Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 17
MENNING
BEAT-SKÁLD og verk þeirra
verða kynnt í menningarsmiðj-
unni Populus Tremula, í Lista-
gilinu á Akureyri, í kvöld kl. 21.
Þar verða lesin ljóð og örstuttir
prósar eftir beat-skáldin Jack
Kerouac, Allen Ginsberg,
William S. Burroughs og Law-
rence Ferlinghetti, með stuðn-
ingi húsbandsins.
Á miðnætti mun svo pönk-
hljómsveitin Blái hnefinn
kynna plötu sína Sögur úr Klandurbæ, en hún er
yfirlitsverk yfir „klúður og handvömm núverandi
bæjarstjórnar Akureyrar, meiri- og minnihluta“
eins og segir í tilkynningu.
Bókmenntir og tónlist
Beat-skáld og
pönkhljómsveit
Beat-skáldið
Jack Kerouac.
„VÍN og ljúfir tónar“ er yfir-
skrift tónleika barrokkhópsins
Rinascente, sem haldnir verða
í safnaðarheimili Neskirkju í
kvöld kl. 20. Þar verður flutt
tónlist eftir Bach, Muffat og
tvær einsöngskantötur eftir
G.F. Händel.
Kantöturnar samdi Händel á
Ítalíuárum sínum og til þess að
skapa rétta stemningu verður
kynning á ítölskum vínum í
hléi. Þetta er annað árið í röð sem Rinascente hef-
ur þennan háttinn á, að bjóða upp á léttar veit-
ingar á tónleikum sínum. Hljóðfæraleikarar leika
allir á upprunaleg hljóðfæri.
Tónlist
Ítölsk vín og ljúfir
tónar í Neskirkju
Portrett af
J.S. Bach.
RAGNAR Th. Sigurðsson opn-
ar á morgun sýningu í ljós-
myndagalleríinu Fótógrafí,
Skólavörðustíg 4, kl. 12. Sýn-
ingin ber titilinn Litir jarðar.
Ljósmyndirnar tók Ragnar
síðastliðið haust og sýna þær
blæbrigði íslenskra villijurta í
nærmynd.
Ragnar er þekktastur fyrir
hefðbundnari landslagsmyndir
og sýnir því á sér nýja hlið.
Hann hefur starfað við ljósmyndun frá árinu 1975
og gefið út fjölda bóka.
Fótógrafí er opið alla daga í desember frá
klukkan 12 til 18.
Ljósmyndun
Blæbrigði íslenskra
villijurta að hausti
Ragnar Th.
Sigurðsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Í SKÝRSLU kjararannsóknarnefndar opinberra
starfsmanna sem birt var nýlega kemur fram að
starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru með
næstlægstu laun opinberra starfsmanna.
Í skýrslunni kemur fram að heildarlaun starfs-
mannanna eru 296 þúsund krónur, en dagvinnu-
laun 287 þúsund.
Þegar laun almenns hljóðfæraleikara í hljóm-
sveitinni eru skoðuð, kemur í ljós að dagvinnulaun
eru um 265 þúsund krónur á mánuði, og heild-
arlaun litlu hærri, þar sem yfirvinna er nánast
engin. Öll vinna hljóðfæraleikaranna er inni í
heildarlaunum, þar með talið tónleikar um kvöld
og helgar.
Að sögn Rúnars Óskarssonar klarinettuleikara
og Hrafnkels Orra Egilssonar sellóleikara og for-
manns starfsmannafélags hljómsveitarinnar, hafa
hljóðfæraleikarar miklar áhyggjur af því að lág
laun muni bitna á listrænum metnaði og gæðum
hljómsveitarinnar. Þeir segja þónokkur dæmi um
að vel menntaðir og góðir hljóðfæraleikarar hætti,
til að geta sinnt betur launuðum störfum, og Rún-
ar staðfestir að þegar hann hafi ráðið sig til hljóm-
sveitarinnar hafi kjör hans rýrnað umtalsvert frá
störfum sem tónlistarkennari; launin hafi lækkað
og vinnutími og vinnuaðstæður séu verri. Þá hafi
það gerst nýverið, að aðeins einn umsækjandi hafi
verið um leiðandi stöðu í sveitinni.
Launakerfi Sinfóníuhljómsveitarinnar byggist
á því að verkefni eru metin til eininga. Ein æfing
er ein eining, tónleikar sömuleiðis. Þak á eininga-
fjöldanum sem unnt er að nýta hljómsveitina eru
allt að 9 einingar á viku, en hver eining reiknast
sem fjórar vinnustundir. Að jafnaði er hljómsveit-
in nýtt í um 6,3 einingar á viku. Stjórnendur
hljómsveitinnar þurfa að fylgja ákvæðum um hve-
nær kalla megi hljómsveitina til vinnu, innan
þessa ramma, og svo dæmi sé tekið, mega stjórn-
endur ekki fara fram á að hljómsveitin vinni fleiri
en 11 laugardaga á starfsárinu. Á hverju starfsári
má nýta hljómsveitina í þrjár vikur á erlendri
grund, og eina viku utan Reykjavíkur. Stjórnend-
ur hljómsveitarinnar hafa því talsverðan sveigj-
anleika á ráðstöfun vinnutíma hljóðfæraleikar-
anna. Laun hljóðfæraleikaranna hækka hins
vegar ekki við kvöld- eða helgarvinnu, ef vinnan
fer ekki yfir þessar níu leyfilegu einingar á viku.
Viðveruvinnustundir hljóðfæraleikara á æfing-
um og á tónleikum eru því ágætlega skilgreindar.
Hins vegar þarf hver hljóðfæraleikari fyrir sig að
æfa sína rödd heima við og kunna á henni skil á
fyrstu æfingu á mánudagsmorgni, þegar vinna
hefst fyrir fimmtudagstónleika. Þessi vinna er
óskilgreind, og fellur ekki inn í einingakerfið, þar
sem misjafnt er frá einum hljóðfæraleikara til
annars og frá einu tónverki til annars hversu mik-
ils heimaundirbúnings er þörf.
Menntun hljóðfæraleikara er með því mesta
sem gerist, því langflestir hafa byrjað tónlistar-
nám sitt á barnsaldri.
Dæmi eru um, að sögn Rúnars og Hrafnkels, að
hljóðfæraleikarar hafi lokið átta ára framhalds-
námi, eftir lokapróf úr tónlistarskólum hér heima,
en námið er ekki metið til launa, einungis hæfni á
inntökuprófi. Þá má geta þess að vinnutæki hljóð-
færaleikara, hljóðfærin sjálf, eru dýr, og getur t.d.
verð á einni fiðlu numið 5-10 milljónum króna.
Kjör hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru næstlægst hjá ríkinu
Óttast að lág laun bitni
á listrænum gæðum
Í HNOTSKURN
» Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð1950 með 39 hljóðfæraleikurum.
» Í dag starfa um 90 hljóðfæraleikarar íhljómsveitinni.
Sinfó Langt tónlistarnám er ekki metið til launa.
OPINBER rann-
sókn hefur verið
hafin í Tyrklandi
vegna útgáfu
tyrkneskrar þýð-
ingar á bókinni
The God Delus-
ion, eða Rang-
hugmyndin um
Guð, eftir Rich-
ard Dawkins. Út-
gefandi bókarinnar og þýðandi,
Erol Karaaslan, verður að öllum
líkindum lögsóttur fyrir að breiða
út trúarlegt hatur.
Karaaslan greindi frá því í fyrra-
dag að saksóknari í Istanbúl ætlaði
að yfirheyra hann í gær og að sú yf-
irheyrsla væri liður í opinberri
rannsókn vegna bókaútgáfunnar.
Dawkins er breskur þróunar-
fræðingur og hefur bók hans m.a.
notið gríðarlegra vinsælda á net-
versluninni Amazon.
Verði niðurstaða rannsóknar-
innar sú að bókin ýti undir andúð
manna á trúarbrögðum og smáni
trúarleg gildi, verður útgefandinn
að öllum líkindum lögsóttur. Refs-
ingin við slíkum glæp er fangels-
isvist allt að einu ári. Rannsóknin
hófst í kjölfar kvörtunar lesanda
um að hluti textans væri árás á
„heilög gildi“ trúarbragða. Yfir
6.000 eintök hafa selst í Tyrklandi.
Efasemdir
Dawkins
valda usla
Tyrkneskur útgefandi
hugsanlega lögsóttur
Richard Dawkins
SVO virðist sem
bandaríski kvik-
myndaleikstjór-
inn Woody Allen
sé ekki lengur í
miklu uppáhaldi
hjá Katalónum.
Tvær næstu
myndir Allen
verða hvorki
teknar í Katalón-
íu né á Spáni, eins og til stóð.
Neikvæðri umfjöllun spænskra
stjórnmálamanna og fjölmiðla, um
fjárstyrk borgarstjórnar Barcelona
til gerðar seinustu myndar Allen,
Vicky Cristina Barcelona, er kennt
um hvernig fór. Allen verður því að
leikstýra annars staðar.
Allen leikstýrir
ekki á Spáni
Woody Allen
HLJÓMSVEITIN
Camerata Drammatica
heldur tónleika í Ís-
lensku óperunni á
sunnudaginn.
Á þessum tónleikum
mun hljómsveitin flytja
verk úr hinum spenn-
andi heimi barokktón-
bókmenntanna, m.a.
aríur úr verkum Händ-
els og Vivaldi. Tón-
leikagestir kynnast
hrakfallabálkinum
Pimpinone úr sam-
nefndu verki Tele-
manns, og blóðheitt par
úr óperunni Don Chisc-
iotte eftir Conti kemur við sögu.
Concerto Grosso eftir Händel mun
óma ásamt Passacagliu eftir Muffat,
sem talin er meðal þess fegursta sem
ritað hefur verið fyrir strengi. Ein-
söngvarar á tónleikunum eru þau
Ágúst Ólafsson barítón og Marta
Guðrún Halldórsdóttir sópran.
„Við héldum líka
svipaða tónleika í
fyrra í lok apríl og
voru það fyrstu tón-
leikar Camerata
Drammatica og þessir
verða númer tvö,“
segir Guðrún Ósk-
arsdóttir semballleik-
ari.
Camerata
Drammatica var
stofnuð í samstarfi við
Íslensku óperuna
haustið 2006. Með-
limir sveitarinnar eru
starfandi á ýmsum
sviðum tónlistarlífsins
bæði hér heima sem og erlendis og
leika reglulega með hinum ýmsu tón-
listarhópum. Hópinn skipa ásamt
Guðrúnu: Elfa Rún Kristinsdóttir,
Gabrielle Wunsch, Halla Steinunn
Stefánsdóttir, Hildigunnur Halldórs-
dóttir, Lilja Hjaltadóttir, Svava
Bernharðsdóttir, Hanna Loftsdóttir,
Sigurður Halldórsson og Gunn-
laugur Torfi Stefánsson.
„Hópurinn hefur það lang-
tímamarkmið í huga að flytja óperur
frá barokktímanum með uppruna-
legum hljóðfærum en við spilum öll á
barokkhljóðfæri,“ segir Guðrún.
Leiðari á tónleikunum á sunnu-
daginn er danski fiðluleikarinn Peter
Spissky en hann starfar sem kons-
ertmeistari með hljómsveitunum
Concerto Copenhagen og Malmö
Barockorkester auk þess sem hann
kemur reglulega fram með helstu
barokksveitum Evrópu. „Spissky var
líka með okkur á tónleikunum í fyrra
og okkur fannst hann svo frábær
stjórnandi að við ákváðum að fá hann
aftur,“ segir Guðrún. Hópurinn fékk
mjög góða dóma fyrir sína fyrstu
tónleika og nú er stefnan að end-
urtaka leikinn að sögn Guðrúnar.
„Við vonum að það verði ekki minna
stuð en síðast.“
Tónleikarnir hefjast í Íslensku
óperunni kl. 16 á sunnudaginn.
Camerata Drammatica í Íslensku óperunni á sunnudaginn
Flytja verk úr heimi
barokktónbókmenntanna
Guðrún Óskarsdóttir
AFMÆLISVEISLA stendur nú yfir
í Iðnó. Húsið er 110 ára um þessar
mundir og af því tilefni er boðið
upp á söngperludagskrá úr íslensk-
um revíum í húsinu. Það eru þau
Soffía Karlsdóttir söngkona og Örn
Árnason leikari sem flytja söngv-
ana, sem eru frá árunum 1902 til
1950, við undirleik Jónasar Þóris.
Nokkur þessara laga hafa ekki
verið flutt síðan þau voru frumflutt
og eru mörg þeirra hreinar ger-
semar. Margar revíur voru sýndar
á árunum 1930-50, eins og Spánsk-
ar nætur, Haustrigningar, Allt í
lagi lagsi, Halló Ameríka og fleiri.
Mörg lög úr þessum revíum eru
þekkt enn þann dag í dag, eins og
„Tóta litla tindilfætt“, „Syrpuþula“,
„Hvað getur hann Stebbi gert að
því þó hann sé sætur“ og fleiri
skemmtileg lög.
Söngskemmtunin þykir tilvalin
fyrir einstaklinga og hópa sem vilja
upplifa sönglist fyrri ára í Iðnó og
öðruvísi skemmtun í skammdeginu.
Miðaverð er 2.900 kr. og innifalið í
því er kaffi og smörrebröd.
Næstu sýningar eru í kvöld kl. 20
og svo á morgun og sunnudag og
um næstkomandi helgi, 7. og 8. des-
ember.
Rifja upp nokkur
revíulög í Iðnó
Soffía Karlsdóttir söngkona og Örn
Árnason leikari með söngskemmtun
Revía Soffía Karlsdóttir söngkona
og Örn Árnason leikari.
♦♦♦