum.
Tilboð í Intersport
og Sportmaster
● SKULDATRYGGINGAÁLAG á
skuldabréfum íslensku bankanna
hefur lækkað umtalsvert á einni
viku, en þá hafði álagið náð hæstu
hæðum, eins og sagt var frá í Morg-
unblaðinu.
Lækkunin á einni viku nemur 0,7
til 1,05 prósentustigum. Á fimmtu-
dag fyrir viku var álagið á bréfum
Kaupþings 3,6% en var í gær 2,55%.
Álag á bréfum Glitnis var 2,55% fyrir
viku en er nú 1,7% og álag á bréfum
Landsbankans var í síðustu viku
1,95% en er nú 1,25%.
70 til 105 punkta
lækkun á einni viku
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ hefur
gert drög að frumvarpi um breyt-
ingar á samkeppnislögum. Breyting-
arnar taka til þeirra ákvæða er varða
samruna fyrirtækja og fengi umsögn
Samkeppniseftirlits meira vægi við
þessar breytingar.
Lagt er til að tilkynna skuli um
samruna áður en hann kemur til
framkvæmda og hann skuli ekki
framkvæma á meðan Samkeppnis-
eftirlitið fjallar um hann. Samkvæmt
núgildandi lögum tekur samruni
gildi óháð skoðun Samkeppniseftir-
litsins þótt hann sé gerður með fyr-
irvara um samþykki þess. Nokkuð
óhagræði þykir hafa skapast af gild-
andi fyrirkomulagi.
Þá er gerð tillaga um útvíkkun á
heimildum Samkeppniseftirlitsins til
að ógilda samruna eða setja skilyrði
fyrir honum. Einn þáttur þess er
heimild til að krefjast þess, þegar
samruna hefur verið hafnað, að fyr-
irtæki eða eignir sem hafa verið sam-
einaðar verði aðskildar og sameig-
inlegri stjórn hætt, til að koma á
virkri samkeppni á ný.
Auk þessa er lagt til í drögunum
að breytingar verði á ákvæðum um
fresti Samkeppniseftirlitsins til að
taka ákvarðanir í samrunamálum.
Að heimilt verði að setja fram styttri
tilkynningar um samruna í tiltekn-
um tilvikum. Og að Samkeppniseft-
irlitið öðlist heimild til að taka mál
fyrir að nýju, hafi áfrýjunarnefnd
eða dómstóll ógilt ákvörðun eftirlits-
ins sökum formgalla. Þá er skilgrein-
ing á samruna og yfirráðum færð til
samræmis við evrópskan samkeppn-
isrétt.
Samruni bíði samþykktar
Samkeppniseftirlitsins
Drög að breytingum á samrunaákvæðum samkeppnislaga
Menn eru augljóslega orðnir lang-
þreyttir á að vera úthrópaðar karl-
rembur vegna þessa, segja að sú sé
alls ekki raunin og stundum hafi verið
langt seilst til að fá konu í stjórn en
ekkert gengið. „Það er miklu
skemmtilegra í stjórnum þar sem
konur sitja,“ sagði einn og annar
sagði: „Ef þetta er mein þá liggur það
við eldhúsborðið heima fyrir en ekki í
reykfylltum bakherbergjum“ og vísar
þar til þess að á bakvið stóra eign-
arhluti einstaklinga standi oft ekki
einungis karl heldur líka kona og þau
hljóti að ákveða sín á milli hvort
þeirra tekur stjórnarsæti til að verja
hagsmuni þeirra.
Almennur vilji til að
fjölga stjórnarkonum
Fleiri konur í stjórnunarstörfum skila sér í fjölgun í stjórnum
Morgunblaðið/Golli
Með reynslu Katrín Pétursdóttir hefur þekkinguna, reynsluna og getuna
enda situr hún í úrvalsvísitölustjórnum bæði Glitnis og Bakkavarar.
MJÖG almennur vilji er til að fjölga
konum í stjórnum stærstu fyrirtækja
landsins, að sögn nokkurra stjórnar-
formanna og varaformanna sem hafa
marga fjöruna sopið í stjórnarstörf-
um og Morgunblaðið hafði samband
við.
Ástæður þess að konurnar eru ekki
fleiri en raun ber vitni eru taldar
margþættar og erfitt að benda á eina
einstaka. Eitt af því sem viðmælend-
ur nefndu var að aukning kvenna í
stjórnunarstörfum innan stórfyrir-
tækja haldist í hendur við fjölgun
kvenna í yfirstjórnum. Konur verði
smám saman meira áberandi stjórn-
endur og þá verði leiðin greiðari í
stjórnirnar. „Þeir sem sitja í stjórnum
fyrirtækja sitja þar í krafti þekkingar
sinnar, reynslu og getu. Hafi þeir ekki
gegnt stjórnunarstöðum þá er óraun-
hæft og erfitt að ætlast til þess að þeir
geti setið í stjórnum stærri fyrirtækja
og miðlað af reynslu sem þeir hafa
ekki,“ sagði einn viðmælenda.
Annað er það, sem bent var á, að
stærstu eigendur fyrirtækjanna til-
nefna stjórnarmenn fyrir sína hönd
og vilja þá gjarnan sjálfir sitja í þeim
sætum. Stjórnarsætin eru af skorn-
um skammti og eigendahóparnir
þurfa á stundum að berjast fyrir því
að fá fulltrúa í stjórn. „Ég ber ábyrgð
á þessum fjármunum og vil halda ut-
an um þetta sjálfur. Þess vegna til-
nefni ég sjálfan mig,“ var ein rök-
semd.
Í HNOTSKURN
» Konur eru 8,5% stjórn-armanna úrvalsvísitölufyr-
irtækjanna. Í Teymi er hlut-
fallið hæst, eða 40%.
» Rannsókn frá í sumarleiddi í ljós að 8% stjórn-
armanna í 100 stærstu fyrir-
tækjum landsins eru konur.
» Í Bretlandi eru fram-kvæmdastjórnir fyrir-
tækja álitnar vera útung-
unarvélar fyrir framtíðar
stjórnarmenn.
KAUPÞING hefur keypt nær helm-
ingshlut í E-kortinu af Spron.
Þetta staðfestir Benedikt Sigurðs-
son, upplýsingafulltrúi bankans, í
samtali við
Morg-
unblaðið.
Hann segir
Kaupþing
að und-
anförnu
hafa verið að leita að einhvers kon-
ar vildarkortakerfi og samkomulag
hafi náðst við Spron um aðild að E-
kortinu. Hann segir að stofnað
verði sérfélag sem verður í sameig-
inlegri eigu Spron og Kaupþings,
Spron þó aðeins stærri hluthafi.
Kaupverð er ekki gefið upp.
„Valið stóð á milli þess að fara út
á markaðinn og ná samningum við
kaupmenn og fleiri aðila eða að
kaupa sig inn í félag á borð við
E-kort,“ segir Benedikt.
Að sögn hans er stefnt að því að
viðskiptavinum Kaupþings verði
boðið upp á E-kortið innan
skamms.
Stuðlar að betri útbreiðslu
Um verður að ræða samstarf
Kaupþings og Spron um E-kortið.
Samkvæmt upplýsingum frá Spron
var farið út í samstarfið við Kaup-
þing með það fyrir augum að
stuðla að betri útbreiðslu á kort-
unum.
E-kortið er alþjóðlegt greiðslu-
kort en handhafar kortsins fá end-
urgreiddan hluta af allri innlendri
notkun þess utan peningaúttekta,
óháð því hvar er verslað.
Kaupþing
eignast hlut
í E-kortinu
) *
+
&
*,-./0
"1! '!"##2
2%34 5
%
%&'()
*+',&
(*'&&
(&',&
(-',&
.)'+&
(,'+&
/(*'&&
.,'(&
%)'(&
)'.,
//'*&
('-%
)'--
%+%('&&
*-+'&&
%'&+
(&&'&&
*'-(
/)'&&
(.'(&
%&'++
-,'&&
+'*&
.-+&'&&
%%'&&
)'*&
!
" # !$
%& '
(
(( (
(
((
((
(
(
(
(
(
(
)
)(
)
(
)
)
(()
) )
)
(
)
)
)
)
)
)
)
)
)(
(
) ) )
)
)
(
)
)
)
*+,
(
-! !
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
6*! !4* . / & 01
2,/ & 01
34 01
*5/ & 01
/ 01
136 17!8
9: / & 01
%& ! 01
5 8 01
' &6&2&;*+;1 01
"<601
=&01
7 689:% 4
01
.1:01
. :> &6>?*
32
*!/ & 01
*@ <2
9: :/ & 01
A01
BC0+01
'>DEB
"<!! !6 , 01
F & , 01
4. 4;9 G &<.&6 &6G
2/ 01
6 + 01
EAH<
EAH
-,&
%0&//
1&')
1&'-
I
I
EAH
=2H
.0&+,
-%/
1&',
1&'-
I
I
- JK
B %.0.%(
(0))+
1&'(
1&'(
I
I
*"'3
-.H
)0.-/
,0,)*
1&',
1&'*
I
I
EAH>
EAH. )0+/)
%0(+(
1%')
1&'*
I
I
● HLUTHAFAFUNDI í finnska símafyr-
irtækinu Elisa, sem átti að vera hinn
18. desember, hefur verið frestað til
21. janúar. Novator, fjárfesting-
arfélag í eigu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, er stærsti einstaki hlut-
hafinn í Elisa og hafði krafist
hluthafafundarins til að ræða ónýtta
möguleika fyrirtækisins, sem
Novator telur ekki hægt að nýta án
þess að breytingar verði gerðar á
rekstri Elisa.
Talsmenn Novators hafa lýst yfir
undrun sinni á þeirri ákvörðun stjórn-
ar Elisa að fresta hluthafafundinum.
Hluthafafundi frestað
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s seg-
ist vera að endurskoða lánshæfisein-
kunn Kaupþings, sem nú er Aa3/C,
með tilliti til lækkunar hennar.
Á sama tíma er lánshæfiseinkunn
NIBC-bankans, sem Kaupþing er að
kaupa, í skoðun, en hollenski bank-
inn hefur nú langtímaeinkunnina
Baa1. Einkunnin hefur verið til skoð-
unar með tilliti til mögulegrar hækk-
unar síðan í ágúst þegar tilkynnt var
um yfirtöku Kaupþings á bankanum.
Einkunn fyrir fjárhagslegan
styrkleika Kaupþings og skamm-
tímaeinkunn eru óbreyttar og horf-
urnar stöðugar.
Ástæða skoðunarinnar er sögð
endurspegla veikari stöðu NIBC og
þá áhættu sem er fólgin í yfirtök-
unni. Þó verði tekið tillit til sterkari
stöðu Kaupþings.
Skoðar lækk-
un Kaupþings