Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 21

Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 21 AUSTURLAND Eftir Líneyju Sigurðardóttur Þórshöfn | Ráðstefna um atvinnu- mál í Langanesbyggð var haldin í félagsheimilinu á Þórshöfn sl. laug- ardag, að frumkvæði atvinnumála- nefndar Langanesbyggðar í sam- ráði við Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga. Auk heimamanna mættu góðir gestir til fundar, m.a. Össur Skarphéðinsson iðn- aðarráðherra og þingmennirnir Val- gerður Sverrisdóttir og Stein- grímur J. Sigfússon. Össur flutti opnunarerindi á ráð- stefnunni og kom inn á marga þætti, sem snerta uppbyggingu og atvinnulíf almennt. Að hans mati er æskileg framtíðarsýn hér að landið geti orðið eitt búsetu- og atvinnu- svæði og að landsmenn hafi allir jafnan aðgang að grunngæðum í samfélaginu. Þar er enn nokkuð langt í land, þótt úrbætur séu stöð- ugt í gangi, t.d. umbætur á vega- kerfi og í fjarskipta- og mennta- málum, svo eitthvað sé nefnt. Á leið sinni til Langanesbyggðar varð ráð- herrann til dæmis var við mjög stopult gsm-samband. Enginn bölmóður Atvinnumálaráðstefna með líku sniði og þessi var haldin hér fyrir tveimur árum. Úrvinnsla hugmynda og tækifæra, sem þá komu upp, er þegar farin að skila sér og því var tímabært að blása til nýrrar ráð- stefnu og halda áfram til sóknar. Þótt hér sé um jaðarsvæði að ræða hafa heimamenn verið lausir við all- an bölsýnistón og horft jákvæðir til framtíðar í leit að nýjum tækifær- um, en það taldi Össur eftirtekt- arvert og um leið einkar ánægju- legt. Ef heimamenn hafa ekki sjálfir trú á því sem þeir eru að gera eða ætla sér að gera, þá er ekki við því að búast að aðrir hafi trú á því. Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu atvinnu- og þróunarmála al- mennt í byggðarlaginu. Spurn- ingum var varpað fram: Hvernig störf þurfum við og viljum? Hvernig er staðan núna og hvernig viljum við að hún þróist? Eru næg atvinnu- tækifæri hér? Búum við yfir góðum hugmyndum og hvernig má þá hrinda þeim í framkvæmd? At- vinnumálaráðstefna í heimabyggð er réttur vettvangur fyrir slíkar vangaveltur. Fram kom að mikilvægt er að treysta þann grunn sem fyrir er á svæðinu, gróin fyrirtæki sem og frumkvöðla, en vaxtarmöguleikar í byggðarlaginu eru miklir. Í deigl- unni er vaxtarsamningur sem At- vinnuþróunarfélagið leggur nú drög að við iðnaðarráðuneytið og sem stefnt er að að undirrita fyrir ára- mót. Tryggvi Finnsson, formaður At- vinnuþróunarfélags Þingeyinga, fór yfir helstu áherslur í væntanlegum vaxtarsamningi. Fram kom einnig í erindi Tryggva að ferðamála- fulltrúinn Sif Jóhannsdóttir hefði verið ráðinn til svæðisins, sem er mjög jákvætt því miklir möguleikar eru þar ónýttir í ferðaþjónustu og fór Sif yfir þau málefni á fundinum. Drekasvæðið, kræklingarækt og Strandabúið Framfarir hafa orðið í byggð- arlaginu og ný fyrirtæki orðið til, s.s. Fánasmiðjan og Fiskmarkaður Þórshafnar, vinnsla hefur hafist á spæni úr rekaviði og hjá Íslenskum kúfiski standa yfir rannsóknir á áhugaverðu þróunarverkefni; að vinna úr kúskelinni hágæðakalk sem stenst kröfur í lyfjaiðnaði. Björn Ingimarsson sveitarstjóri gerði grein fyrir ýmsum hugmyndum sem eru til skoðunar hjá Langanes- byggð, s.s. þjónustumiðstöð við olíu- rannsóknir á svokölluðu Drekasvæði sem, ef af yrði, skapaði hátt í 100 störf auk þess að skapa mikla þróun- armöguleika gagnvart þjónustu við siglingar um norðurhöf. Í máli sveit- arstjóra kom fram að tekin hefði ver- ið ákvörðun um að hefja tilraunaeldi á bláskel í Þistilfirði og Bakkaflóa. Um væri að ræða tilraunaverkefni sveitarfélagsins og útgerðaraðila á svæðinu. Einnig kynnti sveitarstjóri Langa- nesbyggðar hugmyndir um eflingu sauðfjárbúskapar á svæðinu en upp- bygging 2000 kinda fjárbús er til skoðunar á austanverðri Langanes- strönd, fyrrum Skeggjastaðahreppi. Það svæði er nánast að fara í eyði og fjallskil eru erfið og sagði Björn tilganginn að nýta á ný gjöful rækt- ar- og beitarlönd og um leið að snúa við þessari þróun. Ef hugmyndin reynist raunhæf yrði þarna um að ræða eitt stærsta fjárbú landsins, sem yrði mikil lyftistöng fyrir land- búnaðinn á svæðinu. Í lok ráðstefnunnar tóku um- ræðuhópar til starfa en niðurstöður þeirra verða síðan kynntar á sér- stökum framhaldsfundi, sem verður haldinn í byrjun janúar, og rætt um næstu skref. Mikilvægt að treysta grunninn Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Atvinna Fjölmenni var á atvinnumálaráðstefnunni á Þórshöfn. Meðal annars komu nokkrir gestir langt að og létu ekki veður og færð koma í veg fyrir það. Margt áhugavert kom fram á ráðstefnunni. Áhugaverð at- vinnuráðstefna í Langanesbyggð LANDIÐ Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Seyðisfjörður | Netaverkstæði á Seyðisfirði, þar sem fjórir til fimm menn hafa starfað undir merkjum Fjarðarnets, verður lokað um ára- mót. Á verkstæðinu er einkum gert við veiðarfæri togarans Gullvers og línubáta sem landa á staðnum. „Það er að nálgast tuttugu ár sem við elstu mennirnir höfum unnið hér. Fyrst hét þetta Fjarðarnet, svo Neta- og veiðarfæragerðin, þá Neta- gerð Friðriks Vilhjálmssonar og núna Fjarðarnet, sem starfrækt er hér og á Neskaupstað, Akureyri og Ísafirði,“ segir Ólafur Vigfússon, einn starfsmanna netaverkstæðis- ins. Karlarnir á verkstæðinu sögðust á miðvikudag ekki hafa hugmynd um hvort ætti að loka, hvenær né hvers vegna. Til hefði staðið að byggja netagerð á Vopnafirði en búið væri að blása það af. Það yki kannski eitt- hvað líkur á að netaverkstæðið á Seyðisfirði yrði áfram. Búið er þó að segja öllum upp og þeir segja það einn angann af niðurskurðinum í kvóta. Þegar spurt er hvað þeir ætli að gera, missi þeir vinnuna, er svarið á sömu lund, ekki neitt því ekkert sé að hafa annað. Þeir eru allir, utan einn, komnir af léttasta skeiði, farið að styttast hjá þeim hinum í eftir- launaaldur þótt misjafnlega mikið sé. „Það kæmi nú verulega á óvart ef fyrirtækið myndi brúa það, en ekki þar fyrir að þeir hafi reynst okkur illa. Auðvitað hefur maður áhyggj- ur,“ segir Guðjón Óskarsson, sem situr við saumavélina. Yngsti starfs- maðurinn, Alexander Einarsson, tal- ar um að róa á önnur mið en Seyð- isfjörð ef hann missi vinnuna á netaverkstæðinu. Þeir segja útgerð- ina enn við lýði á Seyðisfirði, Gullver sé búið að vera þar síðan 1959 og ekkert bakslag þar. Vinnsla sé nokk- uð stöðug í frystihúsinu og 20 til 30 manns hafi vinnu þar. Jón Einar Marteinsson, forstjóri Fjarðarnets, staðfesti í gær að neta- gerðinni verður lokað um áramót. Ástæðan er samdráttur í sjávarút- vegi undanfarin ár og ekki séu næg verkefni lengur á Seyðisfirði til að halda verkstæðinu úti. Undanfarið hafi 3-5 menn unnið þar og þeim nú verið sagt upp. Ekki að neinu að hverfa eftir uppsögn Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Áhyggjufullir Þeir Rúnar, Guðjón, Ólafur og Alexander missa vinnuna. Seyðisfjörður | Tryggvi Harð- arson, fv. bæjarstjóri á Seyðisfirði, er að gefa út bók um lífshlaup Ey- þórs Þórissonar, veitingamanns á Kaffi Láru og eiganda verslunar- innar Óskar á Seyðisfirði. Bókin ber nafnið Engin miskunn – El Grillo karlinn og kom hún út í gær. „Eyþór hefur víða komið við og brennivínið fylgt honum eins og skugginn alla tíð. Samt hefur hann alltaf komið standandi niður og er í raun merkilegasti maður,“ segir Tryggvi. Eyþór hefur staðið í veitinga- rekstri frá unga aldri. Hann byrjaði í Hvalfirðinum í sjoppurekstri, opn- aði svo sjoppu við Geitháls og hafði þá fyrsta nætursöluleyfið á Íslandi og í Ferstiklu síðar. Eftir að sá rekstur fór í vitleysu hélt hann til Danmerkur, lagðist svo í siglingar og opnaði því næst verslun og glæsilegan veitingastað í Osló. Þegar allt fór í þrot kom hann til Íslands, fór í langa meðferð, var kokkur á skipi og fór að versla meðfram því. Hann stofnaði veit- ingastaðinn Caruso í Reykjavík með bróður sínum, seldi hann og keypti Hótel Snæfell á Seyðisfirði árið 1996. Hann seldi hótelið en á nú kaffihús og verslun á staðnum. Eyþór lét framleiða fyrir sig sér- staka bjórtegund undir nafninu El Grillo sem hefur náð nokkrum vin- sældum. Hann leitar nú kaupanda að versluninni Ósk, en ella stendur til að loka henni innan tíðar. Síðasta ballið hans Eyþórs „Hann er ótrúlega vel haldinn karlinn miðað við slarkið og er hinn sprækasti þótt hann taki stundum stutta fyllerístúra,“ segir Tryggvi, sem gefur bókina út sjálfur undir útgáfunafninu Brokkur og er að byrja að dreifa upplaginu, sem er 3.000 eintök. Á laugardag verður útgáfugildi á Kaffi Láru á Seyð- isfirði sem hefst kl. 15. Kl. 17 verð- ur opnuð bókasýning í Skaftfelli, rithöfundar lesa þar úr verkum sín- um, og um kvöldið heldur Eyþór ball í félagsheimilinu Herðubreið, sem hann segir síðasta ballið sem hann ætli að standa fyrir. Kápumynd/Brokkur Ný bók um El Grillo-karlinn KÁRAHNJÚKAVIRKJUN verður gangsett formlega í dag. Á vettvangi verða m.a. fjármálaráðherra, iðnað- arráðherra og fleiri gestir. Páll Magnússon, stjórnarformað- ur Landsvirkjunar, og Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra ávarpa gesti í Fljótsdalsstöð kl. 13.30. Þá lýsir Guðmundur Pétursson yf- irverkefnisstjóri mannvirkjum. Ráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Össur Skarphéðinsson ræsa síðan vélar nr. 5 og 6 og Árni Benediktsson verkefnisstjóri afhendir Georg Þór Pálssyni stöðvarstjóra ræsitölvu vél- anna. Athöfninni verður fram haldið í hlaðhúsi Fljótsdalsstöðvar, þjón- ustubyggingunni við munna að- komuganga stöðvarhússins. Þar flytja ávörp Friðrik Sophus- son, forstjóri Landsvirkjunar, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdalshrepps. Athöfninni lýkur síðdegis. Gangsetningarathöfn Kárahnjúkavirkjun formlega af stað Egilsstaðir | Tveir afmælisfagnaðir verða á Egilsstöðum í dag. Annar er hjá Svæðisútvarpinu á Austurlandi, sem heldur upp á starf- semi í 20 ár kl. 15-18 í húsakynnum sínum. Öllum velunnurum er boðið í heimsókn og geta menn kynnt sér starfsemina og útsending verður óvenjulöng í tilefni dagsins. Þá fagnar Bókasafn Héraðsbúa 50 ára starfsafmæli í Safnahúsinu á Eg- ilsstöðum milli kl. 14 og 19. Þangað eru gestir og gangandi boðnir vel- komnir. Fagna ára- tuga afmælum SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í , Skólavörðustíg 16 Borgartúni 24 - Hæðarsmára 6 Fjarðarkaupum Lífsinslind í Hagkaupum Heilsuhúsið Selfossi Kelp Fyrir húð, hár og neglur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.